30.1.2006
Tungumálafræðsla BSRB á höfuðborgarsvæðinu verður með svipuðu sniði og undanfarin misseri. Símenntunarmiðstöðin Framvegis sér um námið og verður boðið upp á nám í ensku, spænsku og dönsku. Í enskunni er boðið upp á ensku I og II, í spænskunni spænska I, II og III og í dönskunni dönsku I og II. Öll námskeiðin eru 30 stundir.
30.1.2006
Launanefnd sveitarfélaga gefur út heimild til sveitarfélaganna að hækka laun umfram kjarasamning. Ný launaflokkaröðun sem taka átti gildi 1. júni nk. tekur gildi frá 1. janúar 2006 ásamt því að meiri hækkun kemur til á neðstu flokkanna auk eingreiðslna.
26.1.2006
Fasteignamat ríkisins tók á síðasta ári upp eigin reglur varðandi reglur og leiðbeiningar um öryggi í upplýsingatækni þar sem Fasteignamatið áskilur sér m.a. rétt til að skrá notkun á internetinu í þeim tilgangi að fylgjast með að reglum þessum sé fylgt og til að tryggja sem hagkvæmasta notkun netsins auk þess sem allur tölvupóstur sem sendur er í póstkerfi stofnunarinnar sé eign hennar og henni heimilt að skoða hann. BSRB sendi erindi til Persónuverndar vegna þessara reglna og nú hefur Persónuvernd sent Fasteignamatinu leiðbeiningar þar sem bent er á að ýmislegt í þessum reglum þurfi að lagfæra.
23.1.2006
"Það eru Samfloti bæjarstarfsmannafélaga mikil vonbrigði að Launamálaráðstefna sveitarfélaga hafi ekki gefið skýr skilaboð um hvernig eigi að leysa þann hnút sem launamál sveitarfélaganna eru í. Gert hafði verið ráð fyrir að ákveðin niðurstaða myndi fást á ráðstefnunni þar sem sveitarstjórnarmenn höfðu vísað erindum og beiðnum um leiðréttingar á kjörum starfsmannafélaga þangað til úrlausnar," segir á
heimasíðu Samflotsins.
19.1.2006
Félag opinberra starfsmanna á Vestfjörðum hefur opnað skrifstofu sína í nýju sérhönnuðu skrifstofuhúsnæði að Aðalstræti 24. Nýja húsnæðið hentar mun betur þörfum félagsins en gamla húsnæðið sem var að Hafnarstræti 6 bæði hvað varðar aðstöðu til fundarhalda og allrar annarrar starfsemi félagsins.
19.1.2006
Fræðslunefnd BSRB hefur ákveðið að halda grunnnámskeið fyrir trúnaðarmenn í Munaðarnesi dagana 14. og 15. febrúar verði næg þátttaka. Dagskrá námskeiðsins verður með svipuðu sniði og undanfarin ár. Þátttakendur á námskeiðinu mæta í Munaðarnesi á hádegi þriðjudagsins 14. febrúar og fer rúta frá BSRB-húsinu, Grettisgötu 89 kl. 10.00. Námskeiðinu lýkur síðdegis 15. febrúar. Rútan fer frá Munaðarnesi kl. 17.15.
19.1.2006
Ríkisskattstjóri hefur tekið til greina ábendingar BSRB varðandi skattlagningu einkennisfatnaðar sem ákveðnar stéttir þurfa að klæðast vegna starfs síns. Áður voru einkennisklæðin metin starfsmanni til tekna 25.000 kr. eða meira. Þetta varðaði t.d. tollverði og lögregluþjóna. Í nýjum reglum um skattmat fyrir árið 2006 kemur fram að "ef lög eða stjórnvaldsfyrirmæli kveða á um að launþegi skuli klæðast ákveðnum einkennisfatnaði við störf sín skulu slík afnot ekki metin launþega til tekna," eins og segir orðrétt í reglunum á heimasíðu Ríkisskattstjóra.
17.1.2006
Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar var stofnað 17. janúar 1926 og er því 80 ára í dag. Stjórn og fulltrúaráð félagsins hefur ákveðið að minnast þessara merku tímamóta með ýmsum hætti. Viðamesta framtak félagsins í tilefni afmælisins verður að styðja við bakið á starfsemi í þágu barna og ungs fólks með fjárframlögum. Barna- og unglingageðdeild LSH mun njóta góðs af framtakinu og einnig Fjölsmiðjan í Kópavogi en hún starfrækir, með meiru, verkþjálfunar- og framleiðslusetur fyrir ungt fólk á aldrinum 16-24 ára. Þá munu stjórn og fulltrúaráð efna til nokkurra viðburða á afmælisárinu fyrir félagsmenn og velunnara félagsins.
16.1.2006
Námsframboð Félagsmálaskóla alþýðu fyrir vorið 2006 liggur nú fyrir. Alls eru átta námskeið í boði og er reynt að hafa þau sem fjölbreyttust. Meðal námskeiða er námskeið um trúnaðarmanninn og störf hans og stöðu, starfsmannamál og mannauðsstjórnun, streitu og marg fleira.
16.1.2006
Fræðslunet Austurlands verður með tungumálanámskeið fyrir félagsmenn BSRB nú í vor. Boðið verður upp á námskeið í ensku og spænsku. Enskunámskeiðin eru bæði á Egilsstöðum og Höfn í Hornafirði en spænskan einungis á Egilsstöðum.
12.1.2006
Nýr kjarasamningur Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar við Strætó bs var samþykktur með 99% greiddra atkvæða í gær. Atkvæðagreiðsla um kjarasamninginn fór fram í kjölfar kynningafunda á samningnum. Á kjörskrá voru 224 einstaklingar en 154 tóku þátt í atkvæðagreiðslu. Kjarasamningurinn var samþykktur með 99% greiddra atkvæða eins og fyrr sagði. Einn var á móti og einn skilaði auðu.
11.1.2006
Formannafundur Samflots bæjarstarfsmannafélaga, haldinn 10. janúar 2006, skorar á fulltrúa á launamálaráðstefnu sveitarfélaga sem haldin verður þann 20. janúar n.k. að tryggja að sambærileg og jafnverðmæt störf verði launuð á sama hátt, óháð kynferði eða búsetu þess er starfinu gegnir.
11.1.2006
Á mánudaginn undirritaði Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar fyrsta sjálfstæða kjarasamninginn við Strætó bs. Kjarasamnigurinn er í flestu sambærilegur við kjarasamnninginn sem félagið gerði við Reykjavíkurborg. Kynning á kjarasamningnum fer fram í dag miðvikudaginn 11. janúar, kl. 10 og 20 að Grettisgötu 89, 4. hæð og verða greidd atkvæði um hann að lokinni kynningu.
11.1.2006
"Sú staða sem uppi er í kjaramálum starfsmanna sveitarfélaga er áhyggjuefni fyrir félagsmenn okkar og ljóst er að KJÖLUR mun ekki sitja hjá í því ferli sem þegar er farið af stað. Kjarsamningar sem gerðir voru fyrir starfsmenn Reykjavíkurborgar í desember skapa nýjan samanburð og breyta launaumhverfi innan sveitarfélaga mikið," segir á heimasíðu Kjalar, stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu.
11.1.2006

Svala Norðdahl, varaformaður SFR, afhendir í gær Amneh Agha, stofnanda Maher Center, styrk að upphæð krónur 700.000 fyrir krabbameinssjúk börn í Palestínu. Auk SFR styrktu BSRB, Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar, Efling, ASÍ og VR þessa söfnun, auk þess sem margir trúnaðarmenn þessara félaga komu með framlög í söfnunina. Amneh Agha hefur dvalið á Íslandi yfir hátíðirnar í heimsókn hjá systur sinni Amal Tamimi, sem er fulltrúi hjá Alþjóðahúsinu. Amneh hefur unnið sem sjálfboðaliði til margra ára. Aðalverkefni hennar hefur verið að liðsinna veikum börnum í Jerúsalem og á Vesturbakkanum.
6.1.2006
Fyrsti sjálfstæði kjarasamningur Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og Faxaflóahafna sf. var undirritaður í gær, 5. janúar 2006 í fundarsal hafnarstjórnar. Samningurinn er í öllum meginatriðum sambærilegur nýgerðum kjarasamningi félagsins við Reykjavíkurborg.
6.1.2006
Formaður BSRB segir hlutafélagavæðingu ríkisstofnana ýta undir launaleynd og kjaramisrétti í þjóðfélaginu og að nýboðuð lög ríkisstjórnarinnar um "opinber hlutafélög" séu ekkert annað en kattarþvottur. Þau dragi úr gagnsæi og möguleikum almennings að veita þeim sama aðhald og unnt er varðandi opinberan rekstur.