Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

Umræðufundur um þjónustutilskipun ESB, opnun vinnumarkaðarins og stöðu verkalýðshreyfingarinnar í Austur-Evrópu

30.6.2006


BSRB boðar til umræðufundar með tveimur reyndum forystumönnum Alþjóðasamtaka starfsmanna í almannaþjónustu, PSI (Public Services International), fimmtudaginn 6. júlí kl. 10 í húsi BSRB að Grettisgötu 89, 1. hæð. Gestir fundarins eru þeir Alan Leather sem hefur verið ábyrgur fyrir málum heilbrigðisgeirans innan PSI og Jürgen Buxbaum, framkvæmdastjóri Evrópudeildar PSI. Fjallað verður um áhrif alþjóðavæðingar á kjör og réttindi launafólks bæði í þeim löndum sem vinnuafl streymir til og þjónustusamningar beinast að en einnig í hinum sem sjá á eftir vinnuafli sínu úr landi.  Í þessu samhengi verður horft til þjónustutilskipunar Evrópusambandsins og opnunar vinnumarkaða.

Félagsmenn PFÍ fá fimmtán þúsund króna launahækkun

30.6.2006

Í dag 30. júní gaf Íslandspóstur hf. út þá yfirlýsingu að laun allra starfsmanna sem taka laun samkvæmt launatöxtum í kjarasamningi Póstmannafélagsins og Íslandspósts muni hækka um fimmtán þúsund frá og með 1. ágúst 2006. 

Laus orlofshús

29.6.2006

Nú eru laus orlofshús í orlofsbyggðum BSRB. Vikuna 30. júní til 7. júlí eru eitt stórt hús og eitt lítið hús laus í Munaðarnesi og eitt stórt hús í Stóru Skógum. Heitir pottar eru við öll húsin og hægt er að horfa á beina útsendingu frá heimsmeistarkeppninni í knattspyrnu í þjónustumiðstöðinni. Þá er eitt stórt hús laust á Eiðum vikuna 7. - 14. júlí. Ef hús losna sér skrifstofa BSRB um að leigja út þau. Síminn á skrifstofu BSRB er 525 8300.

BSRB í viðræðum við ríkið

28.6.2006

"Í dag var haldinn fundur með samninganefnd fjármálaráðuneytisins og forsvarsmönnum BSRB, BHM og KÍ. Þar kom fram að ráðuneytið túlkar endurskoðunarákvæðin mjög þröngt en fulltrúar samtaka launafólks hins vegar vítt enda lítum við svo á að undir sé kjaramálapakkinn allur, heill og óskiptur." Þetta kemur fram í grein sem Ögmundur Jónasson formaður BSRB ritar á heimasíðu BSRB.

Golfvöllurinn Glanni vígður

26.6.2006


Golfvöllurinn Glanni verður vígður laugardaginn 1. júlí nk. en BSRB á aðild að rekstrarfélagi klúbbsins. Völlurinn er í næsta nágrenni orlofsbyggða BSRB í Munaðarnesi og Stóru Skógum og fá félagsmenn í BSRB helmings afslátt á völlinn. Almennt verð á völlinn er 1800 kr. en félagar í BSRB borga 900 kr. Þetta er níu holu völlur í mjög fögru umhverfi.

Mikilvægur dómur um starfsréttindi sjúkraliða

26.6.2006

Í dag 26. júní féll dómur í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli Haflínu I. Hafliðadóttur, sjúkraliða, gegn Reykhólahreppi. Í dómnum er staðfest að ekki sé leyfilegt að ráða aðra en sjúkraliða til sérhæfðra umönnunar /hjúkrunarstarfa nema að undangengin auglýsing hafi ekki borið árangur.

Kalt vatn komið í Stóru Skóga

26.6.2006

Stóru Skógar voru tengdir við vatnsveitu Orkuveitu Reykjavíkur á sumarsólstöðum, 21. júní sl. Eru þá vatnsmál í orlofsbyggðum BSRB í Borgarfirði komin í mjög gott horf, en Munaðarnes var tengt vatnsveitunni fyrr í sumar.

Rödd BSRB er rödd skynseminnar

23.6.2006

"Hitt er svo annað mál – og þekki ég það af reynslu frá BSRB – að þau samtök hafa reynst ábyrgari en flest önnur þegar kemur að ríkisfjármálum. Þau vita sem er að ekki gengur að gera tvennt í senn, að skerða tekjur hins opinbera og krefjast betri þjónustu. Rödd BSRB er þannig rödd skynseminnar. Óttast menn þá rödd við samningaborð ríkisstjórnarinnar?" segir Ögmundur Jónasson formaður BSRB m.a. í grein um endurskoðun kjarasamninga sem birtist á heimasíðu hans.

Nýr formaður Starfsmannafélags Skagafjarðar

23.6.2006

Árni Egilsson var kjörinn nýr formaður Starfsmannafélags Skagafjarðar á aðalfundi félagsins í maí sl. Hann tekur við af Gunnari Birni Rögnvaldssyni.

NTR segir norræna samstöðumódelið hafa skilað árangri

20.6.2006


Íslensku þátttakendurnir á ráðstefnu NTR: Garðar Hilmarsson, Sjöfn Ingólfsdóttir, Elín Björg Jónsdóttir, Ögmundur Jónasson og Guðmundur Garðar Guðmundsson.

Um helgina lauk í Luleå  í Norður-Svíþjóð ráðstefnu á vegum Nordisk Tjenestemannsråd, NTR en það eru samtök opinberra starfsmanna á Norðurlöndum, einkum úr röðum starfsmanna sveitarfélaga. Í ályktun frá ráðstefnunni er lögð áhersla á mikilvægi þess að varðveita hið norræna módel sem svo er nefnt. „Norðurlöndin standi áfram í fararbroddi hvað varðar tækniframfarir, nýsköpun og samkeppnishæfni,“ segir meðal annars í ályktuninni.

Samningsréttur ríkisstarfsmanna í Eistlandi verði viðurkenndur

16.6.2006

Á ráðstefnu NSO - samtaka ríkisstarfsmanna á Norðurlöndunum (Nordiske statstjänstemanna-organisationen), sem haldin var í Danmörku 12.- 14. júní sl., var samþykkt að hvetja ríkisstjórnir Norðurlandanna til að upplýsa ríkisstjórn Eistlands um mikilvægi þess að aðilar vinnumarkaðarins vinni saman. SFR er aðili að NSO. NSO heimsótti eistneska ríkisstarfsmenn í maí sl. og fundaði þar meðal annars með félagsmálaráðherranum Jaak Aab. Fram kom að samstarf milli stéttarfélaga og ríkisins sem atvinnurekanda er stirt.

Vel heppnuð Menningarhátíð BSRB

12.6.2006


Gísli B. Björnsson, Berglind Gunnarsdóttir, Alina Dubik, Jónas Ingimundarson og Ögmundur Jónasson.

Húsfylli var á Menningarhátíð BSRB í Munaðarnesi laugardaginn 10. júní þegar sýning Gísla B. Björnssonar, Ljós og litir í landslagi, var opnuð í þjónustumiðstöðinni. Alina Dubik söng við undirleik Jónasar Ingimundarsonar og Berglind Gunnarsdóttir las upp eigin ljóð og ljóðaþýðingar. Þá ávarpaði Ögmundur Jónasson formaður BSRB gesti.

Gísli B. Björnsson á Menningarhátíð BSRB

9.6.2006


Menningarhátíð BSRB verður á morgun, laugardaginn 10. júní. og hefst hún kl. 14. Á hátíðinni verður opnuð sýning á verkum Gísla B. Björnssonar sem kallast "Ljós og litur í landslagi". Á myndinni er Gísli að hengja upp verk sín í Munaðarnesi nú í vikunni. Mezzósópransöngkonan Alina Dubik syngur við undirleik Jónasar Ingimundarsonar og Berglind Gunnarsdóttir les ljóð. Þá mun Ögmundur Jónasson formaður BSRB ávarpa gesti. Boðið er upp á veitingar. Sýningin verður opin í sumar á afgreiðslutíma veitingasalarins.

Kalda vatnið í Munaðarnes

8.6.2006


Frá tengingu Munaðarness við vatnsveituna. Mynd Geir Sævar Geirsson.

Nú er þeim langþráða áfanga náð að tengja Munaðarnes við vatnsveitu Orkuveitu Reykjavíkur, sem lögð verður um allan Borgarfjörð. Það gerðist um síðustu mánaðarmót. Enn er eftir að tengja Stóru Skóga við vatnsveituna en það mun gerast á næstu dögum.

Kaffihúsið Paradís opnar í Munaðarnesi

7.6.2006

Kaffihúsið Paradís opnar í þjónustumiðstöðinni í Munaðarnesi föstudaginn 9. júní og verður opið í allt sumar fram til 20. ágúst. Þar verður m.a. á boðstólum nýbakað brauð mánudaga, miðvikudaga og laugardagsmorgna. Einnig verður starfrækt lítil verslun eins og undanfarin sumur. Þá verða ýmsar uppákomur í sumar í tengslum við Þjónustumiðstöðina, t.d. verður hægt að horfa á beinar útsendingar frá HM á meðan á heimsmeistaramótinu stendur. Laugardaginn 10. júní verður menningarhátíð BSRB í Munaðarnesi eins og áður hefur verið greint frá.

Vatnið vekur áhuga

4.6.2006


Krakkarnir á myndinni frá vinstri eru Egill Karlsson, Andrea Bergsdóttir og Sindri Már Hjartarson, nemendur 10. bekkjar Laugalækjarskóla.

Nemendur í 10. bekk Laugalækjarskóla eru nú í júníbyrjun að ljúka lokaverkefnum sínum á skólaárinu og er þemað fyrir allan skólann, vatn út frá hinum ýmsu sjónarhólum. Fyrir okkur í BSRB sem höfum látið málið til okkar taka, er það mjög ánægjulegt að sjá að viðfangsefninu – vatni – séu gerð svo góð skil, því allir nemendur 10. bekkjar höfðu mjög áhugaverðar kynningar á verkefnum sínum, hvort sem fjallað var um Þingvallavatn, virkjanir, álitamál í sambandi við vatnalögin eða annað.


Um BSRB

Póstlistaskráning


Á döfinni


lífeyrismál

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta