Fréttir
Ákvörðun Kjaradóms verði endurskoðuð
30.12.2005
BSRB styður Mannréttindaskrifstofuna
22.12.2005
BSRB afhenti Mannréttindaskrifstofu Íslands í dag einnar milljón króna styrk til reksturs skrifstofunnar í ár. BSRB ásamt Alþýðusambandi Íslands, Bandalagi háskólamanna, Kennarasambandi Íslands, Öryrkjabandalagi Íslands og Landssambandi eldri borgara sendu fyrr á árinu frá sér sameiginlega ályktun þar sem niðurskurði ríkisstjórnarinnar við Mannréttindaskrifstofnuna var mótmælt og því lýst yfir að samtökin myndu tryggja rekstur skrifstofunnar í ár. Þá kröfðust samtökin þess að ríkisstjórn Íslands tryggði rekstur Mannréttindaskrifstofu Íslands í framtíðinni.
Kópavogur taki upp sjálfstæða launastefnu
21.12.2005
Stjórn og trúnaðarmannaráð Starfsmannafélags Kópavogs lýsir yfir áhyggjum sínum vegna þeirrar stöðu sem upp er komin varðandi launakjör félagsmanna innan Starfsmannafélags Kópavogs í kjölfar nýgerðra kjarasamninga Reykjavíkurborgar við Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar og Eflingu. Félagið skorar á bæjarstjórn Kópavogs að draga samningsumboð sitt til launanefndar sveitarfélaga til baka og taka upp sjálfstæða launastefnu sem byggð er á forsendum bæjarfélagsins. Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var á fundi í gær 20. desember.
Samningurinn við borgina samþykktur með 94% greiddra atkvæða
16.12.2005
Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar samþykkti kjarasamning við borgina með 94% greiddra atkvæða. Á kjörskrá voru 2525 manns. Atkvæði greiddu 1025 eða 40% félagsmanna. Samþykkir samningnum voru yfirgnæfandi eða 967 eða 94% þáttakanda. Ósamþykkir samningnum voru 37 eða 5% greiddra atkvæða. Auðir og ógildir voru 7.
BSRB greiðir aðstöðu fyrir nemendur í rannsóknarnámi á sviði fötlunar hjá Sjónarhóli
15.12.2005

Fulltrúar Sjónarhóls,
Fyrirkomulag vaktavinnu kannað
15.12.2005
Rannsóknastofa í vinnuvernd og starfshópur um málefni vaktavinnustarfsmanna undirrituðu í gær verksamning um gerð og framkvæmd könnunar á aðstæðum og aðbúnaði vaktavinnustarfsmanna. Rannsóknastofan tekur að sér, fyrir hönd starfshópsins að rannsaka aðstæður og aðbúnað vaktavinnustarfsmanna sem starfa á vegum ríkis og sveitarfélaga. Könnuð verða almenn og sértæk atriði sem geta haft áhrif á aðstæður og aðbúnað og mögulegar afleiðingar vaktavinnunnar. Af hálfu Rannsóknastofu í vinnuvernd hafa Dr. Guðbjörg Linda Rafnsdóttir og Dr. Herdís Sveinsdóttir , umsjón með og stýra könnuninni.
Aðventustund í Munaðarnesi
15.12.2005
Veðurspáin fyrir helgina er mjög falleg og því tilvalið að afstressa sig fyrir síðustu viku aðventu. Staðurinn til að slappa af og njóta skammdegisins undir dansandi norðurljósum er Munaðarnes. Nokkur hús eru laus um helgina. Hægt er að panta þau á skrifstofu BSRB í síma 525 8300.
BSRB vill að Ísland beiti sér fyrir nýjum samningsforsendum í Doha viðræðunum
14.12.2005
BSRB vill að Dohaviðræðurnar verði stöðvaðar þar til samningar hafa tekist um nýjar samningsforsendur og lýðræðislegri og opnari vinnubrögð. Ögmundur Jónasson formaður BSRB ritaði í dag Geir H. Haarde utanríkisráðherra, sem nú er staddur í Hong Kong á ráðherrafundi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar, WTO, bréf þar sem þess er krafist að Íslendingar beiti sér í þessa veru en samskonar kröfur hafa nú verið reistar af hálfu verkalýðshreyfingar og félagasamtaka sem beita sér fyrir almannaheill, víðs vegar um heiminn.
Tollvarðafélag Íslands 70 ára
13.12.2005

Tollvarðafélag Íslands varð 70 ára 8. desember sl. Í tilefni af því hélt félagið afmælisfagnað á Hótel Sögu laugardaginn 10. desember. Á annað hundrað manns sótti fagnaðinn. Á myndinni sést Ögmundur Jónasson formaður BSRB afhenda Herði Davíð Harðarsyni formanni TFÍ afmælisgjöf frá BSRB.
Sveitarfélög á Suðurnesjum standi utan við láglaunastefnu LN
12.12.2005
"Reykjavíkurborg hefur því ákveðið að standa utan við láglaunastefnu LN og sveitarfélögin á Suðurnesjum ættu að gera slíkt hið sama," segir í bréfi sem Starfsmannafélag Suðurnesja hefur sent öllum sveitarfélögum á Reykjanesi. Í bréfinu skorar stjórn Starfsmannafélags Suðurnesja á sveitarstjórnir á Suðurnesjum að endurskoða samningsumboð sæin til Launanefndar sveitarfélaga.
Fjölmennum í göngu og á útifund eldri borgara og öryrkja
9.12.2005
BSRB hvetur alla til að sýna öryrkjum og öldruðum samstöðu í dag on mæta í gönguna við Hallgrímskirkju kl. 16.30 og taka undir körorðið "Eitt samfélag fyrir alla!"? Útifundur hefst síðan á Auturvelli kl. 17.00.
SLFÍ samþykkir kjarasamning við Reykjavíkurborg
8.12.2005
Sjúkraliðafélag Íslands hefur samþykkt kjarasamning sem félagið gerði við Reykjavíkurborg. Á kjörskrá voru 57. Atkvæði greiddu 28. Já sögðu 27. Nei sagði 1. Auðir og ógildir 0. Samningurinn var því samþykktur með yfirgnæfandi samþykki þeirra sem þátt tóku í atkvæðagreiðslunni. Gildistími samningsins er 1. ágúst 2005 til og með 30. apríl 2008.
Hafnarfjarðarbær afturkalli samningsumboð Launanefndar sveitarfélaga
7.12.2005
Stjórn og trúnaðarmannaráð Starfsmannafélags Hafnarfjarðar skorar á Hafnarfjarðarbæ "að afturkalla samningsumboð sitt til launanefndar sveitarfélaga og taka upp sjálfstæða, ábyrga og uppbyggilega launastefnu byggða á forsendum bæjarfélagsins. Í stað þess að taka undir sjónamið harðrar láglaunstefnu og mismununar sem einkennt hefur samninga launanefndar sveitarfélaga a.m.k. gagnvart STH," eins og segir í harðorðri ályktun sem samþykkt var í dag.
FOSS skorar á sveitarstjórnir á Suðurlandi að endurskoða samningsumboð LN
7.12.2005
Stjórn og trúnaðarráðs Félags opinberra starfsmanna á Suðurlandi sem haldinn var í dag skorar á sveitar- og bæjarstjórnir á Suðurlandi að endurskoða það umboð sem þær hafa falið Launanefnd sveitarfélaga til samningsgerðar við félagið.
Sjúkraliðar semja við Launanefnd sveitarfélaga
6.12.2005
Sjúkraliðafélag Íslands undirritaði í gærkvöldi nýjan kjarasamning við Launanefnd sveitarfélaga. Samningurinn er á svipuðum nótum og samið var um við ríkið og Reykjavíkurborg.
Alþjóðlegt ákall fyrir mannréttindum á vinnustöðum
6.12.2005

11 handhafar friðarverðlauna Nóbels hvöttu í gær þjóðir heims til að virða ákvæði mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna og viðurkenna að fullu og verja rétt launafólks til að stofna verkalýðsfélög og gera kjarasamninga. Meðal friðarverðlaunahafanna eru Jimmy Carter fyrrum forseti Bandaríkjanna, Desmond Tutu erkibiskup í Suður Afríku og Lech Walesa fyrrum forseti Póllands. Yfirskrift yfirlýsingarinnar er: Alþjóðlegt ákall fyrir mannréttindum á vinnustöðum.
Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar semur við borgina
5.12.2005
Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar skrifaði undir nýjan kjarasamning við Reykjavíkurborg í gærkvöldi í húsakynnum Ríkissáttasemjara.
ASÍ skrifa upp á Vatn fyrir alla
5.12.2005
Alþýðusamband Íslands ákvað í dag 5.desember 2005 að verða 14. samtökin sem skrifa upp á yfirlýsinguna “Vatn fyrir alla”. Þá er mikill meirihluti verkalýðshreyfingarinnar búinn að skrifa upp á, helstu umhverfissamtök landsins, mannréttindasamtök og samtök tengd Sameinuðu þjóðunum, UMFÍ, Öryrkjabandalagið að ógleymdri Þjóðkirkjunni. Hefur krafan um að fylgt verði áherslum yfirlýsingarinnar Vatn fyrir alla, nú eflst til muna með undirskrift ASÍ.
Lífsorka á tilboðsverði fyrir BSRB félaga
2.12.2005
Bókin Lífsorka eftir Þóri S. Guðbergsson er nú seld öllum félagsmönnum BSRB á einstöku tilboðsverði, kr. 1.000 auk sendingarkostnaðs, en hún er ófáanleg í bókabúðum landsins.Lífsorka Þóris fjallar um lífsstíl, heilsu, samskipti fólks og lífsgleði og bendir á leiðir til að rækta hug og hönd ekki hvað síst á efri árum. Hún fjallar einnig um réttindi fólks, hlutverk lífeyrissjóða, bætur almannatrygginga, ónæmiskerfi, áföll og sorg og gildi hreyfingar og næringar.
Óánægja í Evrópu með stefnuna í raforkumálum
2.12.2005
Vaxandi óánægja er á hinu Evrópska efnahags-svæði um stefnu Evrópusam-
bandsins í raforku-
málum. Frá því að marksvæðing geirans hófst fyrir um tíu árum hafa 300 þúsund manns misst vinnunan, verðlag hefur hækkað og þjónusta versnað. Í yfirlýsingu sem lesinn var upp á útifundi í Brussel í gær sem Evrópusamband launafólks í almannaþjónustu (EPSU) stóð að var sett fram krafa um að horfið yrði frá áformum um markaðsvæðingu og hverju ríki látið eftir að skipuleggja raforkugeirann að eigin ósk. Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, tók þátt í útifundinum, sem haldinn var í framhaldi af stjórnarfundi í EPSU.
Sjúkraliðar semja við Reykjavíkurborg
1.12.2005
Sjúkraliðafélag Íslands undirritaði í gærkvöldi kjarasamning við Reykjavíkurborg í húsakynnum ríkissáttasemjara. Samningurinn er á líkum nótum og samið var um við ríkið. Nú á félagið einungis eftir að semja við Launanefnd sveitarfélaga og hefur fundur verið boðaður í dag hjá ríkissáttasemjara.
Um BSRB
Á döfinni
10. febrúar 2012
23. mars 2012
18. maí 2012
Leit
























