Fréttir
Frumvarp gegn GATS á Alþingi
25.2.2005
Trúnaðarmannaráð SFR mótmælir seinagangi
25.2.2005
SFR semur fyrir starfsmenn Leifsstöðvar
25.2.2005
félagsmanna SFR og stjórna FLE og Fh.
Ný heimasíða Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar
25.2.2005
Nýtt samkomulag um rekstur og hlutverk Ráðgjafarstofu heimilanna
22.2.2005

Fulltrúar BHM, BSRB og ASÍ við undirritun samkomulagsins
Nýtt samkomulag um rekstur og hlutverk Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna var undirritað 17. febrúar sl. 14 aðilar koma að þessu samkomulagi. Árni Magnússon félagsmálaráðherra undirritaði samninginn ásamt fulltrúum allra þeirra aðila sem koma að þessu samkomulagi sem er til þriggja ára eða til ársloka 2007. BSRB kemur að þessu samkomulagi og undirritaði Vernharð Guðnason samkomulagið fyrir hönd BSRB.
Trúnaðarmannanámskeið í Munaðarnesi
17.2.2005
Foreldrar langveikra barna fá greiðslur í allt að þrjá mánuði
17.2.2005
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að foreldrar langveikra barna fái greiðslur í allt að þrjá mánuði vegna tekjutaps. Sama á við um foreldra barna sem greinast með alvarlega fötlun. Greiðslan nemur 90.000 kr. á mánuði og koma greiðslurnar til framkvæmda í áföngum á þremur árum. Þannig verður greitt fyrir einn mánuð í ár, tvo mánuði næsta ár og þrjá mánuði á þriðja ári. Það var nefnd á vegum félagsmálaráðuneytisins sem mótaði tillögurnar og var fulltrúi BSRB í nefndinni Jens Andrésson formaður SFR, en aukin réttindi langveikra barna hefur verið baráttumál BSRB um langt skeið. Nefndin skrifaði undir lokaskýrslu um málið í dag, en félagsmálaráðherra kynnti ákvörðunina á þingi í gær.
Vaktavinnufyrirkomulag endurskoðað
16.2.2005
Skráning á tungumálanámskeið í apríl hafin
15.2.2005

Frá enskunámskeiði hjá Framvegis sem hófst í febrúar.
Skráning er hafin á tungumálanámskeið BSRB sem hefjast í apríl hjá Framvegis. Í boði eru námskeið í ensku, dönsku og spænsku. Námskeiðin hefjast öll 4. apríl og eru tvisvar í viku, mánudaga og miðvikudaga frá kl. 17 - 19.30. Skráning í síma 5814914. Einnig eru í gangi skráningar á námskeið hjá símenntunarmiðstöðvum á landsbyggðinni.
Styrkir vegna starfsmenntunar
10.2.2005
Starfsmenntaráð auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna starfsmenntunar í atvinnulífinu, sbr. lög nr. 19/1992 um starfsmenntun í atvinnulífinu. Til úthlutunar eru 55 milljónir. Umsóknir til verkefna í eftirfarandi tveimur flokkum njóta forgangs umfram önnur: Tækifæri miðaldra og eldra fólks til starfsmenntunar og Yfirfærsla þekkingar og reynslu innan fyrirtækja og stofnana. Umsóknarfrestur er til 18. mars 2005. Markmiðin sem Starfsmenntaráð gengur út frá við val á verkefnum eru að: verkefnin nái til sem flestra, þau mæti sýnilegri þörf á endurmenntun og séu unnin í samvinnu ólíkra aðila. Rétt til að sækja um styrk eiga: Samtök atvinnurekenda og launafólks, einstök fyrirtæki, einkaaðilar eða opinberir aðilar sem standa fyrir starfsmenntun í atvinnulífinu, starfsmenntaráð einstakra atvinnugreina og samstarfsverkefni á vegum tveggja eða fleiri framangreindra aðila. Umsóknir frá skólum koma aðeins til greina þegar um er að ræða samstarf við framangreinda aðila, einn eða fleiri. Pukrast með GATS
7.2.2005
Helstu breytingar á lögum um fæðingar- og foreldraorlof
3.2.2005
Þann 1. janúar 2005 tóku gildi breytingar á lögum um fæðingar- og foreldraorlof. Erna Guðmundsdóttir lögfræðingur BSRB hefur tekið saman helstu breytingar á lögunum.Helstu breytingarnar eru eftirfarandi:
I. Fæðingarorlofið má ekki vera skemur en tvær vikur í senn (var ein vika fyrir breytingu).
II. Mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til starfsmanns í fæðingarorlofi er 80% af meðaltali heildarlauna og skal miða við tvö tekjuár á undan fæðingarári barns eða þess árs er barn kemur inn á heimili við ættleiðingu eða varanlegt fóstur.
Námsframboð Félagsmálaskólans vorið 2005
2.2.2005
Nú er vorönn Félagsmálaskóla alþýðu að hefjast. Fyrirhuguð eru átta námskeið sem eru með ólíkar áherslur. Hæfni stéttarfélaga til að taka á og laga sig að síbreytilegu umhverfi byggir á þekkingu þeirra. Því er mikilvægt að fræðsla og þjálfun sé hluti af starfi talsmanna til að viðhalda aðlögunarhæfileika þeirra hagsmunagæslu og baráttu fyrir bættum kjörum.
Skráningu á fyrstu námskeið lýkur 7. febrúar
1.2.2005
Um BSRB
Á döfinni
Leit

























