Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

EPSU mótmælir óbreyttri þjónustutilskipun

30.11.2005

Samtök launafólks í almannaþjónustu á Hinu evrópska efnahagssvæði (European Public ServicesUnion) samþykkti á stjórnarfundi í Brussel í dag harðorð mótmæli gegn þeirri ákvörðun starfsnefndar Evrópuþingsins að mæla með því að öll almannaþjónusta skuli falla undir nýja þjónustutilskipun Evrópusambandsins. Þjónustutilskipun Evrópusambandsins, sem hér um ræðir, hefur að geyma svokallaða upprunalandsreglu þar sem kveðið er á um að kjarasamningar þess lands sem farandfyrirtæki er frá, skuli gilda, ekki samningar þess lands sem fyrirtækið starfar í. Þetta myndi gera að engu íslensk lög um að íslenskir kjarasamningar á vinnumarkaði skuli gilda.

Loftslagsbreytingar eru versta umhverfisógnin

29.11.2005

Stjórnmálamenn, fyrirtæki og einstaklingar verða að bregðast strax við yfirvofandi umhverfisógnum eða borga mikið seinna, segir í skýrslu frá Umhverfisstofnun Evrópu (EEA) í Kaupmannahöfn um evrópsk umhverfismál.

Þess vegna er BSRB á móti einkavæðingu á vatni

29.11.2005

Ögmundur Jónasson formaður BSRB svarar á heimasíðu sinni grein eftir Birgi Tjörva Pétursson í Viðskiptablaðinu þar sem Birgir Tjörvi furðar sig á því að BSRB beiti sér gegn einkavæðingu á vatni. Í grein sinni segir Ögmundur m.a.: "Mín tilfinning er sú að Birgir Tjörvi vilji vera sanngjarn. Þess vegna hika ég við að segja að mér finnist jaðra við að málflutningur hans sé utan af þekju. Þegar hann furðar sig á því að BSRB beiti sér gegn einkavæðingu á vatni þá vil ég upplýsa hann um að einkavæðing á vatni hefur nánast alls staðar leitt til hærra verðlags neytenda og lakari starfskjara þeirra sem sinna þessari þjónustu. Þeir sem hér eiga hlut að máli eru félagar í samtökum á borð við BSRB, sem eru bæði neytendurnir og veitendurnir."

Vaxandi þrýstingur á WTO að láta af kröfum um einakvæðingu

26.11.2005

Ögmundur Jónasson formaður BSRB á sæti í stjórn  Public Services International (PSI), Samtökum launafólks í almannaþjónustu, en árlegur stjórnarfundur samtakanna var haldinn í Genf í Sviss í vikunni. Ögmundur ritar ítarlega frásögn af fundinum á heimasíðu sína. Í greininni kemur m.a. fram að vaxandi þrýstingur er á Alþjóðaviðskitpastofnunina, WTO um að láta af kröfum um einakvæðingu. Þá er mikil óánægja meðal ríkja þriðja hreimsins vegna afstöðu ríkra iðnríkja. Stefnir í að stál verði í stál á fyrirhuguðum fundi WTO í Hong Kong í desember. Þá vakti hin gríðarlega þátttaka íslenskra kvenna á kvennafrídaginn 24. október  sl. mikla athygli á fundinum. 

LEB skrifar undir Vatn fyrir alla

26.11.2005

Landssamband eldri borgara samþykkti á stjórnarfundi í gær, fimmtudaginn 24. nóvember 2005, að gera undirskriftaraðili að yfirlýsingunni Vatn fyrir alla. Þar með hafa 13 samtök á landsvísu skrifað undir yfirlýsinguna.

Atkvæðagreiðsla um verkfall hjá sjúkraliðum

24.11.2005

Stjórn og kjaramálanefnd Sjúkraliðafélags Íslands ákvað í gær að farið yrði í atkvæðagreiðslu um boðun verkfalls meðal sjúkraliða sem starfa hjá sveitafélögum. Viðræður við Launanefnd sveitarfélaga hafa ekki skilað neinum árangri og hafa samningar verið lausir í eitt ár.

Samkomulag um eingreiðslu til ríkisstarfsmanna innan BSRB

24.11.2005

Í dag var skrifað undir samkomulag við fjármálaráðuneytið um að félagsmenn í BSRB sem starfa fyrir ríkið fái 26 þúsund króna eingreiðslu í desember sambærilega og á almenna vinnumarkaðinum. Einnig felst í samkomulaginu að áfangahækkun kjarasamninga 1. janúar 2007 verði 2,90% í stað 2,25%.

Garðbæingar fella samning við Launanefnd

22.11.2005

Kjarasamningur LN og Starfsmannafélags Garðabæjar sem undirritaður var 27. október sl. var felldur í atkvæðagreiðslu félagsmanna. Samningurinn var felldur með 93 atkvæðum gegn 64.  Auðir og ógildir 20. Þátttaka um 88% af atkvæðabærum félagsmönnum. 

BSRB tekur herbergi hjá Sjónarhóli í fóstur

21.11.2005

BSRB hefur tekið að sér að greiða leigu í eitt ár fyrir herbergi hjá Sjónarhóli sem ætlað er nemendum í háskólanámi á sviði fötlunar. Gengið var formlega frá þessu á aðalfundi BSRB föstudaginn 18. nóvember og mættu fulltrúar Sjónarhóls á fundinn til að innsigla þetta samkomulag. Þegar Ögmundur Jónasson formaður BSRB handsalaði samkomulagið við Þorgerði Ragnarsdóttur framkvæmdastjóra Sjónarhóls sagði hann ánægjuefni væri að taka þetta herbergi í fóstur.

Starfslokanámskeið á höfuðborgarsvæðinu

21.11.2005

Starfslokanámskeið verður haldið í BSRB húsinu dagana 5. 6. og 7. desember. Námskeiðið hefst kl. 16.30 þessa daga og lýkur kl. 19.00. Þátttöku þarf að tilkynna á skrifstofu BSRB í síma 525 8300 fyrir 2. desember. Námskeiðið er opið öllum félagsmönnum í BSRB sem búsettir eru á höfuðborgarsvæðinu og mökum þeirra. Námskeiðið er einkum ætlað þeim sem eru að nálgast starfslok eða eru nýlega hættir störfum. Námskeiðið er frítt fyrir alla félaga í aðildarfélögum BSRB og maka þeirra.

Vatn fyrir alla - breiðfylkingin stækkar!

16.11.2005

Frá því að sjö samtök, BSRB, KÍ, SÍB, MFÍK, Náttúruverndarsamtök Íslands, Landvernd og Þjóðkirkjan, skrifuðu upp á sameiginlega yfirlýsingu Vatn fyrir alla, sem kynnt var á samnefndri ráðstefnu 29. okt. sl. hafa nú fimm ný félagasamtök skrifað upp á yfirlýsinguna. Þau eru Öryrkjabandalag Íslands, Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, Mannréttindaskrifstofa Íslands, Ungmennafélag Íslands (UMFÍ) og Unifem á Íslandi. Fleiri samtök eru líkleg til að skrifa upp á að loknum stjórnarfundum, sem haldnir verða næstu daga. Sú fjöldahreyfing sem styður yfirlýsinguna Vatn fyrir alla er nú orðin svo öflug að Alþingi, ríkisstjórn og stjórnarskrárnefnd hljóta  að taka mið af henni og þeim áherslum sem þar eru lagðar.

Samnorrænt verkefni skóla um vatn

16.11.2005

Í dag lýkur norrænu verkefni í skólum sem fjallar um vatn. Á vef verkefnisins má lesa upplýysingar um það, en verkefnið er enn eitt dæmið um síaukna meðvitund um mikilvægi og sérstöðu vatns í dag.

Fyrirlestur um afleiðingar einkvæðingar vatnsveitna

15.11.2005


David Hall, prófessor við háskólann í Greenwich í Englandi, heldur erindi um rannsóknir á afleiðingum einkavæðingar á vatnsveitum. Fyrirlesturinn verður  kl. 09:00 til 10:30 að Hótel Loftleiðum föstudaginn 18. nóvember nk. David Hall er forstöðumaður deildar við háskólann í Greenwich sem hefur sérhæft sig í rannsóknum á mismunandi rekstrarformum innan almannaþjónustunnar.

Sturla vill hlutafélagavæða Flugmálastjórn

11.11.2005

Samgönguráðherra hefur ákveðið að hlutafélagavæða starfsemi Flugmálastofnunar og hefur þegar verið stofnaður svokallaður “umbreytingahópur” til að undirbúa framkvæmdina. Hann lýtur forystu fulltrúa frá Nýsi. Þetta kemur fram í grein eftir Ögmund Jónasson formann BSRB á heimasíðu hans, www.ogmundur.is Hann gagnrýnir harðlega ákvörðunina og vill að hún nái ekki fram að ganga.

Ingimundi Sigurpálssyni svarað

11.11.2005

Ingimundur Sigurpálsson formaður Samtaka atvinnulífsins gagnrýndi harkalega samninga við opinbera starfsmenn, einkum starfsmenn sveitarfélaga, á fjármálaráðstefnu Sambands íslenskra sveitarfélaga í gær. Hann sagði sagði að tímabært væri að afnema tvískiptingu á íslenskum vinnumarkaði. "Opinberir starfsmenn hafa ýmis réttindi umfram fólk á almennum vinnumarkaði, til dæmis á sviðum lífeyris-, orlofs- og veikindaréttar, auk uppsagnarverndar. Þetta gildir jafnt um starfsmenn sveitarfélaga sem ríkisstarfsmenn." Ögmundur Jónasson formaður BSRB svarar Ingimundi á heimsíðu sinni í dag og segir ömurlegt að þurfa að hlusta á talsmann hálaunahópanna í þjóðfélaginu traktera láglauna- og militekjuhópa með þessum hætti.

Auglýsingaherferð vegna vatnsins

10.11.2005


Þau samtök sem stóðu að ráðstefnunni Vatn fyrir alla eru nú að undirbúa auglýsingaherferð til að fylgja eftir sameiginlegri yfirlýsingu samtakanna. Frá því að ráðstefnan var haldin hefur Ungmennafélag Íslands bæst í hóp þeirra samtaka sem undirritað hafa yfirlýsinguna og von er á að fleiri samtök geri það.

Sjúkraliðar semja við SFH

9.11.2005

Sjúkraliðafélag Íslands skrifaði undir kjarasamning við Samtök fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu í gær. Kjarasamningurinn gildir frá 1. júní 2005 til 30. apríl 2008 og fellur þá úr gildi án frekari fyrirvara. Viðræðurnar fóru fram undir stjórn ríkissáttasemjara. Samningurinn er á sömu nótum og við ríkið að öðru leyti en því að búið er að semja um breytingu á stofnanasamningum sem taka á gildi 1. október 2006.

Þenslan er á ábyrgð stjórnvalda og það er þeirra að bregðast við

9.11.2005


"Ég vara ríkisvaldið við því að horfa ekki til þess launaskriðs sem nú er að verða á markaði. Fólk er hætt að fást til mikilvægra starfa innan almannaþjónustunnar, svo sem í heilbrigðiskerfinu. Ef ekki er tekið mið af þessu í fjárveitingum til stofnanasamninga sem gerðir verða á samningstímabilinu mun illa fara, ekki einvörðungu fyrir starfsfólkinu heldur fyrir þeirri þjónustu sem á að veita. Og því mega stjórnvöld ekki gleyma að hætta sem steðjar að hinu niðurnjörvaða opinbera vinnuumhverfi er mikil núna vegna þenslu í þjóðfélaginu og samkeppni um vinnuafl. Þenslan er á ábyrgð stjórnvalda og það er þeirra að bregðast við," sagði Ögmundur Jónasson formaður BSRB m.a. á morgunverðarráðstefnu Félags forstöðumanna ríkisstofnana ásamt Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við HÍ í morgun. Yfirskrift ráðstefnunnar var Hlutverk stéttarfélaga í ljósi aukins sjálfstæðis ríkisstofnana. Er þörf á endurskoðun starfsmannalaga?

Hlutverk stéttarfélaga í ljósi aukins sjálfstæðis ríkisstofnana

8.11.2005

Hlutverk stéttarfélaga í ljósi aukins sjálfstæðis ríkisstofnana - Er þörf á endurskoðun starfsmannalaga? er yfirskrift morgunverðarráðstefnu sem Félag forstöðumanna ríkisstofnana ásamt Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við HÍ stendur fyrir á Grand hótel miðvikudaginn 9. nóvember kl. 8.30 - 11.00. Til þess að ræða þetta eru til kallaðir forystumenn BHM og BSRB, formaður Samninganefndar ríkisins, forstöðumaður  í ríkisstofnun, sem hefur reynslu af þessum breytingum og loks fræðimaður við Háskóla Íslands sem hefur skoðað opinbera vinnumarkaðinn ma. út frá kenningum um mannauðsstjórnun.

Formaður BSRB tekur upp hanskann fyrir Vinnumálastofnun

3.11.2005

Ögmundur Jónasson formaður BSRB telur að Vinnumálastofnun hefði verið í fullum rétti að veita erlendum verkamanni starfsleyfi "með ljóshraða enda mætti búast við því að fyrir vikið væri verkamaðurinn reiðubúinn að fletta ofan af óheiðarlegum vinnubrögðum óprúttinnar starfsmannaleigu," eins og segir í grein á heimasíðu Ögmundar. Greinin nefnist: Húrra fyrir Vinnumálastofnun.

MFÍK og Þjóðkirkjan aðilar að Vatn fyrir alla!

3.11.2005

Að gefnu tilefni skal það tekið fram að Þjóðkirkjan og Menningar og friðarsamtök íslenskra kvenna, MFÍK, eru aðilar að herferðinni Vatn fyrir alla, stóðu að ráðstefnu um það mál og eru undirskriftaraðilar að sameiginlegri yfirlýsingu þeirra sjö samtaka sem að henni stóðu. Í annars mjög svo ágætum leiðara Morgunblaðsins sem birtist 1. nóvember og fjallaði um ráðstefnu og yfirlýsingu samtakanna sjö, kom fram að Hjálparstarf kirkjunnar hefði verið undirskriftaraðili og ekki er minnst á Þjóðkirkjuna né MFÍK. Þessi misskilningur er skiljanlegur, þar sem við undirbúning ráðstefnunnar var fjölmiðlum sendur upplýsingapakki um undirbúning ráðstefnunnar. Á því stigi var Hjálparstarf kirkjunnar væntanlegur undirskriftaraðili, en það breyttist þegar Þjóðkirkjan kom að málinu. Og á þeim tíma var MFÍK ekki enn inn í myndinni.

Um BSRB

Póstlistaskráning


Á döfinni


atvinnumal

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta