Fréttir
Lítil hús laus í Munaðarnesi
29.6.2005

Nú eru laus lítil hús í Munaðarnesi. Húsin eru með svefnpláss fyrir tvo til þrjá. Heitir pottar eru við húsin. Vikuleigan er 13 þúsund krónur fyrir félagsmenn. Nánari upplýsingar á skrifstofu BSRB í síma 525 8300.
Tollverðir samþykkja kjarasamning
29.6.2005
Ráðstefna Norrænna ríkisstarfsmanna á Akureyri
28.6.2005
Kröftugur og fjölmennur fundur
24.6.2005

Fjölmenni var á fundi BSRB í gær og hlýddi þar á kraftmikið erindi Hans Engelberts framkvæmdastjóra PSI þar sem hann ræddi helstu baráttumál Alþjóðasamtaka starfsfólks í almannaþjónustu og hvernig baráttan fyrir bættri almannaþjónustu tengist baráttunni gegn fátækt, fyrir réttinum til að vera í verkalýðsfélagi og fyrir jafnrétti í heiminum.
Samningur samþykktur í Hafnarfirði
23.6.2005
Formaður BSRB gagnrýnir Ríkisendurskoðun harðlega
23.6.2005
FOSS samþykkir kjarasamning við Launanefnd sveitarfélaga
22.6.2005
Framtíðarsýn á almannaþjónustuna
21.6.2005
Hans Engelberts framkvæmdastjóri PSI, Alþjóðasamtaka starfsmanna í almannaþjónustu, heldur fyrirlestur á vegum BSRB í BSRB húsinu, Grettisgötu 89, fimmtudaginn 23. júní kl. 9.30 árdegis. Í fyrirlestrinum mun Hans Engelberts fjalla um framtíðarsýn PSI á þróun almannaþjónustunnar í ljósi alþjóðavæðingar og markaðsvæðingar. Fyrirlesturinn er öllum opinn og er hann einStarfsmannafélag Hafnarfjarðar semur við Launanefnd sveitarfélaga
20.6.2005
Starfsmannafélag Hafnarfjarðar og launanefnd sveitarfélaga náðu samkomulagi um nýjan kjarasamning 17. júní sl. Samningurinn og bókanir eru á sömu nótum og samningur sá er gerður var við Samflot bæjarstarfsmanna í lok maí. Almenn kynning á samningnum verður fyrir félagsmenn STH í Álfafelli Íþróttahúsinu við Strandgötu n.k. þriðjudag kl 12:00.
Laus hús í Munaðarnesi og á Eiðum
15.6.2005

Veðurblíðunar notið í Munaðarnesi.
Nokkur orlofshús eru laus í Munaðarnesi og á Eiðum vikuna 17. - 24. júní. Hægt er að panta húsin með því að hafa samband við skrifstofu BSRB í síma 525 8300. Fyrstur kemur fyrstur fær.
Kjölur samþykkir kjarasamning við LN
14.6.2005
Starfsmenn sveitarfélaga í Kili, stéttarfélagi starfsmanna í almannaþjónustu, hafa samþykkt kjarasamning við Launanefnd sveitarfélaga með 69% greiddra atkvæða Alls tóku 62% félagsmenn þátt í atkvæðagreiðslunni. Á kjörskrá voru 537 þar af kusu 332, já sögðu 230 eða 69% nei sögðu 75 eða 23% auðir og ógildir seðlar 27 eða 8%.
Húsvíkingar samþykkja kjarasamning við LN
14.6.2005
Velheppnuð Menningarhátíð
13.6.2005

Ögmundur Jónasson, Anna Hrefnudóttir og Þorsteinn frá Hamri við eitt verka Önnu.
Menningarhátíð BSRB var haldin í Munaðarnesi sl. laugardag. Fjölmenni var á hátíðinni enda skartaði Borgarfjörður sínu fegursta í glampandi sól og hita. Góður rómur var gerður að söng Skagfirsku söngsveitarinnar og upplestri Þorsteins frá Hamri á ljóðum sínum. Síðan var opnuð sýning á verkum Önnu Hrefnudóttur. Í sýningarskrá segir að þetta sé hluti af flokki mynda sem myndlistarkonan er að vinna að og nefnist hann Stefnumót.
Drykkjarvatn teljist til mannréttinda og eignarhald þess sé samfélagslegt
13.6.2005
Páll H. Hannesson alþjóðafulltrúi BSRB kynnti tillögu BSRB um breytingu á stjórnarskrá Íslands á málþingi sesm haldið var sl. laugardag á vegum stjórnarskrárnefndar. Stjórn BSRB hefur lagt þá tillögu fyrir stjórnarskrárnefnd að aðgangur að drykkjarvatni teljist mannréttindi og að eignarhald á vatni skuli jafnan vera samfélagslegt og skuli það bundið í stjórnarskrá lýðveldisins. BSRB skírskotar beint til samþykktar Sameinuðu þjóðanna frá árinu 2002 og er Ísland aðili að henni. Samkvæmt henni telst aðgangur að vatni til grundvallarmannréttinda. Sérhver maður skal þess vegna eiga rétt á og vera tryggður nægilegur og öruggur aðgangur að hreinu drykkjarvatni á viðráðanlegu verði, auk vatns til hreinlætis og heimilishalds. Fara skal með vatn sem félagsleg og menningarleg gæði, en ekki skal litið á vatn sem hverja aðra verslunarvöru. Þess skal gætt að framkvæmd sé sjálfbær og þannig tryggt að réttindin megi raungera fyrir kynslóðir nútíðar sem og framtíðarinnar. Það er skylda stjórnvalda að tryggja þegnum sínum þennan rétt án mismununar. Það er því ljóst að íslensk stjórnvöld hafa hér tekið sér skyldur á herðar.
Lögreglan samþykkir kjarasamninga
10.6.2005
Landssamband lögreglumanna samþykkti kjarasamning sambandsins við fjármálaráðherra með 64% greiddra atkvæða gegn tæpu 31% greiddra atkvæða. Auðir seðlar og og ógildir voru rúm 5%. Þátttaka í atkvæðagreiðslunni var rúm 60%.Talningu atkvæða lauk á hádegi í dag en samningurinn var undirritaður 30. apríl sl.
Sigur í biðlaunamáli
7.6.2005
Tollverðir semja
7.6.2005
Tollvarðafélag Íslands undirritaði nýjan kjarasamning í gærkvöldi. Er hann á svipuðum nótum og hjá öðrum sem völdu BHM leiðina. Gildistími hans er til 31. október 2008.
Menningarhátíð BSRB í Munaðarnesi 11. júní
1.6.2005

Ljáðu mér eyra.
Árleg Menningarhátíð
Laust um helgina í Munaðarnesi
1.6.2005
Nokkur hús eru laus nú um helgina í Munaðarnesi. Þar er allur gróður að spretta út og sumarið gengið í garð. Heitir pottar eru við öll húsin og stutt í margar af helstu náttúruperlum Íslands. Hægt er að leigja húsin með því að hafa samband við skrifstofu BSRB í síma 525 8300. Skrifstofan mun einnig leigja út hús í sumar sem losna og hvetjum við fólk til að kanna það.Vatn, einkavæðing og mannréttindi
1.6.2005
Vatn, einkavæðing og mannréttindi var yfirskrift fyrirlesturs sem Páll H. Hannesson alþjóðafulltrúi BSRB hélt á vegum Snarrótar í gær 31. maí. Í fyrirlestrinum rakti Páll reynslu annarra þjóða af einkavæðingu vatnsveitna og baráttu alþjóðahreyfingar verkafólks fyrir því að vatn verði samþykkt sem sjálfsögð mannréttindi. Hann greindi frá erindi BSRB til stjórnarskrárnefndar um að í endurskoðaðri stjórnarskrá yrði ákvæði um að líta beri á drykkjarvatn sem mannréttindi en ekki sem verslunarvöru.
Um BSRB
Á döfinni
Leit
























