Fréttir
Ríkisstjórnin veiti starfsfólki í almannaþjónustu í Palestínu stuðning
29.11.2006

Grétar Már Sigurðsson ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins tók við bréfi fyrir hönd Valgerðar Sverrisdóttur utanríkisráðherra frá BSRB þar sem farið er fram á að hún hvetji ríkisstjórn Íslands til að bregðast með jákvæðum hætti við því neyðarástandi sem nú ríkir í Palestínu. Það var Ögmundur Jónasson formaður BSRB sem afhenti bréfið. PSI, alþjóðasamtök starfsmanna í almannaþjónustu, hafa hvatt aðildarfélög samtakanna til að senda ríkisstjórnum í sínu heimalandi bréf þar sem hvatt er til þess að starfsfólki í almannaþjónustu í Palestínu verði veittur stuðningur.
Um 15.000 erlendir ríkisborgarar á íslenskum vinnumarkaði
29.11.2006
Samtals má því áætla að á árinu 2006 hafi allt að 10.000 erlendir ríkisborgarar komið til starfa á Íslandi, þó ekki séu þeir svo margir starfandi á hverjum tímapunkti. Árið 2005 voru að jafnaði um 9.000 erlendir ríkisborgarar starfandi á Íslandi skv. upplýsingum Hagstofunnar
og má gera ráð fyrir að um 2/3 hlutar þeirra séu enn starfandi á Íslandi, eða um 6.000 manns. Erlendir ríkisborgarar á íslenskum vinnumarkaði eru því að öllum líkindum yfir 15.000 um þessar mundir, en erfitt er að leggja mat á hver fjöldinn er nákvæmlega, er niðurstaða samantektar Vinnumálastofnunar sem birt er á heimasíðu stofnunarinnar.Ný alþjóðasamþykkt um vinnuskilyrði farmanna
29.11.2006
Starfslokanámskeið BSRB í janúar 2007
28.11.2006
Formenn BSRB, BHM og KÍ óska eftir viðræðum við fjármálaráðherra um lífeyrismál
27.11.2006
Námsframboð Félagsmálaskólans á vorönn
17.11.2006
Félagsmálaskóli alþýðu hefur sent frá sér bækling þar sem hann kynnir námsframboð skólans á vorönn 2007. Að venju er úrval námskeiða fjölbreytilegt. Nefna má námskeið um farsæl samskipti á fjölmenningarlegum vinnustað, jafnrétti á grænu ljósi, samningatækni, tímstjórnun, framkomu og grunn og framhaldsnámskeið í túlkun talna. Félagsmálaskólinn niðurgreiðir námskeiðið um 40%. Hádegisverður og kaffi er innifalið í námskeiðsgjaldi og gert er ráð fyrir að þátttakendur séu í hádegismat. Námskeiðin hefjast kl. 10:00 og þeim lýkur kl. 17:00. Nánari upplýsingar um námskeiðin er hægt að fá hjá Félagsmálaskóla alþýðu í síma 53 55 636 og á vefsíðu Félagsmálaskólans www.felagsmalaskoli.is Skráning fer fram hjá Mími símenntun í síma 580 1800 og í tölvupósti mimir@mimir.is. Einnig er hægt að skrá sig á vefsíðu skólans. Skráningu lýkur viku fyrir áætlaðan námskeiðsdag hvers námskeiðs. Sjá bækling Félagsmálaskólans.Nýr formaður hjá Starfsmannafélagi Hafnarfjarðar
16.11.2006
Evrópusamvinnan og lýðræðið - morgunfundur
13.11.2006

Morgunfundur Evrópufræðaseturs á Bifröst, í samstarfi við Samtök atvinnulífsins, BSRB, ASÍ og Samtök iðnaðarins verður haldinn á Grand Hótel í Reykjavík, miðvikudaginn 15. nóvember. Fundurinn verður í salnum Háteigi og stendur frá kl.
Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir og aðgangur er ókeypis.
Er heima best?
6.11.2006
Samtök félagsmálastjóra á Íslandi halda málþing um félagslega heimaþjónustu fimmtudaginn 23. nóvember kl. 13 - 17 í Salnum í Kópavogi. Þingið er ætlað öllum sem láta sig félags- og heimaþjónustu varða, hvort sem þeir koma að málum sem fagfólk, stjórnendur, starfsmenn eða notendur. Fjallað verður um þau mál sem efst eru á baugi, stöðu og þróun, aukna áherslu á nærþjónustu, reynslu af tilraunaverkefnum, rannsóknir og sjónarmið notenda.Ný alþjóðasamtök launamanna
2.11.2006

Stofnráðstefna nýrra alþjóðasamtaka launamanna ICTU er haldin í Vín í Austurríki dagana 1. - 3. nóvember. Samtökin verða til við sameiningu ICFTU (Alþjóðasamtaka frjálsra verkalýðsfélaga) og WCL (Alþjóðasamtaka verkamanna). Hvatinn að þessari sameiningu er svar verkalýðshreyfingarinnar við hnattvæðingu og er tilgangurinn að styrkja launamenn til aukinna félagslegra réttinda, frjálsrar þátttöku í verkalýðsfélögum og við gerð kjarasamninga.
Um BSRB
Á döfinni
Leit
























