Fréttir
Starfsumhverfi ríkisstarfsmanna kortlagt
31.10.2006
41. þing afgreiðir ályktanir
27.10.2006

41. þing BSRB er nú að afgreiða ályktanir. Þegar hafa verið samþykktar ályktanir um efnahags- og atvinnumál, hnattvæðingu, einkavæðingu fræðslumál og málefni erlendra starfsmanna. Hægt er að nálgast ályktanirnar hér jafnóðum og þær eru samþykktar.
Ögmundur endurkjörinn formaður BSRB
27.10.2006

Ný framkvæmdanefnd BSRB. Frá vinstri: Garðar Hilmarsson, Elín Björg Jónsdóttir, Ögmundur Jónasson, Árni Stefán Jónsson og Þuríður Einarsdóttir.
Ögmundur Jónasson var kjörinn formaður BSRB, Árni Stefán Jónsson formaður SFR var kjörinn fyrsti varaformaður bandalagsins, Elín Björg Jónsdóttir formaður Félags opinberra starfsmanna á Suðurlandi var kjörin annar varaformaður, Garðar Hilmarsson formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar var kjörinn gjaldkeri og Þuríður Einarsdóttir formaður Póstmannafélags Íslands var kjörin ritari BSRB.
Friðhelgi einkalífsins má ekki víkja í nafni ótta eða tækniframfara
26.10.2006

Sigrún Jóhannesdóttir forstjóri Persónuverndar flutti erindi um rafræna vöktun á 41. þingi BSRB í dag. Hún byrjaði á því að skilgreina rafræna vöktun og hvernig hún færi fram. Hún fjallaði um reglur sem gilda varðandi heimild um vöktunina og einnig um könnun sem Persónuvernd hefur gert um rafræna könnun í fyrirtækjum á Íslandi. Þar kom fram að um 75% fyrirtækja þurfa að bæta sig á þessu sviði.
Kröftugt lýðræðisþjóðfélag kallar á öfluga almannaþjónustu
25.10.2006

„Kjörorð þingsins er: Eflum almannaþjónustuna – eflum lýðræðið.
Hvers vegna þetta kjörorð? Innan BSRB starfar launafólk sem á það sammerkt að vinna við þá atvinnustarfsemi sem við höfum kallað almannaþjónustu – þar er um að ræða grunnþjónustu samfélagsins – þjónustu sem ekkert samfélag getur án verið, hvort sem það er á sviði heilbrigðismála og menntamála eða löggæslu, vinnueftirlits og rannsókna, póstþjónustu eða annarra þátta sem nútímaþjóðfélag byggir á,“ sagði Ögmundur Jónasson í setningarræðu sinni á 41. þingi BSRB sem haldið er á Grand hóteli 25. til 27. október.
Ögmundur undirstrikaði mikilvægi þess að stuðla að jöfnuði í samfélaginu og ábyrgð verkalýðshreyfingarinnar í því efni. BSRB hefði staðið vaktina um velferðarkerfið og barist gegn öllum tilraunum til þess að brjóta það niður en sagði jafnframt að ekki síður hefðu samtökin beitt sér af alefli í sókn til framfara.
Í ræðu sinni kom Ögmundur víða við og fjallaði m.a. um réttindamál opinberra starfsmanna, málefni lífeyrissjóða, jafnréttismál, starfsmenntunarmál og verðlagsmál, svo nokkuð sé nefnt. Þá gerði hann að umtalsefni vaxandi gróðahyggju í þjóðfélaginu á undanförnum árum - græðgina sem væri bæði óendanlega fátæk og siðlaus í senn - og lýsti afleiðingum hennar og áhrifum á lýðræðið og kjör almennings í landinu. Meginstefið í ávarpinu var að vilji fólk kröftugt lýðræðisþjóðfélag verði að standa vörð um almannaþjónustuna, styrkja hana og efla.
Forseti ASÍ óskar eftir samvinnu ASÍ og BSRB við undirbúning næstu samninga
25.10.2006

"Á hinum Norðurlöndunum höfum við ákveðnar fyrirmyndir um samstarf samtaka launafólks á vinnumarkaði. Þar er víðtæk samvinna um samningagerð og kröfur gagnvart opinberum aðilum, milli sambanda á almennum vinnumarkaði og á opinberum vinnumarkaði. Þetta samstarf – sem er að nokkru leyti formbundið – gengur sums staðar undir heitinu Kartel. Við höfum sannarlega tækifæri til að mynda slíkt samband milli BSRB og ASÍ, og það kann einnig að eiga við um önnur samtök opinberra starfsmanna nú í aðdraganda næstu kjarasamninga," sagði Grétar Þorsteinsson forseti ASÍ þegar hann ávarpaði þing BSRB fyrr í dag.
Útkall á þingi BSRB
25.10.2006

Fulltrúar Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna á 41. þingi BSRB. Frá hægri: Vernharð Guðnason formaður LSS, Ari Hauksson, Guðmundur Fylkisson, Borgar Valgeirsson, Ari Elíasson og Jósep Hallsson.
Fulltrúar Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna á 41. þingi BSRB þurftu skyndilega að yfirgefa þingið vegna útkalls þar sem farþegaflugvél frá Continental flugfélaginu var að koma inn til nauðlendingar á Keflavíkurflugvelli. Lendingin tókst giftusamlega og sneru fulltrúarnir því aftur til starfa sinna á þingi BSRB.
BSRB fagnar aðgerðum til að lækka matvælaverð
24.10.2006
41. þing BSRB
23.10.2006
Örugg frá upphafi
20.10.2006
Samkomulag um fjarvinnslu
20.10.2006

Erna Guðmundsdóttir og Ögmundur Jónasson frá BSRB, Halldóra Friðjónsdóttir BHM og Elna Katrín Jónsdóttir KÍ.
BSRB, BHM og KÍ undirrituðu í dag samkomulag við ríkið, Reykjavíkurborg og Launanefnd sveitarfélaga um fjarvinnslu. Með þessu samkomulagi var innleiddur rammasamningur á Evrópuvísu sem tekur til fjarvinnslustarfsmanna þar sem vinna sem einnig væri hægt að inna af hendi í starfsstöð atvinnurekanda er unnin reglulega utan starfsstöðvarinnar.
Heildarútboði á Gámu á Akranesi mótmælt
19.10.2006
Stjórn Starfsmannafélags Akraness mótmælir harðlega áformum um heildarútboð á rekstri Sorpmóttökustöðvar Akraness, Gámu. Þá mótmælir stjórn félagsins því að starfsmenn þurfi að lesa um uppsagnir á störfum sínum í fjölmiðlum en í viðtali Skessuhorns við
Námskeið um stjórnsýslurétt fyrir starfsmenn sveitarfélaga
19.10.2006
Til hvers löggjöf um vinnu barna og unglinga?
19.10.2006
mánudaginn 23. október kl. 12.20 – 13.20. Hann er haldinn í tilefni Evrópsku vinnuverndarvikunnar sem er að þessu sinni helguð vinnu barna og ungmenna. Fyrirlesturinn er öllum opinn.
Látlaus innflutningur erlends vinnuafls
18.10.2006
Í skýrslu Vinnumálastofnunar um atvinnuástand í september kemur fram að atvinnuleysi mælist nú 1,0% og hefur ekki mælst svo lágt síðan í september 2001. Leiðrétt atvinnuleysi eftir árstímum reiknast nú 1,2% og hefur lækkað um 0,1% frá fyrra mánuði. Í september hafði atvinnuleysi dregist meira saman á höfuðborgarsvæðinu en á landsbyggðinni frá sama mánuði fyrir einu ári. Þá hafði atvinnulausum konum fækkað meira en körlum. Það sem öðru fremur einkennir vinnumarkaðinn nú er látlaus innflutningur erlends vinnuafls og hefur hann aldrei mælst jafn mikill í einum mánuði og í september, eða tæplega eitt þúsund manns.
Er fólk látið gjalda skoðanna sinna í Snæfellsbæ?
13.10.2006
Ögmundur Jónasson formaður BSRB ritaði opið bréf sem dreift var til allra heimila í Snæfellsbæ. Bréfið varðar uppsagnir starfsmanna í íþróttahúsum og sundlaug Snæfellsbæjar. Með bréfinu fylgir grein sem Ögmundur hafði óskað eftir að fá birta í Bæjarblaðinu Jökli en þar hafði talsverð umfjöllun verið um málið. Tekið var jákvætt í það að birta greinina en þegar ritstjóranum barst hún brá svo við að hann neitaði að birta hana. Því greip Ögmundur til þess ráðs að dreifa henni á þennan hátt til íbúa Snæfellsbæjar.
Tilskipun Evrópusambandsins um jafna meðhöndlun til atvinnu og starfa
13.10.2006
Jólahlaðborð í Munaðarnesi
12.10.2006

Jólahlaðborð verður í Kaffi Paradís í Munaðarnesi dagana 24. og 25. nóvember og 1. og 2. desember. Lifandi tónlist er á meðan á borðhaldi stendur og leikur hljómsveitin Gammel dansk fyrir dansi að borðhaldi loknu. Einnig er hægt að sérpanta hlaðborðið fyrir stærri hópa á öðrum dagsetningum. Stórsniðugt er fyrir stóra sem litla vinnustaði, vini, fjölskyldur og aðra hópa sem vilja upplifa frábæra stemningu í fallegu umhverfi. Verð: 5.500 kr. Borðapantanir og upplýsingar í síma 525-8441. Tilvalið er að nýta sér samhliða sumarhúsaleigu BSRB í Munaðarnesi. Upplýsingar á skrifstofu BSRB í síma 525-8300.
Skiptir aldurssamsetning á vinnustað máli?
11.10.2006
Kallar framtíðin á breyttar áherslur? Skiptir aldurssamsetning á vinnustað máli? Er æskudýrkun á þínum vinnustað? Verkefnisstjórn 50 + efnir til fundaraðar um málefni miðaldra og eldra fólks á vinnumarkaði. Fyrsti fundur af þremur verður á Grand hótel, Hvammi þann 17. október n.k. kl. 8:30-10:00 Árið 2005 skipaði félagsmálaráðherra, sjö manna verkefnisstjórn sem ætlað er að stýra fimm ára verkefni sem hefur það meginmarkmið að styrkja stöðu miðaldra og eldra fólks á vinnumarkaði. Eitt af því sem verkefninu er ætlað, er að styrkja stöðu þeirra sem eru 50 ára og eldri með því að skapa jákvæða umræðu um miðaldra og eldra fólk á vinnumarkaði. Markmiðið er m.a. að bæta ímynd þeirra með því að vekja athygli á kostum þeirra sem starfsmanna og móta farveg fyrir viðhorfsbreytingu í þjóðfélaginu.
Vinnuumhverfi lögreglumanna sífellt hættulegra
10.10.2006
Helga Jónsdóttir nýr framkvæmdastjóri BSRB
5.10.2006
Helga Jónsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri BSRB. Hún tekur við af Svanhildi Halldórsdóttur sem lét af störfum nú í haust eftir áratuga farsælt starf fyrir BSRB. Helga er með meistarapróf í hagfræði frá Háskólanum í Osló. Sérfög hennar voru vinnumarkaðshagfræði og þróunarhagfræði. Helga hefur starfað í fjármálaráðuneytinu frá árinu 1999, fyrst á fjárlagaskrifstofunni og síðan á rekstrar- og upplýsingaskristofu ráðuneytisins. Þar áður starfaði hún á kjaraþróunardeild hjá Reykjavíkurborg.Um BSRB
Á döfinni
Leit
























