Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

Samið við LN en þrjú félög slitu viðræðum

30.5.2005

Kjölur og flest starfsmannafélögin í Samflotinu skrifuðu undir nýjan kjarasamning við Launanefnd sveitarfélaga á miðnætti í gær. Starfsmannafélög Hafnarfjarðar, Kópavogs og Akraness slitu hins vegar viðræðum við Launanefndina á laugardeginum. Samningurinn sem undirritaður var felur í sér sambærilegan  kaupmátt og aðrir kjarasamningar sem hafa verið gerðir á þessu vori. Gildistími er 1. apríl 2005 til 30. nóvember 2008 og tekur við af eldri samningum sem runnu út 31. mars sl.

NFS heimsækir Kárahnjúka

30.5.2005


Grétar Þorsteinsson forseti ASÍ, Oddur Friðriksson yfirtrúnaðarmaður á Kárahnjúkum og Ögmundur Jónasson formaður BSRB.

NFS, Norræna verkalýðssambandið, hélt stjórnarfund á Íslandi í síðustu viku. Í tengslum við fundinn var farið í heimsókn að Kárahnjúkum og framkvæmdirnar þar skoðaðar. Leiðsögumaður í ferðinni var Oddur Friðriksson yfirtrúnaðarmaður á svæðinu, en mikið hefur mætt á honum frá upphafi framkvæmdanna.

Kjarasamningur SFR og Styrktarfélags vangefinna samþykktur

26.5.2005

Kjarasamningur SFR og Styrktarfélags vangefinna hefur verið samþykktur, en samningurinn var felldur í atkvæðagreiðslu félagsmanna í mars sl.  34 greiddu atkvæði, eða tæplega 30%.  Þar af sögðu 25 já, eða 74%, en nei sögðu 9, 26%.

Samþætting vs. Einangrun

25.5.2005

Málþing um reynslu innflytjenda  verður haldið laugardaginn 28. maí kl. 12:00 - 14:00 í Reykjavíkur Akademíunni, Hringbraut 121 4. hæð. Yfirskrift málþingsins er: Integration vs. Isolation – Samþætting vs. Einangrun. Málþingið fer fram bæði á íslensku og ensku. Fimm innflytjendur sem búið hafa mislengi á Íslandi munu halda stutt framsöguerindi um reynslu sína af því að flytja til Íslands og verða hluti af íslensku samfélagi. Tvær íslenskar konur segja frá reynslu sinni af því að búa lengi erlendis og snúa aftur til Íslands.

SFR semur við Styrktarfélag vangefinna

23.5.2005

SFR - stéttarfélag í almannaþjónustu og Styrktarfélag vangefinna skrifuðu undir nýjan kjarasamning föstudaginn 20. maí.  Samningurinn er á svipuðum nótum og gerður var milli SFR og ríkissjóðs í mars sl., en nánari atriði stofnanasamningins hafa verið útfærð.

Stýrihópur ungra SFR félaga

17.5.2005

SFR hefur stofnað stýrihóp ungra SFR félaga. Markmið hópsins er að virkja unga félagsmenn og efla áhuga þeirra fyrir stéttarfélagsstarfi. Í hópnum sitja 10 aðalmenn og 2 varamenn.

SLFÍ stendur fast á kröfum sínum

17.5.2005

Á trúnaðarmannafundi sem haldinn var á 15 stöðum á landinu samtímis með hjálp fjarfundabúnaðar,  kom fram að sjúkraliðastéttin er ekki tilbúin að hvika í neinu frá þeim kröfum sem samninganefnd félagsins hefur sett fram, í viðræðum sínum við ríkið. Litið er til þeirra kjarasamninga sem gerðir hafa verið við aðrar fagstéttir opinberra starfsmanna.

BSRB lýsir andstöðu við frumvarp um Ríkisútvarpið

3.5.2005

"Stjórn BSRB lýsir eindreginni andstöðu við frumvarp ríkisstjórnarinnar um Ríkisútvarpið. Ef frumvarpið verður að lögum mun það skerða kjör og réttindi starfsmanna og er einboðið  að upp munu koma mál sem nauðsynlegt verður að útkljá fyrir dómstólum," segir í byrjun ályktunar frá stjórn BSRB.

BSRB lætur sig varða almannahag

3.5.2005

Birtist í Fréttablaðinu 3. maí 2005:
Björn Ingi Hrafnsson ritar grein á heimasíðu sína sl. laugardag þar sem hann gefur í skyn að stjórn BSRB sé einhvers konar framlenging á flokki Vinstri grænna. Tekur hann þar tvö málefni sem dæmi, annars vegar ályktun BSRB um fjárveitingu til Mannréttindaskrifstofu Íslands og hins vegar tillögu um að kveðið verði á um samfélagslegt eignarhald á vatni í stjórnarskrá Íslands.

Landssamband lögreglumanna semur við ríkið

2.5.2005

Landssamband lögreglumanna hefur skrifað undir nýjan kjarasamning við ríkið. Hér er um að ræða tímamóta samning á þann hátt að í fyrsta skipti hefur verið gengið frá kjarasamningi aðila á gildistíma fráfarandi kjarasamnings. Gildistími samningsins er frá 1. maí 2005 til 31. október 2008. Meðaltalslaunahækkun á samningstímanum er um 19,32%.

1. maí ávörp Ögmundar Jónassonar formanns BSRB

1.5.2005

Ögmundur Jónasson formaður BSRB flutti í dag, 1. maí, þrjár ræður. Fyrir hádegi talaði hann í Grafarvogsskirkju. Hann ávarpaði síðan baráttufund launafólks á Ingólfstorgi og í framhaldi af því fultti hann ræðu á baráttufundi launafólks í Hafnarfirði. Í ræðu sinni á Ingólfstorgi fjallar hann m.a. um hvernig völdin hafa flust til í þjófélaginu ekki bara í efnahagslegu tilliti heldur einnig völdin í heimi lista og menningar en þar hefur ákvarðanatakan færst til auðmanna. Þá hvetur Ögmundur launafólk að standa vörð um hin félagslegu gildi í samfélaginu. Hann nefnir sem dæmi íbúðalánakerfið, skólana og heilbrigðisþjónustuna

Einn réttur – ekkert svindl

1.5.2005

1. maí ávarp fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna í Reykjavík, BSRB, BHM, KÍ og INSÍ:

Stéttarfélög hafa sjaldan haft mikilvægara hlutverki að gegna en í dag né hafa verkefni þeirra verið umfangsmeiri. Ef litið er til þeirra þjóðfélagslegu breytinga sem átt hafa sér stað á síðustu árum, þá verður þetta vaxandi hlutverk stéttarfélaga ljóst: Alheimsvæðingin, aukin markaðsvæðing, samfara stórefldum styrk fjármagnseigenda þar sem valdið hleðst sífellt á færri hendur um leið og það teygir sig út fyrir mörk og íhlutunarrétt þjóðríkja. Ísland er hluti af  þessu alþjóðlega og samtvinnaða viðskiptaneti. Vaxandi áhrif auðhringa og stórfyrirtækja, sem styðjast við markaðssinnaða stjórnmálamenn sækja að réttindum og kjörum launafólks um allan heim. Landið okkar er hluti af smækkandi heimsmynd þar sem verkalýðshreyfingin þarf að verja af fullum þunga þau réttindi og kjör sem við höfum náð með baráttu á síðustu öld, segir í byrjun 1. maí ávarps fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna í Reykjavík, BSRB, BHM, KÍ og INSÍ.


Um BSRB

Póstlistaskráning


Á döfinni


althjodamal

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta