Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

Ögmundur Jónasson formaður NTR

31.3.2006

Ögmundur Jónasson formaður BSRB var kjörinn formaður NTR, Nordisk Tjenstemandsråd, á fundi samtakanna í Reykjavík í gær. Aðild að NTR eiga 12 samtök launafólks í Noregi, Íslandi, Svíþjóð, Finnlandi, Danmörk og Færeyjum sem í eru 400 þúsund starfsmenn í almannaþjónustu, einkum hjá sveitarfélögum.

Starfsmannamál og mannauðsstjórnun hjá Félagsmálaskólanum

30.3.2006

Félagsmálaskóli alþýðu heldur námskeiðið Starfsmannamál og mannauðsstjórnun 26. apríl að Grensásvegi 16a, 108 Reykjavík. Námskeiðið stendur í einn dag frá kl. 9 til 16 og er Gylfi Dalmann Aðalsteinsson leiðbeinandi.

Árni Stefán Jónsson nýr formaður SFR

27.3.2006


Árni Stefán Jónsson var kjörinn formaður SFR á aðalfundi félagsins sl. laugardag. Árni Stefán hefur verið framkvæmdastjóri félagsins undanfarin 16 ár. Hann tók við af Jens Andréssyni sem verið hefur formaður félagsins síðast liðin 10 ár og í stjórn SFR frá árinu 1990. Jens hætti nú þar sem lög félagsins takmarka setu formanns við 10 ár. Á aðalfundinum voru Jens þökkuð góð störf í þágu félagsins.

Kjölur vill frekari sameiningu stéttarfélaga

27.3.2006

Aðalfundur KJALAR sem haldinn sl. laugardag í Félagsheimilinu á Blönduósi hvetur stjórn félagsins til að leita eftir viðræðum við önnur stéttarfélög innan BSRB um sameiningu. Aðalfundurinn telur að sú reynsla sem komin er á sameiningunni, við tilurð KJALAR stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu, sé það góð að nauðsynlegt sé að halda áfram sameiningu og styrkingu stéttarfélaga innan BSRB til eflingar þjónustu við félagsmenn.

Einkavæðing vatns hefur ekki virkað

23.3.2006

Þeir félagarnir John Kidd og Steve Bloomfield koma báðir frá stærsta verkalýðsfélagi Bretlands, UNISON, og hafa áratuga langa reynslu af baráttu gegn einkavæðingu vatns og fyrir bættum aðgangi almennings að vatni. John er formaður Water and environmental services hjá Unison og Steve er formaður starfsmanna hjá veitustofnunum (Utilities). Mér lék hugur á að heyra þeirra álit á World Water Forum og hvað hefði merkilegast komið fram þar undangengna viku. En hvaða erindi á PSI á þessa samkomu sem hefur hlotið harða gagnrýni, ekki síst frá verkalýðsfélögunum?

Nýtt merki hjá SDS

23.3.2006

Starfsmannafélag Dala- og Snæfellsnessýslu er komið með nýtt merki fyrir félagið. Það var Menja Von Schmalensee í Stykkishólmi sem hannaði og útfærði merkið. Þá er skrifstofa félagsins flutt í nýtt húsnæði en það er að Grundargötu 28, Grundarfirði.

Vatn fyrir alla í stjórnarskrárnefnd

22.3.2006


Jóni Kristjánssyni formanni stjórnarskrárnefndar var í dag, á alþjóða vatnsdeginum, afhent erindi 14 félagasamtaka til stjórnarskrárnefndar. Í erindinu segir m.a.: „Vegna mikilvægis vatns fyrir íslenska þjóð og lífríki landsins telja undirrituð samtök nauðsynlegt að fest verði í stjórnarskrá Íslands ákvæði um skyldur og réttindi stjórnvalda og almennings hvað varðar réttindi, verndun og nýtingu vatns. Lög og reglugerðir um nýtingu vatns taki því mið af ákvæðum sem viðurkenna rétt einstaklinga til vatns sem og lögum er varða verndun vatns og náttúru.“

Alþjóðlegur dagur vatnsins – opinberar veitur i brennidepli

22.3.2006

Í dag, 22. mars, munu um 10.000 manns, aðallega börn, deyja sökum skorts á hreinu drykkjarvatni. Það sama gerist alla daga ársins, einkum í þróunarlöndunum. Alþjóðlegum degi vatnsins er ætlað að draga athygli að þessari staðreynd og hvernig megi bregðast við.

Opinberar vatnsveitur eru lykilinn

20.3.2006

Opinberar vatnsveitur verða að gegna lykilhlutverki ef að þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna um að fækka íbúum heimsins án aðgangs að hreinu drykkjarvatni og skolplögnum fyrir 2015 á að nást. Þetta er megininntak skýrslu sérstakrar ráðgjafanefndar Kofi Annans um vatn og skolplagnir (Compendium of Actions. United Nations Secretary Generals Advisory Board on Water and Sanitation), sem kynnt var á 4. alþjóðlegu ráðstefnunni um vatn, 4thWorld Water Forum, sem haldin er hér i Mexikoborg og sett var á föstudag. Hér er um róttæka stefnubreytingu að ræða frá síðustu alþjóðlegu vatnsráðstefnunni  sem haldin var i Kyoto fyrir þremur árum, en  þar var sterk áhersla á hlutverk einkafyrirtækja i rekstri vatnsveitna og við að taka á vatnsvandamáli heimsins.

Vatnsveitur í opinberri eigu og einkaeigu - hver er munurinn?

20.3.2006

Vatnsveitur í opinberri eigu og einkaeigu - hver er munurinn? nefnist bæklingur sem BSRB hefur gefið út. Bæklingurinn byggir á erindi sem David Hall hélt á vegum BSRB á síðasta ári. David Hall, prófessors frá Greenwich háskólanum í Lundúnum veitir forstöðu deild við skólann sem kölluð er Public Services International Research Unit, en sú stofnun sérhæfir sig í rannsóknum á ýmsum þáttum almannaþjónustunnar. Sérsvið Davids er vatnið og reyndar rafmagnið einnig, en hann hefur einnig rannsakað ýmislegt sem lýtur að heilbrigðiskerfinu, sorpeyðingu og öðrum grunnþáttum almannaþjónustunnar. Hægt er að nálgast bæklinginn á skrifstofu BSRB, Grettisgötu 89 og er hann ókeypis. einnig er hægt að panta hann í síma 525 8300 eða á netfangið: safi@bsrb.is og verður hann þá sendur viðkomandi að kostnaðarlausu.

Velheppnað málþing um stöðu vaktavinnufólks

17.3.2006

Fjölmenni var á málþingi um starfsumhverfi vaktavinnufólks sem haldið var í Súlnasal Hótel Sögu af BHM, BSRB, fjármálaráðuneytinu, Reykjavíkurborg og Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Á málþinginu kynnti Hildur Fjóla Antonsdóttir verkefnisstjóri hjá Rannsóknastofu í vinnuvernd fyrstu niðurstöður rannsóknarverkefnis sem Rannsóknastofan hefur unnið um kjör og aðstæður vaktavinnufólks en myndin hér til hliðar er af Hildi Fjólu. Þá flutti Árelía E. Guðmundsdóttir erindi sem hún nefndi Breytt samfélag, breyttar þarfir. Inngangsorð fluttu Halldóra Friðjónsdóttir formaður BHM og Gunnar Björnsson skrifstofustjóri í fjármálaráðuneytinu. Líflegar umræður urðu eftir erindin og að lokum ávörpuðu Birgir Björn Sigurjónsson skrifstofustjóri starfsmannaskrifstofu Reykjavíkurborgar og Ögmundur Jónasson formaður BSRB Málþingið. Fundarstjóri var Elsa B. Friðfinnsdóttir formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.

SFR vinnur mál gegn ríkinu

16.3.2006

SFR vann mál gegn ríkinu þar sem tekist var á um veikindi í orlofi. Málið varðaði starfsmann fangelsismálastofnunar sem hafði meiðst á fæti í orlofi. Ákvað yfirstjórn fangelsins sem viðkomandi starfaði hjá að 8 vaktir væru ekki veikindadagar heldur orlofsdagar. Niðurstaða Héraðsdóms er að vaktirnar átta væru veikindadagar en ekki orlofsdagar. Þá var Fangelsismálastofnun dæmd til að greiða stefnanda 300 þúsund krónur í málskostnað.

LSS samþykkir kjarasamning við LN

13.3.2006

Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna samþykkti kjarasamning félagsins við Launanefnd sveitarfélaga með miklum meirihluta atkvæða. Tæpa 78% þeirra sem greiddu atkvæði sögðu já, en rúm 91% þeirra sem atkvæðisrétt höfðu greiddu atkvæði.

Guðbjörn Guðbjörnsson nýr formaður TFÍ

13.3.2006

Guðbjörn Guðbjörnsson var kjörinn formaður Tollvarðafélags Íslands á aðalfundi félagsins 10. mars. Fráfarandi formaður Hörður Davíð Harðarson gaf ekki kost á sér til endurkjörs.

Óljóst um lyktir vatnalagadeilu

13.3.2006

Ekki er enn séð fyrir endann á deilum um vatnalögin á Alþingi. Þá á enn eftir að koma í ljós hvort kröfur 14 almannasamtaka um að kveðið verði á um  rétt almennings til vatns verði festur í stjórnarskrá. Slíkt hefur verið gert í Uruguy og víðs vegar um heiminn eru slíkar kröfur uppi af hálfu verkalýðssamtaka og almannasamtaka auk þess sem áherslur Sameinuðu þjóðanna ganga mjög í þessa átt. Hér á landi hefur myndast mjög breið samstaða um þessar grundvallarkröfur. Í fréttum hefur verið staðhæft að BSRB sé í forsvari fyrir þessar aðgerðir og tali jafnan fyrir hönd allra hlutaðeigandi. Svo er að sjálfsögðu ekki. Samstarfið er á jafnræðisgrundvelli og talar hver fyrir sig þegar sameiginlegum yfirlýsingum sleppir.

Garðbæingar samþykkja kjarasamning við LN

13.3.2006

Starfsmannafélag Garðabæjar samþykkti nýgerðan kjarasamning við Launanefnd sveitarfélaga í síðustu viku. samningurinn var samþykktur með 123 atkvæðum gegn 54. Samningurinn gildir frá 1. janúar 2006 og er á sömu nótum og önnur starfsmannafélög hafa samið á við LN.

Námskeið í streitu og streitustjórnun

13.3.2006

Streita og streitustjórnun nefnist námskeið sem verður haldið í Félagsmálaskóla alþýðu 7. apríl að Grensásvegi 16a, 108 Reykjavík.

Alþýðusambandinu árnað heilla

12.3.2006

"Alþýðusamband Íslands var stofnað hinn 12. mars árið 1916. Í dag eru því rétt 90 ár frá stofnun þess. Með stofnun Alþýðusambandsins var baráttu launafólks á Íslandi beint inn í skipulegan og markvissan farveg. Á þeirri tæpu öld sem liðin er frá stofnun Alþýðusambands Íslands hefur mikið vatn runnið til sjávar. Lífskjör hafa batnað og staða launafólks að sama skapi. Þetta hefur kostað mikla og stöðuga baráttu og hefur Alþýðusambandið gegnt þar lykilhlutverki og skipar nú mikilvægan sess í sögu þjóðarinnar," Segir Ögmundur Jónasson formaður BSRB m.a. í grein sem hann ritar í tilefni afmælisins.

Spænska III hjá Framvegis

10.3.2006

Námskeið í spænsku III hefst hjá Framvegis 4. apríl nk. ef næg þátttaka næst. Skráning fer fram á skrifstofu Framvegis, Síðumúla 6, eða í síma 581 4913.

Konur og hnattvæðing – er heimurinn eitt atvinnusvæði?

8.3.2006

"Ætlum við að teljast raunverulegt lýðræðisríki verður að tryggja að allir íbúar landsins njóti jafnréttis, óháð uppruna, kynþætti eða tungumáli. Þá er ekki einungis vísað til þeirrar sjálfsögðu kröfu að allir fái sömu laun fyrir sömu vinnu heldur einnig þess að menntun og reynsla sé metin að verðleikum. Íslendingum þykir sjálfsagt að menntun okkar sé talin góð og gild í öðrum löndum og því eigum við að kappkosta við að gefa þeim sem hingað koma færi á að nýta sér þá menntun sem þeir hafa aflað sér, því þannig virkjum við best mannauðinn," segir m.a. í ávarpi sem Kvenréttindafélag Íslands, hreyfing launafólks og fleiri aðilar senda sameiginlega frá sér á alþjóðlegum baráttudegi kvenna 8. mars. Yfirskrift ávarpsins er Konur og hnattvæðing – er heimurinn eitt atvinnusvæði?

STARFSUMHVERFI VAKTAVINNUFÓLKS - HVERT STEFNIR?

8.3.2006

STARFSUMHVERFI VAKTAVINNUFÓLKS - HVERT STEFNIR? er yfirskrift málþings sem BSRB, BHM, fjármálaráðuneytið, Reykjavíkurborg og Samband íslenskra sveitarfélaga stendur fyrir um málefni vaktavinnustarfsmanna. Málþingið er í Súlnasal Hótel Sögu föstudaginn 17. mars kl. 9 - 12. Á málþinginu verða kynntar fyrstu niðurstöður rannsóknarverkefnis sem Rannsóknastofa í vinnuvernd hefur unnið að um kjör og aðstæður vaktavinnufólks.

EFLUM ALMANNAÞJÓNUSTUNA - HÖFNUM EINKAVÆÐINGU

6.3.2006


Garðar Hilmarsson var kjörinn formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar á aðalfundi félagsins sem haldinn var sl. laugardag 4. mars. Sjöfn Ingólfsdóttir lét af formennsku og var henni þakkað gott starf í þágu félagsins. Félagið er 80 ára um þessar mundir. Í ályktun frá fundinum er lögð áhersla á góða og trausta almannaþjónustu. Einnig var samþykkt önnur ályktun þar sem er lýst vanþóknun á seinagangi hjá Orkuveitu Reykjavíkur hf og Félagsbústöðum hf fyrir við gerð kjarasamninga við félagið.

LSS skrifar undir samninga við LN

6.3.2006

Samninganefnd Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna skrifaði undir samning við Launanefnd sveitarfélaga. Náðist samkomulag kl. rúmlega 3 aðfaranótt sunnudags en fundað hefur var stíft síðustu daga og stóð fundur til kl. 5 aðfaranótt laugardags. Samningurinn er með fyrirvara um samþykki félagsmanna LSS.

Verkfallsboðun samþykkt með um 98% greiddra atkvæða

3.3.2006

Niðurstaða úr atkvæðagreiðslu Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna var mjög afgerandi. 197 voru á kjörskrá og 183 greiddu atkvæði eða um 93%. Já við verkfallsboðun sögðu 97,8%. Nei sögðu tveir og tveir voru auðir og ógildir. Verkfall skellur því á dagana 20. og 21. mars náist ekki samningar fyrir þann tíma og svo ótímabundið viku seinna.

Konur og hnattvæðing

3.3.2006


Konur og hnattvæðing - er heimurinn eitt atvinnusvæði? er yfirskrift fundar sem haldinn er í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna  8. mars. Fundurinn verður haldinn á Grand Hótel – Hvammi 8. mars 2006 kl. 11.45–13.00.
Að fundinum standa: ASÍ, BHM, BSRB, KÍ, KRFÍ, SÍB, Jafnréttisnefnd Reykjavíkurborgar, Jafnréttisráð og Jafnréttisstofa.

Þolinmæðin á þrotum

1.3.2006


Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn fjölmenntu fyrir utan hús Sambands íslenskra sveitarfélaga um hálf tólf leytið í morgun. Tilgangurinn var að mótmæla seinagangi í viðræðum um kjör þeirra við Launanefnd sveitarfélaga þegar nefndin kom til fundar í húsinu. Atkvæðagreiðsla um verkfallsboðun hófst í gær og lýkur henni á föstudag. Verði hún samþykkt skellur á verkfall Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna fyrst í tvo daga, 20. og 21. mars semjist ekki fyrir þann tíma og síðan ótímabundið viku seinna.

Um BSRB

Póstlistaskráning


Á döfinni


lífeyrismál

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta