Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

Anna sigraði á móti við Glanna

26.8.2005


Anna Ólafsdóttir tekur við viðurkenningarskjali fyrir sigurinn

Forskot var tekið á sæluna á golfvellinum við Glanna í Borgarfirði í gær fimmtudaginn 25. ágúst með óformlegu móti sem 20 manns tóku þátt í. Golfvöllurinn við Glanna er 9 holu völlur og verður formlega opnaður næsta vor í Borgarfirði. Völlurinn hefur fengið nafnið Glanni og er staðsettur milli þjóðvegar og Norðurár, við fossinn Glanna. Aðkoman er rétt sunnan Viðskiptaháskólans að Bifröst. Sigurvegari á mótinu í gær var Anna Ólafsdóttir sem er fyrrum stjórnarmaður í BSRB og stjórnarformaður Starfsmannafélags Borgarbyggðar áður en félagið sameinaðist öðrum félögum í Kili.

Kjölur semur við Norðurorku hf

26.8.2005

Kjölur, stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu, hefur samið við Samtök atvinnulífsins vegna starfsmanna Norðurorku hf. Samningurinn er á svipuðum nótum og aðrir samningar á almenna vinnumarkaðinum en með samningnum er jafnframt tryggt að félagsmenn Kjalar halda öllum réttindum sem þeir höfðu sem opinberir starfsmenn áður en Norðurorka var einkavædd.

Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar með lausa samninga í haust

25.8.2005

Samningar Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar við Reykjavíkurborg eru lausir 30. nóvember nk. Nokkur önnur aðildarfélög BSRB eiga enn eftir að ganga frá samningum við Launanefnd sveitarfélaga en það er Starfsmannafélag Garðabæjar sem er með lausa samninga 1. október og Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, en samningar þeirra eru lausir 31. desember nk. Þá hefur Starfsmannafélag Suðurnesja verið með lausa samninga síðan í vor og Starfsmannafélög Akraness og Kópavogs felldu kjarasamninga í vor og hafa ekki enn gengið frá nýjum samningum. Öll þessi félög hafa þegar gengið frá kjarasamningum við ríkið.

Nýr formaður Landssambands lögreglumanna

25.8.2005

Sveinn Ingiberg Magnússon tók við sem formaður Landssambands lögreglumanna 1. ágúst sl. Sveinn tekur við formennsku af Óskari Bjartmarz er tekið hefur við embætti yfirlögregluþjóns á Seyðisfirði.

Evrópfræðasetur á Bifröst

25.8.2005

Ögmundur Jónasson formaður BSRB var kjörinn formaður stjórnar nýs Evrópufræðaseturs á Bifröst á fyrsta fundi stjórnar setursins. Eiríkur Bergmann Einarsson stjórnmálafræðingur var ráðinn forstöðumaður setursins sl. vor.

Um BSRB

Póstlistaskráning


Á döfinni


felagsmal

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta