Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

Ljós og litur í landslagi á Menningarhátíð BSRB

31.5.2006


Menningarhátíð BSRB verður í Munaðarnesi laugardaginn 10. júní 2006 og hefst hún kl. 14.00. Á hátíðinni verður opnuð sýning á verkum Gísla B. Björnssonar sem kallast "Ljós og litur í landslagi". Mezzósópransöngkonan Alina Dubik syngur við undirleik Jónasar Ingimundarsonar og Berglind Gunnarsdóttir les ljóð. Þá mun Ögmundur Jónasson formaður BSRB ávarpa gesti. Boðið er upp á veitingar. Sýningin verður opin í sumar á afgreiðslutíma veitingasalarins.

Laus hús í Munaðarnesi

31.5.2006

Enn eru nokkur hús laus í Munaðarnesi nú um hvítasunnuhelgina og næstu viku. Gróðurinn hefur nú sprungið út og öll náttúran skartar sínu fegursta. Um að gera að notfæra sér þetta tækifæri því ljóst er að erfiðara verður að fá hús þegar líður fram á sumarið, enda öll húsin með heitum potti. Húsin er hægt að panta á skrifstofu BSRB í síma 525 8300.

St.Ak. íhugar sameiningu við Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar

29.5.2006

Starfsmannafélag Akraness hefur ákveðið að hefja viðræður við Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar um hugsanlega sameiningu félaganna. Tillaga þar að lútandi var samþykkt á framhalds aðalfundi félagsins 22. maí sl. Á fundinn mætti Jakobína Þórðardóttir varaformaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og kynnti starfsemi félagsins.

Á vaktinni með sveigjanlegum stöðugleika

23.5.2006

Á vaktinni með sveigjanlegum stöðugleika er heiti á skýrslu sem Rannsóknastofa í vinnuvernd hefur unnið fyrir starfshóp um málefni vaktavinnustarfsmanna. Í tengslum við kjarasamninga BSRB og BHM veturinn 2004 – 2005 var gefin út yfirlýsing um að fram færi gagnger endurskoðun á málefnum vaktavinnustarfsmanna með það að markmiði að bæta vinnufyrirkomulag þeirra og gera vaktavinnuna eftiróknarverðari. Skýrslan sem nú kemur út er liður í þeirri vinnu en í mars sl. var haldið málþing um starfsumhverfi vaktavinnufólks. Þeir aðílar sem standa að þessari vinnu eru auk BSRB og BHM, fjármálaráðuneytið, Reykjavíkurborg og Samband íslenskra sveitarfélaga.

Sjúkraliðar hafa áhyggjur af niðurskurði til heilbrigðismála

23.5.2006

"Fulltrúaþing Sjúkraliðafélags Íslands lýsir yfir miklum áhyggjum og eindreginni andstöðu við síendurteknum ákvörðunum  stjórnvalda um niðurskurð á fjárveitingum til heilbrigðisþjónustu landsmanna. Afleiðing niðurskurðarins eru farin að koma fram í skertri þjónustu við sjúklinga og auknu álagi á heimilin. Síðast en ekki síst hefur stöðug neikvæð umræða um heilbrigðisþjónustu landsmanna dregið úr áhuga yngri kynslóðarinnar til náms í heilbrigðisgreinum," segir m.a. í ályktun sem 15. fulltrúaþing Sjúkraliðafélags Íslands sendi frá sér en þingið fór fram fimtudaginn 18. maí sl.

Talsmenn stéttarfélaga útskrifast

22.5.2006


25 talsmenn stéttarfélaga sem lagt hafa stund á sérskipulagt fjögurra missera rekstrar- og stjórnunarnám brautskráðust frá Símenntun Háskólans á Akureyri sl. föstudag. Námið sem var í samstarfi við viðskiptadeild háskólans og Félagsmálaskóla alþýðu hófst haustið 2004. Í upphafi hvers misseris komu nemendur í háskólann en fyrirlestrar fóru síðan fram í Símenntunarmiðstöðvum á 10 stöðum á landinu. Á myndinni má sjá þrjá talsmenn BSRB sem brautskráðust en það eru Kristín Á. Guðmundsdóttir formaður SLFÍ, Birna Ólafsdóttir SLFÍ og Arna Jakobína Björnsdóttir formaður Kjalar.

Skattrannsóknarstjóri stofnun ársins 2006

22.5.2006

Skattrannsóknarstjóri ríkisins fékk titilinn Stofnun ársins 2006 en SFR - stéttarfélag í almannaþjónustu stóð í ár í fyrsta skipti að könnun meðal félagsmanna sinna á starfsskilyrðum og líðan þeirra á vinnustað undir heitinu Stofnun ársins.

LSS semur fyrir sjúkraflutningamenn

18.5.2006

Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna hefur skrifað undir samning við ríkið fyrir sjúkraflutningamenn með gildistíma frá 1. janúar 2006. Í samkomulaginu felst að nýgerðir samningar LSS við LN gildi fyrir sjúkraflutningamenn í aðalstarfi hjá ríkinu og sérstakt samkomulag var gert um kjör hlutastarfandi sjúkraflutningamanna.

Samið við Orkuveitu Reykjavíkur

17.5.2006

Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar undirritaði fyrsta sjálfstæða kjarasamning félagsins við Orkuveitu Reykjavíkur. Samningurinn verður kynntur starfsmönnum á fundi kl. 16 í dag og í lok fundar verður hann borinn undir atkvæði.

Stofnanasamningur SFR við svæðisskrifstofur fatlaðra samþykktur

15.5.2006

Trúnaðarmenn SFR, sem starfa hjá svæðisskrifstofum um málefni fatlaðra, samþykktu fyrirliggjandi stofnanasamning á fundi í hádeginu í dag. Skrifað verður undir samninginn kl. 15 á skrifstofu SFR á Grettisgötu 89. Fyrirhuguðum setuverkföllum stuðningsfulltrúa er því aflýst.

Rokk og pólitík

15.5.2006

Rokk og pólitík er yfirskrift uppákomu sem SFR og Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar gangast fyrir í nýrri félagamiðstöð BSRB á Grettisgötu 89 miðvikudaginn 17. maí  næstkomandi. Þar munu troða upp nokkur heitustu rokkböndin í dag og nokkrir þeirra stjórnmálamanna sem eru í eldlínunni í baráttunni fyrir sveitastjórnarkosningarnar.

Framtíðarsýn í starfsmenntun

11.5.2006

Framtíðarsýn í starfsmenntun - Samstarf atvinnulífs og skóla í Finnlandi og á Íslandi er yfirskrift félagsfundar Menntar og málþings Starfsmenntaráðs sem verður haldið á Hótel Nordica, á morgun, föstudaginn 12. maí 2006.

Álagi verði létt af starfsfólki Landspítalans háskólasjúkrahúss

10.5.2006

Fjölmennur fundur trúnaðarmanna sjúkraliða sem haldin var á Landspítala háskólasjúkrahúsi mánudaginn 8. maí samþykkti samhljóða áskorun og kröfu á heilbrigðisráðherra og stjórnendur sjúkrahússins að gera allt sem í þeirra valdi standi til að létta álagi af starfsfólki sjúkrahússins. Í hönd fer orlofstími starfsfólks með tilheyrandi mönnunarvanda sem erfitt verður að leysa án sértækra aðgerða. Trúnaðarmennirnir voru sammála um að aldrei hafi þeir unnið jafn erfiðan vetur og þann sem nú er að ljúka. Endalaus undirmönnun, veikindi og erfitt að njóta þeirra fría sem þeir eiga að hafa, vegna endalausra beiðna um að vinna yfirvinnu.

Sjúkraliðabrúin opnuð í haust

10.5.2006

Menntamálaráðuneytið hefur ákveðið að bjóða upp á nýja leið til sjúkraliðamenntunnar með svokallaðri brú.  Boðið verður upp á 60 eininga nám með vinnu fyrir ófaglærða starfsmenn á heilbrigðisstofnunum.

Stjórn Starfsmannafélags Suðurnesja endurkjörin

10.5.2006

Stjórn Starfsmannafélags Suðurnesja var öll endurkjörin á aðalfundi félagsins sem haldinn var í Miðhúsum í Sandgerði í gærkvöldi. Í stjórninni eru, Ragnar Örn Pétursson formaður, Sæmundur Pétursson, Valdís Sigurbjörnsdóttir, Ásdís Óskarsdóttir og Þorgerður Guðmundsdóttir.

FOSS skorar á sveitarstjórnarmenn að semja sjálfir við félagið

9.5.2006

Aðalfundur Félags opinberra starfsmanna á Suðurlandi sem haldinn var í gær, mánudaginn 8. maí, skoraði á sveitarstjórnarmenn á Suðurlandi að koma meira að kjarasamningagerð við félagið í stað þess að fela Launanefnd sveitarfélaga fullnaðarumboð.

Skattbyrði lágtekjufólks hefur aukist mun meira heldur en hátekjufólks

4.5.2006

"Skattbyrði lágtekjufólks hefur aukist mun meira heldur en hátekjufólks," sagði Hildigunnur Ólafsdóttir, hagfræðingur BSRB, í erindi um þróun tekjuskatta og skattleysismarka sem hún flutti á ráðstefnu um skatta og skerðingar sem Landssamband eldri borgara, ASÍ, BSRB, Starfsgreinasamband Íslands, Samiðn og Öryrkjabandalag Íslands stóðu fyrir í gær. Aðrir sem fluttu erindi á ráðstefnunni voru Stefán Ólafsson prófessor sem tekjuskerðing hérlendis næmi á bilinu 60 til 78% og ríkissjóður væri því í raun stærsti lífeyrisþegi landsins. Einar Árnason hagfræðingur fjallaði um þróun almannatrygging og gagnrýndi hann að skerðing bóta hefst strax og ellilífeyrisþegi hefði einhverjar aukatekjur. Ólafur Darri Andrason hagfræðingur ASÍ fjallaði um hvaða þættir hafa áhrif á ráðstöfunartekjur eldra fólks og velti upp hugmyndum um hvernig einfalda mætti kerfið og ná fram tekjujöfnun með almennum breytingum á skattkerfinu.

Lög um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna

4.5.2006

Lög um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna taka gildi 1. júlí nk. Foreldri sem leggur niður launuð störf þegar barn þess greinist með alvarlegan og langvinnan sjúkdóm eða alvarlega fötlun getur átt sameiginlegan rétt á greiðslum í allt að þrjá mánuði með hinu foreldri barnsins. Skal greiðsla til foreldris nema 93.000 kr. á mánuði.

Fjölmenni í göngu og í kaffisamsæti BSRB 1. maí

2.5.2006

Fjölmenni var í kröfugöngu launafólks í Reykjavík í gær 1. maí og á baráttufundinum á Ingólfstorgi. Fólkið sameinaðist undir kröfunni Ísland allra – velferð alla ævi. Ræðumaður BSRB á fundinum á Ingólfstorgi var Vernharð Guðnason formaður Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. Sagði hann m.a.: “Ég vara við þeirri ofurtrú sem ákveðnir aðilar virðast hafa á einkavæðingu og einkarekstri á ... grunnþáttum þjóðfélagsins og sannast sagna þá hrökk ég við þegar forsætisráðherra þjóðarinnar orðaði þá hugsun nýlega að til greina kæmi að slökkviliðið á Keflavíkurflugvelli yrði fært undir hlutafélagavæddan flugvöll. Það má aldrei verða. Grunnþjónustu og öryggisþætti á aldrei að gera háða duttlungum markaðar!”  Að fundi loknum var boðið til kaffisamsætis í nýjum salarkynnum á jarðhæð BSRB-hússins að Grettisgötu 89. Um 700 manns þáðu veitingar í hinum nýja glæsilega sal sem vígður var við þetta tækifæri, en framkvæmdir hafa staðið við húsnæðið í allan vetur. Framundan eru framkvæmdir á 4. hæð BSRB-hússins en þar verða innréttaðar skrifstofur fyrir aðildarfélög bandalagsins.

Tökum vel á móti erlendu vinnuafli

2.5.2006

"Við vitum það að miklar breytingar eiga sér stað í okkar atvinnuumhverfi og erlent vinnuafl hefur aldrei sem fyrr, streymt inn á íslenskan  vinnumarkað. Staðreynd sem við verðum að takast á við! Þróun sem stjórnast af eftirspurn og þátttöku okkar í Evrópusambandinu. Það hefur hreinlega ekki verið nægilegt framboð af starfsmönnum til að anna öllu því sem okkar þjóðfélag kallar á. Og þá er ekkert eðlilegra en að þiggja vinnuframlag erlendis frá. Það sem við þurfum að gæta að, er aftur á móti það,  að viðhalda góðu og gagnvirku eftirliti með erlenda vinnuafli. Eftirliti þannig að við förum ekki of geyst í hlutina og gætum að því að réttur þessa fólks sé virtur. Því ef hann er ekki virtur, þá erum við um leið,  að grafa undan okkar kjaramálum. Við gætum hagsmuna okkar,  best með því að standa saman, þ.e. allir launþegar, hver sem bakrunnur okkar er. Okkur ber að taka vel og vandlega á móti þeim með skipulegum hætti. Okkur ber að sjá til þess að þau kynni sér sín réttindi og njóti sömu réttinda og við og ef einhver misbrestur er á, þá að koma þeim til hjálpar. Þannig hlúum við best að breyttu atvinnuumhverfi, þannig hlúum við best að okkar minni bræðrum og verðum stærri og sterkari fyrir vikið. Að halda að verkalýðsfélögin séu úrelt er einungis skoðun manna sem ekki vita betur eða það sem verra er, skoðun manna sem auðgast á því að draga úr mætti verkalýðsbaráttunnar," sagði Helga Hafsteinsdóttir formaður Starfsmannafélags Dala- og Snæfellsnessýslu m.a. í ávarpi sem hún flutti í Stykkishólmi og Snæfellsbæ á 1. maí.

Ræður fulltrúa BSRB í tilefni dagsins

1.5.2006


Eftirfarandi kemur m.a. fram í 1. maí ræðu formanns BSRB, Ögmundar Jónassonar, í Stapanum í Reykjanesbæ í dag: Þörf er á að endurreisa kauptaxtakerfið. Á stórum hluta markaðarins er það handónýtt. Væru atvinnurekendur reiðubúnir að gera sáttmála um tekjuskiptingu? ...Í ræðu á Ingólfstorgi í dag fjallar Vernharð Guðnason, formaður Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, m.a. um hækkandi fasteignaverð og hækkandi fasteignaskatta og áhrif þess á kjör heimilanna í landinu. Hann varar við einkavæðingu og einkarekstri á grunnþáttum almannaþjónustunnar...Árni Stefán Jónsson, formaður SFR – stéttarfélags í almannaþjónustu, er ræðumaður dagsins í Hafnarfirði. Hann ræðir þá óheyrilegu misskiptingu sem við blasir í samfélaginu í kjölfar markaðsvæðingar síðustu ára og einkavæðingaráráttu stjórnvalda. Árni Stefán minnir á launamun kynjanna... 


Um BSRB

Póstlistaskráning


Á döfinni


almannaþjónusta

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta