Fréttir
Ákvörðun Kjaradóms verði endurskoðuð
30.12.2005
BSRB styður Mannréttindaskrifstofuna
22.12.2005
Kópavogur taki upp sjálfstæða launastefnu
21.12.2005
Samningurinn við borgina samþykktur með 94% greiddra atkvæða
16.12.2005
BSRB greiðir aðstöðu fyrir nemendur í rannsóknarnámi á sviði fötlunar hjá Sjónarhóli
15.12.2005

Fulltrúar Sjónarhóls,
Fyrirkomulag vaktavinnu kannað
15.12.2005
Aðventustund í Munaðarnesi
15.12.2005
BSRB vill að Ísland beiti sér fyrir nýjum samningsforsendum í Doha viðræðunum
14.12.2005
Tollvarðafélag Íslands 70 ára
13.12.2005

Tollvarðafélag Íslands varð 70 ára 8. desember sl. Í tilefni af því hélt félagið afmælisfagnað á Hótel Sögu laugardaginn 10. desember. Á annað hundrað manns sótti fagnaðinn. Á myndinni sést Ögmundur Jónasson formaður BSRB afhenda Herði Davíð Harðarsyni formanni TFÍ afmælisgjöf frá BSRB.
Sveitarfélög á Suðurnesjum standi utan við láglaunastefnu LN
12.12.2005
Fjölmennum í göngu og á útifund eldri borgara og öryrkja
9.12.2005
SLFÍ samþykkir kjarasamning við Reykjavíkurborg
8.12.2005
Hafnarfjarðarbær afturkalli samningsumboð Launanefndar sveitarfélaga
7.12.2005
FOSS skorar á sveitarstjórnir á Suðurlandi að endurskoða samningsumboð LN
7.12.2005
Stjórn og trúnaðarráðs Félags opinberra starfsmanna á Suðurlandi sem haldinn var í dag skorar á sveitar- og bæjarstjórnir á Suðurlandi að endurskoða það umboð sem þær hafa falið Launanefnd sveitarfélaga til samningsgerðar við félagið.
Sjúkraliðar semja við Launanefnd sveitarfélaga
6.12.2005
Alþjóðlegt ákall fyrir mannréttindum á vinnustöðum
6.12.2005

11 handhafar friðarverðlauna Nóbels hvöttu í gær þjóðir heims til að virða ákvæði mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna og viðurkenna að fullu og verja rétt launafólks til að stofna verkalýðsfélög og gera kjarasamninga. Meðal friðarverðlaunahafanna eru Jimmy Carter fyrrum forseti Bandaríkjanna, Desmond Tutu erkibiskup í Suður Afríku og Lech Walesa fyrrum forseti Póllands. Yfirskrift yfirlýsingarinnar er: Alþjóðlegt ákall fyrir mannréttindum á vinnustöðum.
Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar semur við borgina
5.12.2005
ASÍ skrifa upp á Vatn fyrir alla
5.12.2005
Lífsorka á tilboðsverði fyrir BSRB félaga
2.12.2005
Bókin Lífsorka eftir Þóri S. Guðbergsson er nú seld öllum félagsmönnum BSRB á einstöku tilboðsverði, kr. 1.000 auk sendingarkostnaðs, en hún er ófáanleg í bókabúðum landsins.Lífsorka Þóris fjallar um lífsstíl, heilsu, samskipti fólks og lífsgleði og bendir á leiðir til að rækta hug og hönd ekki hvað síst á efri árum. Hún fjallar einnig um réttindi fólks, hlutverk lífeyrissjóða, bætur almannatrygginga, ónæmiskerfi, áföll og sorg og gildi hreyfingar og næringar.
Óánægja í Evrópu með stefnuna í raforkumálum
2.12.2005
Vaxandi óánægja er á hinu Evrópska efnahags-svæði um stefnu Evrópusam-
bandsins í raforku-
málum. Frá því að marksvæðing geirans hófst fyrir um tíu árum hafa 300 þúsund manns misst vinnunan, verðlag hefur hækkað og þjónusta versnað. Í yfirlýsingu sem lesinn var upp á útifundi í Brussel í gær sem Evrópusamband launafólks í almannaþjónustu (EPSU) stóð að var sett fram krafa um að horfið yrði frá áformum um markaðsvæðingu og hverju ríki látið eftir að skipuleggja raforkugeirann að eigin ósk. Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, tók þátt í útifundinum, sem haldinn var í framhaldi af stjórnarfundi í EPSU.
Sjúkraliðar semja við Reykjavíkurborg
1.12.2005
EPSU mótmælir óbreyttri þjónustutilskipun
30.11.2005
Loftslagsbreytingar eru versta umhverfisógnin
29.11.2005
Þess vegna er BSRB á móti einkavæðingu á vatni
29.11.2005
Vaxandi þrýstingur á WTO að láta af kröfum um einakvæðingu
26.11.2005
LEB skrifar undir Vatn fyrir alla
26.11.2005
Landssamband eldri borgara samþykkti á stjórnarfundi í gær, fimmtudaginn 24. nóvember 2005, að gera undirskriftaraðili að yfirlýsingunni Vatn fyrir alla. Þar með hafa 13 samtök á landsvísu skrifað undir yfirlýsinguna.
Atkvæðagreiðsla um verkfall hjá sjúkraliðum
24.11.2005
Samkomulag um eingreiðslu til ríkisstarfsmanna innan BSRB
24.11.2005
Garðbæingar fella samning við Launanefnd
22.11.2005
BSRB tekur herbergi hjá Sjónarhóli í fóstur
21.11.2005
BSRB hefur tekið að sér að greiða leigu í eitt ár fyrir herbergi hjá Sjónarhóli sem ætlað er nemendum í háskólanámi á sviði fötlunar. Gengið var formlega frá þessu á aðalfundi BSRB föstudaginn 18. nóvember og mættu fulltrúar Sjónarhóls á fundinn til að innsigla þetta samkomulag. Þegar Ögmundur Jónasson formaður BSRB handsalaði samkomulagið við Þorgerði Ragnarsdóttur framkvæmdastjóra Sjónarhóls sagði hann ánægjuefni væri að taka þetta herbergi í fóstur.Starfslokanámskeið á höfuðborgarsvæðinu
21.11.2005
Vatn fyrir alla - breiðfylkingin stækkar!
16.11.2005
Samnorrænt verkefni skóla um vatn
16.11.2005
Fyrirlestur um afleiðingar einkvæðingar vatnsveitna
15.11.2005

David Hall, prófessor við háskólann í Greenwich í Englandi, heldur erindi um rannsóknir á afleiðingum einkavæðingar á vatnsveitum. Fyrirlesturinn verður kl. 09:00 til 10:30 að Hótel Loftleiðum föstudaginn 18. nóvember nk. David Hall er forstöðumaður deildar við háskólann í Greenwich sem hefur sérhæft sig í rannsóknum á mismunandi rekstrarformum innan almannaþjónustunnar.
Sturla vill hlutafélagavæða Flugmálastjórn
11.11.2005
Ingimundi Sigurpálssyni svarað
11.11.2005
Auglýsingaherferð vegna vatnsins
10.11.2005

Þau samtök sem stóðu að ráðstefnunni Vatn fyrir alla eru nú að undirbúa auglýsingaherferð til að fylgja eftir sameiginlegri yfirlýsingu samtakanna. Frá því að ráðstefnan var haldin hefur Ungmennafélag Íslands bæst í hóp þeirra samtaka sem undirritað hafa yfirlýsinguna og von er á að fleiri samtök geri það.
Sjúkraliðar semja við SFH
9.11.2005
Þenslan er á ábyrgð stjórnvalda og það er þeirra að bregðast við
9.11.2005

"Ég vara ríkisvaldið við því að horfa ekki til þess launaskriðs sem nú er að verða á markaði. Fólk er hætt að fást til mikilvægra starfa innan almannaþjónustunnar, svo sem í heilbrigðiskerfinu. Ef ekki er tekið mið af þessu í fjárveitingum til stofnanasamninga sem gerðir verða á samningstímabilinu mun illa fara, ekki einvörðungu fyrir starfsfólkinu heldur fyrir þeirri þjónustu sem á að veita. Og því mega stjórnvöld ekki gleyma að hætta sem steðjar að hinu niðurnjörvaða opinbera vinnuumhverfi er mikil núna vegna þenslu í þjóðfélaginu og samkeppni um vinnuafl. Þenslan er á ábyrgð stjórnvalda og það er þeirra að bregðast við," sagði Ögmundur Jónasson formaður BSRB m.a. á morgunverðarráðstefnu Félags forstöðumanna ríkisstofnana ásamt Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við HÍ í morgun. Yfirskrift ráðstefnunnar var Hlutverk stéttarfélaga í ljósi aukins sjálfstæðis ríkisstofnana. Er þörf á endurskoðun starfsmannalaga?
Hlutverk stéttarfélaga í ljósi aukins sjálfstæðis ríkisstofnana
8.11.2005
Formaður BSRB tekur upp hanskann fyrir Vinnumálastofnun
3.11.2005
MFÍK og Þjóðkirkjan aðilar að Vatn fyrir alla!
3.11.2005
Fjölmenn og fjölbreytt ráðstefna um vatn
31.10.2005

Á annað hundrað manns sóttu ráðstefnuna Vatn fyrir alla sem haldin var á Grand Hótel sl. laugardag. Ráðstefnan var mjög vel heppnuð. Fjölbreytt erindi sem fjölluðu um ýmsar hliðar viðfangsefnisins voru flutt og að lokum sátu fulltrúar stjórnmálaflokkanna fyrir svörum um afstöðu sinna flokka til yfirlýsingar ráðstefnunnar sem sjö félagasamtök stóðu að.
Kjaradeilu sjúkraliða við LN vísað til sátta
26.10.2005
Samningurinn samþykktur í Kópavogi
26.10.2005
Samið í Kópavogi
19.10.2005
Dönskunámskeið 24. október
18.10.2005
Dönskunámskeið hefst mánudaginn 24. október á vegum tungumálafræðslu BSRB. Námskeiðið er haldið af Framvegis símenntunarmiðstöð. Námskeiðið er fyrir fólk sem hefur nokkra undirstöðukunnáttu í dönsku en vill treysta grunninn og byggja ofan á hann.
Samningur StAk og LN samþykktur
13.10.2005
Atkvæðagreiðsla um kjarasamning milli Starfsmannafélags Akraness og Launanefndar sveitarfélaga sem undirritaður var s.l. laugardag fór fram 11. og 12. október. Samningurinn var samþykktur með 51% atkvæða og yfirvofandi verkfalli því aflýst.
Kjaradeila sjúkraliða til ríkissáttasemjara
11.10.2005
Sjúkraliðar álykta
10.10.2005
Föstudaginn 7. október var haldinn fjölmennur félagsfundur sjúkraliða sem starfa á stofnunum sem tilheyra Samtökum fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu. Þar var eftirfarandi ályktun samþykkt:
Nýr samningur undirritaður á Akranesi
10.10.2005
Stefnir í verkfall á Akranesi
6.10.2005
Kjarasamningur Starfsmannafélags Akraness við Launanefnd sveitarfélaga vegna starfsmanna Akranessbæjar var kolfelldur í atkvæðagreiðslu sem lauk í gær. 75% þeirra sem greiddu atkvæði sögðu nei. Félagið hafði frestað áður boðuðu verkfalli til 9. október og stefnir því í að verkfall skelli á nk. sunnudag.
Samningur felldur í Kópavogi
30.9.2005
Kjarasamningur SFR og SFH samþykktur
29.9.2005
Raunhæfar aðgerðir í jafnréttismálum
29.9.2005
Kvenréttindafélag Íslands hélt málþing 29. september þar sem misjöfn staða kynjanna í atvinnulífinu var til umræðu. Í fyrsta sinn í sögu KRFÍ voru allir frummælendur karlkyns.
Skagamenn skrifa undir kjarasamning og fresta verkfalli
27.9.2005
Dönskunám fyrir forystu BSRB
21.9.2005
Starfsmannafélag Kópavogs semur við Launanefnd sveitarfélaga
21.9.2005
Afsláttur fyrir BSRB félaga á Kabarett
21.9.2005
Leikhópurinn Á senunni býður félögum í BSRB 10% afslátt á miðaverði á sýninguna Kabarett í Íslensku óperunni dagana 1., 8., 15. eða 22. október. Almennt miðaverð er 3900 eða 5900 krónur. Einnig býðst hópurinn til að semja við Café Sólon um veitingar fyrir hópa fyrir sýningu og í hléi á vægu verði. Kabarett er sjöunda verkefni hópsins og hefur verið á teikniborðinu í nokkur ár. Eiginlegur undirbúningur hefur staðið frá síðasta sumri. Verkið fjallar um Berlín á uppgangstíma nasistanna í byrjun fjórða áratugar síðustu aldar. Bandaríkjamaðurinn Cliff Bradshaw kemur til Berlínar með það í huga að skrifa skáldsögu. Þar dregst hann fljótt inn í hringiðu, þar sem samfélagið sveiflast á milli öfganna. Annars vegar er partýið og brjálæðið í Kit Kat klúbbnum og hinsvegar eru það stjórnmálin, þar sem nasistar verða sífellt sterkari. Hann kynnist söngkonunni Sally Bowles og hún snýr tilveru hans á hvolf. Sofandi streymir veröldin að feigðarósi og Kabarettinn speglar það sem á gengur.Starfsmannafélag Suðurnesja samþykkti kjarasamning við LN
20.9.2005
Opinber eða einkarekin heilbrigðisþjónusta
16.9.2005
BSRB hefur gefið út bæklinginn "Opinber eða einkarekin heilbrigðisþjónusta" eftir sænska prófessorinn Göran Dahlgren. Bæklingurinn byggir á erindi sem Göran Dahlgren hélt á vegum BSRB en er yfirfarið af honum og aðlagað að prentun. Bæklinginn er hægt að fá ókeypis á skrifstofu BSRB, Grettisgötu 89, eða panta hann í rölvupósti á netfanginu safi@bsrb.is Göran Dahlgren hefur síðan á níunda áratugnum verið áhrifamaður á alþjóðavettvangi á sviði heilbrigðis, – heilsugæslu, – og lýðheilsumála. Bók hans „Hjúkrunarmarkaður framtíðarinnar – hverjir vinna og hverjir tapa?“ sem kom út 1994 vakti mikla athygli, en þar dregur hann upp mynd af samspili heilbrigðiskerfisins og markaðarins. Honum hlotnuðust Norrænu lýðheilsuverðlaunin árið 2003 en í úrskurði dómnefndar sagði að framlag hans hefði brotið blað á sviði jafnréttismála, aðferðafræði, stefnumótunar og skoðanamyndunar í nútíma lýðheilsustarfi. fyrirlestur á málþingi BSRB sem haldið var miðvikudaginn 5. maí 2004 á Hótel Loftleiðum. Fyrirlestur hans fjallaði um heilbrigðisþjónustuna, reynslu af kerfisbreytingum og framtíðarsýn. Málþingið var öllum opið og sóttu hátt í hundrað manns fyrirlesturinn. Göran svaraði síðan fyrirspurnum að loknum fyrirlestri.
Afturvirkar launahækkanir vegna starfsmats og áhrif þeirra á greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði
15.9.2005
BSRB hefur undanfarið fengið fyrirspurnir varðandi rétt starfsmanna til að fá afturvirka leiðréttingu úr Fæðingarorlofssjóði vegna greiðslna úr starfsmati. M.ö.o hvort að útreikningur sem notaður var til grundvallar þegar starfsmaður fór í fæðingarorlof verði leiðréttur til hækkunar vegna starfsmatsins, þrátt fyrir að viðkomandi starfsmaður hafi verið búinn í fæðingarorlofi þegar leiðrétting á launum kom til framkvæmda.
Fatapeningar ekki enn verið greiddir
14.9.2005
Kjörin í landinu verði jöfnuð
13.9.2005
Starfsmannafélag Suðurnesja semur við Launanefnd sveitarfélaga
12.9.2005

Frá undirritun samningsins.
Nýr kjarasamningur Launanefndar sveitarfélaga og Starfsmannafélags Suðurnesja var undirritaður föstudaginn 9. september. Samningurinn gildir til 30. nóvember 2008 og nær til um 450 starfsmanna sveitarfélaga og stofnana á Suðurnesjum. Við lok samningstímans verður kostnaðarauki sveitarfélaganna um 22% sem er sambærilegt við aðra samninga á opinberum vinnumarkaði.
BSRB og hvíta bandið
12.9.2005
"Nú hefur BSRB látið útbúa hvít armbönd með áletruninni; Brúum bilið – Öflug almannaþjónusta er undirstaða velferðar – BSRB. Armbandið kostar ekki neitt, en með því að ganga með það sýna menn átakinu stuðning. Hefur alheimsherferðin gegn fátækt tekið upp kröfuna um öfluga almannaþjónustu, sem lykilþátt í að berjast gegn fátækt og fyrir velferð," segir m.a. í grein eftir Ögmund Jónasson formann BSRB sem birtist í Morgunblaðinu 10. septeber og er nú að finna á heimasíðu Ögmundar.
Hvíta bandið tákn um samstöðu
9.9.2005

BSRB hefur látið útbúa hvítt armband með áletruninni: Brúum bilið - Öflug almannaþjónusta er undirstaða velferðar - BSRB. Fjöldi aðila um allan heim, verkalýðshreyfingin, félagasamtök og einstaklingar, hafa tekið höndum saman á þessu ári til að berjast gegn fátækt í heiminum, undir heitinu Global Call to Action against Poverty, sem við höfum kallað á íslensku Brúum bilið. BSRB hefur tekið virkan þátt í þessu átaki og er hvíta armbandið liður í þessari baráttu. Armbandinu er dreift ókeypis og er hægt að nálgast það á skrifstofu bandalagsins Grettisgötu 89.
SFR og SFH semja
8.9.2005
Stefnir í verkfall á Skaganum
8.9.2005
Tungumálanám BSRB á landsvísu
7.9.2005
Kosning um verkfall á Skaganum í dag og á morgun
7.9.2005
SFR óttast að slitni upp úr viðræðum við SFH
7.9.2005
Tungumálanámskeið BSRB að hefjast
5.9.2005
SFR greiðir atkvæði um verkfall hjá SFH
5.9.2005
Starfsmannafélag Akraness greiðir atkvæði um verkfall
1.9.2005
SFR samþykkir atkvæðagreiðslu um verkfallsboðun hjá SFH
1.9.2005
Anna sigraði á móti við Glanna
26.8.2005

Anna Ólafsdóttir tekur við viðurkenningarskjali fyrir sigurinn
Forskot var tekið á sæluna á golfvellinum við Glanna í Borgarfirði í gær fimmtudaginn 25. ágúst með óformlegu móti sem 20 manns tóku þátt í. Golfvöllurinn við Glanna er 9 holu völlur og verður formlega opnaður næsta vor í Borgarfirði. Völlurinn hefur fengið nafnið Glanni og er staðsettur milli þjóðvegar og Norðurár, við fossinn Glanna. Aðkoman er rétt sunnan Viðskiptaháskólans að Bifröst. Sigurvegari á mótinu í gær var Anna Ólafsdóttir sem er fyrrum stjórnarmaður í BSRB og stjórnarformaður Starfsmannafélags Borgarbyggðar áður en félagið sameinaðist öðrum félögum í Kili.
Kjölur semur við Norðurorku hf
26.8.2005
Kjölur, stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu, hefur samið við Samtök atvinnulífsins vegna starfsmanna Norðurorku hf. Samningurinn er á svipuðum nótum og aðrir samningar á almenna vinnumarkaðinum en með samningnum er jafnframt tryggt að félagsmenn Kjalar halda öllum réttindum sem þeir höfðu sem opinberir starfsmenn áður en Norðurorka var einkavædd.
Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar með lausa samninga í haust
25.8.2005
Nýr formaður Landssambands lögreglumanna
25.8.2005
Evrópfræðasetur á Bifröst
25.8.2005
Sjúkraliðar samþykkja kjarasamning
21.7.2005
Starfsmannafélag Kópavogs fellir kjarasamning við LN
21.7.2005
Starfsmannafélag Suðurnesja íhugar verkfall
6.7.2005
Ný heimasíða LSOS
6.7.2005
Samið í Kópavogi
6.7.2005
Starfsmannafélag Kópavogs undirritaði nýjan kjarasamning við Launanefnd sveitarfélaga 1. júlí sl. Samningurinn er sá sami og samflotsfélögin undirrituðu, en með viðbótarsamkomulagi sem gert var við bæjaryfirvöld í Kópavogi. Samningurinn verður borinn undir atkvæði félagsmanna síðar í mánuðinum.
Brúum bilið – byggjum almannaþjónustuna!
1.7.2005

Davíð Odsson utanríkisráðherra tekur við hvíta bandinu af formanni og varaformönnum BSRB.
Davíð Oddsson utanríkisráðherra tók í dag við ályktun stjórnar BSRB þar sem stjórnvöld og almenningur eru hvattur til að taka virkan þátt í að brúa þá gjá sem er á milli ríkra og snauðra. Það voru Ögmundur Jónasson formaður BSRB, Sjöfn Ingólfsdóttir og Jens Andrésson varaformenn bandalagsins sem afhentu utanríkisráðherra ályktunina. Einnig var honum afhent hvítabandið sem verkalýðshreyfingin um allan heim setur upp í dag en á það er letrað: "bridge the powerty gaps" eða brúum fátæktarbilið.
Útkall á alheimsvísu: Aðgerðir gegn fáttækt
1.7.2005
Alþjóðasamtök starfsmanna í almannaþjónustu, Public Services International , PSI, sem BSRB er aðili að, og Alþjóðasamband frjálsra verkalýðsfélaga, ICFTU, eru hluti af gríðarstórri og öflugri hreyfingu um allan heim gegn fáttækt Global Call to Action Against Poverty. Að þeirri hreyfingu standa mörg hundruð frjálsra félagasamtaka og verkalýðsfélaga, en hreyfingin nýtir lykilatburði á alþjóðavettvangi, eins og t.d. fund G8- ríkjanna núna, til að draga athygli heimsins að nauðsyn þess að útrýma fátækt og ná settum Þúsaldamarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, með meiri og betri þróunarhjálp, afnámi skulda og sanngjörnum viðskiptum.
Sjúkraliðar semja
1.7.2005
Vernharður einarður gegn einkarekstri slökkviliðsins
1.7.2005

Vernharður Guðnason, formaður LSS, Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, tekur einarða afstöðu gegn hugmyndum um einkavæðingu slökkviliða, en fyrirtækið InPro ehf. leitaði sl. vetur víða hófanna með að vinna þeirri hugmynd brautargengi. Taldi fyrirtækið sig geta boðið þessa þjónustu á betri og hagkvæmari hátt en slökkvilið sveitarfélaganna hafa getað hingað til. Í nýjasta hefti Slökkviliðsmannsins kveður Vernharður skýrt að orði og segir einkarekstur ekki eiga heima í þeirri grunn- og neyðarþjónustu sem þjónusta slökkviliða er.
Lítil hús laus í Munaðarnesi
29.6.2005

Nú eru laus lítil hús í Munaðarnesi. Húsin eru með svefnpláss fyrir tvo til þrjá. Heitir pottar eru við húsin. Vikuleigan er 13 þúsund krónur fyrir félagsmenn. Nánari upplýsingar á skrifstofu BSRB í síma 525 8300.
Tollverðir samþykkja kjarasamning
29.6.2005
Ráðstefna Norrænna ríkisstarfsmanna á Akureyri
28.6.2005
Kröftugur og fjölmennur fundur
24.6.2005

Fjölmenni var á fundi BSRB í gær og hlýddi þar á kraftmikið erindi Hans Engelberts framkvæmdastjóra PSI þar sem hann ræddi helstu baráttumál Alþjóðasamtaka starfsfólks í almannaþjónustu og hvernig baráttan fyrir bættri almannaþjónustu tengist baráttunni gegn fátækt, fyrir réttinum til að vera í verkalýðsfélagi og fyrir jafnrétti í heiminum.
Samningur samþykktur í Hafnarfirði
23.6.2005
Formaður BSRB gagnrýnir Ríkisendurskoðun harðlega
23.6.2005
FOSS samþykkir kjarasamning við Launanefnd sveitarfélaga
22.6.2005
Framtíðarsýn á almannaþjónustuna
21.6.2005
Hans Engelberts framkvæmdastjóri PSI, Alþjóðasamtaka starfsmanna í almannaþjónustu, heldur fyrirlestur á vegum BSRB í BSRB húsinu, Grettisgötu 89, fimmtudaginn 23. júní kl. 9.30 árdegis. Í fyrirlestrinum mun Hans Engelberts fjalla um framtíðarsýn PSI á þróun almannaþjónustunnar í ljósi alþjóðavæðingar og markaðsvæðingar. Fyrirlesturinn er öllum opinn og er hann einStarfsmannafélag Hafnarfjarðar semur við Launanefnd sveitarfélaga
20.6.2005
Starfsmannafélag Hafnarfjarðar og launanefnd sveitarfélaga náðu samkomulagi um nýjan kjarasamning 17. júní sl. Samningurinn og bókanir eru á sömu nótum og samningur sá er gerður var við Samflot bæjarstarfsmanna í lok maí. Almenn kynning á samningnum verður fyrir félagsmenn STH í Álfafelli Íþróttahúsinu við Strandgötu n.k. þriðjudag kl 12:00.
Laus hús í Munaðarnesi og á Eiðum
15.6.2005

Veðurblíðunar notið í Munaðarnesi.
Nokkur orlofshús eru laus í Munaðarnesi og á Eiðum vikuna 17. - 24. júní. Hægt er að panta húsin með því að hafa samband við skrifstofu BSRB í síma 525 8300. Fyrstur kemur fyrstur fær.
Kjölur samþykkir kjarasamning við LN
14.6.2005
Starfsmenn sveitarfélaga í Kili, stéttarfélagi starfsmanna í almannaþjónustu, hafa samþykkt kjarasamning við Launanefnd sveitarfélaga með 69% greiddra atkvæða Alls tóku 62% félagsmenn þátt í atkvæðagreiðslunni. Á kjörskrá voru 537 þar af kusu 332, já sögðu 230 eða 69% nei sögðu 75 eða 23% auðir og ógildir seðlar 27 eða 8%.
Húsvíkingar samþykkja kjarasamning við LN
14.6.2005
Velheppnuð Menningarhátíð
13.6.2005

Ögmundur Jónasson, Anna Hrefnudóttir og Þorsteinn frá Hamri við eitt verka Önnu.
Menningarhátíð BSRB var haldin í Munaðarnesi sl. laugardag. Fjölmenni var á hátíðinni enda skartaði Borgarfjörður sínu fegursta í glampandi sól og hita. Góður rómur var gerður að söng Skagfirsku söngsveitarinnar og upplestri Þorsteins frá Hamri á ljóðum sínum. Síðan var opnuð sýning á verkum Önnu Hrefnudóttur. Í sýningarskrá segir að þetta sé hluti af flokki mynda sem myndlistarkonan er að vinna að og nefnist hann Stefnumót.
Drykkjarvatn teljist til mannréttinda og eignarhald þess sé samfélagslegt
13.6.2005
Páll H. Hannesson alþjóðafulltrúi BSRB kynnti tillögu BSRB um breytingu á stjórnarskrá Íslands á málþingi sesm haldið var sl. laugardag á vegum stjórnarskrárnefndar. Stjórn BSRB hefur lagt þá tillögu fyrir stjórnarskrárnefnd að aðgangur að drykkjarvatni teljist mannréttindi og að eignarhald á vatni skuli jafnan vera samfélagslegt og skuli það bundið í stjórnarskrá lýðveldisins. BSRB skírskotar beint til samþykktar Sameinuðu þjóðanna frá árinu 2002 og er Ísland aðili að henni. Samkvæmt henni telst aðgangur að vatni til grundvallarmannréttinda. Sérhver maður skal þess vegna eiga rétt á og vera tryggður nægilegur og öruggur aðgangur að hreinu drykkjarvatni á viðráðanlegu verði, auk vatns til hreinlætis og heimilishalds. Fara skal með vatn sem félagsleg og menningarleg gæði, en ekki skal litið á vatn sem hverja aðra verslunarvöru. Þess skal gætt að framkvæmd sé sjálfbær og þannig tryggt að réttindin megi raungera fyrir kynslóðir nútíðar sem og framtíðarinnar. Það er skylda stjórnvalda að tryggja þegnum sínum þennan rétt án mismununar. Það er því ljóst að íslensk stjórnvöld hafa hér tekið sér skyldur á herðar.
Lögreglan samþykkir kjarasamninga
10.6.2005
Landssamband lögreglumanna samþykkti kjarasamning sambandsins við fjármálaráðherra með 64% greiddra atkvæða gegn tæpu 31% greiddra atkvæða. Auðir seðlar og og ógildir voru rúm 5%. Þátttaka í atkvæðagreiðslunni var rúm 60%.Talningu atkvæða lauk á hádegi í dag en samningurinn var undirritaður 30. apríl sl.
Sigur í biðlaunamáli
7.6.2005
Tollverðir semja
7.6.2005
Tollvarðafélag Íslands undirritaði nýjan kjarasamning í gærkvöldi. Er hann á svipuðum nótum og hjá öðrum sem völdu BHM leiðina. Gildistími hans er til 31. október 2008.
Menningarhátíð BSRB í Munaðarnesi 11. júní
1.6.2005

Ljáðu mér eyra.
Árleg Menningarhátíð
Laust um helgina í Munaðarnesi
1.6.2005
Nokkur hús eru laus nú um helgina í Munaðarnesi. Þar er allur gróður að spretta út og sumarið gengið í garð. Heitir pottar eru við öll húsin og stutt í margar af helstu náttúruperlum Íslands. Hægt er að leigja húsin með því að hafa samband við skrifstofu BSRB í síma 525 8300. Skrifstofan mun einnig leigja út hús í sumar sem losna og hvetjum við fólk til að kanna það.Vatn, einkavæðing og mannréttindi
1.6.2005
Vatn, einkavæðing og mannréttindi var yfirskrift fyrirlesturs sem Páll H. Hannesson alþjóðafulltrúi BSRB hélt á vegum Snarrótar í gær 31. maí. Í fyrirlestrinum rakti Páll reynslu annarra þjóða af einkavæðingu vatnsveitna og baráttu alþjóðahreyfingar verkafólks fyrir því að vatn verði samþykkt sem sjálfsögð mannréttindi. Hann greindi frá erindi BSRB til stjórnarskrárnefndar um að í endurskoðaðri stjórnarskrá yrði ákvæði um að líta beri á drykkjarvatn sem mannréttindi en ekki sem verslunarvöru.
Samið við LN en þrjú félög slitu viðræðum
30.5.2005
Kjölur og flest starfsmannafélögin í Samflotinu skrifuðu undir nýjan kjarasamning við Launanefnd sveitarfélaga á miðnætti í gær. Starfsmannafélög Hafnarfjarðar, Kópavogs og Akraness slitu hins vegar viðræðum við Launanefndina á laugardeginum. Samningurinn sem undirritaður var felur í sér sambærilegan kaupmátt og aðrir kjarasamningar sem hafa verið gerðir á þessu vori. Gildistími er 1. apríl 2005 til 30. nóvember 2008 og tekur við af eldri samningum sem runnu út 31. mars sl.
NFS heimsækir Kárahnjúka
30.5.2005

Grétar Þorsteinsson forseti ASÍ, Oddur Friðriksson yfirtrúnaðarmaður á Kárahnjúkum og Ögmundur Jónasson formaður BSRB.
NFS, Norræna verkalýðssambandið, hélt stjórnarfund á Íslandi í síðustu viku. Í tengslum við fundinn var farið í heimsókn að Kárahnjúkum og framkvæmdirnar þar skoðaðar. Leiðsögumaður í ferðinni var Oddur Friðriksson yfirtrúnaðarmaður á svæðinu, en mikið hefur mætt á honum frá upphafi framkvæmdanna.
Kjarasamningur SFR og Styrktarfélags vangefinna samþykktur
26.5.2005
Samþætting vs. Einangrun
25.5.2005
SFR semur við Styrktarfélag vangefinna
23.5.2005
Stýrihópur ungra SFR félaga
17.5.2005
SLFÍ stendur fast á kröfum sínum
17.5.2005
BSRB lýsir andstöðu við frumvarp um Ríkisútvarpið
3.5.2005
BSRB lætur sig varða almannahag
3.5.2005
Björn Ingi Hrafnsson ritar grein á heimasíðu sína sl. laugardag þar sem hann gefur í skyn að stjórn BSRB sé einhvers konar framlenging á flokki Vinstri grænna. Tekur hann þar tvö málefni sem dæmi, annars vegar ályktun BSRB um fjárveitingu til Mannréttindaskrifstofu Íslands og hins vegar tillögu um að kveðið verði á um samfélagslegt eignarhald á vatni í stjórnarskrá Íslands.
Landssamband lögreglumanna semur við ríkið
2.5.2005
1. maí ávörp Ögmundar Jónassonar formanns BSRB
1.5.2005
Ögmundur Jónasson formaður Einn réttur – ekkert svindl
1.5.2005
1. maí ávarp fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna í Reykjavík, BSRB, BHM, KÍ og INSÍ:
Stéttarfélög hafa sjaldan haft mikilvægara hlutverki að gegna en í dag né hafa verkefni þeirra verið umfangsmeiri. Ef litið er til þeirra þjóðfélagslegu breytinga sem átt hafa sér stað á síðustu árum, þá verður þetta vaxandi hlutverk stéttarfélaga ljóst: Alheimsvæðingin, aukin markaðsvæðing, samfara stórefldum styrk fjármagnseigenda þar sem valdið hleðst sífellt á færri hendur um leið og það teygir sig út fyrir mörk og íhlutunarrétt þjóðríkja. Ísland er hluti af þessu alþjóðlega og samtvinnaða viðskiptaneti. Vaxandi áhrif auðhringa og stórfyrirtækja, sem styðjast við markaðssinnaða stjórnmálamenn sækja að réttindum og kjörum launafólks um allan heim. Landið okkar er hluti af smækkandi heimsmynd þar sem verkalýðshreyfingin þarf að verja af fullum þunga þau réttindi og kjör sem við höfum náð með baráttu á síðustu öld, segir í byrjun 1. maí ávarps fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna í Reykjavík, BSRB, BHM, KÍ og INSÍ.
BSRB leggur til að kveðið verði á um samfélagslegt eignarhald á vatni í stjórnarskrá Íslands
30.4.2005
Einn réttur - ekkert svindl
29.4.2005
BSRB hvetur félagsmenn sína til að fjölmenna í 1. maí göngur og á fundi um allt land. Í Reykjavík verður safnast saman á Skólavörðuholti framan við Hallgrímskirkju kl. 13.00. Gangan leggur af stað kl. 13.30. Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur fara fyrir göngunni. Gengið niður Njarðargötu, Sóleyjargötu, Fríkirkjuveg, vestur Vonarstræti, norður Suðurgötu og Aðalstræti inn á Ingólfstorg. Útifundur á Ingólfstorgi hefst kl. 14.10 og er Ögmundur Jónasson formaður BSRB meðal þeirra sem ávarpa fundinn. Fundartími áætlaður 45 mín. Að loknum útifundi býður Ályktun um fjárveitingu til Mannréttindaskrifstofu Íslands
28.4.2005
Ný stjórn Starfsmannafélags Ríkisútvarpsins
28.4.2005
Starfsmenn Flugstöðvarinnar samþykkja kjarasamning
28.4.2005
Nýr kjarasamningur starfsmanna hjá Flugstöð Leifs Eiríkssonar, sem greidd hafa verið atkvæði um síðustu daga, hefur verið samþykktur af félagsmönnum SFR, en starfsmenn felldu kjarasamning í mars sl.
Nýr formaður í Starfsmannafélagi Mosfellsbæjar
28.4.2005
Síðasta tækifæri til að innleiða breytingu á vinnutímatilskipuninni
22.4.2005
Félag starfsmanna stjórnarráðsins með heimasíðu
22.4.2005
Félag starfsmanna stjórnarráðsins hefur tekið í notkun heimasíðu. Slóðin á síðuna er: www.fss.bsrb.is
Varað við breytingum á lífeyriskerfinu
22.4.2005
"Nánast án nokkurrar umræðu í verkalýðshreyfingunni virðast örfáir einstaklingar ætla að knýja í gegn grundvallarbreytingar á lífeyriskerfinu. Til stendur að tengja verðmæti iðgjalda aldri greiðandans þannig að iðgjöld sem greidd eru á unga aldri eru verðmætari en iðgjöld sem við greiðum þegar aldurinn færist yfir. Rökin eru þau að sjóðurinn hafi peningana lengur til ávöxtunar. En hvað þýðir þetta t.d. fyrir konur sem eru fjarri vinnumarkaði á fyrstu árum starfsævinnar vegna barneigna og hvað með langskólagengið fólk sem kemur seint inn á vinnumarkað?" segir Ögmundur Jónasson í grein á heimasíðu sinni.
Starfsmenn stjórnarráðsins og Austfirðingar samþykkja samning við ríkið
19.4.2005
Nýr samningur við starfsmenn Flugstöðvarinnar og Fríhafnarinnar
15.4.2005
Alvarlegar athugasemdir við vinnubrögð við breytingar á lífeyriskerfinu
15.4.2005
FOSVest semur við Orkubú Vestfjarða
14.4.2005
Kjaradeilu SFR og Hjartaverndar vísað til Sátta
13.4.2005
Garðbæingar samþykkja samninginn við ríkið
13.4.2005
Atvinnulýðræði er til góðs
12.4.2005
"Í kjarasamningum í byrjun níunda áratugar síðustu aldar var samið um að efla atvinnulýðræði í opinberum stofnunum. Því miður var ákvæðum þessara samninga sem BSRB gerði við Ragnar Arnalds þáverandi fjármálaráðherra, ekki alls staðar fylgt eftir. Það var þó gert í Ríkisútvarpinu," segir Ögmundur Jónasson formaður BSRB m.a. í grein á heimasíðu sinni þar sem hann fjallar um frumvarp ríkisstjórnarinnar um Ríkisútvarpið og nefnir RÍKISSTJÓRNIN Á MÓTI ATVINNULÝÐRÆÐI!
Borgarstjóri á fundi hjá fulltrúaráði Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar
12.4.2005
Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri mætti á fulltrúaráðsfund hjá Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar fimmtudaginn 7. apríl til að kynna stjórnkerfisbreytingar hjá borginni. Auk hennar fluttir Helga Jónsdóttir og Birgir Björn Sigurjónsson framsöguerindi á fundinum en samþykktar hafa verið tillögur Stjórnkerfisnefndar sem miða að því að einfalda stjórnkerfið með samsvörun nefnda og stjórnsýslunnar, skýra ábyrgðarsvið, hraða málsmeðferðum og auka skilvirkni. Gera stöðu borgarstjórnar skýrari og borgarstjórnarfundi markvissari, auka á lýðræðisleg vinnubrögð og samráð til að stuðla að jafnræði og gagnsæi í borgarkerfinu. Félag flugmálastarfsmanna ríkisins samþykkir samninginn við ríkið
11.4.2005
Félag flugmálastarfsmanna ríkisins hefur samþykkt kjarasamning við ríkið með rúmum 80% greiddra atkvæða. Á kjörskrá voru 145, 115 greiddu atkvæði um samninginn eða 79,3%. Já sögðu 94 eða 82%, nei sögðu 16 eða 14%. Auðir og ógildir voru 5 eða 4%.
Húsvíkingar felldu samninginn við ríkið
11.4.2005
Starfsmannafélags Húsavíkur felldi kjarasamninginn við ríkið í almennri atkvæðagreiðslu. 8 sögðu nei, 3 sögðu já og 2 seðlar voru auðir.
Málþing um áfengis- og vímuvarnir á vinnustöðum
8.4.2005
Kjölur samþykkir samninga við ríkið
8.4.2005
Samningur Starfsmannafélags Akraness við ríkið felldur
7.4.2005
Starfsmannafélag Hafnarfjarðar samþykkir samning við ríkið
6.4.2005
Starfsmannafélag Garðabæjar semur við ríkið
6.4.2005
Starfsmannafélag Suðurnesja samþykkir kjarasamning við ríkið
5.4.2005
Starfsmannafélag Reykjavíkur samþykkir samninginn við ríkið
5.4.2005
FOSVest samþykkir samninginn við ríkið
4.4.2005
SFR samþykkir kjarasamning við ríkið
2.4.2005
Ekkert að óttast - bara drífa sig
1.4.2005
Stjórnkerfisbreytingar í Reykjavík kynntar Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar
31.3.2005
Starfsmannafélag Suðurnesja semur við ríkið
31.3.2005
Óeðlileg skattlagning einkennisfatnaðar
31.3.2005
FOSS samþykkir samninginn við ríkið
29.3.2005
Félag opinberra starfsmanna á Suðurlandi hefur samþykkt kjarasamning Samflostins við launanefnd ríkisins. 89% sögðu já, 3,5% nei og 7% voru auðir.
Hlutverk stéttarfélaga í dag
21.3.2005
Enn nokkur sæti laus í tungumálafræðslunni
21.3.2005
Félag flugmálastarfsmanna ríkisins semur
19.3.2005
Póstmenn samþykkja kjarasamning
18.3.2005
Félagsmenn í Póstmannafélagi Íslands hafa samþykkt nýgerðan kjarasamning PFÍ við Íslandspóst . Á kjörskrá voru 1072, atkvæði greiddu 638 eða 59,5%. Já sögðu 368 eða 57.7%. Nei sögðu 255 eða 40%. Auðir seðlar og ógildir voru 15 eða 2.3%.
Ný heimasíða Félagsmálaskóla alþýðu
18.3.2005
Félagsmálaskóli alþýðu hefur opnað nýja heimasíðu. Slóðin á heimasíðuna er www.felagsmalaskoli.is Félagsmálaskóli alþýðu er starfræktur af Alþýðusambandi Íslands og BSRB. MFA, Menningar- og fræðslusamband alþýðu, fer með rekstur og málefni skólans. Hlutverk hans er að auka þekkingu talsmanna stéttarfélaga og efla þá í starfi til þess að þeir séu betur í stakk búnir að vinna að bættum lífskjörum launafólks.
Starfsmenn Fríhafnar og FLE felldu kjarasamning
18.3.2005
Starfsmenn Fríhafnarinnar og Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar felldu kjarasamning sem nýlega var gerður. Á kjörskrá voru 113 starfsmenn. 96 greiddu atkvæði, eða 85%. Já sögðu 33, eða 34,4%. Nei sögðu 59, eða 61,5%. Auðir og ógildir seðlar voru 4, eða 4,2%.
Samflotið semur við ríkið
18.3.2005
Starfsmannafélag Ríkisútvarpsins samþykkir kjarasamning við ríkið
18.3.2005
Útvarpsstjóri endurskoði ráðningu fréttastjóra fréttastofu Útvarps
18.3.2005
Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar samdi við ríkið
16.3.2005
Starfsmenn stjórnarráðs og RÚV hafa samið við ríkið
14.3.2005
Kjölur semur við ríkið
12.3.2005
Betri heimur er raunverulegur valkostur
10.3.2005
"Jafnréttisbarátta og barátta fyrir bættum kjörum kvenna er hluti af baráttunni fyrir betri heimi. Því viljum við sem teljum að betri heimur sé raunverulegur valkostur nota 8.mars Alþjólegan baráttudag kvenna fyrir friði og jafnrétti til að horfa gagnrýnum augum á samfélagið. Það er mikilvægt að sameina alla þá sem ekki sætta sig við skiptingu heimsins í austur og vestur, norður og suður, kristinn heim eða islam, ríkan heim eða fátækan," segir m.a. í ályktun frá opnum fundi á alþjóðlegum baráttudegi kvenna fyrir friði og jafnrétti 8. mars.
SFR og ríkið undirrita kjarasamning
10.3.2005
Starfsmenn RÚV skora á útvarpsstjóra að endurskoða ráðningu fréttastjóra
10.3.2005
Fagleg sjónarmið ráði við ráðningu nýs fréttastjóra
9.3.2005
Starfsmannasamtök Ríkisútvarpsins sendi í gær frá sér erindi til Útvarpsstjóra að hann láti fagleg sjónarmið ráða við ráðningu nýs fréttastjóra á Fréttastofu RÚV. Starfsmannafélag RÚV er aðili að Starfsmannasamtökunum.
SFR semur við ríkið
5.3.2005
SFR gekk frá nýjum kjarasamningi við fjármálaráðuneytið kl. 5.30 í morgun eftir næturlangan fund. Eru launaáhrif samningsins metin á 18% á samningstímanum en hann gildir til 30. apríl 2008. Er stefnt að því að undirrita samninginn 9. mars nk.
Þjónustutilskipunin verður endurskoðuð
4.3.2005
Atkvæðagreiðsla um samning SFR og Flugstöðvarinnar
4.3.2005
Hver er staða velferðarkerfisins?
4.3.2005
Getur brugðið til beggja vona hjá SFR og ríkinu
4.3.2005
Áfangasigur gegn þjónustutilskipuninni
3.3.2005
Póstmenn semja
1.3.2005
Ísland í alþjóðasamfélagi
1.3.2005
Frumvarp gegn GATS á Alþingi
25.2.2005
Trúnaðarmannaráð SFR mótmælir seinagangi
25.2.2005
SFR semur fyrir starfsmenn Leifsstöðvar
25.2.2005
félagsmanna SFR og stjórna FLE og Fh.
Ný heimasíða Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar
25.2.2005
Nýtt samkomulag um rekstur og hlutverk Ráðgjafarstofu heimilanna
22.2.2005

Fulltrúar BHM, BSRB og ASÍ við undirritun samkomulagsins
Nýtt samkomulag um rekstur og hlutverk Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna var undirritað 17. febrúar sl. 14 aðilar koma að þessu samkomulagi. Árni Magnússon félagsmálaráðherra undirritaði samninginn ásamt fulltrúum allra þeirra aðila sem koma að þessu samkomulagi sem er til þriggja ára eða til ársloka 2007. BSRB kemur að þessu samkomulagi og undirritaði Vernharð Guðnason samkomulagið fyrir hönd BSRB.
Trúnaðarmannanámskeið í Munaðarnesi
17.2.2005
Foreldrar langveikra barna fá greiðslur í allt að þrjá mánuði
17.2.2005
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að foreldrar langveikra barna fái greiðslur í allt að þrjá mánuði vegna tekjutaps. Sama á við um foreldra barna sem greinast með alvarlega fötlun. Greiðslan nemur 90.000 kr. á mánuði og koma greiðslurnar til framkvæmda í áföngum á þremur árum. Þannig verður greitt fyrir einn mánuð í ár, tvo mánuði næsta ár og þrjá mánuði á þriðja ári. Það var nefnd á vegum félagsmálaráðuneytisins sem mótaði tillögurnar og var fulltrúi BSRB í nefndinni Jens Andrésson formaður SFR, en aukin réttindi langveikra barna hefur verið baráttumál BSRB um langt skeið. Nefndin skrifaði undir lokaskýrslu um málið í dag, en félagsmálaráðherra kynnti ákvörðunina á þingi í gær.
Vaktavinnufyrirkomulag endurskoðað
16.2.2005
Skráning á tungumálanámskeið í apríl hafin
15.2.2005

Frá enskunámskeiði hjá Framvegis sem hófst í febrúar.
Skráning er hafin á tungumálanámskeið BSRB sem hefjast í apríl hjá Framvegis. Í boði eru námskeið í ensku, dönsku og spænsku. Námskeiðin hefjast öll 4. apríl og eru tvisvar í viku, mánudaga og miðvikudaga frá kl. 17 - 19.30. Skráning í síma 5814914. Einnig eru í gangi skráningar á námskeið hjá símenntunarmiðstöðvum á landsbyggðinni.
Styrkir vegna starfsmenntunar
10.2.2005
Starfsmenntaráð auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna starfsmenntunar í atvinnulífinu, sbr. lög nr. 19/1992 um starfsmenntun í atvinnulífinu. Til úthlutunar eru 55 milljónir. Umsóknir til verkefna í eftirfarandi tveimur flokkum njóta forgangs umfram önnur: Tækifæri miðaldra og eldra fólks til starfsmenntunar og Yfirfærsla þekkingar og reynslu innan fyrirtækja og stofnana. Umsóknarfrestur er til 18. mars 2005. Markmiðin sem Starfsmenntaráð gengur út frá við val á verkefnum eru að: verkefnin nái til sem flestra, þau mæti sýnilegri þörf á endurmenntun og séu unnin í samvinnu ólíkra aðila. Rétt til að sækja um styrk eiga: Samtök atvinnurekenda og launafólks, einstök fyrirtæki, einkaaðilar eða opinberir aðilar sem standa fyrir starfsmenntun í atvinnulífinu, starfsmenntaráð einstakra atvinnugreina og samstarfsverkefni á vegum tveggja eða fleiri framangreindra aðila. Umsóknir frá skólum koma aðeins til greina þegar um er að ræða samstarf við framangreinda aðila, einn eða fleiri. Pukrast með GATS
7.2.2005
Helstu breytingar á lögum um fæðingar- og foreldraorlof
3.2.2005
Þann 1. janúar 2005 tóku gildi breytingar á lögum um fæðingar- og foreldraorlof. Erna Guðmundsdóttir lögfræðingur BSRB hefur tekið saman helstu breytingar á lögunum.Helstu breytingarnar eru eftirfarandi:
I. Fæðingarorlofið má ekki vera skemur en tvær vikur í senn (var ein vika fyrir breytingu).
II. Mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til starfsmanns í fæðingarorlofi er 80% af meðaltali heildarlauna og skal miða við tvö tekjuár á undan fæðingarári barns eða þess árs er barn kemur inn á heimili við ættleiðingu eða varanlegt fóstur.
Námsframboð Félagsmálaskólans vorið 2005
2.2.2005
Nú er vorönn Félagsmálaskóla alþýðu að hefjast. Fyrirhuguð eru átta námskeið sem eru með ólíkar áherslur. Hæfni stéttarfélaga til að taka á og laga sig að síbreytilegu umhverfi byggir á þekkingu þeirra. Því er mikilvægt að fræðsla og þjálfun sé hluti af starfi talsmanna til að viðhalda aðlögunarhæfileika þeirra hagsmunagæslu og baráttu fyrir bættum kjörum.
Skráningu á fyrstu námskeið lýkur 7. febrúar
1.2.2005
Kjölur semur fyrir tónlistarkennara
31.1.2005
Ögmundur gagnrýnir afstöðu ASÍ
27.1.2005
Tungumálafræðslan frestast um viku
27.1.2005
Fyrirlestur um fæðingar- og foreldraorlof
26.1.2005
Erna Guðmundsdóttir lögfræðingur BSRB hélt fyrirlestur um fæðingar- og foreldraorlof á fræðslumorgni fyrir trúnaðarmenn SFR í dag 26. janúar.
BSRB-tíðindi komin út
25.1.2005
Nýtt tölublað BSRB-tíðinda er komið út og er þeim dreit í ríflega 20.000 eintökum til allra félagsmanna í BSRB, stofnana og einstaklinga sem hafa óskað eftir áskrift. Meðal efnis í blaðinu er umfjöllun um tungumálafræðslu BSRB, skuldasöfnun landsmanna og kynbundinn launamun. Þá er viðtal við framkvæmdastjóra og varaformann samtaka opinberra starfsmanna í Evrópu um þjónustutilskipun Evrópu. Einnig er viðtal við Garðar Sverrisson fráfarandi formann Öryrkjabandalagsins og Ögmundur Jónasson segir frá ferð til Palestínu.Umræðu um lífaldurstengdar lífeyrisgreiðslu
24.1.2005
Hafnarfjörður segi sig úr launanefnd sveitarfélaga
21.1.2005
Tímasetningar tungumálafræðslunnar á höfuðborgarsvæðinu
20.1.2005
Siða- og starfsreglur Reykjavíkurborgar
19.1.2005
Staða miðaldra og eldra fólks á vinnumarkaði
19.1.2005
Nefnd á vegum félagsmálaráðuneytisins sem átti að kanna með hvaða hætti væri unnt að sporna við því að fólks sé látið gjalda aldurs á vinnustað, hvort heldur er með uppsögnum eða mismunun í starfi hefur sent frá sér skýrslu þar sem lagt er til að stjórnvöld hefji nú þegar sérstakt fimm ára verkefni til að styrkja stöðu þessa hóps á vinnumarkaði. Fulltrúi BSRB í nefndinni var Arna Jakobína Björnsdóttir formaður KJALAR.
Tungumálafræðsla BSRB að hefjast
10.1.2005
Tungumálafræðsla BSRB er að fara af stað. Á höfuðborgarsvæðinu er það Framvegis, miðstöð um símenntun, sem sér um námskeiðin og á landsbyggðinni eru það símenntunarmiðstöðvarnar. Fyrstu námskeiðin hefjast í lok mánaðarins og er skráning á námskeiðin hafin. Hér er um að ræða afar metnaðarfullt átak í að efla tungumálakunnáttu félagsmanna í Að gera lífið svo óbærilegt að fólk flýi land
7.1.2005
"...á Vesturbakkanum eru 703 girðingar, varðstöðvar og lokanir með hliðum. Þetta gengur þannig fyrir sig að Palestínumenn, sem á annað borð hafa leyfi til að fara út fyrir eigin svæði, verða að skilja faratæki sín eftir við hliðin og koma sér síðan áleiðis með faratæki sem þeir taka á leigu handan hliðsins. Þetta skýrir stóra leigubílaflota við hliðin. Stundum kostar þetta mikla bið, jafnvel upp í 20 tíma allt eftir því hvernig liggur á hliðarvörðunum (lengst höfum við þurft að bíða í hálfan annan tíma) eða þegar ísraelska ríkisstjórnin fyrirskipar sérstakar tafir. Þannig hefur Gaza svæðið veriðalgerlega lokað í dag og í gær. Það segir sig sjálft að við þessar aðstæður er öll atvinnustarfsemi eyðilögð. Það er líka greinilega tilgangurinn: Að gera lífið svo óbærilegt að fólk flýi land," segir Ögmundur Jónasson m.a. í þriðju grein sinni um Palestínu. Kosningamiðstöðvar í Palestínu heimsóttar
6.1.2005
"Forsetakosningarnar í Palestínu á sunnudag þykja sögulegar fyrir margra hluta sakir. Mikilvægasta ástæðan er sú að með kosningunum er verið að leggja einn af hornsteinum í lýðræðisuppbygginguna í landinu," segir Ögmundur Jónasson formaður BSRB í grein á heimasíðu sinni. Hann heimsótti kosningamiðstöðvar í Palestínu en hann er þar staddur ásamt Eiríki Jónssyni formanni KÍ og Borgþóri Kjærnested frá félaginu Ísland Palestína.Samið við Hitaveitu Suðurnesja
6.1.2005
Starfsmannafélög Suðurnesja, Hafnarfjarðar og Vestmannaeyjabæjar undirrituðu nýjan kjarasamning við Hitaveitu Suðurnesja í byrjun desember. Félögin komu sameiginlega að gerð þessa samnings. Hann gildir frá 1. nóvember s.l. til 1. nóvember 2008. Samningurinn var samþykktur á fundi félagsmanna 7. desember s.l.
Ástandið á herteknu svæðunum vægast sagt slæmt
5.1.2005

Ögmundur Jónasson, Borgþór Kjærnested og Eiríkur Jónsson við húsarústir í Nablus.
Ögmundur Jónasson formaður BSRB er nú staddur í Nablus í Palestínu í boði Palestinsku verkalýðshreyfingarinnar. Með honum í för er Eiríkur Jónsson formaður KÍ. Borgþór Kjærnested félagi í félaginu Ísland Palestína hitti þá Ögmund og Eirík í Tel Aviv. Auk BSRB og KÍ hafði forseta ASÍ verið boðið til Palestínu en hann sá sér ekki fært að fara.
Formenn BSRB og KÍ heimsækja Palestínu
4.1.2005
Ögmundur Jónasson formaður BSRB og Eiríkur Jónsson formaður Kennarasambands Íslands komu til Jerúsalem í gær og héldu rakleiðis til Nablus á Vesturbakkanum þar sem höfuðstöðvar Alþýðusambands Palestínu eru. Þeir áttu fundi með forystufólki þess og Kennarasambandsins og heimsóttu jafnframt Læknishjálparsamtökin sem standa fyrir víðtæku hjálparstarfi og heilsugæslu. Þá skoðuðu þeir gömlu borgina en hún og Balata flóttamannabúðirnar hafa orðið fyrir sífelldum árásum Ísraelshers.
Styrkjum lífeyriskerfið í þágu allra
3.1.2005
Um BSRB
Á döfinni
Leit


























