Fréttir
Sjúkraliðar samþykkja kjarasamning
21.7.2005
Starfsmannafélag Kópavogs fellir kjarasamning við LN
21.7.2005
Starfsmannafélag Suðurnesja íhugar verkfall
6.7.2005
Ný heimasíða LSOS
6.7.2005
Samið í Kópavogi
6.7.2005
Starfsmannafélag Kópavogs undirritaði nýjan kjarasamning við Launanefnd sveitarfélaga 1. júlí sl. Samningurinn er sá sami og samflotsfélögin undirrituðu, en með viðbótarsamkomulagi sem gert var við bæjaryfirvöld í Kópavogi. Samningurinn verður borinn undir atkvæði félagsmanna síðar í mánuðinum.
Brúum bilið – byggjum almannaþjónustuna!
1.7.2005

Davíð Odsson utanríkisráðherra tekur við hvíta bandinu af formanni og varaformönnum BSRB.
Davíð Oddsson utanríkisráðherra tók í dag við ályktun stjórnar BSRB þar sem stjórnvöld og almenningur eru hvattur til að taka virkan þátt í að brúa þá gjá sem er á milli ríkra og snauðra. Það voru Ögmundur Jónasson formaður BSRB, Sjöfn Ingólfsdóttir og Jens Andrésson varaformenn bandalagsins sem afhentu utanríkisráðherra ályktunina. Einnig var honum afhent hvítabandið sem verkalýðshreyfingin um allan heim setur upp í dag en á það er letrað: "bridge the powerty gaps" eða brúum fátæktarbilið.
Útkall á alheimsvísu: Aðgerðir gegn fáttækt
1.7.2005
Alþjóðasamtök starfsmanna í almannaþjónustu, Public Services International , PSI, sem BSRB er aðili að, og Alþjóðasamband frjálsra verkalýðsfélaga, ICFTU, eru hluti af gríðarstórri og öflugri hreyfingu um allan heim gegn fáttækt Global Call to Action Against Poverty. Að þeirri hreyfingu standa mörg hundruð frjálsra félagasamtaka og verkalýðsfélaga, en hreyfingin nýtir lykilatburði á alþjóðavettvangi, eins og t.d. fund G8- ríkjanna núna, til að draga athygli heimsins að nauðsyn þess að útrýma fátækt og ná settum Þúsaldamarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, með meiri og betri þróunarhjálp, afnámi skulda og sanngjörnum viðskiptum.
Sjúkraliðar semja
1.7.2005
Vernharður einarður gegn einkarekstri slökkviliðsins
1.7.2005

Vernharður Guðnason, formaður LSS, Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, tekur einarða afstöðu gegn hugmyndum um einkavæðingu slökkviliða, en fyrirtækið InPro ehf. leitaði sl. vetur víða hófanna með að vinna þeirri hugmynd brautargengi. Taldi fyrirtækið sig geta boðið þessa þjónustu á betri og hagkvæmari hátt en slökkvilið sveitarfélaganna hafa getað hingað til. Í nýjasta hefti Slökkviliðsmannsins kveður Vernharður skýrt að orði og segir einkarekstur ekki eiga heima í þeirri grunn- og neyðarþjónustu sem þjónusta slökkviliða er.
Um BSRB
Á döfinni
Leit
























