Fréttir
Samningur felldur í Kópavogi
30.9.2005
Kjarasamningur SFR og SFH samþykktur
29.9.2005
Raunhæfar aðgerðir í jafnréttismálum
29.9.2005
Kvenréttindafélag Íslands hélt málþing 29. september þar sem misjöfn staða kynjanna í atvinnulífinu var til umræðu. Í fyrsta sinn í sögu KRFÍ voru allir frummælendur karlkyns.
Skagamenn skrifa undir kjarasamning og fresta verkfalli
27.9.2005
Dönskunám fyrir forystu BSRB
21.9.2005
Starfsmannafélag Kópavogs semur við Launanefnd sveitarfélaga
21.9.2005
Afsláttur fyrir BSRB félaga á Kabarett
21.9.2005
Leikhópurinn Á senunni býður félögum í BSRB 10% afslátt á miðaverði á sýninguna Kabarett í Íslensku óperunni dagana 1., 8., 15. eða 22. október. Almennt miðaverð er 3900 eða 5900 krónur. Einnig býðst hópurinn til að semja við Café Sólon um veitingar fyrir hópa fyrir sýningu og í hléi á vægu verði. Kabarett er sjöunda verkefni hópsins og hefur verið á teikniborðinu í nokkur ár. Eiginlegur undirbúningur hefur staðið frá síðasta sumri. Verkið fjallar um Berlín á uppgangstíma nasistanna í byrjun fjórða áratugar síðustu aldar. Bandaríkjamaðurinn Cliff Bradshaw kemur til Berlínar með það í huga að skrifa skáldsögu. Þar dregst hann fljótt inn í hringiðu, þar sem samfélagið sveiflast á milli öfganna. Annars vegar er partýið og brjálæðið í Kit Kat klúbbnum og hinsvegar eru það stjórnmálin, þar sem nasistar verða sífellt sterkari. Hann kynnist söngkonunni Sally Bowles og hún snýr tilveru hans á hvolf. Sofandi streymir veröldin að feigðarósi og Kabarettinn speglar það sem á gengur.Starfsmannafélag Suðurnesja samþykkti kjarasamning við LN
20.9.2005
Opinber eða einkarekin heilbrigðisþjónusta
16.9.2005
BSRB hefur gefið út bæklinginn "Opinber eða einkarekin heilbrigðisþjónusta" eftir sænska prófessorinn Göran Dahlgren. Bæklingurinn byggir á erindi sem Göran Dahlgren hélt á vegum BSRB en er yfirfarið af honum og aðlagað að prentun. Bæklinginn er hægt að fá ókeypis á skrifstofu BSRB, Grettisgötu 89, eða panta hann í rölvupósti á netfanginu safi@bsrb.is Göran Dahlgren hefur síðan á níunda áratugnum verið áhrifamaður á alþjóðavettvangi á sviði heilbrigðis, – heilsugæslu, – og lýðheilsumála. Bók hans „Hjúkrunarmarkaður framtíðarinnar – hverjir vinna og hverjir tapa?“ sem kom út 1994 vakti mikla athygli, en þar dregur hann upp mynd af samspili heilbrigðiskerfisins og markaðarins. Honum hlotnuðust Norrænu lýðheilsuverðlaunin árið 2003 en í úrskurði dómnefndar sagði að framlag hans hefði brotið blað á sviði jafnréttismála, aðferðafræði, stefnumótunar og skoðanamyndunar í nútíma lýðheilsustarfi. fyrirlestur á málþingi BSRB sem haldið var miðvikudaginn 5. maí 2004 á Hótel Loftleiðum. Fyrirlestur hans fjallaði um heilbrigðisþjónustuna, reynslu af kerfisbreytingum og framtíðarsýn. Málþingið var öllum opið og sóttu hátt í hundrað manns fyrirlesturinn. Göran svaraði síðan fyrirspurnum að loknum fyrirlestri.
Afturvirkar launahækkanir vegna starfsmats og áhrif þeirra á greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði
15.9.2005
BSRB hefur undanfarið fengið fyrirspurnir varðandi rétt starfsmanna til að fá afturvirka leiðréttingu úr Fæðingarorlofssjóði vegna greiðslna úr starfsmati. M.ö.o hvort að útreikningur sem notaður var til grundvallar þegar starfsmaður fór í fæðingarorlof verði leiðréttur til hækkunar vegna starfsmatsins, þrátt fyrir að viðkomandi starfsmaður hafi verið búinn í fæðingarorlofi þegar leiðrétting á launum kom til framkvæmda.
Fatapeningar ekki enn verið greiddir
14.9.2005
Kjörin í landinu verði jöfnuð
13.9.2005
Starfsmannafélag Suðurnesja semur við Launanefnd sveitarfélaga
12.9.2005

Frá undirritun samningsins.
Nýr kjarasamningur Launanefndar sveitarfélaga og Starfsmannafélags Suðurnesja var undirritaður föstudaginn 9. september. Samningurinn gildir til 30. nóvember 2008 og nær til um 450 starfsmanna sveitarfélaga og stofnana á Suðurnesjum. Við lok samningstímans verður kostnaðarauki sveitarfélaganna um 22% sem er sambærilegt við aðra samninga á opinberum vinnumarkaði.
BSRB og hvíta bandið
12.9.2005
"Nú hefur BSRB látið útbúa hvít armbönd með áletruninni; Brúum bilið – Öflug almannaþjónusta er undirstaða velferðar – BSRB. Armbandið kostar ekki neitt, en með því að ganga með það sýna menn átakinu stuðning. Hefur alheimsherferðin gegn fátækt tekið upp kröfuna um öfluga almannaþjónustu, sem lykilþátt í að berjast gegn fátækt og fyrir velferð," segir m.a. í grein eftir Ögmund Jónasson formann BSRB sem birtist í Morgunblaðinu 10. septeber og er nú að finna á heimasíðu Ögmundar.
Hvíta bandið tákn um samstöðu
9.9.2005

BSRB hefur látið útbúa hvítt armband með áletruninni: Brúum bilið - Öflug almannaþjónusta er undirstaða velferðar - BSRB. Fjöldi aðila um allan heim, verkalýðshreyfingin, félagasamtök og einstaklingar, hafa tekið höndum saman á þessu ári til að berjast gegn fátækt í heiminum, undir heitinu Global Call to Action against Poverty, sem við höfum kallað á íslensku Brúum bilið. BSRB hefur tekið virkan þátt í þessu átaki og er hvíta armbandið liður í þessari baráttu. Armbandinu er dreift ókeypis og er hægt að nálgast það á skrifstofu bandalagsins Grettisgötu 89.
SFR og SFH semja
8.9.2005
Stefnir í verkfall á Skaganum
8.9.2005
Tungumálanám BSRB á landsvísu
7.9.2005
Kosning um verkfall á Skaganum í dag og á morgun
7.9.2005
SFR óttast að slitni upp úr viðræðum við SFH
7.9.2005
Tungumálanámskeið BSRB að hefjast
5.9.2005
SFR greiðir atkvæði um verkfall hjá SFH
5.9.2005
Starfsmannafélag Akraness greiðir atkvæði um verkfall
1.9.2005
SFR samþykkir atkvæðagreiðslu um verkfallsboðun hjá SFH
1.9.2005
Um BSRB
Á döfinni
Leit
























