Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

Kjölur semur fyrir tónlistarkennara

31.1.2005

Kjölur, stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu, hefur undirritaði kjarasamning vegna tónlistarkennara við launanefnd sveitarfélaga 26. janúar sl. Samningurinn er á svipuðum nótum og samningur KÍ vegna tónlistarkennara sem gerður var í árslok 2004. Samið var um 5,5% hækkun 1. desember sl., 3% 1. janúar 2005, 2,5% 1, ágúst 2005 og 2,5% 1. janúar 2006. Samningurinn gildir til 30. september 2006.

Ögmundur gagnrýnir afstöðu ASÍ

27.1.2005

Ögmundur Jónasson fjallar um eftirlaunafrumvarpið og afleiðingar þess á heimasíðu sinni. Þar bendir hann á að það hafi allan tímann verið ljóst að fyrrverandi ráðherrar og alþingismenn gætu verið á eftirlaunum, jafnframt því að gegna launaðri vinnu fyrir ríkið. Hann fjallar líka um viðbrögð ASÍ við afleiðingum frumvarpsins. Ögmundur segir m.a.: "Ömurlegastur er þó hlutur Alþýðusambands Íslands í þessu máli og get ég fullvissað félaga mína á þeim bænum um að nú er farið að þykkna í okkur sem stöndum að hinum opinberu sjóðum...

Tungumálafræðslan frestast um viku

27.1.2005

Ákveðið hefur verið að fresta tungmálafræðslunni á höfuðborgarsvæðinu um eina viku og hefjast fyrstu námskeiðin mánudaginn 7. febrúar. Ástæðan fyrir frestuninni er að skráning á námskeiðin hefur ekki gengið eins vel og búist var við, enda var lítill tími til stefnu. Við hvetjum fólk sem hefur áhuga á tungumálanáminu að skrá sig sem fyrst og vekja athygli á námskeiðunum.

Fyrirlestur um fæðingar- og foreldraorlof

26.1.2005

Erna Guðmundsdóttir lögfræðingur BSRB hélt fyrirlestur um fæðingar- og foreldraorlof á fræðslumorgni fyrir trúnaðarmenn SFR í dag 26. janúar.

BSRB-tíðindi komin út

25.1.2005

Nýtt tölublað BSRB-tíðinda er komið út og er þeim dreit í ríflega 20.000 eintökum til allra félagsmanna í BSRB, stofnana og einstaklinga sem hafa óskað eftir áskrift. Meðal efnis í blaðinu er umfjöllun um tungumálafræðslu BSRB, skuldasöfnun landsmanna og kynbundinn launamun. Þá er viðtal við framkvæmdastjóra og varaformann samtaka opinberra starfsmanna í Evrópu um þjónustutilskipun Evrópu. Einnig er viðtal við Garðar Sverrisson fráfarandi formann Öryrkjabandalagsins og Ögmundur Jónasson segir frá ferð til Palestínu.

Umræðu um lífaldurstengdar lífeyrisgreiðslu

24.1.2005

Ögmundur Jónasson formaður BSRB kallar eftir umræðu um lífaldurstengdar lífeyrisgreiðslu á heimasíðu sinni www.ogmundur.is Á stjórnarfundi BSRB 21. janúar komu fulltrúar þeirra lífeyrissjóða sem BSRB-félagar eiga aðild að og ræddu stöðu sjóðanna. Í máli þeirra kom m.a. fram að ASÍ og SA hafi ákveðið að beina því til lífeyrissjóðanna að taka upp lífaldurstengdar lífeyrisgreiðslur.

Hafnarfjörður segi sig úr launanefnd sveitarfélaga

21.1.2005

Aðalfundur Starfsmannafélags Hafnarfjarðar, sem haldinn var 19. janúar, skoraði á bæjarstjórn Hafnarfjarðar að segja sig úr launanefnd sveitarfélaga nú þegar og taka upp sjálfstæða samninga við sitt starfsfólk í stað þess að setja sig möglunarlaust undir þá grjóthörðu láglaunapólitík sem rekin er af hálfu launanefndar sveitarfélaga.

Tímasetningar tungumálafræðslunnar á höfuðborgarsvæðinu

20.1.2005

Skráning á námskeið tungumálafræðslu BSRB er nú í fullum gangi. Nú er komin tímasetning námskeiða hjá Framvegis sem sér um tungumálafræðsluna á höfuðborgarsvæðinu. Upplýsingar og skráning hjá Framvegis er í síma 5814914 eða á heimasíðu Framvegis.

Siða- og starfsreglur Reykjavíkurborgar

19.1.2005

Skýrsla starfshóps um siða- og starfsreglur kjörinna fulltrúa og starfsmanna Reykjavíkurborgar var lögð fram í borgarráði 30. desember sl. Borgarráð samþykkti tillögur starfshópsins sem vann skýrsluna og jafnframt var heimilað að setja á stofn stýrihóp um skráningu siðareglna og að samið verði við Siðfræðistofnun Háskóla Íslands um ráðgjöf og verkstjórn við skráningu reglnanna. Erna Guðmundsdóttir lögfræðingur BSRB var í starfshópnum sem vann skýrsluna.

Staða miðaldra og eldra fólks á vinnumarkaði

19.1.2005

Nefnd á vegum félagsmálaráðuneytisins sem átti að kanna með hvaða hætti væri unnt að sporna við því að fólks sé látið gjalda aldurs á vinnustað, hvort heldur er með uppsögnum eða mismunun í starfi hefur sent frá sér skýrslu þar sem lagt er til að stjórnvöld hefji nú þegar sérstakt fimm ára verkefni til að styrkja stöðu þessa hóps á vinnumarkaði. Fulltrúi BSRB í nefndinni var Arna Jakobína Björnsdóttir formaður KJALAR.

Tungumálafræðsla BSRB að hefjast

10.1.2005

Tungumálafræðsla BSRB er að fara af stað. Á höfuðborgarsvæðinu er það Framvegis, miðstöð um símenntun, sem sér um námskeiðin og á landsbyggðinni eru það símenntunarmiðstöðvarnar. Fyrstu námskeiðin hefjast í lok mánaðarins og er skráning á námskeiðin hafin. Hér er um að ræða afar metnaðarfullt átak í að efla tungumálakunnáttu félagsmanna í BSRB. Boðið verður upp á námskeið í ensku, dönsku, spænsku, íslensku ritmáli, þýsku og frönsku fyrir félagsmenn BSRB árin 2005 og 2006. Í boði verður bæði einingabært nám fyrir framhaldsskóla, 60 kst. og einnig styttri námskeið þar sem höfuðáhersla verður lögð á talað mál, 30 kst. Stefnt er að því að minnsta kosti 1.500 manns sæki þessi námskeið. Lengra námskeiðið mun kosta 33.000 kr. en styttri námskeiðin 18.000 kr.

Að gera lífið svo óbærilegt að fólk flýi land

7.1.2005

"...á Vesturbakkanum eru 703 girðingar, varðstöðvar og lokanir með hliðum. Þetta gengur þannig fyrir sig að Palestínumenn, sem á annað borð hafa leyfi til að fara út fyrir eigin svæði, verða að skilja faratæki sín eftir við hliðin og koma sér síðan áleiðis með faratæki sem þeir taka á leigu handan hliðsins. Þetta skýrir stóra leigubílaflota við hliðin. Stundum kostar þetta mikla bið, jafnvel upp í 20 tíma allt eftir því hvernig liggur á hliðarvörðunum (lengst höfum við þurft að bíða í hálfan annan tíma) eða þegar ísraelska ríkisstjórnin fyrirskipar sérstakar tafir. Þannig  hefur Gaza svæðið veriðalgerlega lokað í dag og í gær. Það segir sig sjálft að við þessar aðstæður er öll atvinnustarfsemi eyðilögð. Það er líka greinilega tilgangurinn: Að gera lífið svo óbærilegt að fólk flýi land," segir Ögmundur Jónasson m.a. í þriðju grein sinni um Palestínu. 

Kosningamiðstöðvar í Palestínu heimsóttar

6.1.2005

"Forsetakosningarnar í Palestínu á sunnudag þykja sögulegar fyrir margra hluta sakir. Mikilvægasta ástæðan er sú að með kosningunum er verið að leggja einn af hornsteinum í lýðræðisuppbygginguna í landinu," segir Ögmundur Jónasson formaður BSRB í grein á heimasíðu sinni. Hann heimsótti kosningamiðstöðvar í Palestínu en hann er þar staddur ásamt Eiríki Jónssyni formanni KÍ og Borgþóri Kjærnested frá félaginu Ísland Palestína.

Samið við Hitaveitu Suðurnesja

6.1.2005

Starfsmannafélög Suðurnesja, Hafnarfjarðar og Vestmannaeyjabæjar undirrituðu nýjan kjarasamning við Hitaveitu Suðurnesja í byrjun desember. Félögin komu sameiginlega að gerð þessa samnings. Hann gildir frá 1. nóvember s.l. til 1. nóvember 2008. Samningurinn var samþykktur á fundi félagsmanna 7. desember s.l.

Ástandið á herteknu svæðunum vægast sagt slæmt

5.1.2005


Ögmundur Jónasson, Borgþór Kjærnested og Eiríkur Jónsson við húsarústir í Nablus.

Ögmundur Jónasson formaður BSRB er nú staddur í Nablus í Palestínu í boði Palestinsku verkalýðshreyfingarinnar. Með honum í för er Eiríkur Jónsson formaður KÍ. Borgþór Kjærnested félagi í félaginu Ísland Palestína hitti þá Ögmund og Eirík í Tel Aviv. Auk BSRB og KÍ hafði forseta ASÍ verið boðið til Palestínu en hann sá sér ekki fært að fara. 

Formenn BSRB og KÍ heimsækja Palestínu

4.1.2005

Ögmundur Jónasson formaður BSRB og Eiríkur Jónsson formaður Kennarasambands Íslands komu til Jerúsalem í gær og héldu rakleiðis til Nablus á Vesturbakkanum þar sem höfuðstöðvar Alþýðusambands Palestínu eru. Þeir áttu fundi með forystufólki þess og Kennarasambandsins og heimsóttu jafnframt Læknishjálparsamtökin sem standa fyrir víðtæku hjálparstarfi og heilsugæslu. Þá skoðuðu þeir gömlu borgina en hún og Balata flóttamannabúðirnar hafa orðið fyrir sífelldum árásum Ísraelshers.

Styrkjum lífeyriskerfið í þágu allra

3.1.2005

Eitt veit ég að innan BSRB er það viðhorf almennt ríkjandi að styrkja beri og efla lífeyriskerfið í þágu allra. Það verður hins vegar ekki liðið að grafið verði undan lífeyrisréttindum starfsfólks í almannaþjóðnustu eins og því miður örlar á nú um stundir jafnvel af hálfu aðila sem síst skyldi, segir Ögmundur Jónasson formaður BSRB m.a. í grein á heimasíðu sinni ogmundur.is . Greinin nefnist Hvernig á að leiðrétta misréttið?

Um BSRB

Póstlistaskráning


Á döfinni


efnahagsmal

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta