Fréttir
BSRB leggur til að kveðið verði á um samfélagslegt eignarhald á vatni í stjórnarskrá Íslands
30.4.2005
Einn réttur - ekkert svindl
29.4.2005
BSRB hvetur félagsmenn sína til að fjölmenna í 1. maí göngur og á fundi um allt land. Í Reykjavík verður safnast saman á Skólavörðuholti framan við Hallgrímskirkju kl. 13.00. Gangan leggur af stað kl. 13.30. Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur fara fyrir göngunni. Gengið niður Njarðargötu, Sóleyjargötu, Fríkirkjuveg, vestur Vonarstræti, norður Suðurgötu og Aðalstræti inn á Ingólfstorg. Útifundur á Ingólfstorgi hefst kl. 14.10 og er Ögmundur Jónasson formaður BSRB meðal þeirra sem ávarpa fundinn. Fundartími áætlaður 45 mín. Að loknum útifundi býður Ályktun um fjárveitingu til Mannréttindaskrifstofu Íslands
28.4.2005
Ný stjórn Starfsmannafélags Ríkisútvarpsins
28.4.2005
Starfsmenn Flugstöðvarinnar samþykkja kjarasamning
28.4.2005
Nýr kjarasamningur starfsmanna hjá Flugstöð Leifs Eiríkssonar, sem greidd hafa verið atkvæði um síðustu daga, hefur verið samþykktur af félagsmönnum SFR, en starfsmenn felldu kjarasamning í mars sl.
Nýr formaður í Starfsmannafélagi Mosfellsbæjar
28.4.2005
Síðasta tækifæri til að innleiða breytingu á vinnutímatilskipuninni
22.4.2005
Félag starfsmanna stjórnarráðsins með heimasíðu
22.4.2005
Félag starfsmanna stjórnarráðsins hefur tekið í notkun heimasíðu. Slóðin á síðuna er: www.fss.bsrb.is
Varað við breytingum á lífeyriskerfinu
22.4.2005
"Nánast án nokkurrar umræðu í verkalýðshreyfingunni virðast örfáir einstaklingar ætla að knýja í gegn grundvallarbreytingar á lífeyriskerfinu. Til stendur að tengja verðmæti iðgjalda aldri greiðandans þannig að iðgjöld sem greidd eru á unga aldri eru verðmætari en iðgjöld sem við greiðum þegar aldurinn færist yfir. Rökin eru þau að sjóðurinn hafi peningana lengur til ávöxtunar. En hvað þýðir þetta t.d. fyrir konur sem eru fjarri vinnumarkaði á fyrstu árum starfsævinnar vegna barneigna og hvað með langskólagengið fólk sem kemur seint inn á vinnumarkað?" segir Ögmundur Jónasson í grein á heimasíðu sinni.
Starfsmenn stjórnarráðsins og Austfirðingar samþykkja samning við ríkið
19.4.2005
Nýr samningur við starfsmenn Flugstöðvarinnar og Fríhafnarinnar
15.4.2005
Alvarlegar athugasemdir við vinnubrögð við breytingar á lífeyriskerfinu
15.4.2005
FOSVest semur við Orkubú Vestfjarða
14.4.2005
Kjaradeilu SFR og Hjartaverndar vísað til Sátta
13.4.2005
Garðbæingar samþykkja samninginn við ríkið
13.4.2005
Atvinnulýðræði er til góðs
12.4.2005
"Í kjarasamningum í byrjun níunda áratugar síðustu aldar var samið um að efla atvinnulýðræði í opinberum stofnunum. Því miður var ákvæðum þessara samninga sem BSRB gerði við Ragnar Arnalds þáverandi fjármálaráðherra, ekki alls staðar fylgt eftir. Það var þó gert í Ríkisútvarpinu," segir Ögmundur Jónasson formaður BSRB m.a. í grein á heimasíðu sinni þar sem hann fjallar um frumvarp ríkisstjórnarinnar um Ríkisútvarpið og nefnir RÍKISSTJÓRNIN Á MÓTI ATVINNULÝÐRÆÐI!
Borgarstjóri á fundi hjá fulltrúaráði Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar
12.4.2005
Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri mætti á fulltrúaráðsfund hjá Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar fimmtudaginn 7. apríl til að kynna stjórnkerfisbreytingar hjá borginni. Auk hennar fluttir Helga Jónsdóttir og Birgir Björn Sigurjónsson framsöguerindi á fundinum en samþykktar hafa verið tillögur Stjórnkerfisnefndar sem miða að því að einfalda stjórnkerfið með samsvörun nefnda og stjórnsýslunnar, skýra ábyrgðarsvið, hraða málsmeðferðum og auka skilvirkni. Gera stöðu borgarstjórnar skýrari og borgarstjórnarfundi markvissari, auka á lýðræðisleg vinnubrögð og samráð til að stuðla að jafnræði og gagnsæi í borgarkerfinu. Félag flugmálastarfsmanna ríkisins samþykkir samninginn við ríkið
11.4.2005
Félag flugmálastarfsmanna ríkisins hefur samþykkt kjarasamning við ríkið með rúmum 80% greiddra atkvæða. Á kjörskrá voru 145, 115 greiddu atkvæði um samninginn eða 79,3%. Já sögðu 94 eða 82%, nei sögðu 16 eða 14%. Auðir og ógildir voru 5 eða 4%.
Húsvíkingar felldu samninginn við ríkið
11.4.2005
Starfsmannafélags Húsavíkur felldi kjarasamninginn við ríkið í almennri atkvæðagreiðslu. 8 sögðu nei, 3 sögðu já og 2 seðlar voru auðir.
Málþing um áfengis- og vímuvarnir á vinnustöðum
8.4.2005
Kjölur samþykkir samninga við ríkið
8.4.2005
Samningur Starfsmannafélags Akraness við ríkið felldur
7.4.2005
Starfsmannafélag Hafnarfjarðar samþykkir samning við ríkið
6.4.2005
Starfsmannafélag Garðabæjar semur við ríkið
6.4.2005
Starfsmannafélag Suðurnesja samþykkir kjarasamning við ríkið
5.4.2005
Starfsmannafélag Reykjavíkur samþykkir samninginn við ríkið
5.4.2005
FOSVest samþykkir samninginn við ríkið
4.4.2005
SFR samþykkir kjarasamning við ríkið
2.4.2005
Ekkert að óttast - bara drífa sig
1.4.2005
Um BSRB
Á döfinni
Leit
























