Fréttir
Lagt til að Árni Stefán Jónsson verði næsti formaður SFR
27.2.2006
Trúnaðarmannaráðsfundur SFR samþykkti tillögur uppstillingarnefndar um stjórn SFR sem kjörin verður á aðalfundi félagsins 25. mars nk. Jens Andrésson formaður SFR hættir formennsku en uppstillinganefnd lagði til að Árni Stefán Jónsson framkvæmdastjóri félagsins verði formaður.
Slitnaði upp úr viðræðum LSS og Launanefndar
23.2.2006
Í dag slitnaði upp úr viðræðum samninganefnda Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. LSS segir að tilboð LN til slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna hafi verið óásættanlegt.
LSS vonast eftir útspili LN á morgun
17.2.2006
"Ég lít svo á að það muni reyna á það á morgun hvort einhver samningsvilji er fyrir hendi hjá viðsemjendum okkar," segir Vernharð Guðnason formaður Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna um stöðuna í samningaviðræðum félagsins við Launanefnd sveitarfélaga.
LSS útskýrir hversvegna 25% hækkun var hafnað
17.2.2006
Vernharð Guðnason formaður Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna útskýrir hversvegna á heimasíðu landssambandsins hversvegna samninganefnd félagsins hafnaði tilboði Launanefndar sveitarfélaga upp á 25% hækkun á komandi samningstíma.
Samið vegna starfsmanna hjá Innheimtustofnun sveitarfélaga
16.2.2006
Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar hefur undirritað kjarasamning við Launanefnd sveitarfélaga vegna starfsmanna hjá Innheimtustofnun sveitarfélaga. Gildistími samningsins er frá 1. desember 2005 til 30. nóvember 2008. Kjarasamningurinn var kynntur á fundi þriðjudaginn 7. febrúar og samþykktur með öllum atkvæðum. Kjarasamningurinn er á sömu nótum og kjarasamningur félagsins við Reykjavíkurborg.
LSS nýtur víðtæks stuðnings
16.2.2006
"Ég er sannfærður um að kröfur Landssambands slökkviliðsmanna njóta víðtæks stunings í þjóðfélaginu og það veit ég að innan BSRB, þar sem LSS á aðild, þykja kröfur sambandsins réttmætar og njóta ótvíræðs stuðnings," segir Ögmundur Jónasson formaður BSRB í grein á heimasíðu sinni.
Áfangasigur fyrir launafólk í Evrópu
16.2.2006
ETUC, Evrópusamband verkalýðsfélaga sem BSRB er aðili að, hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem segir að sambandið líti á niðurstöðu atkvæðagreiðslu Evrópuþingsins um þjónustutilskipunina, sem fram fór fyrr í dag, sem áfangasigur fyrir launafólk í Evrópu. Stór meirihluti þingfulltrúa samþykkti tillögurnar sem samkomulag hafði náðst um í þinginu og með því voru svo kallaðar „Bolkenstein tillögur“ afskrifaðar og nýr texti settur í stað þeirra.
Hálfur sigur – hálft tap
16.2.2006
Eins og hér greinir frá eru viðbrögðin við atkvæðagreiðslunni á Evrópuþinginu í dag um þjónustutilskipun ESB misvísandi. Hitt virðist ljóst að sigrar verkalýðshreyfingarinnar eru í besta falli varnarsigrar því þegar á heildina er litið er verið að þrengja að henni og lýðræðissamfélaginu. Ljóst er að áhrifa markaðarins kemur til með að gæta í ríkari mæli en verið hefur, bæði í samfélaginu í heild sinni og í daglegu lífi fólks.
Eru sveigjanleg starfslok valkostur?
8.2.2006

Öldrunarráð Íslands stendur fyrir ráðstefnu um sveigjanleg starfslok í samvinnu við ASÍ, BHM,
Vetrarstillur í Munaðarnesi
8.2.2006

Nú er lag að skella sér í Munaðarnes og njóta vetrarstillunnar og fegurðarinnar sem ríkir þar. Nokkur hús eru laus um helgina og er hægt að panta þau á skrifstofu BSRB í síma 525 8300.
Sveitarfélögin nýta heimild LN til hækkunar
8.2.2006
Sveitarfélögin hafa eitt af öðru ákveðið að nýta að fullu heimild Launanefndar svetarfélaga til hækkunar lægst launa. Þetta kemur fram á heimasíðum aðildarfélaga BSRB.
Ögmundur svarar kennara við viðskiptaskor HÍ
7.2.2006
"Í fréttum Ríkisútvarpsins sl. laugardag var staðhæft að samskiptavandamál væru algengari í ríkisfyrirtækjum en í fyrirtækjum á einkamarkaði. Skýringin liggi í því að auðveldara sé að reka fólk í einkafyrirtækjum en hjá hinu opinbera vegna "ráðningarfyrirkomulags"! Einkafyrirtækin hafi ekki "efni á því" að láta vandamál danka. Svo er að skilja að öðru máli gegni um opinberar stofnanir!" Þetta er upphaf greinar eftir Ögmund Jónasson formann BSRB á heimasíðu hans þar sem hann svarar Þórði S. Óskarssyni kennara við viðskiptaskor HÍ.
NFS vill breyta þjónustutilskipuninni
6.2.2006
Allir formenn heildarsamtaka launafólks á Norðurlöndunum hafa skrifað undir bréf sem NFS, (Norræna verkalýðssambandið) sendi nýverið til norrænna þingfulltrúa á Evrópuþinginu, vegna atkvæðagreiðslu um þjónustutilskipunina, sem fram fer eftir um tvær vikur. Í bréfinu er hvatt til stuðnings við breytingartillögu, sem felur það í sér að hin nýja þjónustutilskipun muni ekki hafa áhrif á vinnurétt einstakra ríkja, þar með taldar heimildir til að grípa til félagslegra aðgerða og kjarasamningsréttinn.
Samningaviðræðum miðar hægt hjá LSS
2.2.2006
Mjög hægt miðar í viðræðum Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna við Launanefnd sveitarfélaga, en samningar hafa verið lausir frá áramótum. Landssambandið samþykkti að fresta samningafundum framyfir launamálaráðstefnu Sambands íslenskra sveitarfélaga, en á næsta fundi með LN sl. þriðjudag kom ekkert bitastætt fram og óskaði formaður LN eftir að næsti fundur yrði ekki haldinn fyrr en 9. febrúar. Á heimasíðu Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna segir að menn séu orðnir langþreyttir á því hversu seint gengur að semja.
Garðar Hilmarsson næsti formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar
2.2.2006
Garðar Hilmarsson verður næsti formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar á aðalfundi félagsins 4. mars nk. Uppstillinganefnd Starfsmannafélagsins gerði tillögu um Garðar sem formann og rann frestur til að koma með mótframboð út í gær þannig að Garðar verður sjálfkjörinn á fundinum.
Um BSRB
Á döfinni
10. febrúar 2012
23. mars 2012
18. maí 2012
Leit
























