Fréttir
Fjölmennum á baráttufundi 1. maí
28.4.2006
BSRB hvetur félagsmenn sína til að taka þátt í baráttufundum verkalýðshreyfingarinnar um allt land. Fundurinn í Reykjavík hefst með göngui frá Hlemmi kl. 13.30 en safnast verður saman kl. 13.00. Vernharð Guðnason formaður Landssambands Slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna verður ræðumaður BSRB á fundinum á Ingólfstorgi þegar göngu lýkur. Að loknum baráttufundinum á Ingólfstorgi verður 1. maí kaffi BSRB að Grettisgötu 89, í nýjum salarkynnum á jarðhæð hússins.
Fleiri fulltrúar BSRB munu ávarpa baráttufundi víða um land. Ögmundur Jónasson formaður BSRB mun flytja ræðu á fundi í Stapa í Reykjanesbæ kl. 14.00. Árni Stefán Jónsson formaður SFR mun ávarpa fundinn í Hafnarfirði og Helga Hafsteinsdóttir formaður Starfsmannafélags Dala- og Snæfellsnessýslu mun flytja ræður í Snæfellsbæ og á Stykkishólmi.
Fleiri fulltrúar BSRB munu ávarpa baráttufundi víða um land. Ögmundur Jónasson formaður BSRB mun flytja ræðu á fundi í Stapa í Reykjanesbæ kl. 14.00. Árni Stefán Jónsson formaður SFR mun ávarpa fundinn í Hafnarfirði og Helga Hafsteinsdóttir formaður Starfsmannafélags Dala- og Snæfellsnessýslu mun flytja ræður í Snæfellsbæ og á Stykkishólmi.
Ísland allra – Velferð alla ævi
28.4.2006
"Verkalýðshreyfingin getur aldrei sætt sig við misrétti og ranglæti. Það er ljóst að við einkavæðingu undanfarinna ára og sölu ríkiseigna, hefur almannahagsmuna ekki verið gætt. Nú leggja stjórnvöld allt kapp á að breyta þeim stofnunum ríkisins sem ekki hafa verið seldar í hlutafélög. Ljóst er að endanlegur tilgangur slíkra breytinga er að koma þessum stofnunum á markað. Öllum frekari áformum í þessum efnum er harðlega mótmælt," segir m.a. í 1. maí ávarpi Fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna í Reykjavík, BSRB, Bandalags háskólamanna, Kennarasambands Íslands og Iðnnemasambands Íslands.
Ráðstefna um skatta og skerðingar
28.4.2006
LEB, ASÍ, BSRB, SGS, Samiðn og Öryrkjabandalag Íslands efna til Ráðstefnu um Skatta og Skerðingar 3. maí 2006, kl. 13:00 til 16:00 í Öskju, Náttúrufræðistofnun Háskóla Íslands.
Trúnaðarmenn SFR hafa áhyggjur af þróun efnahagsmála
28.4.2006
Fundur trúnaðarmannaráðs SFR haldinn 27. apríl 2006 lýsir þungum áhyggjum af þeirri þróun efnahagsmála sem nú birtist með aukinni verðbólgu og tilheyrandi verðhækkunum á brýnustu lífsnauðsynjum. Þessi þróun bitnar harðast á þeim sem lægst hafa launin en það er jafnframt sá hópur sem síst hefur stuðlað að þenslunni sem nú ríkir í efnahagslífinu.
Enn vegið að áminningarskyldunni
12.4.2006
Nokkrir þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa lagt fram frumvarp sem gengur út á að svipta opinbera starfsmenn þeim rétti að þeim skuli veitt áminning áður en þeim er sagt upp störfum. Ögmundur Jónasson formaður BSRB ritar grein um frumvarpið á heimasíðu sinni og segir m.a.: "Áminningarskyldan, sem svo hefur verið nefnd, var sett í lög og samninga til þess að koma í veg fyrir duttlungastjórnun. Áminningarskyldan sem forstöðumaður skal hlíta gerir það nefnilega að verkum að starfsmanni gefst kostur á því að bæta ráð sitt eða eyða misskilningi ef um slíkt er að ræða."
Eru sjúkraliðar vannýttir?
7.4.2006
Mikil umræða fer nú fram um mannekluna á sjúkrahúsum og hjúkrunarheimilum. Formaður BSRB, Ögmundur Jónasson , segir að þessi umræða sé löngu tímabær. “Vinnuálagið er víða óbærilegt og kemur ekki aðeins niður á sjúklingum heldur einnig starfsfólki. Þessu veldur stöðugur niðurskurður undangenginna ára. Það er augljóst að róttækra aðgerða er þörf. Stjórnvöld verða að endurskoða fjárveitingar til heilbrigðisstofnana og dvalarheimila aldraðra með það fyrir augum að bæta launakjör þeirra sem eru á lægstu launum og einnig þarf að fjölga stöðugildum sjúkraliða og hjúkrunarfræðinga. Þetta þolir enga bið.”
Nauðsynlegt að efla slökkviliðið við breyttar aðstæður í varnarmálum
6.4.2006
Til að geta brugðist við þeim hættum sem steðjað geta að samfélagi okkar er algjörlega nauðsynlegt að hafa stór, öflug og vel þjálfuð slökkvilið, (björgunarlið) sérAfleiðingar markaðsvæðingar raforkugeirans í Svíþjóð
5.4.2006
Ögmundur Jónasson segir á heimasíðu sinni frá grein í nýútkomnu blaði sænskra bæjarstarfsmanna SKTF-Tidningen, sem fjallar um afleiðingar „markaðsvæðingar“ raforkugeirans í Svíþjóð. Þar kemur m.a. fram að síðan þetta gerðist, árið 2002, hafi rafmagnsreikningarnir í Stokkhólmi hækkað um 40% og að ofurlaun renni í vasa forstjóra og stjórnenda. "Allt þetta borgum við, segir málgagn sænskra bæjarstarfsmanna. Við gerum það með hærri rafmagnsreikningum og tapið er einnig okkar því við verðum af fjármunum sem ella hefðu runnið til velferðarþjónustunnar. "
Starfsmenn RÚV gera alvarlegar athugasemdir við frumvarpið um RÚV hf
4.4.2006
Starfsmenn ríkisútvarpsins gera alvarlegar athugasemdir við frumvarp ríkisstjórnarinnar um RÚV í ályktun sem samykkt var á fjölmennum starfsmannafundi sem haldinn var af í hádeginu vegna frumvarps í dag. Fulltrúar BSRB, BHM og Rafiðnaðarsambandsins auk útvarpsstjóra sátu fundinn og viðruðu skoðanir sínar. M.a. var farið yfir stöðu frumvarpsins en engar breytingar hafa verið gerðar á því í menntamálanefnd Alþingis þrátt fyrir að heildarsamtök starfsmanna hafi bent á mikilvægi þess að breyta frumvarpinu til að tryggja réttarstöðu starfsmanna verði frumvarpið að lögum.
Um BSRB
Á döfinni
10. febrúar 2012
23. mars 2012
18. maí 2012
Leit
























