Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

MATÍS hunsar stéttarfélög

28.12.2006

Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins, Matvælarannsóknir Keldnaholti og Rannsóknarstofa Umhverfisstofnunar verða sameinuð í eitt fyrirtæki um áramótin sem kallast MATÍS ohf. Í umsögn BSRB um sameininguna frá 1. mars sl. var hvatt til þess að hið nýja fyrirtæki virti rétt stéttarfélaga um gerð kjarasamninga fyrir hönd félagsmanna sinna, bæði fyrir hönd núverandi starfsmanna og nýráðinna. Frá þessu yrði gengið áður en rekstrarformsbreytingin ætti sér stað. Stjórnendur MATÍS ohf. hafa neitað að ganga til samninga við stéttarfélögin og hafa félög innan BSRB og BHM mótmælt því háttalagi.

Gleðileg jól

23.12.2006

BSRB óskar landsmönnum öllum gleðilegra jóla.

Varað við fastlaunasamningum hjá borginni

19.12.2006

Garðar Hilmarsson formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar varar við fastlaunasamningum sem bjóða á fólki í stað þess sem yfirstjórn borgarinnar kallar ómálefnalegar yfirborganir í bréfum til starfsfólks. Garðar segir að þar sem í uppsagnarbréfinu sé yfirborgunum sagt upp geti starfsfólkið litið svo á að um uppsögn sé að ræða. Bréfið komi á slæmum tíma, og það sé óeðlilegt að ekki sé þegar frágengið hvað nýr samningur inniheldur. Óvissa um framhaldið setji starfsmenn í vanda.

Félag flugmálastarfsmanna ríkisins sextíu ára

18.12.2006

Síðastliðinn föstudag fögnuðu félagsmenn í Félagi flugmálastarfsmanna ríkisins 60 ára afmæli félagsins en það var stofnað 13. desember 1946, sama ár og Íslendingar fengu yfirráðarétt yfir Reykjavíkurflugvelli frá Bretum og tóku um leið við flugstjórn á Norður-Atlantshafssvæðinu. Stofnfélagar FFR voru 26 en nú eru félagsmenn um 160 talsins.

Hátíðarfundur Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar

18.12.2006


Nýstofnaður kór borgarstarfsmanna.

Í tilefni síðasta fulltrúaráðsfundar St.Rv. á áttatíu ára afmælisári félagsins var haldin sérstök hátíðardagskrá 14. desember síðastliðinn. Boðið var upp á glæsilegt jólahlaðborð og fulltrúaráðsmeðlimir fengu jólagjafir frá félaginu. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri og Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, ávörpuðu samkomuna. Nýstofnaður kór borgarstarfsmanna, Borgarkórinn, flutti jólalög við góðar undirtektir og ekki síður söngkonan Magga Stína sem söng sig inn í hug og hjörtu viðstaddra með flutningi á lögum meistara Megasar.

Sinnuleysi stjórnenda Hrafnistu í Hafnarfirði mótmælt

15.12.2006

Sjúkraliðar sem starfa við DAS Hrafnistu í Hafnarfirð hafa sent stjórnendum stofnunarinnar áskorun með undirritun 39 sjúkraliða af 41 sem starfa við heimilið, með kröfu um að laun þeirra verði leiðrétt. Í áskoruninni er sinnuleysi stjórnenda stofnunarinnar varðandi að standa við kjarasamninga féolagsins andmælt. Segja þeir viðbúið að fleiri sjúkraliðar muni leita á önnur mið eins og nú horfir við.

Alvarlegur skortur á sjúkraliðum og hjúkrunarfræðingum yfirvofandi

14.12.2006

Alvarlegur skortur á starfandi sjúkraliðum og hjúkrunarfræðingum er yfirvofandi á næstu árum verði ekki gripið til nauðsynlegra ráðstafana. Þetta kom fram í máli heilbrigðisráðherra, Sivjar Friðleifsdóttur, sem kynnti í dag á blaðamannafundi skýrslu Hagfræðistofnunar, “Spá um þörf fyrir vinnuafl í heilbrigðiskerfinu”. Rúm tvö ár eru liðin frá því samið var um gerð skýrslunnar, en meðal helstu niðurstaðna eru að nýliðun í röðun sjúkraliða er alltof hæg og sama gildi um hjúkrunarfræðinga. Þó hafi þegar verið gripið til þeirra ráðstafana, er varðar hjúkrunarfræðinga, að rýmka numerus clausus í háskólum, þannig að eftir ein fjögur til fimm ár megi búast við að nýliðun haldist nokkuð í hendur við nýliðunarþörf. Fram að þeim tíma megi sjúkrastofnanir hins vegar búa við skort á hjúkrunarfræðingum.

BSRB fagnar því að öryggisgæsla á Keflavíkurflugvelli verði alfarið í höndum opinberra aðila

13.12.2006

Á stjórnarfundi BSRB í gær var samþykkt ályktun þar sem þeirri ákvörðun utanríkisráðuneytisins að hverfa frá því fyrirkomulagi sem komið var á síðastliðið sumar þegar tveimur einkafyrirtækjum voru fengin tiltekin verkefni við öryggisgæslu í Leifsstöð var fagnað sérstaklega.

Ný lög um upplýsingar og samráð í fyrirtækjum

12.12.2006

Ný lög um upplýsingar og samráð í fyrirtækjum voru samþykkt áður en Alþingi fór í jólafrí. Markmið laganna er að tryggja rétt starfsmanna til upplýsinga og samráðs í fyrirtækjum og stuðla að því að fulltrúar starfsmanna og fyrirtæki vinni í anda samvinnu við tilhögun og framkvæmd upplýsingagjafar og samráðs, að teknu tilliti til hagsmuna beggja aðila.

Áhrif tekjuskattsbreytingarinnar á ráðstöfunartekjur

11.12.2006

Skattleysismörk munu hækka í rúm 90.000 við breytingu á tekjuskatti sem tekur gildi um áramót. Þá mun tekjuskattsprósentan lækka um 1% og verður 35,72% við breytinguna. Þetta þýðir að ráðstöfunartekjur 120.000 kr. mannsins hækka um rúmar 2.000 kr. á mánuði. Hjá þeim sem þénar 300.000 á mánuði eru þetta rúmar 3.800 kr. á mánuði.

Skráning hafin í rekstrar- og stjórnunarnám fyrir talsmenn stéttarfélaga

5.12.2006

Skráning er hafin í Rekstrar- og stjórnunarnám fyrir talsmenn stéttarfélaga sem Félagsmálaskóli alþýðu og Háskólinn á Akureyri hafa verið með undanfarin tvö og hálft ár. Samstarfið hefur verið farsælt og mikill áhugi hefur verið á náminu.  Þetta er sérsniðið háskólanám sem hluti af sí- og endurmenntun talsmanna og trúnaðarmanna stéttarfélaganna.  Þetta er mjög gott og krefjandi nám sem gefur fólki möguleika á að efla sig í starfi.

Sí- og endurmenntun 50+

5.12.2006

Síðasti fundur af þremur sem verkefnissstjórn 50+ efnir til um málefni miðaldra og eldra fólks á vinnumarkaði verður haldinn á Grand hótel, Hvammi fimmtudaginn 7. desember n.k. Fjallað verður um sí-og endurmenntun miðaldra og eldra fólks á vinnumarkaði. Fyrirlesarar eru Jón Torfi Jónasson prófessor í uppeldis- og menntunarfræði við Háskóla Íslands, Soffía Gísladóttir framkvæmdastjóri Símenntunarmiðstöðvar Eyjafjarðar og Ingibjörg Elsa Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins.

STAK sameinast Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar

4.12.2006

Starfsmannafélag Akraness hefur samþykkt að sameinast Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar. Í allsherjaratkvæðagreiðslu um sameininguna sem 40% félagsmanna tóku þátt í sögðu tæp 90% já við sameiningunni. Boðað hefur verið til aukaaðalfundar hjá Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar á morgun þar sem lagðar verða til lagabreytingar svo  sameiningin geti átt sér stað. Að öllu óbreyttu sameinast því STAK Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar um áramótin. 

Ríkisstjórnin veiti starfsfólki í almannaþjónustu í Palestínu stuðning

29.11.2006


Grétar Már Sigurðsson ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins tók við bréfi fyrir hönd Valgerðar Sverrisdóttur utanríkisráðherra frá BSRB þar sem farið er fram á að hún hvetji ríkisstjórn Íslands til að bregðast með jákvæðum hætti við því neyðarástandi sem nú ríkir í Palestínu. Það var Ögmundur Jónasson formaður BSRB sem afhenti bréfið. PSI, alþjóðasamtök starfsmanna í almannaþjónustu, hafa hvatt aðildarfélög samtakanna til að senda ríkisstjórnum í sínu heimalandi bréf þar sem hvatt er til þess að starfsfólki í almannaþjónustu í Palestínu verði veittur stuðningur.

Um 15.000 erlendir ríkisborgarar á íslenskum vinnumarkaði

29.11.2006

Samtals má því áætla að á árinu 2006 hafi allt að 10.000 erlendir ríkisborgarar komið til starfa á Íslandi, þó ekki séu þeir svo margir starfandi á hverjum tímapunkti. Árið 2005 voru að jafnaði um 9.000 erlendir ríkisborgarar starfandi á Íslandi skv. upplýsingum Hagstofunnar og má gera ráð fyrir að um 2/3 hlutar þeirra séu enn starfandi á Íslandi, eða um 6.000 manns. Erlendir ríkisborgarar á íslenskum vinnumarkaði eru því að öllum líkindum yfir 15.000 um þessar mundir, en erfitt er að leggja mat á hver fjöldinn er nákvæmlega, er niðurstaða samantektar Vinnumálastofnunar sem birt er á heimasíðu stofnunarinnar.

Ný alþjóðasamþykkt um vinnuskilyrði farmanna

29.11.2006

Skýrsla félagsmálaráðherra um 93. og 94. Alþjóðavinnumálaþingin (ILO)í Genf 2005 og 2006 var nýlega lögð fram á Alþingi. Þessi ILO-þing voru helguð málefnum farmanna og var m.a. samþykkt á ILO-þinginu ný alþjóðasamþykkt um vinnuskilyrði farmanna. Samþykktin verður ein fjögurra grundvallarsamþykkta sem fjalla um málefni á sviði siglinga. Hinar þrjár fjalla um menntun, þjálfun, vaktstöður og skírteini sjómanna. Öryggi mannslífa á höfunum og um varnir gegn mengun hafsins. Með samþykktinni fer Alþjóðavinnumálastofnunin inn á nýjar brautir að því er varðar framsetningu alþjóðlegra reglna á sviði vinnuréttar og vinnuverndar.

Starfslokanámskeið BSRB í janúar 2007

28.11.2006

BSRB stendur fyrir Starfslokanámskeiði að Grettisgötu 89 í upphafi næsta árs. Undanfarna vetur hefur bandalagið staðið fyrir starfslokanámskeiðum á höfuðborgarsvæðinu og reynst mikill áhugi fyrir þessum námskeiðum. Fjöldi fólks hefur sótt námskeiðin og er látið mjög vel af þeim. Námskeiðið er frítt fyrir alla félaga í aðildarfélögum BSRB og maka þeirra. Námskeiðið verður haldið dagana 8. 10. og 11. janúar 2007. Námskeiðið hefst kl. 16.30 þessa daga og lýkur kl. 19.00. Þátttöku þarf að tilkynna á skrifstofu BSRB í síma 525 8300 fyrir 4. janúar 2007. Einnig er hægt að tilkynna þátttöku í netfangið bsrb@bsrb.is

Formenn BSRB, BHM og KÍ óska eftir viðræðum við fjármálaráðherra um lífeyrismál

27.11.2006

Formenn allra heildarsamtaka opinberra starfsmanna, BSRB, BHM og KÍ, hafa ritað fjármálaráðherra bréf og óskað eftir viðræðum um lífeyrisréttindi starfsfólks í stofnunum sem gerðar eru að hlutafélögum. Nýráðnu starfsfólki hefur jafnan verið meinaður aðgangur að Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins enda þótt lög og samþykktir heimili annað eigi viðkomandi starfsmenn aðild að heildarsamtökum opinberra starfsmanna.

Námsframboð Félagsmálaskólans á vorönn

17.11.2006

Félagsmálaskóli alþýðu hefur sent frá sér bækling þar sem hann kynnir námsframboð skólans á vorönn 2007. Að venju er úrval námskeiða fjölbreytilegt. Nefna má námskeið um farsæl samskipti á fjölmenningarlegum vinnustað, jafnrétti á grænu ljósi, samningatækni, tímstjórnun, framkomu og grunn og framhaldsnámskeið í túlkun talna. Félagsmálaskólinn niðurgreiðir námskeiðið um 40%. Hádegisverður og kaffi er innifalið í námskeiðsgjaldi og gert er ráð fyrir að þátttakendur séu í hádegismat. Námskeiðin hefjast kl. 10:00 og þeim lýkur kl. 17:00. Nánari upplýsingar um námskeiðin er hægt að fá hjá Félagsmálaskóla alþýðu í síma 53 55 636 og á vefsíðu Félagsmálaskólans www.felagsmalaskoli.is Skráning fer fram hjá Mími símenntun í síma 580 1800 og í tölvupósti mimir@mimir.is. Einnig er hægt að skrá sig á vefsíðu skólans. Skráningu lýkur viku fyrir áætlaðan námskeiðsdag hvers námskeiðs. Sjá bækling Félagsmálaskólans.

Nýr formaður hjá Starfsmannafélagi Hafnarfjarðar

16.11.2006

Haraldur Eggertsson hefur tekið við sem formaður Starfsmannafélags Hafnarfjarðar. Árni Guðmundsson fráfarandi formaður félagsins hefur hafið störf sem framkvæmdastjóri Framvegis miðstöðvar um símenntun í Reykjavík, sem er í sameign BSRB, SLFÍ; SFR, St.Rv. og Verzlunarskóla Íslands.

Evrópusamvinnan og lýðræðið - morgunfundur

13.11.2006


Morgunfundur Evrópufræðaseturs á Bifröst, í samstarfi við Samtök atvinnulífsins,  BSRB, ASÍ og Samtök iðnaðarins verður haldinn á Grand Hótel í Reykjavík, miðvikudaginn 15. nóvember. Fundurinn verður í salnum Háteigi og stendur frá kl. 8:15 - 10:00.
Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir og aðgangur er ókeypis.

Er heima best?

6.11.2006

Samtök félagsmálastjóra á Íslandi halda málþing um félagslega heimaþjónustu fimmtudaginn 23. nóvember kl. 13 - 17 í Salnum í Kópavogi. Þingið er ætlað öllum sem láta sig félags- og heimaþjónustu varða, hvort sem þeir koma að málum sem fagfólk, stjórnendur, starfsmenn eða notendur. Fjallað verður um þau mál sem efst eru á baugi, stöðu og þróun, aukna áherslu á nærþjónustu, reynslu af tilraunaverkefnum, rannsóknir og sjónarmið notenda.

Ný alþjóðasamtök launamanna

2.11.2006


Stofnráðstefna nýrra alþjóðasamtaka launamanna ICTU er haldin í Vín í Austurríki dagana 1. - 3. nóvember.  Samtökin verða til við sameiningu ICFTU (Alþjóðasamtaka frjálsra verkalýðsfélaga) og WCL (Alþjóðasamtaka verkamanna). Hvatinn að þessari sameiningu er svar verkalýðshreyfingarinnar við hnattvæðingu og er tilgangurinn að styrkja launamenn til aukinna félagslegra réttinda, frjálsrar þátttöku í verkalýðsfélögum og við gerð kjarasamninga.

Starfsumhverfi ríkisstarfsmanna kortlagt

31.10.2006

Í nóvember 2006 fer fram viðamikil könnun á starfsumhverfi ríkisstarfsmanna, en hún er samstarfsverkefni fjármálaráðuneytisins, Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands og ParX viðskiptaráðgjafar IBM. Könnunin mun kanna viðhorf starfsmanna ríkisins til eigin starfsumhverfis þar sem spurt verður um atriði er varða starfsánægju, starfsþróun, vinnuaðstöðu o.þ.h. Auk þess verða forstöðumenn sérstaklega spurðir um starfsmannamál sinna stofnana.

41. þing afgreiðir ályktanir

27.10.2006


41. þing BSRB er nú að afgreiða ályktanir. Þegar hafa verið samþykktar ályktanir um efnahags- og atvinnumál, hnattvæðingu, einkavæðingu fræðslumál og málefni erlendra starfsmanna. Hægt er að nálgast ályktanirnar hér jafnóðum og þær eru samþykktar.

Ögmundur endurkjörinn formaður BSRB

27.10.2006


Ný framkvæmdanefnd BSRB. Frá vinstri: Garðar Hilmarsson, Elín Björg Jónsdóttir, Ögmundur Jónasson, Árni Stefán Jónsson og Þuríður Einarsdóttir.

Ögmundur Jónasson var kjörinn formaður BSRB, Árni Stefán Jónsson formaður SFR var kjörinn fyrsti varaformaður bandalagsins, Elín Björg Jónsdóttir formaður Félags opinberra starfsmanna á Suðurlandi var kjörin annar varaformaður, Garðar Hilmarsson formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar var kjörinn gjaldkeri og Þuríður Einarsdóttir formaður Póstmannafélags Íslands var kjörin ritari BSRB.

Friðhelgi einkalífsins má ekki víkja í nafni ótta eða tækniframfara

26.10.2006


Sigrún Jóhannesdóttir forstjóri Persónuverndar flutti erindi um rafræna vöktun á 41. þingi BSRB í dag. Hún byrjaði á því að skilgreina rafræna vöktun og hvernig hún færi fram. Hún fjallaði um reglur sem gilda varðandi heimild um vöktunina og einnig um könnun sem Persónuvernd hefur gert um rafræna könnun í fyrirtækjum á Íslandi. Þar kom fram að um 75% fyrirtækja þurfa að bæta sig á þessu sviði.

Kröftugt lýðræðisþjóðfélag kallar á öfluga almannaþjónustu

25.10.2006


„Kjörorð þingsins er: Eflum almannaþjónustuna – eflum lýðræðið.
Hvers vegna þetta kjörorð? Innan BSRB starfar launafólk sem á það sammerkt að vinna við þá atvinnustarfsemi sem við höfum kallað almannaþjónustu – þar er um að ræða grunnþjónustu samfélagsins – þjónustu sem ekkert samfélag getur án verið, hvort sem það er á sviði heilbrigðismála og menntamála eða löggæslu, vinnueftirlits og rannsókna, póstþjónustu eða annarra þátta sem nútímaþjóðfélag byggir á,“ sagði Ögmundur Jónasson í setningarræðu sinni á 41. þingi BSRB sem haldið er á Grand hóteli 25. til 27. október.

Ögmundur undirstrikaði mikilvægi þess að stuðla að jöfnuði í samfélaginu og ábyrgð verkalýðshreyfingarinnar í því efni. BSRB hefði staðið vaktina um velferðarkerfið og barist gegn öllum tilraunum til þess að brjóta það niður en sagði jafnframt að ekki síður hefðu samtökin beitt sér af alefli í sókn til framfara.

Í ræðu sinni kom Ögmundur víða við og fjallaði m.a. um réttindamál opinberra starfsmanna, málefni lífeyrissjóða, jafnréttismál, starfsmenntunarmál og verðlagsmál, svo nokkuð sé nefnt. Þá gerði hann að umtalsefni vaxandi gróðahyggju í þjóðfélaginu á undanförnum árum - græðgina sem væri bæði óendanlega fátæk og siðlaus í senn - og lýsti afleiðingum hennar og áhrifum á lýðræðið og kjör almennings í landinu. Meginstefið í ávarpinu var að vilji fólk kröftugt lýðræðisþjóðfélag verði að standa vörð um almannaþjónustuna, styrkja hana og efla.

Forseti ASÍ óskar eftir samvinnu ASÍ og BSRB við undirbúning næstu samninga

25.10.2006


"Á hinum Norðurlöndunum höfum við ákveðnar fyrirmyndir um samstarf samtaka launafólks á vinnumarkaði. Þar er víðtæk samvinna um samningagerð og kröfur gagnvart opinberum aðilum, milli sambanda á almennum vinnumarkaði og á opinberum vinnumarkaði. Þetta samstarf – sem er að nokkru leyti formbundið – gengur sums staðar undir heitinu Kartel. Við höfum sannarlega tækifæri til að mynda slíkt samband milli BSRB og ASÍ,  og það kann einnig að eiga við um önnur samtök opinberra starfsmanna nú í aðdraganda næstu kjarasamninga," sagði Grétar Þorsteinsson forseti ASÍ þegar hann ávarpaði þing BSRB fyrr í dag.

Útkall á þingi BSRB

25.10.2006


Fulltrúar Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna á 41. þingi BSRB. Frá hægri: Vernharð Guðnason formaður LSS, Ari Hauksson, Guðmundur Fylkisson, Borgar Valgeirsson, Ari Elíasson og Jósep Hallsson.

Fulltrúar Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna á 41. þingi BSRB þurftu skyndilega að yfirgefa þingið vegna útkalls þar sem farþegaflugvél frá Continental flugfélaginu var að koma inn til nauðlendingar á Keflavíkurflugvelli. Lendingin tókst giftusamlega og sneru fulltrúarnir því aftur til starfa sinna á þingi BSRB.

BSRB fagnar aðgerðum til að lækka matvælaverð

24.10.2006

"BSRB fagnar fram komnum tillögum ríkisstjórnarinnar um aðgerðir til að lækka matvælaverð og lýsir vilja til samstarfs um að farsællega takist til um framkvæmdina. BSRB hefur jafnan lagt ríka áherslu að virða beri hagsmuni íslensks landbúnaðar og innlendrar afurðarvinnslu við allar þær kerfisbreytingar sem ráðist er í, en jafnframt vakið athygli á nauðsyn þess að létta álögur á einstaklinga og fjölskyldur með lágar og millitekjur. Lækkun matarverðs er mikilvægt skref í þá átt að skila almenningi kjarabótum," segir í upphafi ályktunar sem stjórn BSRB hefur sent frá sér.

41. þing BSRB

23.10.2006

41. þing BSRB verður haldið dagana 25. til 27. október á Grand Hóteli í Reykjavík. Þingsetning er kl. 13.00 miðvikudaginn 25. október. Þingið er opið fjölmiðlum. Þing BSRB eru haldin þriðja hvert ár. Á þinginu er stefna bandalagsins til næstu þriggja ára mótuð en þingfulltrúar eru um 220 talsins. Þá er kosið í framkvæmdanefnd BSRB en hana skipa formaður, tveir varaformenn, gjaldkeri og ritari.

Örugg frá upphafi

20.10.2006

Í tilefni vinnuverndarvikunnar 23. – 27. október 2006 standa St.Rv. og SFR fyrir hádegisverðarfyrirlestri föstudaginn 20. október kl. 12-12.50, en yfirskrift vikunnar þetta árið er Örugg frá upphafi. Fyrirlesari er Ása G. Ásgeirsdóttir, deildarstjóri fræðsludeildar Vinnueftirlitsins. Fjallað verður um aðstæður ungs fólks á vinnumarkaði með tilliti til vinnuverndarsjónarmiða og hvað hægt sé að gera til að bæta þær. Einnig er farið yfir helstu ákvæði í reglum um vinnu barna og unglinga og fjallað um ábyrgð atvinnurekenda og annarra í þessum málaflokki. Ekkert þátttökugjald.

Samkomulag um fjarvinnslu

20.10.2006


Erna Guðmundsdóttir og Ögmundur Jónasson frá BSRB, Halldóra Friðjónsdóttir BHM og Elna Katrín Jónsdóttir KÍ.

BSRB, BHM og KÍ undirrituðu í dag samkomulag við ríkið, Reykjavíkurborg og Launanefnd sveitarfélaga um fjarvinnslu. Með þessu samkomulagi var innleiddur rammasamningur á Evrópuvísu sem tekur til fjarvinnslustarfsmanna þar sem vinna sem einnig væri hægt að inna af hendi í starfsstöð atvinnurekanda er unnin reglulega utan starfsstöðvarinnar.

Heildarútboði á Gámu á Akranesi mótmælt

19.10.2006

Stjórn Starfsmannafélags Akraness mótmælir harðlega áformum um heildarútboð á rekstri Sorpmóttökustöðvar Akraness, Gámu. Þá mótmælir stjórn félagsins því að starfsmenn þurfi að lesa um uppsagnir á störfum sínum í fjölmiðlum en í viðtali Skessuhorns við Gunnar Sigurðsson forseta bæjarstjórnar Akraness kom fram að starfsmönnum Gámu verði sagt upp um leið og útboð fer fram.

Námskeið um stjórnsýslurétt fyrir starfsmenn sveitarfélaga

19.10.2006

Í nóvember og desember nk. mun Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands bjóða í fyrsta skipti upp á sex vikna námskeið um stjórnsýslulögin og stjórnsýslurétt. Námskeiðið er sérstaklega ætlað öllum stjórnendum og starfsmönnum sveitarfélaga sem koma að meðferð mála og undirbúningi ákvarðana. Áður hefur námskeiðið verið haldið þrisvar fyrir bæði starfsmenn ríkis og sveitarfélaga. Áform eru um að kenna námskeiðið í fjarfundabúnaði á vormánuðum 2007.

Til hvers löggjöf um vinnu barna og unglinga?

19.10.2006

Margrét Einarsdóttir heldur fyrirlestur í hádegisfundaröð Rannsóknastofu í vinnuvernd sem hún nefnir „Til hvers löggjöf um vinnu barna og unglinga?“ Fyrirlesturinn byggir Margrét á doktorsverkefni sínu í félagsfræði við Háskóla Íslands. Fyrirlesturinn verður haldinn í Háskóla Íslands, í stofu 102 í Lögbergi
mánudaginn 23. október kl. 12.20 – 13.20. Hann er haldinn í tilefni Evrópsku vinnuverndarvikunnar sem er að þessu sinni helguð vinnu barna og ungmenna. Fyrirlesturinn er öllum opinn.

Látlaus innflutningur erlends vinnuafls

18.10.2006

Í skýrslu Vinnumálastofnunar um atvinnuástand í september  kemur fram að atvinnuleysi mælist nú 1,0% og hefur ekki mælst svo lágt síðan í september 2001. Leiðrétt atvinnuleysi eftir árstímum reiknast nú 1,2% og hefur lækkað um 0,1% frá fyrra mánuði. Í september hafði atvinnuleysi dregist meira saman á höfuðborgarsvæðinu en á landsbyggðinni frá sama mánuði fyrir einu ári. Þá hafði atvinnulausum konum fækkað meira en körlum. Það sem öðru fremur einkennir vinnumarkaðinn nú er látlaus innflutningur erlends vinnuafls og hefur hann aldrei mælst jafn mikill í einum mánuði og í september, eða tæplega eitt þúsund manns.

Er fólk látið gjalda skoðanna sinna í Snæfellsbæ?

13.10.2006

Ögmundur Jónasson formaður BSRB ritaði opið bréf sem dreift var til allra heimila í Snæfellsbæ. Bréfið varðar uppsagnir starfsmanna í íþróttahúsum og sundlaug Snæfellsbæjar. Með bréfinu fylgir grein sem Ögmundur hafði óskað eftir að fá birta í Bæjarblaðinu Jökli en þar hafði talsverð umfjöllun verið um málið. Tekið var jákvætt í það að birta greinina en þegar ritstjóranum barst hún brá svo við að hann neitaði að birta hana. Því greip Ögmundur til þess ráðs að dreifa henni á þennan hátt til íbúa Snæfellsbæjar.

Tilskipun Evrópusambandsins um jafna meðhöndlun til atvinnu og starfa

13.10.2006

Í lok árs 2000 var á vettvangi Evrópusambandsins staðfest tilskipun Evrópusambandsins um jafna meðhöndlun til atvinnu og starfa (2000/78/EC) sem ætlað er að koma í veg fyrir að einstaklingum á vinnumarkaði sé mismunað vegna trúarbragða, skoðana, fötlunar, aldurs eða kynhneigðar.

Jólahlaðborð í Munaðarnesi

12.10.2006


Jólahlaðborð verður í Kaffi Paradís í Munaðarnesi dagana 24. og 25. nóvember  og 1. og 2. desember. Lifandi tónlist er á meðan á borðhaldi stendur og leikur hljómsveitin Gammel dansk fyrir dansi að borðhaldi loknu. Einnig er hægt að sérpanta hlaðborðið fyrir stærri hópa á öðrum dagsetningum. Stórsniðugt er fyrir stóra sem litla vinnustaði, vini, fjölskyldur og aðra hópa sem vilja upplifa frábæra stemningu í fallegu umhverfi. Verð: 5.500 kr. Borðapantanir og upplýsingar í síma 525-8441. Tilvalið er að nýta sér samhliða sumarhúsaleigu BSRB í Munaðarnesi. Upplýsingar á skrifstofu BSRB í síma 525-8300.

Skiptir aldurssamsetning á vinnustað máli?

11.10.2006

Kallar framtíðin á breyttar áherslur? Skiptir aldurssamsetning á vinnustað máli? Er æskudýrkun á þínum vinnustað? Verkefnisstjórn 50 + efnir til fundaraðar um málefni miðaldra og eldra fólks á vinnumarkaði.  Fyrsti fundur af þremur verður á Grand hótel, Hvammi þann 17. október n.k. kl. 8:30-10:00 Árið 2005 skipaði félagsmálaráðherra, sjö manna verkefnisstjórn sem ætlað er að stýra fimm ára verkefni sem hefur það meginmarkmið að styrkja stöðu miðaldra og eldra fólks á vinnumarkaði.  Eitt af því sem verkefninu er ætlað, er að styrkja stöðu þeirra sem eru 50 ára og eldri með því að skapa jákvæða umræðu um miðaldra og eldra fólk á vinnumarkaði.  Markmiðið er m.a. að bæta ímynd þeirra með því að vekja athygli á kostum þeirra sem starfsmanna og móta farveg fyrir viðhorfsbreytingu í þjóðfélaginu.

Vinnuumhverfi lögreglumanna sífellt hættulegra

10.10.2006

"Landssamband lögreglumanna telur vinnuumhverfi lögreglumanna sífellt hættulegra. Á síðustu vikum hafa komið upp tvö tilvik þar sem lögregla hefur þurft að hafa afskipti af hættulegum brotamönnum með hlaðin skotvopn en við framkvæmd þeirra starfa geta lögreglumenn verið í augljósri hættu." Þannig hefst yfirlýsing frá Landssambandi lögreglumanna sem send var fjölmiðlum í dag. Þar segir jafnframt að LL hafi í mörg ár barist fyrir því að starfsumhverfi lögreglumanna verði bætt.

Helga Jónsdóttir nýr framkvæmdastjóri BSRB

5.10.2006

Helga Jónsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri BSRB. Hún tekur við af Svanhildi Halldórsdóttur sem lét af störfum nú í haust eftir áratuga farsælt starf fyrir BSRB. Helga er með meistarapróf í hagfræði frá Háskólanum í Osló. Sérfög hennar voru vinnumarkaðshagfræði og þróunarhagfræði. Helga hefur starfað í fjármálaráðuneytinu frá árinu 1999, fyrst á fjárlagaskrifstofunni og síðan á rekstrar- og upplýsingaskristofu ráðuneytisins. Þar áður starfaði hún á kjaraþróunardeild hjá Reykjavíkurborg.

Sjúkraliðar krefjast stofnanasamninga tafarlaust

28.9.2006

Almennur félagsfundur sjúkraliða í Reykjavík og nágrenni sem haldinn var í gær gerir þá kröfu til viðsemjenda Sjúkraliðafélagsins að gengið verði frá nýjum stofnanasamningi við sjúkraliða án frekari tafa.

Tekið undir kröfur sjúkraliða á LSH

26.9.2006

Sjúkraliðar á landsbyggðinni halda áfram að taka undir ályktun trúnaðarmanna á Landspítala háskólasjúkrahúsi. Nú hafa sjúkraliðar á Sjúkrahúsi og heilsugæslu Akranes og sjúkraliðar á Heilbrigðisstofnun Austurlands sent frá sér ályktanir þar sem tekið er undir kröfur sjúkraliða á LSH um að gengið verði frá nýjum stofnanasamning við sjúkraliða tafarlaust.

Sjúkraliðar á Norðurlandi taka undir með sjúkraliðum á LSH

22.9.2006

Sjúkraliðar á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri og á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga funduðu í gær og samþykktu ályktanir þar sem tekið er undir ályktun trúnaðarmanna á Landspítalanum háskólasjúkrahúsi og þess krafist að gengið verði frá stofnanasamningi við sjúkraliða þegar í stað.

Sjúkraliðar á LSH krefjast stofnanasamnings þegar í stað

20.9.2006

Fjölmennur fundur sjúkraliða á Landspítalanum - háskólasjúkrahúsi samþykkti í gær einróma ályktun þar sem þess er krafist að gengið verði frá nýjum stofnanasamningi við sjúkraliða þegar í stað.

Stöndum vörð um íbúðalánasjóð

13.9.2006

Fundur trúnaðarmanna SFR sem haldinn var í gær skorar á stjórnvöld að sjá til þess að Íbúðalánasjóður verði áfram sú kjölfesta í fjármögnun íbúðarhúsnæðis hér á landi sem nauðsynleg er. Hækkandi vextir og skert framboð lána til íbúðakaupa hafa gert fólki erfiðara að eignast eigið húsnæði.

Snæfellsbær er engin prívateign bæjarstjórans

8.9.2006

„Sannast sagna furða ég mig á ummælum Kristins Jónassonar bæjarstjóra Snæfellsbæjar í fréttum Sjónvarps í gærkvöldi,“ segir Ögmundur Jónasson, formaður BSRB. „Bæjarstjóri segist undrast að fólkið sem bæjarstjórn rak úr vinnu í sumar skuli sækjast eftir störfum sínum að nýju.  Bæjarstjóri segist sjálfur aldrei myndi sækjast eftir starfi hjá aðila sem hann hefði stefnt fyrir dómstóla. Svo vill til að þessi aðili er ekkert venjulegt fyrirtæki heldur bæjarfélag sem er rekið á vegum og ábyrgð allra bæjarbúa. Snæfellsbær er engin einkaeign bæjarstjórans né nokkurs manns og fráleitt að stilla málinu upp á þennan hátt...

Starfsmannafélag Dala- og Snæfellsnessýslu lýsir furðu sinni á orðum bæjarstjóra

8.9.2006

Starfsmannafélag Dala- og Snæfellsnessýslu lýsir furðu sinni á orðum bæjarstjóra Snæfellsbæjar í tíufréttum RÚV þann 7. september þar sem hann undrast að stéttarfélagið hafi ekki komið að máli starfsmanna íþróttamannvirkja Snæfellsbæjar. Þá sendi aðalfundur Samflots bæjarstarfsmannafélaga sem haldinn er í Ólafsvík frá sér ályktun þar sem lýst er yfir stuðningi við Starfsmannafélag Dala- og Snæfellsnessýslu í deilu þeirri er félagið á í við Snæfellsbæ vegna starfsmanna íþróttamannvirkja.

Helgarleiga í Munaðarnesi

6.9.2006

Skrifstofa BSRB hefur nú tekið við útleigu á orlofshúsunum í Munaðarnesi og er nú hægt að leigja húsin yfir helgar. Helgarleiga á stórum húsum með heitum potti er 9.500 kr. og á litlum húsum með heitum potti 7.500. Síminn á skrifstofu BSRB er 525 8300. Nokkur hús eru laus um næstu helgi.

Vetrarleiga í Munaðarnesi

6.9.2006


Munið helgarleigu húsa í Munaðarnesi. Öll húsin eru með heitum pottum. Helgarleiga á stórum húsum er 9.500 kr. og á litlum húsum 7.500 kr. Hægt að greiða fyrir orlofshúsin með debet- og kreditkortum. Síminn á skrifstofu BSRB er 5258300.
Sjá  nánar

Fundað um breytingar innan almannaþjónustunnar

5.9.2006


Forsvarsmenn heildarsamtaka opinberra starfsmanna á Norðurlöndum  þinguðu í Reykjavík í gær. Til umræðu voru breytingar innan almannaþjónustunnar, fyrirkomulag lífeyrisgreiðslna og ýmislegt annað sem snertir sameiginlega hagsmuni starfsmanna almannaþjónustunnar. Fundir af þessu tagi eru haldnir einu sinni til tvisvar á ári hverju og eru fyrst ogf fremst hugsaðir til þess að tækifæri gefist til að skiptast á upplýsingum og skoðunum á markvissan hátt.

Námsframboð Félagsmálaskóla alþýðu á haustönn kynnt

4.9.2006

Námsframboð Félagsmálaskóla alþýðu á haustönn 2006 liggur nú fyrir. Að venju er boðið upp á fjölbreytt námskeið sem varða fólk á vinnumarkaði. Má þar nefna námskeið um ný lög um atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir, námskeið um erlent launafólk á vinnumarkaði, heilsu og líðan á vinnustað. Þá má nefna námskeið um að koma fram af sjálfsöryggi og uppbyggileg samskipti

BSRB hótaði lögsókn en ekki fjölmiðlaumfjöllun

30.8.2006

Haft er eftir Kristni Jónassyni, bæjarstjóra Snæfellsbæjar á mbl.is, að formaður BSRB, Ögmundur Jónasson, hafi hótað „fjölmiðlaumfjöllun“ ef ólögmæt uppsögn sex bæjarstarfsmanna við íþróttahús bæjarins yrði ekki dregin til baka.
Í fréttinni er vísað í frásögn Skessuhorns þar sem birt er úr bókun bæjarstjóra um samskipti hans við formann BSRB, á fundi þeirra hinn 4. júlí sl..
Formaður BSRB gerir alvarlegar athugasemdir við frásögn bæjarstjórans. „Sannast sagna koma yfirlýsingar bæjarstjórans mér mjög á óvart. Ég átti ásamt lögfræðingi BSRB og formanni Starfsmannafélags Dala- og Snæfellsnessýslu ágætan fund með bæjarstjóra og samstarfsfólki hans 4. júlí þar sem farið var yfir stöðu mála.“

Bæjarstjórn Snæfellsbæjar birt stefna

28.8.2006

Snæfellsbæ var stefnt af BSRB sl. föstudag vegna ólögmætra uppsagna sex starfsmanna úr starfi við íþróttahús og sundlaugar bæjarins. BSRB benti bæjaryfirvöldum ítrekað á að uppsagnirnar stæðust ekki lög og kröfðust samtökin þess að þær yrðu dregnar til baka. Þegar því var hafnað og starfsfólkinu sagt upp störfum var lögmönnum falið að undirbúa stefnu.

Laus hús í Munaðarnesi

23.8.2006

Nokkur hús eru laus í Munaðarnesi næstu helgi og næstu viku. Þeir sem hafa áhuga hafi samband við skrifstofu BSRB, Grettisgötu 89 í Reykjavík. Sími 525 8300.

Laus hús í Munaðarnesi

17.8.2006

Nokkur hús eru laus í næstu viku í Munaðarnesi. Leigutíminn er frá föstudegi til föstudags. Þeir sem hafa áhuga hafi samband við skrifstofu BSRB Grettisgötu 89 eða í síma 525 8300.

Verzlunarskólinn og BSRB stofna fyrirtæki um rekstur Framvegis

17.8.2006


Frá undirritun samkomulagsins. Frá vinstri: Garðar Hilmarsson formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar, Kristín Á. Guðmundsdóttir formaður Sjúkraliðafélags Íslands, Árni Stefán Jónsson formaður SFR, Ögmundur Jónasson formaður BSRB, Jóhanna Arnórsdóttir framkvæmdastjóri Framvegis, Sölvi Sveinsson skólastjóri Verzlunarskólans og Helgi Jóhannsson formaður stjórnar Verzlunarskólans.

Verzlunarskóli Íslands og BSRB undirrituðu í dag samkomulag um stofnun fyrirtækis um rekstur Framvegis, miðstöðvar um símenntun ehf. Auk Verzlunarskólans og BSRB eru þrjú aðildarfélög BSRB aðilar að stofnun fyrirtæksins en það eru SFR stéttarfélag í almannaþjónustu, Sjúkraliðafélag Íslands og Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar.

Listaport á menningarnótt

16.8.2006

Fjölbreytt dagskrá verður í portinu á bakvið BSRB-húsið allan laugardaginn á menningarnótt í Reykjavík. Það eru félagasamtök, fyrirtæki og stofnanir sem staðsett eru við portið, þar á meðal BSRB og aðildarfélögin í BSRB-húsinu, sem standa að þessu. Boðið verður upp á dagskrá fyrir börn auk þess sem ýmislegt er í boði fyrir fólk á öllum aldri. Dagskránni lýkur með gömludansaballi um kvöldið.

BSRB krefst þess að horfið verði frá einkavæðingu öryggisgæslu á Keflavíkurflugvelli

15.8.2006

BSRB mótmælir harðlega einkavæðingu á öryggisgæslu á Keflavíkurflugvelli og krefst þess að hún verði þegar í stað að nýju færð í hendur opinberra löggæsluyfirvalda. 

Námskeiðsframboð á haustönn hjá Framvegis

11.8.2006

Þungamiðjan í námskeiðahaldi Framvegis á haustönn verður áfram á sviði heilbrigðis- og félagsgreina. Í viðleitni til að koma til móts við aðra hópa sem Framvegis vill þjóna er í boði námskeiðspakki sem kallast Markviss framsetning. Þar er boðið upp á námskeið í að tala í heyranda hljóði, ritun íslensks máls, fjarnámskeið í ensku ritmáli, glærugerð, vefsíðugerð.

Rekstrar- og stjórnunarnám fyrir talsmenn stéttarfélaga

9.8.2006

Félagsmálaskóli alþýðu í samvinnu við Háskólann á Akureyri býður talsmönnum og starfsmönnum stéttarfélaga upp á fjögurra anna rekstrar- og stjórnunarnám og fer námið að mestu fram í fjarkennslu.

BSRB stefnir bæjarstjórn Snæfellsbæjar

1.8.2006

Stjórn BSRB hefur ákveðið að stefna bæjarstjórn Snæfellsbæjar vegna uppsagna sex starfsmanna við íþróttahús og sundlaugar Snæfellsbæjar. Að sögn bæjaryfirvalda standa uppsagnirnar í tengslum við skipulagsbreytingar en samkvæmt kjarasamningum eru skýr ákvæði um að slíkar breytingar geti átt sér stað án þess að starfsfólki sé sagt upp störfum. BSRB benti bæjaryfirvöldum ítrekað á að uppsagniranr stæðust ekki lög og kröfðust samtökin þess að þær yrðu dregnar tilbaka. Þegar því var hafnað og starfsfólkinu sagt upp störfum var lögmönnum falið að undirbúa stefnu. Bæjarstjórn var greint frá þessu í bréfi 27. júlí og gefinn fyrirvari til andsvara en engin viðbrögð bárust við því bréfi. Stjórn BSRB hefur því ákveðið að stefna bæjaryfirvöldum í Snæfellsbæ...

PSI ákallar stjórnmálaleiðtoga að sýna kjark til að stöðva hernaðarofbeldi Ísraela

28.7.2006

Hans Engelberts, framkvæmdastjóri PSI,  Alþjóðasamtaka starfsmanna í almannaþjónustu, (sem BSRB er aðili að) hefur lýst yfir gríðarlegum áhyggjum vegna síaukins ofbeldis í Gaza, Líbanon og Ísrael. PSI ákallar stjórnmálaleiðtoga heimsins að sýna kjark og staðfestu til að stöðva hernaðarofbeldið.

Góður umræðufundur með fulltrúum PSI

10.7.2006



Ögmundur Jónasson, Alan Leather og Jurgen Buxbaum.

Yfir fimmtíu manns sóttu fyrirlestur Jürgens Buxbaum og Alans Leather frá PSI – Alþjóðasamtökum launafólks í almannaþjónustu – sem haldinn var í BSRB húsinu föstudaginn 7. júlí sl. Þeir fjölluðu um opnun vinnumarkaða, í Evrópu og á heimsvísu, og afleiðingum þeirra hræringa sem hún hefði haft í för með sér. Ánægjulegt var að sjá hve mikill áhugi var á fundinum því þar voru mættir fulltrúar frá öllum helstu samtökum launafólks og einnig frá atvinnurekendahliðinni. ...

Fundur frestast um sólarhring!

6.7.2006

Ekki ráðum við veðurguðunum. Það sannaðist í gær. Svo mikla þoku gerði þá á Genfarflugvelli að flugumferð þar tafðist með þeim afleiðingum að þeir Alan Leather og Jürgen Buxbaum, sem auglýstir höfðu verið á opnum umræðufundi klukkan 10, í dag, fimmtudag, urðu veðurtepptir. Fyrirlestur þeirra frestast því í sólarhring. Eins og gefur að skilja er ekki við þetta ráðið en við hvetjum alla sem ætluðu að koma á fyrirlesturinn að sækja hann í BSRB húsinu, Grettisgötu 89, klukkan 10 á morgun, föstudag.

Við viljum þjóðarsátt um íslenskan landbúnað

5.7.2006

"... BSRB á aðild að matvælanefnd forsætisráðuneytisins. Samtökin hafa mjög skýra stefnu í þessum efnum: Um landbúnaðinn á Íslandi þarf að ríkja þjóðarsátt. Hún verður aldrei raunveruleg nema í góðri sátt á milli bænda og neytenda. Takmarkið er að ná slíkri sátt og að því vill BSRB vinna." Þetta kemur m.a. fram í yfirlýsingu Ögmundar Jónassonar, formanns BSRB, og Elínar Bjargar Jónsdóttur fulltrúa BSRB í matvælanefndinni. 

Umræðufundur um þjónustutilskipun ESB, opnun vinnumarkaðarins og stöðu verkalýðshreyfingarinnar í Austur-Evrópu

30.6.2006


BSRB boðar til umræðufundar með tveimur reyndum forystumönnum Alþjóðasamtaka starfsmanna í almannaþjónustu, PSI (Public Services International), fimmtudaginn 6. júlí kl. 10 í húsi BSRB að Grettisgötu 89, 1. hæð. Gestir fundarins eru þeir Alan Leather sem hefur verið ábyrgur fyrir málum heilbrigðisgeirans innan PSI og Jürgen Buxbaum, framkvæmdastjóri Evrópudeildar PSI. Fjallað verður um áhrif alþjóðavæðingar á kjör og réttindi launafólks bæði í þeim löndum sem vinnuafl streymir til og þjónustusamningar beinast að en einnig í hinum sem sjá á eftir vinnuafli sínu úr landi.  Í þessu samhengi verður horft til þjónustutilskipunar Evrópusambandsins og opnunar vinnumarkaða.

Félagsmenn PFÍ fá fimmtán þúsund króna launahækkun

30.6.2006

Í dag 30. júní gaf Íslandspóstur hf. út þá yfirlýsingu að laun allra starfsmanna sem taka laun samkvæmt launatöxtum í kjarasamningi Póstmannafélagsins og Íslandspósts muni hækka um fimmtán þúsund frá og með 1. ágúst 2006. 

Laus orlofshús

29.6.2006

Nú eru laus orlofshús í orlofsbyggðum BSRB. Vikuna 30. júní til 7. júlí eru eitt stórt hús og eitt lítið hús laus í Munaðarnesi og eitt stórt hús í Stóru Skógum. Heitir pottar eru við öll húsin og hægt er að horfa á beina útsendingu frá heimsmeistarkeppninni í knattspyrnu í þjónustumiðstöðinni. Þá er eitt stórt hús laust á Eiðum vikuna 7. - 14. júlí. Ef hús losna sér skrifstofa BSRB um að leigja út þau. Síminn á skrifstofu BSRB er 525 8300.

BSRB í viðræðum við ríkið

28.6.2006

"Í dag var haldinn fundur með samninganefnd fjármálaráðuneytisins og forsvarsmönnum BSRB, BHM og KÍ. Þar kom fram að ráðuneytið túlkar endurskoðunarákvæðin mjög þröngt en fulltrúar samtaka launafólks hins vegar vítt enda lítum við svo á að undir sé kjaramálapakkinn allur, heill og óskiptur." Þetta kemur fram í grein sem Ögmundur Jónasson formaður BSRB ritar á heimasíðu BSRB.

Golfvöllurinn Glanni vígður

26.6.2006


Golfvöllurinn Glanni verður vígður laugardaginn 1. júlí nk. en BSRB á aðild að rekstrarfélagi klúbbsins. Völlurinn er í næsta nágrenni orlofsbyggða BSRB í Munaðarnesi og Stóru Skógum og fá félagsmenn í BSRB helmings afslátt á völlinn. Almennt verð á völlinn er 1800 kr. en félagar í BSRB borga 900 kr. Þetta er níu holu völlur í mjög fögru umhverfi.

Mikilvægur dómur um starfsréttindi sjúkraliða

26.6.2006

Í dag 26. júní féll dómur í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli Haflínu I. Hafliðadóttur, sjúkraliða, gegn Reykhólahreppi. Í dómnum er staðfest að ekki sé leyfilegt að ráða aðra en sjúkraliða til sérhæfðra umönnunar /hjúkrunarstarfa nema að undangengin auglýsing hafi ekki borið árangur.

Kalt vatn komið í Stóru Skóga

26.6.2006

Stóru Skógar voru tengdir við vatnsveitu Orkuveitu Reykjavíkur á sumarsólstöðum, 21. júní sl. Eru þá vatnsmál í orlofsbyggðum BSRB í Borgarfirði komin í mjög gott horf, en Munaðarnes var tengt vatnsveitunni fyrr í sumar.

Rödd BSRB er rödd skynseminnar

23.6.2006

"Hitt er svo annað mál – og þekki ég það af reynslu frá BSRB – að þau samtök hafa reynst ábyrgari en flest önnur þegar kemur að ríkisfjármálum. Þau vita sem er að ekki gengur að gera tvennt í senn, að skerða tekjur hins opinbera og krefjast betri þjónustu. Rödd BSRB er þannig rödd skynseminnar. Óttast menn þá rödd við samningaborð ríkisstjórnarinnar?" segir Ögmundur Jónasson formaður BSRB m.a. í grein um endurskoðun kjarasamninga sem birtist á heimasíðu hans.

Nýr formaður Starfsmannafélags Skagafjarðar

23.6.2006

Árni Egilsson var kjörinn nýr formaður Starfsmannafélags Skagafjarðar á aðalfundi félagsins í maí sl. Hann tekur við af Gunnari Birni Rögnvaldssyni.

NTR segir norræna samstöðumódelið hafa skilað árangri

20.6.2006


Íslensku þátttakendurnir á ráðstefnu NTR: Garðar Hilmarsson, Sjöfn Ingólfsdóttir, Elín Björg Jónsdóttir, Ögmundur Jónasson og Guðmundur Garðar Guðmundsson.

Um helgina lauk í Luleå  í Norður-Svíþjóð ráðstefnu á vegum Nordisk Tjenestemannsråd, NTR en það eru samtök opinberra starfsmanna á Norðurlöndum, einkum úr röðum starfsmanna sveitarfélaga. Í ályktun frá ráðstefnunni er lögð áhersla á mikilvægi þess að varðveita hið norræna módel sem svo er nefnt. „Norðurlöndin standi áfram í fararbroddi hvað varðar tækniframfarir, nýsköpun og samkeppnishæfni,“ segir meðal annars í ályktuninni.

Samningsréttur ríkisstarfsmanna í Eistlandi verði viðurkenndur

16.6.2006

Á ráðstefnu NSO - samtaka ríkisstarfsmanna á Norðurlöndunum (Nordiske statstjänstemanna-organisationen), sem haldin var í Danmörku 12.- 14. júní sl., var samþykkt að hvetja ríkisstjórnir Norðurlandanna til að upplýsa ríkisstjórn Eistlands um mikilvægi þess að aðilar vinnumarkaðarins vinni saman. SFR er aðili að NSO. NSO heimsótti eistneska ríkisstarfsmenn í maí sl. og fundaði þar meðal annars með félagsmálaráðherranum Jaak Aab. Fram kom að samstarf milli stéttarfélaga og ríkisins sem atvinnurekanda er stirt.

Vel heppnuð Menningarhátíð BSRB

12.6.2006


Gísli B. Björnsson, Berglind Gunnarsdóttir, Alina Dubik, Jónas Ingimundarson og Ögmundur Jónasson.

Húsfylli var á Menningarhátíð BSRB í Munaðarnesi laugardaginn 10. júní þegar sýning Gísla B. Björnssonar, Ljós og litir í landslagi, var opnuð í þjónustumiðstöðinni. Alina Dubik söng við undirleik Jónasar Ingimundarsonar og Berglind Gunnarsdóttir las upp eigin ljóð og ljóðaþýðingar. Þá ávarpaði Ögmundur Jónasson formaður BSRB gesti.

Gísli B. Björnsson á Menningarhátíð BSRB

9.6.2006


Menningarhátíð BSRB verður á morgun, laugardaginn 10. júní. og hefst hún kl. 14. Á hátíðinni verður opnuð sýning á verkum Gísla B. Björnssonar sem kallast "Ljós og litur í landslagi". Á myndinni er Gísli að hengja upp verk sín í Munaðarnesi nú í vikunni. Mezzósópransöngkonan Alina Dubik syngur við undirleik Jónasar Ingimundarsonar og Berglind Gunnarsdóttir les ljóð. Þá mun Ögmundur Jónasson formaður BSRB ávarpa gesti. Boðið er upp á veitingar. Sýningin verður opin í sumar á afgreiðslutíma veitingasalarins.

Kalda vatnið í Munaðarnes

8.6.2006


Frá tengingu Munaðarness við vatnsveituna. Mynd Geir Sævar Geirsson.

Nú er þeim langþráða áfanga náð að tengja Munaðarnes við vatnsveitu Orkuveitu Reykjavíkur, sem lögð verður um allan Borgarfjörð. Það gerðist um síðustu mánaðarmót. Enn er eftir að tengja Stóru Skóga við vatnsveituna en það mun gerast á næstu dögum.

Kaffihúsið Paradís opnar í Munaðarnesi

7.6.2006

Kaffihúsið Paradís opnar í þjónustumiðstöðinni í Munaðarnesi föstudaginn 9. júní og verður opið í allt sumar fram til 20. ágúst. Þar verður m.a. á boðstólum nýbakað brauð mánudaga, miðvikudaga og laugardagsmorgna. Einnig verður starfrækt lítil verslun eins og undanfarin sumur. Þá verða ýmsar uppákomur í sumar í tengslum við Þjónustumiðstöðina, t.d. verður hægt að horfa á beinar útsendingar frá HM á meðan á heimsmeistaramótinu stendur. Laugardaginn 10. júní verður menningarhátíð BSRB í Munaðarnesi eins og áður hefur verið greint frá.

Vatnið vekur áhuga

4.6.2006


Krakkarnir á myndinni frá vinstri eru Egill Karlsson, Andrea Bergsdóttir og Sindri Már Hjartarson, nemendur 10. bekkjar Laugalækjarskóla.

Nemendur í 10. bekk Laugalækjarskóla eru nú í júníbyrjun að ljúka lokaverkefnum sínum á skólaárinu og er þemað fyrir allan skólann, vatn út frá hinum ýmsu sjónarhólum. Fyrir okkur í BSRB sem höfum látið málið til okkar taka, er það mjög ánægjulegt að sjá að viðfangsefninu – vatni – séu gerð svo góð skil, því allir nemendur 10. bekkjar höfðu mjög áhugaverðar kynningar á verkefnum sínum, hvort sem fjallað var um Þingvallavatn, virkjanir, álitamál í sambandi við vatnalögin eða annað.

Ljós og litur í landslagi á Menningarhátíð BSRB

31.5.2006


Menningarhátíð BSRB verður í Munaðarnesi laugardaginn 10. júní 2006 og hefst hún kl. 14.00. Á hátíðinni verður opnuð sýning á verkum Gísla B. Björnssonar sem kallast "Ljós og litur í landslagi". Mezzósópransöngkonan Alina Dubik syngur við undirleik Jónasar Ingimundarsonar og Berglind Gunnarsdóttir les ljóð. Þá mun Ögmundur Jónasson formaður BSRB ávarpa gesti. Boðið er upp á veitingar. Sýningin verður opin í sumar á afgreiðslutíma veitingasalarins.

Laus hús í Munaðarnesi

31.5.2006

Enn eru nokkur hús laus í Munaðarnesi nú um hvítasunnuhelgina og næstu viku. Gróðurinn hefur nú sprungið út og öll náttúran skartar sínu fegursta. Um að gera að notfæra sér þetta tækifæri því ljóst er að erfiðara verður að fá hús þegar líður fram á sumarið, enda öll húsin með heitum potti. Húsin er hægt að panta á skrifstofu BSRB í síma 525 8300.

St.Ak. íhugar sameiningu við Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar

29.5.2006

Starfsmannafélag Akraness hefur ákveðið að hefja viðræður við Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar um hugsanlega sameiningu félaganna. Tillaga þar að lútandi var samþykkt á framhalds aðalfundi félagsins 22. maí sl. Á fundinn mætti Jakobína Þórðardóttir varaformaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og kynnti starfsemi félagsins.

Á vaktinni með sveigjanlegum stöðugleika

23.5.2006

Á vaktinni með sveigjanlegum stöðugleika er heiti á skýrslu sem Rannsóknastofa í vinnuvernd hefur unnið fyrir starfshóp um málefni vaktavinnustarfsmanna. Í tengslum við kjarasamninga BSRB og BHM veturinn 2004 – 2005 var gefin út yfirlýsing um að fram færi gagnger endurskoðun á málefnum vaktavinnustarfsmanna með það að markmiði að bæta vinnufyrirkomulag þeirra og gera vaktavinnuna eftiróknarverðari. Skýrslan sem nú kemur út er liður í þeirri vinnu en í mars sl. var haldið málþing um starfsumhverfi vaktavinnufólks. Þeir aðílar sem standa að þessari vinnu eru auk BSRB og BHM, fjármálaráðuneytið, Reykjavíkurborg og Samband íslenskra sveitarfélaga.

Sjúkraliðar hafa áhyggjur af niðurskurði til heilbrigðismála

23.5.2006

"Fulltrúaþing Sjúkraliðafélags Íslands lýsir yfir miklum áhyggjum og eindreginni andstöðu við síendurteknum ákvörðunum  stjórnvalda um niðurskurð á fjárveitingum til heilbrigðisþjónustu landsmanna. Afleiðing niðurskurðarins eru farin að koma fram í skertri þjónustu við sjúklinga og auknu álagi á heimilin. Síðast en ekki síst hefur stöðug neikvæð umræða um heilbrigðisþjónustu landsmanna dregið úr áhuga yngri kynslóðarinnar til náms í heilbrigðisgreinum," segir m.a. í ályktun sem 15. fulltrúaþing Sjúkraliðafélags Íslands sendi frá sér en þingið fór fram fimtudaginn 18. maí sl.

Talsmenn stéttarfélaga útskrifast

22.5.2006


25 talsmenn stéttarfélaga sem lagt hafa stund á sérskipulagt fjögurra missera rekstrar- og stjórnunarnám brautskráðust frá Símenntun Háskólans á Akureyri sl. föstudag. Námið sem var í samstarfi við viðskiptadeild háskólans og Félagsmálaskóla alþýðu hófst haustið 2004. Í upphafi hvers misseris komu nemendur í háskólann en fyrirlestrar fóru síðan fram í Símenntunarmiðstöðvum á 10 stöðum á landinu. Á myndinni má sjá þrjá talsmenn BSRB sem brautskráðust en það eru Kristín Á. Guðmundsdóttir formaður SLFÍ, Birna Ólafsdóttir SLFÍ og Arna Jakobína Björnsdóttir formaður Kjalar.

Skattrannsóknarstjóri stofnun ársins 2006

22.5.2006

Skattrannsóknarstjóri ríkisins fékk titilinn Stofnun ársins 2006 en SFR - stéttarfélag í almannaþjónustu stóð í ár í fyrsta skipti að könnun meðal félagsmanna sinna á starfsskilyrðum og líðan þeirra á vinnustað undir heitinu Stofnun ársins.

LSS semur fyrir sjúkraflutningamenn

18.5.2006

Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna hefur skrifað undir samning við ríkið fyrir sjúkraflutningamenn með gildistíma frá 1. janúar 2006. Í samkomulaginu felst að nýgerðir samningar LSS við LN gildi fyrir sjúkraflutningamenn í aðalstarfi hjá ríkinu og sérstakt samkomulag var gert um kjör hlutastarfandi sjúkraflutningamanna.

Samið við Orkuveitu Reykjavíkur

17.5.2006

Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar undirritaði fyrsta sjálfstæða kjarasamning félagsins við Orkuveitu Reykjavíkur. Samningurinn verður kynntur starfsmönnum á fundi kl. 16 í dag og í lok fundar verður hann borinn undir atkvæði.

Stofnanasamningur SFR við svæðisskrifstofur fatlaðra samþykktur

15.5.2006

Trúnaðarmenn SFR, sem starfa hjá svæðisskrifstofum um málefni fatlaðra, samþykktu fyrirliggjandi stofnanasamning á fundi í hádeginu í dag. Skrifað verður undir samninginn kl. 15 á skrifstofu SFR á Grettisgötu 89. Fyrirhuguðum setuverkföllum stuðningsfulltrúa er því aflýst.

Rokk og pólitík

15.5.2006

Rokk og pólitík er yfirskrift uppákomu sem SFR og Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar gangast fyrir í nýrri félagamiðstöð BSRB á Grettisgötu 89 miðvikudaginn 17. maí  næstkomandi. Þar munu troða upp nokkur heitustu rokkböndin í dag og nokkrir þeirra stjórnmálamanna sem eru í eldlínunni í baráttunni fyrir sveitastjórnarkosningarnar.

Framtíðarsýn í starfsmenntun

11.5.2006

Framtíðarsýn í starfsmenntun - Samstarf atvinnulífs og skóla í Finnlandi og á Íslandi er yfirskrift félagsfundar Menntar og málþings Starfsmenntaráðs sem verður haldið á Hótel Nordica, á morgun, föstudaginn 12. maí 2006.

Álagi verði létt af starfsfólki Landspítalans háskólasjúkrahúss

10.5.2006

Fjölmennur fundur trúnaðarmanna sjúkraliða sem haldin var á Landspítala háskólasjúkrahúsi mánudaginn 8. maí samþykkti samhljóða áskorun og kröfu á heilbrigðisráðherra og stjórnendur sjúkrahússins að gera allt sem í þeirra valdi standi til að létta álagi af starfsfólki sjúkrahússins. Í hönd fer orlofstími starfsfólks með tilheyrandi mönnunarvanda sem erfitt verður að leysa án sértækra aðgerða. Trúnaðarmennirnir voru sammála um að aldrei hafi þeir unnið jafn erfiðan vetur og þann sem nú er að ljúka. Endalaus undirmönnun, veikindi og erfitt að njóta þeirra fría sem þeir eiga að hafa, vegna endalausra beiðna um að vinna yfirvinnu.

Sjúkraliðabrúin opnuð í haust

10.5.2006

Menntamálaráðuneytið hefur ákveðið að bjóða upp á nýja leið til sjúkraliðamenntunnar með svokallaðri brú.  Boðið verður upp á 60 eininga nám með vinnu fyrir ófaglærða starfsmenn á heilbrigðisstofnunum.

Stjórn Starfsmannafélags Suðurnesja endurkjörin

10.5.2006

Stjórn Starfsmannafélags Suðurnesja var öll endurkjörin á aðalfundi félagsins sem haldinn var í Miðhúsum í Sandgerði í gærkvöldi. Í stjórninni eru, Ragnar Örn Pétursson formaður, Sæmundur Pétursson, Valdís Sigurbjörnsdóttir, Ásdís Óskarsdóttir og Þorgerður Guðmundsdóttir.

FOSS skorar á sveitarstjórnarmenn að semja sjálfir við félagið

9.5.2006

Aðalfundur Félags opinberra starfsmanna á Suðurlandi sem haldinn var í gær, mánudaginn 8. maí, skoraði á sveitarstjórnarmenn á Suðurlandi að koma meira að kjarasamningagerð við félagið í stað þess að fela Launanefnd sveitarfélaga fullnaðarumboð.

Skattbyrði lágtekjufólks hefur aukist mun meira heldur en hátekjufólks

4.5.2006

"Skattbyrði lágtekjufólks hefur aukist mun meira heldur en hátekjufólks," sagði Hildigunnur Ólafsdóttir, hagfræðingur BSRB, í erindi um þróun tekjuskatta og skattleysismarka sem hún flutti á ráðstefnu um skatta og skerðingar sem Landssamband eldri borgara, ASÍ, BSRB, Starfsgreinasamband Íslands, Samiðn og Öryrkjabandalag Íslands stóðu fyrir í gær. Aðrir sem fluttu erindi á ráðstefnunni voru Stefán Ólafsson prófessor sem tekjuskerðing hérlendis næmi á bilinu 60 til 78% og ríkissjóður væri því í raun stærsti lífeyrisþegi landsins. Einar Árnason hagfræðingur fjallaði um þróun almannatrygging og gagnrýndi hann að skerðing bóta hefst strax og ellilífeyrisþegi hefði einhverjar aukatekjur. Ólafur Darri Andrason hagfræðingur ASÍ fjallaði um hvaða þættir hafa áhrif á ráðstöfunartekjur eldra fólks og velti upp hugmyndum um hvernig einfalda mætti kerfið og ná fram tekjujöfnun með almennum breytingum á skattkerfinu.

Lög um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna

4.5.2006

Lög um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna taka gildi 1. júlí nk. Foreldri sem leggur niður launuð störf þegar barn þess greinist með alvarlegan og langvinnan sjúkdóm eða alvarlega fötlun getur átt sameiginlegan rétt á greiðslum í allt að þrjá mánuði með hinu foreldri barnsins. Skal greiðsla til foreldris nema 93.000 kr. á mánuði.

Fjölmenni í göngu og í kaffisamsæti BSRB 1. maí

2.5.2006

Fjölmenni var í kröfugöngu launafólks í Reykjavík í gær 1. maí og á baráttufundinum á Ingólfstorgi. Fólkið sameinaðist undir kröfunni Ísland allra – velferð alla ævi. Ræðumaður BSRB á fundinum á Ingólfstorgi var Vernharð Guðnason formaður Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. Sagði hann m.a.: “Ég vara við þeirri ofurtrú sem ákveðnir aðilar virðast hafa á einkavæðingu og einkarekstri á ... grunnþáttum þjóðfélagsins og sannast sagna þá hrökk ég við þegar forsætisráðherra þjóðarinnar orðaði þá hugsun nýlega að til greina kæmi að slökkviliðið á Keflavíkurflugvelli yrði fært undir hlutafélagavæddan flugvöll. Það má aldrei verða. Grunnþjónustu og öryggisþætti á aldrei að gera háða duttlungum markaðar!”  Að fundi loknum var boðið til kaffisamsætis í nýjum salarkynnum á jarðhæð BSRB-hússins að Grettisgötu 89. Um 700 manns þáðu veitingar í hinum nýja glæsilega sal sem vígður var við þetta tækifæri, en framkvæmdir hafa staðið við húsnæðið í allan vetur. Framundan eru framkvæmdir á 4. hæð BSRB-hússins en þar verða innréttaðar skrifstofur fyrir aðildarfélög bandalagsins.

Tökum vel á móti erlendu vinnuafli

2.5.2006

"Við vitum það að miklar breytingar eiga sér stað í okkar atvinnuumhverfi og erlent vinnuafl hefur aldrei sem fyrr, streymt inn á íslenskan  vinnumarkað. Staðreynd sem við verðum að takast á við! Þróun sem stjórnast af eftirspurn og þátttöku okkar í Evrópusambandinu. Það hefur hreinlega ekki verið nægilegt framboð af starfsmönnum til að anna öllu því sem okkar þjóðfélag kallar á. Og þá er ekkert eðlilegra en að þiggja vinnuframlag erlendis frá. Það sem við þurfum að gæta að, er aftur á móti það,  að viðhalda góðu og gagnvirku eftirliti með erlenda vinnuafli. Eftirliti þannig að við förum ekki of geyst í hlutina og gætum að því að réttur þessa fólks sé virtur. Því ef hann er ekki virtur, þá erum við um leið,  að grafa undan okkar kjaramálum. Við gætum hagsmuna okkar,  best með því að standa saman, þ.e. allir launþegar, hver sem bakrunnur okkar er. Okkur ber að taka vel og vandlega á móti þeim með skipulegum hætti. Okkur ber að sjá til þess að þau kynni sér sín réttindi og njóti sömu réttinda og við og ef einhver misbrestur er á, þá að koma þeim til hjálpar. Þannig hlúum við best að breyttu atvinnuumhverfi, þannig hlúum við best að okkar minni bræðrum og verðum stærri og sterkari fyrir vikið. Að halda að verkalýðsfélögin séu úrelt er einungis skoðun manna sem ekki vita betur eða það sem verra er, skoðun manna sem auðgast á því að draga úr mætti verkalýðsbaráttunnar," sagði Helga Hafsteinsdóttir formaður Starfsmannafélags Dala- og Snæfellsnessýslu m.a. í ávarpi sem hún flutti í Stykkishólmi og Snæfellsbæ á 1. maí.

Ræður fulltrúa BSRB í tilefni dagsins

1.5.2006


Eftirfarandi kemur m.a. fram í 1. maí ræðu formanns BSRB, Ögmundar Jónassonar, í Stapanum í Reykjanesbæ í dag: Þörf er á að endurreisa kauptaxtakerfið. Á stórum hluta markaðarins er það handónýtt. Væru atvinnurekendur reiðubúnir að gera sáttmála um tekjuskiptingu? ...Í ræðu á Ingólfstorgi í dag fjallar Vernharð Guðnason, formaður Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, m.a. um hækkandi fasteignaverð og hækkandi fasteignaskatta og áhrif þess á kjör heimilanna í landinu. Hann varar við einkavæðingu og einkarekstri á grunnþáttum almannaþjónustunnar...Árni Stefán Jónsson, formaður SFR – stéttarfélags í almannaþjónustu, er ræðumaður dagsins í Hafnarfirði. Hann ræðir þá óheyrilegu misskiptingu sem við blasir í samfélaginu í kjölfar markaðsvæðingar síðustu ára og einkavæðingaráráttu stjórnvalda. Árni Stefán minnir á launamun kynjanna... 

Fjölmennum á baráttufundi 1. maí

28.4.2006

BSRB hvetur félagsmenn sína til að taka þátt í baráttufundum verkalýðshreyfingarinnar um allt land. Fundurinn í Reykjavík hefst með göngui frá Hlemmi kl. 13.30 en safnast verður saman kl. 13.00. Vernharð Guðnason formaður Landssambands Slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna verður ræðumaður BSRB á fundinum á Ingólfstorgi þegar göngu lýkur. Að loknum baráttufundinum á Ingólfstorgi verður 1. maí kaffi BSRB að Grettisgötu 89, í nýjum salarkynnum á jarðhæð hússins.
Fleiri fulltrúar BSRB munu ávarpa baráttufundi víða um land. Ögmundur Jónasson formaður BSRB mun flytja ræðu á fundi í Stapa í Reykjanesbæ kl. 14.00. Árni Stefán Jónsson formaður SFR mun ávarpa fundinn í Hafnarfirði og Helga Hafsteinsdóttir formaður Starfsmannafélags Dala- og Snæfellsnessýslu mun flytja ræður í Snæfellsbæ og á Stykkishólmi.

Ísland allra – Velferð alla ævi

28.4.2006

"Verkalýðshreyfingin getur aldrei sætt sig við misrétti og ranglæti. Það er ljóst að við einkavæðingu undanfarinna ára og sölu ríkiseigna, hefur almannahagsmuna ekki verið gætt. Nú leggja stjórnvöld allt kapp á að breyta þeim stofnunum ríkisins sem ekki hafa verið seldar í hlutafélög. Ljóst er  að endanlegur tilgangur slíkra breytinga er að koma þessum stofnunum á markað. Öllum frekari áformum í þessum efnum er harðlega mótmælt," segir m.a. í 1. maí ávarpi Fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna í Reykjavík, BSRB, Bandalags háskólamanna, Kennarasambands Íslands og Iðnnemasambands Íslands.

Ráðstefna um skatta og skerðingar

28.4.2006

LEB, ASÍ, BSRB, SGS, Samiðn og Öryrkjabandalag Íslands efna til Ráðstefnu um Skatta og Skerðingar 3. maí 2006, kl. 13:00 til 16:00 í Öskju, Náttúrufræðistofnun Háskóla Íslands.

Trúnaðarmenn SFR hafa áhyggjur af þróun efnahagsmála

28.4.2006

Fundur trúnaðarmannaráðs SFR haldinn 27. apríl 2006 lýsir þungum áhyggjum af þeirri þróun efnahagsmála sem nú birtist með aukinni verðbólgu og tilheyrandi verðhækkunum á brýnustu lífsnauðsynjum. Þessi þróun bitnar harðast á þeim sem lægst hafa launin en það er jafnframt sá hópur sem síst hefur stuðlað að þenslunni sem nú ríkir í efnahagslífinu.

Enn vegið að áminningarskyldunni

12.4.2006

Nokkrir þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa lagt fram frumvarp sem gengur út á að svipta opinbera starfsmenn þeim rétti að þeim skuli veitt áminning áður en þeim er sagt upp störfum. Ögmundur Jónasson formaður BSRB ritar grein um frumvarpið á heimasíðu sinni og segir m.a.: "Áminningarskyldan, sem svo hefur verið nefnd, var sett í lög og samninga til þess að koma í veg fyrir duttlungastjórnun. Áminningarskyldan sem forstöðumaður skal hlíta gerir það nefnilega að verkum að starfsmanni gefst kostur á því að bæta ráð sitt eða eyða misskilningi ef um slíkt er að ræða."

Eru sjúkraliðar vannýttir?

7.4.2006

Mikil umræða fer nú fram um mannekluna á sjúkrahúsum og hjúkrunarheimilum. Formaður BSRB, Ögmundur Jónasson, segir að þessi umræða sé löngu tímabær. “Vinnuálagið  er víða óbærilegt og kemur ekki aðeins niður á sjúklingum heldur einnig starfsfólki. Þessu veldur stöðugur niðurskurður undangenginna ára. Það er augljóst að róttækra aðgerða er þörf. Stjórnvöld verða að endurskoða fjárveitingar til heilbrigðisstofnana og dvalarheimila aldraðra með það fyrir augum að bæta launakjör  þeirra sem eru á lægstu launum og einnig þarf að fjölga stöðugildum sjúkraliða og hjúkrunarfræðinga. Þetta þolir enga bið.”

Nauðsynlegt að efla slökkviliðið við breyttar aðstæður í varnarmálum

6.4.2006

Til að geta brugðist við þeim hættum sem steðjað geta að samfélagi okkar er algjörlega nauðsynlegt að hafa stór, öflug og vel þjálfuð slökkvilið, (björgunarlið) sérstaklega í ljósi breytinga á vörnum landsins.  Kjölfestan í bráðaþjónustu við samfélagið er í slökkviliðunum. Það er því nauðsynlegra nú, við breyttar aðstæður í varnarmálum þjóðarinnar, en nokkru sinni áður að efla og stækka slökkviliðin hér á suðvesturhorninu, segir í ályktun 11. þings Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna sem haldið var sl. föstudag. Ályktunin fjallar um aukna ábyrgð Íslendinga á eigin öryggi.

Afleiðingar markaðsvæðingar raforkugeirans í Svíþjóð

5.4.2006

Ögmundur Jónasson segir á heimasíðu sinni frá grein í nýútkomnu blaði sænskra bæjarstarfsmanna SKTF-Tidningen,  sem fjallar um afleiðingar „markaðsvæðingar“ raforkugeirans í Svíþjóð. Þar kemur m.a. fram að síðan þetta gerðist, árið 2002, hafi rafmagnsreikningarnir í Stokkhólmi hækkað um 40% og að ofurlaun renni í vasa forstjóra og stjórnenda. "Allt þetta borgum við, segir málgagn sænskra bæjarstarfsmanna. Við gerum það með  hærri rafmagnsreikningum og tapið er einnig okkar því við verðum af fjármunum sem ella hefðu runnið til velferðarþjónustunnar. "

Starfsmenn RÚV gera alvarlegar athugasemdir við frumvarpið um RÚV hf

4.4.2006

Starfsmenn ríkisútvarpsins gera alvarlegar athugasemdir við frumvarp ríkisstjórnarinnar um RÚV í ályktun sem samykkt var á fjölmennum starfsmannafundi sem haldinn var af í hádeginu vegna frumvarps í dag. Fulltrúar BSRB, BHM og Rafiðnaðarsambandsins auk útvarpsstjóra sátu fundinn og viðruðu skoðanir sínar. M.a. var farið yfir stöðu frumvarpsins en engar breytingar hafa verið gerðar á því í menntamálanefnd Alþingis þrátt fyrir að heildarsamtök starfsmanna hafi bent á mikilvægi þess að breyta frumvarpinu til að tryggja réttarstöðu starfsmanna verði frumvarpið að lögum.

Ögmundur Jónasson formaður NTR

31.3.2006

Ögmundur Jónasson formaður BSRB var kjörinn formaður NTR, Nordisk Tjenstemandsråd, á fundi samtakanna í Reykjavík í gær. Aðild að NTR eiga 12 samtök launafólks í Noregi, Íslandi, Svíþjóð, Finnlandi, Danmörk og Færeyjum sem í eru 400 þúsund starfsmenn í almannaþjónustu, einkum hjá sveitarfélögum.

Starfsmannamál og mannauðsstjórnun hjá Félagsmálaskólanum

30.3.2006

Félagsmálaskóli alþýðu heldur námskeiðið Starfsmannamál og mannauðsstjórnun 26. apríl að Grensásvegi 16a, 108 Reykjavík. Námskeiðið stendur í einn dag frá kl. 9 til 16 og er Gylfi Dalmann Aðalsteinsson leiðbeinandi.

Árni Stefán Jónsson nýr formaður SFR

27.3.2006


Árni Stefán Jónsson var kjörinn formaður SFR á aðalfundi félagsins sl. laugardag. Árni Stefán hefur verið framkvæmdastjóri félagsins undanfarin 16 ár. Hann tók við af Jens Andréssyni sem verið hefur formaður félagsins síðast liðin 10 ár og í stjórn SFR frá árinu 1990. Jens hætti nú þar sem lög félagsins takmarka setu formanns við 10 ár. Á aðalfundinum voru Jens þökkuð góð störf í þágu félagsins.

Kjölur vill frekari sameiningu stéttarfélaga

27.3.2006

Aðalfundur KJALAR sem haldinn sl. laugardag í Félagsheimilinu á Blönduósi hvetur stjórn félagsins til að leita eftir viðræðum við önnur stéttarfélög innan BSRB um sameiningu. Aðalfundurinn telur að sú reynsla sem komin er á sameiningunni, við tilurð KJALAR stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu, sé það góð að nauðsynlegt sé að halda áfram sameiningu og styrkingu stéttarfélaga innan BSRB til eflingar þjónustu við félagsmenn.

Einkavæðing vatns hefur ekki virkað

23.3.2006

Þeir félagarnir John Kidd og Steve Bloomfield koma báðir frá stærsta verkalýðsfélagi Bretlands, UNISON, og hafa áratuga langa reynslu af baráttu gegn einkavæðingu vatns og fyrir bættum aðgangi almennings að vatni. John er formaður Water and environmental services hjá Unison og Steve er formaður starfsmanna hjá veitustofnunum (Utilities). Mér lék hugur á að heyra þeirra álit á World Water Forum og hvað hefði merkilegast komið fram þar undangengna viku. En hvaða erindi á PSI á þessa samkomu sem hefur hlotið harða gagnrýni, ekki síst frá verkalýðsfélögunum?

Nýtt merki hjá SDS

23.3.2006

Starfsmannafélag Dala- og Snæfellsnessýslu er komið með nýtt merki fyrir félagið. Það var Menja Von Schmalensee í Stykkishólmi sem hannaði og útfærði merkið. Þá er skrifstofa félagsins flutt í nýtt húsnæði en það er að Grundargötu 28, Grundarfirði.

Vatn fyrir alla í stjórnarskrárnefnd

22.3.2006


Jóni Kristjánssyni formanni stjórnarskrárnefndar var í dag, á alþjóða vatnsdeginum, afhent erindi 14 félagasamtaka til stjórnarskrárnefndar. Í erindinu segir m.a.: „Vegna mikilvægis vatns fyrir íslenska þjóð og lífríki landsins telja undirrituð samtök nauðsynlegt að fest verði í stjórnarskrá Íslands ákvæði um skyldur og réttindi stjórnvalda og almennings hvað varðar réttindi, verndun og nýtingu vatns. Lög og reglugerðir um nýtingu vatns taki því mið af ákvæðum sem viðurkenna rétt einstaklinga til vatns sem og lögum er varða verndun vatns og náttúru.“

Alþjóðlegur dagur vatnsins – opinberar veitur i brennidepli

22.3.2006

Í dag, 22. mars, munu um 10.000 manns, aðallega börn, deyja sökum skorts á hreinu drykkjarvatni. Það sama gerist alla daga ársins, einkum í þróunarlöndunum. Alþjóðlegum degi vatnsins er ætlað að draga athygli að þessari staðreynd og hvernig megi bregðast við.

Opinberar vatnsveitur eru lykilinn

20.3.2006

Opinberar vatnsveitur verða að gegna lykilhlutverki ef að þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna um að fækka íbúum heimsins án aðgangs að hreinu drykkjarvatni og skolplögnum fyrir 2015 á að nást. Þetta er megininntak skýrslu sérstakrar ráðgjafanefndar Kofi Annans um vatn og skolplagnir (Compendium of Actions. United Nations Secretary Generals Advisory Board on Water and Sanitation), sem kynnt var á 4. alþjóðlegu ráðstefnunni um vatn, 4thWorld Water Forum, sem haldin er hér i Mexikoborg og sett var á föstudag. Hér er um róttæka stefnubreytingu að ræða frá síðustu alþjóðlegu vatnsráðstefnunni  sem haldin var i Kyoto fyrir þremur árum, en  þar var sterk áhersla á hlutverk einkafyrirtækja i rekstri vatnsveitna og við að taka á vatnsvandamáli heimsins.

Vatnsveitur í opinberri eigu og einkaeigu - hver er munurinn?

20.3.2006

Vatnsveitur í opinberri eigu og einkaeigu - hver er munurinn? nefnist bæklingur sem BSRB hefur gefið út. Bæklingurinn byggir á erindi sem David Hall hélt á vegum BSRB á síðasta ári. David Hall, prófessors frá Greenwich háskólanum í Lundúnum veitir forstöðu deild við skólann sem kölluð er Public Services International Research Unit, en sú stofnun sérhæfir sig í rannsóknum á ýmsum þáttum almannaþjónustunnar. Sérsvið Davids er vatnið og reyndar rafmagnið einnig, en hann hefur einnig rannsakað ýmislegt sem lýtur að heilbrigðiskerfinu, sorpeyðingu og öðrum grunnþáttum almannaþjónustunnar. Hægt er að nálgast bæklinginn á skrifstofu BSRB, Grettisgötu 89 og er hann ókeypis. einnig er hægt að panta hann í síma 525 8300 eða á netfangið: safi@bsrb.is og verður hann þá sendur viðkomandi að kostnaðarlausu.

Velheppnað málþing um stöðu vaktavinnufólks

17.3.2006

Fjölmenni var á málþingi um starfsumhverfi vaktavinnufólks sem haldið var í Súlnasal Hótel Sögu af BHM, BSRB, fjármálaráðuneytinu, Reykjavíkurborg og Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Á málþinginu kynnti Hildur Fjóla Antonsdóttir verkefnisstjóri hjá Rannsóknastofu í vinnuvernd fyrstu niðurstöður rannsóknarverkefnis sem Rannsóknastofan hefur unnið um kjör og aðstæður vaktavinnufólks en myndin hér til hliðar er af Hildi Fjólu. Þá flutti Árelía E. Guðmundsdóttir erindi sem hún nefndi Breytt samfélag, breyttar þarfir. Inngangsorð fluttu Halldóra Friðjónsdóttir formaður BHM og Gunnar Björnsson skrifstofustjóri í fjármálaráðuneytinu. Líflegar umræður urðu eftir erindin og að lokum ávörpuðu Birgir Björn Sigurjónsson skrifstofustjóri starfsmannaskrifstofu Reykjavíkurborgar og Ögmundur Jónasson formaður BSRB Málþingið. Fundarstjóri var Elsa B. Friðfinnsdóttir formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.

SFR vinnur mál gegn ríkinu

16.3.2006

SFR vann mál gegn ríkinu þar sem tekist var á um veikindi í orlofi. Málið varðaði starfsmann fangelsismálastofnunar sem hafði meiðst á fæti í orlofi. Ákvað yfirstjórn fangelsins sem viðkomandi starfaði hjá að 8 vaktir væru ekki veikindadagar heldur orlofsdagar. Niðurstaða Héraðsdóms er að vaktirnar átta væru veikindadagar en ekki orlofsdagar. Þá var Fangelsismálastofnun dæmd til að greiða stefnanda 300 þúsund krónur í málskostnað.

LSS samþykkir kjarasamning við LN

13.3.2006

Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna samþykkti kjarasamning félagsins við Launanefnd sveitarfélaga með miklum meirihluta atkvæða. Tæpa 78% þeirra sem greiddu atkvæði sögðu já, en rúm 91% þeirra sem atkvæðisrétt höfðu greiddu atkvæði.

Guðbjörn Guðbjörnsson nýr formaður TFÍ

13.3.2006

Guðbjörn Guðbjörnsson var kjörinn formaður Tollvarðafélags Íslands á aðalfundi félagsins 10. mars. Fráfarandi formaður Hörður Davíð Harðarson gaf ekki kost á sér til endurkjörs.

Óljóst um lyktir vatnalagadeilu

13.3.2006

Ekki er enn séð fyrir endann á deilum um vatnalögin á Alþingi. Þá á enn eftir að koma í ljós hvort kröfur 14 almannasamtaka um að kveðið verði á um  rétt almennings til vatns verði festur í stjórnarskrá. Slíkt hefur verið gert í Uruguy og víðs vegar um heiminn eru slíkar kröfur uppi af hálfu verkalýðssamtaka og almannasamtaka auk þess sem áherslur Sameinuðu þjóðanna ganga mjög í þessa átt. Hér á landi hefur myndast mjög breið samstaða um þessar grundvallarkröfur. Í fréttum hefur verið staðhæft að BSRB sé í forsvari fyrir þessar aðgerðir og tali jafnan fyrir hönd allra hlutaðeigandi. Svo er að sjálfsögðu ekki. Samstarfið er á jafnræðisgrundvelli og talar hver fyrir sig þegar sameiginlegum yfirlýsingum sleppir.

Garðbæingar samþykkja kjarasamning við LN

13.3.2006

Starfsmannafélag Garðabæjar samþykkti nýgerðan kjarasamning við Launanefnd sveitarfélaga í síðustu viku. samningurinn var samþykktur með 123 atkvæðum gegn 54. Samningurinn gildir frá 1. janúar 2006 og er á sömu nótum og önnur starfsmannafélög hafa samið á við LN.

Námskeið í streitu og streitustjórnun

13.3.2006

Streita og streitustjórnun nefnist námskeið sem verður haldið í Félagsmálaskóla alþýðu 7. apríl að Grensásvegi 16a, 108 Reykjavík.

Alþýðusambandinu árnað heilla

12.3.2006

"Alþýðusamband Íslands var stofnað hinn 12. mars árið 1916. Í dag eru því rétt 90 ár frá stofnun þess. Með stofnun Alþýðusambandsins var baráttu launafólks á Íslandi beint inn í skipulegan og markvissan farveg. Á þeirri tæpu öld sem liðin er frá stofnun Alþýðusambands Íslands hefur mikið vatn runnið til sjávar. Lífskjör hafa batnað og staða launafólks að sama skapi. Þetta hefur kostað mikla og stöðuga baráttu og hefur Alþýðusambandið gegnt þar lykilhlutverki og skipar nú mikilvægan sess í sögu þjóðarinnar," Segir Ögmundur Jónasson formaður BSRB m.a. í grein sem hann ritar í tilefni afmælisins.

Spænska III hjá Framvegis

10.3.2006

Námskeið í spænsku III hefst hjá Framvegis 4. apríl nk. ef næg þátttaka næst. Skráning fer fram á skrifstofu Framvegis, Síðumúla 6, eða í síma 581 4913.

Konur og hnattvæðing – er heimurinn eitt atvinnusvæði?

8.3.2006

"Ætlum við að teljast raunverulegt lýðræðisríki verður að tryggja að allir íbúar landsins njóti jafnréttis, óháð uppruna, kynþætti eða tungumáli. Þá er ekki einungis vísað til þeirrar sjálfsögðu kröfu að allir fái sömu laun fyrir sömu vinnu heldur einnig þess að menntun og reynsla sé metin að verðleikum. Íslendingum þykir sjálfsagt að menntun okkar sé talin góð og gild í öðrum löndum og því eigum við að kappkosta við að gefa þeim sem hingað koma færi á að nýta sér þá menntun sem þeir hafa aflað sér, því þannig virkjum við best mannauðinn," segir m.a. í ávarpi sem Kvenréttindafélag Íslands, hreyfing launafólks og fleiri aðilar senda sameiginlega frá sér á alþjóðlegum baráttudegi kvenna 8. mars. Yfirskrift ávarpsins er Konur og hnattvæðing – er heimurinn eitt atvinnusvæði?

STARFSUMHVERFI VAKTAVINNUFÓLKS - HVERT STEFNIR?

8.3.2006

STARFSUMHVERFI VAKTAVINNUFÓLKS - HVERT STEFNIR? er yfirskrift málþings sem BSRB, BHM, fjármálaráðuneytið, Reykjavíkurborg og Samband íslenskra sveitarfélaga stendur fyrir um málefni vaktavinnustarfsmanna. Málþingið er í Súlnasal Hótel Sögu föstudaginn 17. mars kl. 9 - 12. Á málþinginu verða kynntar fyrstu niðurstöður rannsóknarverkefnis sem Rannsóknastofa í vinnuvernd hefur unnið að um kjör og aðstæður vaktavinnufólks.

EFLUM ALMANNAÞJÓNUSTUNA - HÖFNUM EINKAVÆÐINGU

6.3.2006


Garðar Hilmarsson var kjörinn formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar á aðalfundi félagsins sem haldinn var sl. laugardag 4. mars. Sjöfn Ingólfsdóttir lét af formennsku og var henni þakkað gott starf í þágu félagsins. Félagið er 80 ára um þessar mundir. Í ályktun frá fundinum er lögð áhersla á góða og trausta almannaþjónustu. Einnig var samþykkt önnur ályktun þar sem er lýst vanþóknun á seinagangi hjá Orkuveitu Reykjavíkur hf og Félagsbústöðum hf fyrir við gerð kjarasamninga við félagið.

LSS skrifar undir samninga við LN

6.3.2006

Samninganefnd Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna skrifaði undir samning við Launanefnd sveitarfélaga. Náðist samkomulag kl. rúmlega 3 aðfaranótt sunnudags en fundað hefur var stíft síðustu daga og stóð fundur til kl. 5 aðfaranótt laugardags. Samningurinn er með fyrirvara um samþykki félagsmanna LSS.

Verkfallsboðun samþykkt með um 98% greiddra atkvæða

3.3.2006

Niðurstaða úr atkvæðagreiðslu Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna var mjög afgerandi. 197 voru á kjörskrá og 183 greiddu atkvæði eða um 93%. Já við verkfallsboðun sögðu 97,8%. Nei sögðu tveir og tveir voru auðir og ógildir. Verkfall skellur því á dagana 20. og 21. mars náist ekki samningar fyrir þann tíma og svo ótímabundið viku seinna.

Konur og hnattvæðing

3.3.2006


Konur og hnattvæðing - er heimurinn eitt atvinnusvæði? er yfirskrift fundar sem haldinn er í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna  8. mars. Fundurinn verður haldinn á Grand Hótel – Hvammi 8. mars 2006 kl. 11.45–13.00.
Að fundinum standa: ASÍ, BHM, BSRB, KÍ, KRFÍ, SÍB, Jafnréttisnefnd Reykjavíkurborgar, Jafnréttisráð og Jafnréttisstofa.

Þolinmæðin á þrotum

1.3.2006


Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn fjölmenntu fyrir utan hús Sambands íslenskra sveitarfélaga um hálf tólf leytið í morgun. Tilgangurinn var að mótmæla seinagangi í viðræðum um kjör þeirra við Launanefnd sveitarfélaga þegar nefndin kom til fundar í húsinu. Atkvæðagreiðsla um verkfallsboðun hófst í gær og lýkur henni á föstudag. Verði hún samþykkt skellur á verkfall Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna fyrst í tvo daga, 20. og 21. mars semjist ekki fyrir þann tíma og síðan ótímabundið viku seinna.

Lagt til að Árni Stefán Jónsson verði næsti formaður SFR

27.2.2006

Trúnaðarmannaráðsfundur SFR samþykkti tillögur uppstillingarnefndar um stjórn SFR sem kjörin verður á aðalfundi félagsins 25. mars nk. Jens Andrésson formaður SFR hættir formennsku en uppstillinganefnd lagði til að Árni Stefán Jónsson framkvæmdastjóri félagsins verði formaður.

Slitnaði upp úr viðræðum LSS og Launanefndar

23.2.2006

Í dag slitnaði upp úr viðræðum samninganefnda Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. LSS segir að tilboð LN til slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna hafi verið óásættanlegt.

LSS vonast eftir útspili LN á morgun

17.2.2006

"Ég lít svo á að  það muni reyna á það á morgun hvort einhver samningsvilji er fyrir hendi hjá viðsemjendum okkar," segir Vernharð Guðnason formaður Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna um stöðuna í samningaviðræðum félagsins við Launanefnd sveitarfélaga.

LSS útskýrir hversvegna 25% hækkun var hafnað

17.2.2006

Vernharð Guðnason formaður Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna útskýrir hversvegna á heimasíðu landssambandsins hversvegna samninganefnd félagsins hafnaði tilboði Launanefndar sveitarfélaga upp á 25% hækkun á komandi samningstíma.

Samið vegna starfsmanna hjá Innheimtustofnun sveitarfélaga

16.2.2006

Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar hefur undirritað kjarasamning við Launanefnd sveitarfélaga vegna starfsmanna hjá Innheimtustofnun sveitarfélaga. Gildistími samningsins er frá 1. desember 2005 til 30. nóvember 2008. Kjarasamningurinn var kynntur á fundi þriðjudaginn 7. febrúar og samþykktur með öllum atkvæðum.  Kjarasamningurinn er á sömu nótum og kjarasamningur félagsins við Reykjavíkurborg.

LSS nýtur víðtæks stuðnings

16.2.2006

"Ég er sannfærður um að kröfur Landssambands slökkviliðsmanna njóta víðtæks stunings í þjóðfélaginu og það veit ég að innan BSRB, þar sem LSS á aðild, þykja kröfur sambandsins réttmætar og njóta ótvíræðs stuðnings," segir Ögmundur Jónasson formaður BSRB í grein á heimasíðu sinni. 

Áfangasigur fyrir launafólk í Evrópu

16.2.2006

ETUC, Evrópusamband verkalýðsfélaga sem BSRB er aðili að, hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem segir að sambandið líti á niðurstöðu atkvæðagreiðslu Evrópuþingsins um þjónustutilskipunina, sem fram fór fyrr í dag, sem áfangasigur fyrir launafólk í Evrópu. Stór meirihluti þingfulltrúa samþykkti tillögurnar sem samkomulag hafði náðst um í þinginu og með því voru svo kallaðar „Bolkenstein tillögur“ afskrifaðar og nýr texti settur í stað þeirra.

Hálfur sigur – hálft tap

16.2.2006

Eins og hér greinir frá eru viðbrögðin við atkvæðagreiðslunni á Evrópuþinginu í dag um þjónustutilskipun ESB misvísandi. Hitt virðist ljóst að sigrar verkalýðshreyfingarinnar eru í besta falli varnarsigrar því þegar á heildina er litið er verið að þrengja að henni og lýðræðissamfélaginu. Ljóst er að áhrifa markaðarins kemur til með að gæta í ríkari mæli en verið hefur, bæði í samfélaginu í heild sinni og í daglegu lífi fólks.

Eru sveigjanleg starfslok valkostur?

8.2.2006


Öldrunarráð Íslands stendur fyrir ráðstefnu um sveigjanleg starfslok í samvinnu við ASÍ, BHM, BSRB, Landssamband eldri borgara, Samtök atvinnulífsins og Samband íslenskra sveitarfélaga í Salnum í Kópavogi, fimmtudaginn 9. febrúar. Ráðstefnan hefst kl. 13. 15 og lýkur kl. 16.20. Ráðstefnan er öllum opin og er aðgangur ókeypis.

Vetrarstillur í Munaðarnesi

8.2.2006


Nú er lag að skella sér í Munaðarnes og njóta vetrarstillunnar og fegurðarinnar sem ríkir þar. Nokkur hús eru laus um helgina og er hægt að panta þau á skrifstofu BSRB í síma 525 8300.

Sveitarfélögin nýta heimild LN til hækkunar

8.2.2006

Sveitarfélögin hafa eitt af öðru ákveðið að nýta að fullu heimild Launanefndar svetarfélaga til hækkunar lægst launa. Þetta kemur fram á heimasíðum aðildarfélaga BSRB.

Ögmundur svarar kennara við viðskiptaskor HÍ

7.2.2006

"Í fréttum Ríkisútvarpsins sl. laugardag var staðhæft að samskiptavandamál væru algengari í ríkisfyrirtækjum en í fyrirtækjum á einkamarkaði. Skýringin liggi í því að auðveldara sé að reka fólk í einkafyrirtækjum en hjá hinu opinbera vegna "ráðningarfyrirkomulags"! Einkafyrirtækin hafi ekki "efni á því" að láta vandamál danka. Svo er að skilja að öðru máli gegni um opinberar stofnanir!" Þetta er upphaf greinar eftir Ögmund Jónasson formann BSRB á heimasíðu hans þar sem hann svarar Þórði S. Óskarssyni kennara við viðskiptaskor HÍ.

NFS vill breyta þjónustutilskipuninni

6.2.2006

Allir formenn heildarsamtaka launafólks á Norðurlöndunum hafa skrifað undir bréf sem NFS, (Norræna verkalýðssambandið) sendi nýverið til norrænna þingfulltrúa á Evrópuþinginu, vegna atkvæðagreiðslu um þjónustutilskipunina, sem fram fer eftir um tvær vikur. Í bréfinu er hvatt til stuðnings við breytingartillögu, sem felur það í sér að hin nýja þjónustutilskipun muni ekki hafa áhrif á vinnurétt einstakra ríkja, þar með taldar heimildir til að grípa til félagslegra aðgerða og kjarasamningsréttinn.

Samningaviðræðum miðar hægt hjá LSS

2.2.2006

Mjög hægt miðar í viðræðum Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna við Launanefnd sveitarfélaga, en samningar hafa verið lausir frá áramótum. Landssambandið samþykkti að fresta samningafundum framyfir launamálaráðstefnu Sambands íslenskra sveitarfélaga, en á næsta fundi með LN sl. þriðjudag kom ekkert bitastætt fram og óskaði formaður LN eftir að næsti fundur yrði ekki haldinn fyrr en 9. febrúar. Á heimasíðu Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna segir að menn séu orðnir langþreyttir á því hversu seint gengur að semja.

Garðar Hilmarsson næsti formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar

2.2.2006

Garðar Hilmarsson verður næsti formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar á aðalfundi félagsins 4. mars nk. Uppstillinganefnd Starfsmannafélagsins gerði tillögu um Garðar sem formann og rann frestur til að koma með mótframboð út í gær þannig að Garðar verður sjálfkjörinn á fundinum.

Tungumálanám á vorönn hjá Framvegis

30.1.2006

Tungumálafræðsla BSRB á höfuðborgarsvæðinu verður með svipuðu sniði og undanfarin misseri. Símenntunarmiðstöðin Framvegis sér um námið og verður boðið upp á nám í ensku, spænsku og dönsku. Í enskunni er boðið upp á ensku I og II, í spænskunni spænska I, II og III og í dönskunni dönsku I og II. Öll námskeiðin eru 30 stundir.

LN heimilar sveitarfélögunum að hækka laun umfram kjarasamninga

30.1.2006

Launanefnd sveitarfélaga gefur út heimild til sveitarfélaganna að hækka laun umfram kjarasamning. Ný launaflokkaröðun sem taka átti gildi 1. júni nk. tekur gildi frá 1. janúar 2006 ásamt því að meiri hækkun kemur til á neðstu flokkanna auk eingreiðslna.

Persónuvernd leiðbeinir Fasteignamatinu vegna vöktunar tölvupósts

26.1.2006

Fasteignamat ríkisins tók á síðasta ári upp eigin reglur varðandi reglur og leiðbeiningar um öryggi í upplýsingatækni þar sem Fasteignamatið áskilur  sér m.a. rétt til að skrá notkun á internetinu í þeim tilgangi  að fylgjast með að reglum þessum sé fylgt og til að tryggja sem  hagkvæmasta  notkun netsins auk þess sem allur tölvupóstur sem sendur er í póstkerfi stofnunarinnar sé eign hennar og henni heimilt að skoða hann. BSRB sendi erindi til Persónuverndar vegna þessara reglna og nú hefur Persónuvernd sent Fasteignamatinu leiðbeiningar þar sem bent er á að ýmislegt í þessum reglum þurfi að lagfæra. 

Vonbrigði með launamálaráðstefnuna

23.1.2006

"Það eru Samfloti bæjarstarfsmannafélaga mikil vonbrigði að Launamálaráðstefna sveitarfélaga hafi ekki gefið skýr skilaboð um hvernig eigi að leysa þann hnút sem launamál sveitarfélaganna eru í. Gert hafði verið ráð fyrir að ákveðin niðurstaða myndi fást á ráðstefnunni þar sem sveitarstjórnarmenn höfðu vísað erindum og beiðnum um leiðréttingar á kjörum starfsmannafélaga þangað til úrlausnar," segir á heimasíðu Samflotsins

FOSVest í nýtt húsnæði

19.1.2006

Félag opinberra starfsmanna á Vestfjörðum hefur opnað skrifstofu sína í nýju sérhönnuðu skrifstofuhúsnæði að Aðalstræti 24. Nýja húsnæðið hentar mun betur þörfum félagsins en gamla húsnæðið sem var að Hafnarstræti 6 bæði hvað varðar aðstöðu til fundarhalda og allrar annarrar starfsemi félagsins.

Trúnaðarmannanámskeið í Munaðarnesi

19.1.2006

Fræðslunefnd BSRB hefur ákveðið að halda grunnnámskeið fyrir trúnað­armenn í Munaðarnesi dagana 14. og 15. febrúar verði næg þátttaka. Dagskrá námskeiðsins verður með svipuðu sniði og undanfarin ár. Þátttakendur á námskeiðinu mæta í Munaðarnesi á hádegi þriðjudagsins 14. febrúar og fer rúta frá BSRB-húsinu, Grettisgötu 89 kl. 10.00. Námskeiðinu lýkur síðdegis 15. febrúar. Rútan fer frá Munaðarnesi kl. 17.15.

Ríkisskattstjóri fellst á að einkennisklæðnaður sé skattfrjáls

19.1.2006

Ríkisskattstjóri hefur tekið til greina ábendingar BSRB varðandi skattlagningu einkennisfatnaðar sem ákveðnar stéttir þurfa að klæðast vegna starfs síns. Áður voru einkennisklæðin metin starfsmanni til tekna 25.000 kr. eða meira. Þetta varðaði t.d. tollverði og lögregluþjóna. Í nýjum reglum um skattmat fyrir árið 2006 kemur fram að "ef lög eða stjórnvaldsfyrirmæli kveða á um að launþegi skuli klæðast ákveðnum einkennisfatnaði við störf sín skulu slík afnot ekki metin launþega til tekna," eins og segir orðrétt í reglunum á heimasíðu Ríkisskattstjóra.

Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar 80 ára

17.1.2006

Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar var stofnað 17. janúar 1926 og er því 80 ára í dag. Stjórn og fulltrúaráð félagsins hefur ákveðið að minnast þessara merku tímamóta með ýmsum hætti. Viðamesta framtak félagsins í tilefni afmælisins verður að styðja við bakið á starfsemi í þágu barna og ungs fólks með fjárframlögum. Barna- og unglingageðdeild LSH mun njóta góðs af framtakinu og einnig Fjölsmiðjan í Kópavogi en hún starfrækir, með meiru, verkþjálfunar- og framleiðslusetur fyrir ungt fólk á aldrinum 16-24 ára. Þá munu stjórn og fulltrúaráð efna til nokkurra viðburða á afmælisárinu fyrir félagsmenn og velunnara félagsins.

Fjölbreytt námsframboð Félagsmálaskóla alþýðu

16.1.2006

Námsframboð Félagsmálaskóla alþýðu fyrir vorið 2006 liggur nú fyrir. Alls eru átta námskeið í boði og er reynt að hafa þau sem fjölbreyttust. Meðal námskeiða er námskeið um trúnaðarmanninn og störf hans og stöðu, starfsmannamál og mannauðsstjórnun, streitu og marg fleira.

Tungumálafræðsla BSRB á Austurlandi

16.1.2006

Fræðslunet Austurlands verður með tungumálanámskeið fyrir félagsmenn BSRB nú í vor. Boðið verður upp á námskeið í ensku og spænsku. Enskunámskeiðin eru bæði á Egilsstöðum og Höfn í Hornafirði en spænskan einungis á Egilsstöðum.

Samningurinn við Stætó samþykktur með 99% greiddra atkvæða

12.1.2006

Nýr kjarasamningur Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar við Strætó bs var samþykktur með 99% greiddra atkvæða í gær. Atkvæðagreiðsla um kjarasamninginn fór fram í kjölfar kynningafunda á samningnum. Á kjörskrá voru  224 einstaklingar en 154 tóku þátt í atkvæðagreiðslu. Kjarasamningurinn var samþykktur  með 99% greiddra atkvæða eins og fyrr sagði. Einn var á móti og einn skilaði auðu.

Samflotið skorar á fulltrúa á launamálaráðstefnu sveitarfélaga

11.1.2006

Formannafundur Samflots bæjarstarfsmannafélaga, haldinn 10. janúar 2006, skorar á fulltrúa á launamálaráðstefnu sveitarfélaga sem haldin verður þann 20. janúar n.k.  að  tryggja að sambærileg og jafnverðmæt störf verði launuð á sama hátt, óháð kynferði eða búsetu þess er starfinu gegnir.

Samið við Strætó

11.1.2006

Á mánudaginn undirritaði Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar fyrsta sjálfstæða kjarasamninginn við Strætó bs. Kjarasamnigurinn er í  flestu sambærilegur við kjarasamnninginn sem félagið gerði við Reykjavíkurborg. Kynning á kjarasamningnum fer fram í dag miðvikudaginn 11. janúar, kl. 10 og 20 að Grettisgötu 89, 4. hæð og verða greidd atkvæði um hann  að lokinni kynningu.

Staðan í kjaramálum áhyggjuefni

11.1.2006

"Sú staða sem uppi er í kjaramálum starfsmanna sveitarfélaga er áhyggjuefni fyrir félagsmenn okkar og ljóst er að KJÖLUR mun ekki sitja hjá í því ferli sem þegar er farið af stað. Kjarsamningar sem gerðir voru fyrir starfsmenn Reykjavíkurborgar í desember skapa nýjan samanburð og breyta launaumhverfi innan sveitarfélaga mikið," segir á heimasíðu Kjalar, stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu.

Krabbameinssjúk börn í Palestínu styrkt

11.1.2006

Svala Norðdahl, varaformaður SFR, afhendir í gær Amneh Agha, stofnanda Maher Center, styrk að upphæð krónur 700.000  fyrir krabbameinssjúk börn í Palestínu. Auk SFR styrktu BSRB, Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar, Efling, ASÍ og VR þessa söfnun, auk þess sem margir trúnaðarmenn þessara félaga komu með framlög í söfnunina. Amneh Agha hefur dvalið á Íslandi yfir hátíðirnar í heimsókn hjá systur sinni Amal Tamimi, sem er fulltrúi hjá Alþjóðahúsinu. Amneh hefur unnið sem sjálfboðaliði til margra ára. Aðalverkefni hennar hefur verið að liðsinna veikum börnum í Jerúsalem og á Vesturbakkanum.

Samið við Faxaflóahafnir

6.1.2006

Fyrsti sjálfstæði kjarasamningur Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og Faxaflóahafna sf. var undirritaður í gær, 5. janúar 2006 í fundarsal hafnarstjórnar. Samningurinn er í öllum meginatriðum sambærilegur nýgerðum kjarasamningi félagsins við Reykjavíkurborg.

Hlutafélagavæðing ríkisstofnana ýtir undir kjaramisrétti

6.1.2006

Formaður BSRB segir hlutafélagavæðingu ríkisstofnana ýta undir launaleynd og kjaramisrétti í þjóðfélaginu og að nýboðuð lög ríkisstjórnarinnar um "opinber hlutafélög" séu ekkert annað en kattarþvottur. Þau dragi úr gagnsæi og möguleikum almennings að veita þeim sama aðhald og unnt er varðandi opinberan rekstur.

Um BSRB

Póstlistaskráning


Á döfinni


fræðslumál

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta