Fréttir
MATÍS hunsar stéttarfélög
28.12.2006
Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins, Matvælarannsóknir Keldnaholti og Rannsóknarstofa Umhverfisstofnunar verða sameinuð í eitt fyrirtæki um áramótin sem kallast MATÍS ohf. Í umsögn BSRB um sameininguna frá 1. mars sl. var hvatt til þess að hið nýja fyrirtæki virti rétt stéttarfélaga um gerð kjarasamninga fyrir hönd félagsmanna sinna, bæði fyrir hönd núverandi starfsmanna og nýráðinna. Frá þessu yrði gengið áður en rekstrarformsbreytingin ætti sér stað. Stjórnendur MATÍS ohf. hafa neitað að ganga til samninga við stéttarfélögin og hafa félög innan BSRB og BHM mótmælt því háttalagi.
Varað við fastlaunasamningum hjá borginni
19.12.2006
Garðar Hilmarsson formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar varar við fastlaunasamningum sem bjóða á fólki í stað þess sem yfirstjórn borgarinnar kallar ómálefnalegar yfirborganir í bréfum til starfsfólks. Garðar segir að þar sem í uppsagnarbréfinu sé yfirborgunum sagt upp geti starfsfólkið litið svo á að um uppsögn sé að ræða. Bréfið komi á slæmum tíma, og það sé óeðlilegt að ekki sé þegar frágengið hvað nýr samningur inniheldur. Óvissa um framhaldið setji starfsmenn í vanda.
Félag flugmálastarfsmanna ríkisins sextíu ára
18.12.2006
Síðastliðinn föstudag fögnuðu félagsmenn í Félagi flugmálastarfsmanna ríkisins 60 ára afmæli félagsins en það var stofnað 13. desember 1946, sama ár og Íslendingar fengu yfirráðarétt yfir Reykjavíkurflugvelli frá Bretum og tóku um leið við flugstjórn á Norður-Atlantshafssvæðinu. Stofnfélagar FFR voru 26 en nú eru félagsmenn um 160 talsins.Hátíðarfundur Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar
18.12.2006

Nýstofnaður kór borgarstarfsmanna.
Í tilefni síðasta fulltrúaráðsfundar St.Rv. á áttatíu ára afmælisári félagsins var haldin sérstök hátíðardagskrá 14. desember síðastliðinn. Boðið var upp á glæsilegt jólahlaðborð og fulltrúaráðsmeðlimir fengu jólagjafir frá félaginu. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri og
Sinnuleysi stjórnenda Hrafnistu í Hafnarfirði mótmælt
15.12.2006
Sjúkraliðar sem starfa við DAS Hrafnistu í Hafnarfirð hafa sent stjórnendum stofnunarinnar áskorun með undirritun 39 sjúkraliða af 41 sem starfa við heimilið, með kröfu um að laun þeirra verði leiðrétt. Í áskoruninni er sinnuleysi stjórnenda stofnunarinnar varðandi að standa við kjarasamninga féolagsins andmælt. Segja þeir viðbúið að fleiri sjúkraliðar muni leita á önnur mið eins og nú horfir við.
Alvarlegur skortur á sjúkraliðum og hjúkrunarfræðingum yfirvofandi
14.12.2006
Alvarlegur skortur á starfandi sjúkraliðum og hjúkrunarfræðingum er yfirvofandi á næstu árum verði ekki gripið til nauðsynlegra ráðstafana. Þetta kom fram í máli heilbrigðisráðherra, Sivjar Friðleifsdóttur, sem kynnti í dag á blaðamannafundi skýrslu Hagfræðistofnunar, “Spá um þörf fyrir vinnuafl í heilbrigðiskerfinu”. Rúm tvö ár eru liðin frá því samið var um gerð skýrslunnar, en meðal helstu niðurstaðna eru að nýliðun í röðun sjúkraliða er alltof hæg og sama gildi um hjúkrunarfræðinga. Þó hafi þegar verið gripið til þeirra ráðstafana, er varðar hjúkrunarfræðinga, að rýmka numerus clausus í háskólum, þannig að eftir ein fjögur til fimm ár megi búast við að nýliðun haldist nokkuð í hendur við nýliðunarþörf. Fram að þeim tíma megi sjúkrastofnanir hins vegar búa við skort á hjúkrunarfræðingum.
BSRB fagnar því að öryggisgæsla á Keflavíkurflugvelli verði alfarið í höndum opinberra aðila
13.12.2006
Á stjórnarfundi BSRB í gær var samþykkt ályktun þar sem þeirri ákvörðun utanríkisráðuneytisins að hverfa frá því fyrirkomulagi sem komið var á síðastliðið sumar þegar tveimur einkafyrirtækjum voru fengin tiltekin verkefni við öryggisgæslu í Leifsstöð var fagnað sérstaklega.
Ný lög um upplýsingar og samráð í fyrirtækjum
12.12.2006
Ný lög um upplýsingar og samráð í fyrirtækjum voru samþykkt áður en Alþingi fór í jólafrí. Markmið laganna er að tryggja rétt starfsmanna til upplýsinga og samráðs í fyrirtækjum og stuðla að því að fulltrúar starfsmanna og fyrirtæki vinni í anda samvinnu við tilhögun og framkvæmd upplýsingagjafar og samráðs, að teknu tilliti til hagsmuna beggja aðila.
Áhrif tekjuskattsbreytingarinnar á ráðstöfunartekjur
11.12.2006
Skattleysismörk munu hækka í rúm 90.000 við breytingu á tekjuskatti sem tekur gildi um áramót. Þá mun tekjuskattsprósentan lækka um 1% og verður 35,72% við breytinguna. Þetta þýðir að ráðstöfunartekjur 120.000 kr. mannsins hækka um rúmar 2.000 kr. á mánuði. Hjá þeim sem þénar 300.000 á mánuði eru þetta rúmar 3.800 kr. á mánuði.
Skráning hafin í rekstrar- og stjórnunarnám fyrir talsmenn stéttarfélaga
5.12.2006
Skráning er hafin í Rekstrar- og stjórnunarnám fyrir talsmenn stéttarfélaga sem Félagsmálaskóli alþýðu og Háskólinn á Akureyri hafa verið með undanfarin tvö og hálft ár. Samstarfið hefur verið farsælt og mikill áhugi hefur verið á náminu. Þetta er sérsniðið háskólanám sem hluti af sí- og endurmenntun talsmanna og trúnaðarmanna stéttarfélaganna. Þetta er mjög gott og krefjandi nám sem gefur fólki möguleika á að efla sig í starfi.
Sí- og endurmenntun 50+
5.12.2006
Síðasti fundur af þremur sem verkefnissstjórn 50+ efnir til um málefni miðaldra og eldra fólks á vinnumarkaði verður haldinn á Grand hótel, Hvammi fimmtudaginn 7. desember n.k. Fjallað verður um sí-og endurmenntun miðaldra og eldra fólks á vinnumarkaði. Fyrirlesarar eru Jón Torfi Jónasson prófessor í uppeldis- og menntunarfræði við Háskóla Íslands, Soffía Gísladóttir framkvæmdastjóri Símenntunarmiðstöðvar Eyjafjarðar og Ingibjörg Elsa Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins.STAK sameinast Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar
4.12.2006
Starfsmannafélag Akraness hefur samþykkt að sameinast Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar. Í allsherjaratkvæðagreiðslu um sameininguna sem 40% félagsmanna tóku þátt í sögðu tæp 90% já við sameiningunni. Boðað hefur verið til aukaaðalfundar hjá Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar á morgun þar sem lagðar verða til lagabreytingar svo sameiningin geti átt sér stað. Að öllu óbreyttu sameinast því STAK Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar um áramótin.
Um BSRB
Á döfinni
10. febrúar 2012
23. mars 2012
18. maí 2012
Leit

























