Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

Stjórnkerfisbreytingar í Reykjavík kynntar Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar

31.3.2005

Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri mun ásamt embættismönnum mæta á fund fulltrúaráðs Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar 7. apríl næstkomandi og kynna þar þær stjórnkerfisbreytingar sem ákveðnar hafa verið hjá Reykjavíkurborg og þá einkum þær breytingar er varða launavinnslu og bókhaldsþjónustu.

Starfsmannafélag Suðurnesja semur við ríkið

31.3.2005

Starfsmannafélag Suðurnesja skrifaði í gærkvöldi undir nýjan kjarasamning við ríkið í. Samningurinn tekur til félagsmanna hjá STFS sem starfa á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Samningurinn er á svipuðum nótum og þeir samningar sem gerðir hafa verið að undanförnu fyrir ríkisstarfsmenn innan BSRB.

Óeðlileg skattlagning einkennisfatnaðar

31.3.2005

BSRB hefur sent embætti ríkisskattstjóra erindi þar sem farið er fram á að embættið taki til endurskoðunar skattlagningu á einkennisfatnaði starfsmanna og felli hana niður enda sé slík skattlagning óeðlileg. Með erindinu fylgir álitsgerð sem Erna Guðmundsdóttir lögfræðingur BSRB vann fyrir réttindanefnd BSRB.

FOSS samþykkir samninginn við ríkið

29.3.2005

Félag opinberra starfsmanna á Suðurlandi hefur samþykkt kjarasamning Samflostins við launanefnd ríkisins. 89% sögðu já, 3,5% nei og 7% voru auðir.

Hlutverk stéttarfélaga í dag

21.3.2005

"Stéttarfélög hafa sjaldan í sögunni haft mikilvægara hlutverki að gegna en í dag né hafa verkefni þeirra verið víðfeðmari. Ef litið er til þeirra þjóðfélagslegu breytinga sem átt hafa sér stað á síðustu árum, þá verður þetta vaxandi hlutverk stéttarfélaga ljóst: Alheimsvæðingin, aukin markaðsvæðing, samfara stórefldum styrk fjármagnseigenda þar sem valdið hleðst sífellt á færri hendur um leið og það teygir sig út fyrir mörk og íhlutunarrétt þjóðríkja. Aukið efnahagslegt misrétti, hvort sem það er innan þjóðríkja eða þeirra í millum, allt of hægur framgangur í jafnréttismálum sem og aukin meðvitund um hversu viðkvæmt jafnvægi náttúrunnar er," segir í upphafi ályktunar aðalfunds SFR, stéttarfélags í almannaþjónustu, sem haldinn var laugardaginn 19. mars.

Enn nokkur sæti laus í tungumálafræðslunni

21.3.2005

Enn eru nokkur sæti laus á tungumálafræðslu BSRB hjá Framvegis í ensku, dönsku og spænsku (30 stundir). Námskeiðin hefjast mánudaginn 4. apríl og verða á mánud. og miðvikud. kl. 17 – 19:30  (8 skipti)

Félag flugmálastarfsmanna ríkisins semur

19.3.2005

Félag flugmálastarfsmanna ríkisins skrifaði undir samninga við launanefnd ríkisins í gærkvöldi. Samningarnir eru á svipuðum nótum og aðrir hafa verið að semja á við ríkið.

Póstmenn samþykkja kjarasamning

18.3.2005

Félagsmenn í Póstmannafélagi Íslands hafa samþykkt nýgerðan kjarasamning PFÍ við Íslandspóst . Á kjörskrá voru 1072, atkvæði greiddu 638 eða 59,5%. Já sögðu 368 eða 57.7%. Nei sögðu 255 eða 40%. Auðir seðlar og ógildir voru 15 eða 2.3%.

Ný heimasíða Félagsmálaskóla alþýðu

18.3.2005

Félagsmálaskóli alþýðu hefur opnað nýja heimasíðu. Slóðin á heimasíðuna er www.felagsmalaskoli.is  Félagsmálaskóli alþýðu er starfræktur af Alþýðusambandi Íslands og BSRB. MFA, Menningar- og fræðslusamband alþýðu, fer með rekstur og málefni skólans. Hlutverk hans er að auka þekkingu talsmanna stéttarfélaga og efla þá í starfi til þess að þeir séu betur í stakk búnir að vinna að bættum lífskjörum launafólks.

Starfsmenn Fríhafnar og FLE felldu kjarasamning

18.3.2005

Starfsmenn Fríhafnarinnar og Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar felldu kjarasamning sem nýlega var gerður. Á kjörskrá voru 113 starfsmenn. 96 greiddu atkvæði, eða 85%. Já sögðu 33, eða 34,4%. Nei sögðu 59, eða 61,5%. Auðir og ógildir seðlar voru 4, eða 4,2%.

Samflotið semur við ríkið

18.3.2005

Samflot bæjarstarfsmannafélaga skrifaði undir kjarasamning við Samninganefnd ríkisins fyrir hönd ríkisstarfsmanna í félögunum s.l. nótt í húsakynnum Ríkissáttasemjara. Samningurinn er á svipuðum nótum og þeir samningar sem gerðir hafa verið á undanförnum dögum fyrir ríkisstarfsmenn innan BSRB.  

Starfsmannafélag Ríkisútvarpsins samþykkir kjarasamning við ríkið

18.3.2005

Starfsmannafélag Ríkisútvarpsins hefur samþykkt nýgerðan kjarasamning við ríkið. Þátttaka í atkvæðagreiðslunni var 46%. 87% sögðu já, 8,7% nei og 4,3% voru auðir.

Útvarpsstjóri endurskoði ráðningu fréttastjóra fréttastofu Útvarps

18.3.2005

"Stjórn BSRB lýsir yfir fullum stuðningi við kröfu Starfsmannasamtaka Ríkisútvarpsins um  að útvarpsstjóri endurskoði ákvörðun sína um ráðningu fréttastjóra fréttastofu Útvarps.  Fagleg og sanngjörn sjónarmið ber jafnan að hafa í heiðri við ráðningu starfsmanna," segir m.a. í ályktun sem stjórn BSRB samþykkti á fundi sínum í dag.

Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar samdi við ríkið

16.3.2005

Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar skrifaði undir nýjan kjarasamning við ríkið vegna félagsmanna sinna á LSH., laugardaginn 12. mars. s.l. Samningnum svipar til nýgerðra kjarasamninga, annars vegar samnings SFR við ríkið og vegna háskólamenntaðra félagsmanna er tekið mið af samningum BHM og ríkisins.

Starfsmenn stjórnarráðs og RÚV hafa samið við ríkið

14.3.2005

Félag starfsmanna stjórnarráðsins og Starfsmannafélag Ríkisútvarpsins skrifuðu undir kjarasamninga við ríkið um helgina. Samningarnir eru á svipuðum nótum og samningur SFR við ríkið.

Kjölur semur við ríkið

12.3.2005

Skömmu eftir miðnætti aðfaranótt laugardags 12. mars, skrifuðu samninganefnd KJALAR og samninganefnd ríkisins, undir samkomulag um breytingar á kjarasamningi félagsins við fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs. Samningurinn er á svipuðum nótum og SFRR og BHM sömdu um nýlega.

Betri heimur er raunverulegur valkostur

10.3.2005

"Jafnréttisbarátta og barátta fyrir bættum kjörum kvenna er hluti af baráttunni fyrir betri heimi.  Því viljum við sem teljum að betri heimur sé raunverulegur valkostur nota 8.mars Alþjólegan baráttudag kvenna fyrir friði og jafnrétti til að horfa gagnrýnum augum á samfélagið.  Það er mikilvægt að sameina alla þá sem ekki sætta sig við skiptingu heimsins í austur og vestur, norður og suður, kristinn heim eða islam, ríkan heim eða fátækan," segir m.a. í ályktun frá opnum fundi á alþjóðlegum baráttudegi kvenna fyrir friði og jafnrétti 8. mars.

SFR og ríkið undirrita kjarasamning

10.3.2005

SFR undirritaði í gær nýjan kjarasamning við ríkið. “Það er margt í þessum samningi sem er mjög til bóta, en mestu skiptir að við teljum okkur vera að tryggja félagsmönnum SFR áframhaldandi kaupmáttaraukningu um leið og tekin eru mikilvæg skref til að vinna gegn kynbundnum launamun” segir Jens Andrésson formaður SFR um nýja kjarasamninginn.

Starfsmenn RÚV skora á útvarpsstjóra að endurskoða ráðningu fréttastjóra

10.3.2005

Í dag samþykkti almennur fundur starfsmanna Ríkisútvarpsins tillögu í tilefni ráðningar fréttastjóra Útvarps þar sem skorað er á útvarpsstjóra að endurskoða ákvörðun sína um ráðningu í starf fréttastjóra. 191 greiddu atkvæði og 178 (93%) samþykktu tillöguna, 6 (3%) voru á móti og auðir seðlar voru 7 (4%). Atkvæðagreiðslan var leynileg.

Fagleg sjónarmið ráði við ráðningu nýs fréttastjóra

9.3.2005

Starfsmannasamtök Ríkisútvarpsins sendi í gær frá sér erindi til Útvarpsstjóra að hann láti fagleg sjónarmið ráða við ráðningu nýs fréttastjóra á Fréttastofu RÚV. Starfsmannafélag RÚV er aðili að Starfsmannasamtökunum.

SFR semur við ríkið

5.3.2005

SFR gekk frá nýjum kjarasamningi við fjármálaráðuneytið kl. 5.30 í morgun eftir næturlangan fund. Eru launaáhrif samningsins metin á 18% á samningstímanum en hann gildir til 30. apríl 2008. Er stefnt að því að undirrita samninginn 9. mars nk.

Þjónustutilskipunin verður endurskoðuð

4.3.2005

Framkvæmdastjórn ESB hefur nú staðfest frétt sem birtist á BSRB vefnum í gær þess efnis að hún telji hina umdeildu þjónustutilskipun vera „pólitískt og tæknilega óframkvæmanlega“.

Atkvæðagreiðsla um samning SFR og Flugstöðvarinnar

4.3.2005

Tveir kynningarfundir um nýjan kjarasamning SFR og Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar hf. og Fríhafnarinnar ehf. hafa verið haldnir en atkvæðagreiðsla um samninginn fer fram á þriðjudag og miðvikudag í næstu viku. Á kjörskrá eru 111 starfsmenn.

Hver er staða velferðarkerfisins?

4.3.2005

Norræna ráðherranefndin og Norðurlandaráð, í samvinnu við Norræna húsið og Norðurlöndin í fókus, boða til opins fundar um þróun íslenska velferðarkerfisins, miðvikudaginn 9. mars. Fundurinn verður i Norræna húsinu og hefst kl. 14.00. Aðgangur er ókeypis.

Getur brugðið til beggja vona hjá SFR og ríkinu

4.3.2005

Samninganefnd SFR hefur setið á samningafundi í húsakynnum Ríkissáttasemjara síðan á hádegi í dag og freistað þess að ganga frá nýjum kjarasamningi við samninganefnd fjármálaráðuneytisins. Nú undir kvöld voru enn nokkur mál óleyst.

Áfangasigur gegn þjónustutilskipuninni

3.3.2005

Verkalýðshreyfingin og aðrir andstæðingar hinnar umdeildu þjónustutilskipunar ESB virðast nú hafa unnið sinn fyrsta áfangasigur. Á netútgáfu Financial Times er frá því greint að framkvæmdastjórn ESB hafi á fundi sínum í gær, miðvikudaginn 2. mars ákveðið að “útvatna” þjónustutilskipunina sökum þess hversu harðrar andstöðu hún hefur mætt. Mun José Barroso, forseti framkvæmdastjórnarinnar, þar hafa tjáð félögum sínum á fundinum að þjónustutilskipunin sé pólitískt og tæknilega óframkvæmanleg og að hún þurfi alvarlegra breytinga við.

Póstmenn semja

1.3.2005

Undirritaður hefur verið nýr kjarasamningur milli Póstmannafélags Íslands og Íslandspósts. Samningurinn gildir til þriggja ára eða til ársloka 2007 og nær til um 1100 félagsmanna Póstmannafélagsins. Áhersla var á að hækka laun þeirra lægst launuðu. Meðalhækkun launa er um 21% á samningstímanum. Upphafshækkun á þessu ári er 4,25%, 3,0% frá 1. janúar 2006 og 2.5% frá 1. janúar 2007.

Ísland í alþjóðasamfélagi

1.3.2005

Ísland í alþjóðasamfélagi er yfirskrift fundar í tilefni alþjóðlegs baráttudags kvenna fyrir friði og jafnrétti. Fundurinn verður haldinn þriðjudaginn 8. mars kl. 17 í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur.

Um BSRB

Póstlistaskráning


Á döfinni


althjodamal

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta