Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

Jólafjör á Hótel Sögu

27.12.2007


Hátt í 300 manns mættu á jólaball SFR og Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar sem haldið var í Súlnasal Hótel Sögu í dag. Hljómsveit hússins stýrði fjörinu og naut dyggrar aðstoðar frískra barna sem sungu og dönsuðu af krafti. Hápunktur skemmtunarinnar var svo að sjálfsögðu þegar jólasveinarnir birtust og tóku á svipstundu öll völd í sínar hendur.

Draga þarf stórlega úr kjaramisréttinu

13.12.2007

"Í kjarasamningum sem gerðir verða á næstu mánuðum og misserum er nauðsynlegt að hafa í huga mikilvægi þess að draga stórlega úr kjaramisréttinu í samfélaginu. Misréttið verður að sjálfsögðu ekki upprætt í kjarasamningum einvörðungu. Í slíkum samningum er hins vegar hægt að leggja lóð sín á vogarskál aukins réttlætis á vinnumarkaði. Það má gera með því að bæta stórlega kjör láglauna- og millitekjuhópa," segir m.a. í grein eftir Þuríði Einarsdóttur formann Póstmannafélags Íslands og Ögmund Jónasson formann BSRB sem birtist í Morgunblaðinu í dag.

Karlar eiga nú jafnan rétt á við konur í fæðingarorlofi

11.12.2007

Reglum um greiðslur Fjölskyldu- og styrktarsjóðs BHM, BSRB og KÍ (FOS) í fæðingarorlofi var breytt 1. júní sl. Þá var horfið frá tekjutengdum greiðslum til mæðra og þess í stað greiddir fæðingarstyrkir til foreldra. Styrkirnir eru jafnháir til karla og kvenna en hliðsjón höfð af starfshlutfalli.  Breytingin varðar foreldra barna sem fæðst hafa eftir 1. júní. Í dag er greiðsla miðað við 100% starf 170 þúsund krónur. Í gildi verður að vera ráðningarsamningur við upphaf fæðingarorlofs. Hægt er að nálgast umsóknareyðublöð á heimasíðu sjóðsins http://www.fos.is/

Stórbæta þarf kjör innan almannaþjónustunnar

11.12.2007

"Enda þótt manneklan í sjúkra- og aðhlynningarstörfum hafi í för með sér alvarlegustu afleiðingarnar og geti hreinlega leitt til neyðarástands fyrir skjólstæðinga velferðarþjónustunnar verður einnig að skoða af miklu raunsæi hvað gerist ef erfiðleikum er háð að manna almenn skrifstofustörf. Án skipulagningar starfseminnar, bókhalds og annars utanumhalds um rekstur skapast fljótlega ringulreið. Fjármálastofnanir sem á undanförnum árum hafa vaxið og dafnað sem aldrei fyrr soga nú til sín starfsfólk og oftast á mun betri launakjörum en ríki og sveitarfélög bjóða upp á. Ef launakjörin á þessum sviðum opinberrar stjórnsýslu verða ekki löguð í komandi kjarasamningum er ljóst að ríki og sveitarfélög geta ekki keppt við einkamarkaðinn," segir m.a. í grein eftir Garðar Hilmarsson formann Starfsmannafélags Reykjavíkur og Kristínu Á. Guðmundsdóttur formann Sjúkraliðafélags Íslands, sem birtist í Morgunblaðinu í dag.

Rétta þarf hlut almannaþjónustunnar

9.12.2007

"Í könnun sem framkvæmd var á vegum SFR - stéttarfélags í almannaþjónustu kom til dæmis í ljós að launamunur var að meðaltali um 20% milli starfsmanna á almennum vinnumarkaði og þeirra sem vinna hjá hinu opinbera. Þessi munur kom bæði fram þegar bornar voru saman sambærilegar starfsgreinar og einnig þegar borin voru saman sambærileg störf eða starfsheiti. Í samanburðinum milli starfa var munurinn allt upp í 39% milli sambærilegra starfa," segir í grein sem birtist í Morgunblaðinu í gær, 9. desember. Greinin er rituð af þeim Árna Stefáni Jónssyni og Elínu Björgu Jónsdóttur varaformönnum BSRB.

Samkomulag um Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna undirritað

7.12.2007


Í hádeginu í dag var undirritað samkomulag um rekstur Ráðgjafarstofu um fjárhag heimilanna til næstu fimm ára, eða til 31. desember 2012. Alls eru það 16 aðilar sem standa að rekstri Ráðgjafarstofunnar en það eru: félagsmálaráðuneytið, Íbúðalánasjóður, Reykjavíkurborg, Kaupþing, Glitnir, Landsbanki Íslands, Samband íslenskra sparisjóða, Samband íslenskra sveitarfélaga, Þjóðkirkjan, Landssamtök lífeyrissjóða, ASÍ, BSRB, BHM, Rauði kross Íslands, Kópavogsbær og Kreditkort. Þessir aðilar hafa allir staðið að rekstri Ráðgjafarstofunnar undanfarin ár fyrir utan Kreditkort sem er nýr aðili að samkomulaginu. Kreditkort hefur þó verið styrktaraðili Ráðgjafarstofunnar til margra ára.

Sjúkraliðar krefjast róttækra umbóta á heilbrigðisstofnunum

5.12.2007

Almennur fundur Reykjavíkurdeildar Sjúkraliðafélags Íslands krefst róttækra umbóta á heilbrigðisstofnunum og vekur athygli á að mikill skortur á hjúkrunarfólki og aukið álag vegna mannfæðar gerir kröfu til heilbrigðisráðherra um róttækar umbætur og aðrar aðgerðir til að gera starfsfólki heilbrigðisstofnanna kleift að gegna störfum sínum. Fundurinn var haldinn í gær þriðjudaginn 4. desember í BSRB húsinu að Grettisgötu 89.

Dagar LN eru taldir, segir formaður STFS

30.11.2007

Ragnar Örn pétursson formaður Starfsmannafélags Suðurnesja telur að dagar Launanefndar sveitafélaga séu taldir þar sem komið hafi í ljós að láglaunastefna nefndarinnar sé ekki að virka. Hvetur hann sveitarfélög á Suðurnesjum að feta í fótspor sveitarfélaga á höfðuborgarsvæðinu sem hafa hækkað mánaðarlegar eingreiðslur til þeirra starfsmanna sem hafa lægst laun. Þetta kemur fram í viðtalivið Ragnar Örn sem birtist í Víkurfréttum í gær. Viðtalið fer hér á eftir.

Formannaskipti hjá Landssambandi slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna

26.11.2007

Vernharð Guðnason, formaður Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, lét af embætti formanns á stjórnarfundi sem haldinn var fyrir helgi.  Hann tekur við starfi slökkviliðsstjóra hjá Brunavörnum Skagafjarðar frá og með næstu áramótum. Sverrir Björn Björnsson tók við embætti formanns Landssambandsins en hann hefur verið varaformaður sambandsins síðastliðin þrjú ár.

Starfsmenntaverðlaun Starfsmenntaráðs 2007 afhent í BSRB húsinu

26.11.2007


Frá verðlaunaafhendingunni: Gissur Pétursson forstjóri Vinnumálastofnunar, Guðjónína Sæmundsdóttir frá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum, Una Eyþórsdóttir og Jón Karl Ólafsson frá Icelandair, Þórunn H. Sveinbjörnsdóttir og forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson.

Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti Starfsmenntaverðlaun Starfsmenntaráðs í BSRB húsinu sl. föstudag 23. nóvember. Verðlaunin eru þrískipt og eru veitt fyrirtæki, skóla og einstaklingi fyrir að skara fram úr í fræðslumálum fullorðinna. Vinningshafar voru:Í flokki fyrirtækja og félagasamtaka: Icelandair fyrir öfluga þjálfun og símenntun starfsmanna sinna. Í flokki skóla og fræðsluaðila: Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum fyrir frumkvöðlastarf í fullorðinsfræðslu hér á landi. Í opnum flokki: Þórunn H. Sveinbjörnsdóttir, fyrrum varaformaður Eflingar fyrir að fara nýjar leiðir í fullorðinsfræðslu.

Könnun á kjörum félagsmanna BSRB

19.11.2007

BSRB ásamt BHM og KÍ standa fyrir sameiginlegri könnun á kjörum félagsmanna sinna. Á næstu dögum mun verða haft samband við úrtak úr hópi félagsmanna og þeir beðnir um að svara könnun á netinu eða fá sendan spurningalista með pósti. Meðal annars er spurt um hagi félagsmanna, menntun, samsetningu launa og önnur hlunnindi.

Ný heimasíða Félagsmálasskóla alþýðu

19.11.2007

Félagsmálaskóli alþýðu gefur opnað nýja heimasíðu og er slóð hennar  http://www.felagsmalaskoli.is/   Þar má m.a. finna námskeið sem eru í boði hjá skólanum.  Auk þess er þar að finna efni um einelti og einnig vefnám trúnaðarmannsins.

Krafa um verulegar kjarabætur í komandi samningum

16.11.2007


Ögmundur Jónasson formaður BSRB sagði á aðalfundi bandalagsins í dag þegar hann mælti fyrir ályktun fundarins að menn yrðu að opna augu fyrir þeim alvarlega vanda sem blasti við innan almannaþjónustunnar. Víða væri orðið erfitt að manna störf og færi ástandið hríðversnandi. „Ef ekkert verður að gert blasir við neyðarástand. Það er á ábyrgð viðsemjenda okkar að semja um stórbætt kjör í komandi kjarasamningum enda sýna kannanir að starfsmenn innan almannaþjónustunnar eru að dragast  verulega aftur úr í launum. Ef starfsfólki innan almannaþjónustunnar verður ekki greitt kaup og búið að því eins og best gerist á launamarkaði horfir þar hreinlega til landauðnar á mikilvægu sviðum velferðarþjónustunnar." Í ályktun BSRB er sett fram krafa um verulegar kjarabætur  auk þess sem lögð er áhersla á að taka verði mið af þörfum fjölskyldunnar þegar samið er um kaup, vinnutíma og önnur kjör.

Jólahlaðborð Kaffi Paradísar í Munaðarnesi

12.11.2007

Kaffi Paradís í Munaðarnesi verður með glæsilegt jólahlaðborð laugardaginn 1. desember, föstudaginn 7. desember og laugardaginn 8. desember. Lifandi tónlist meðan á borðhaldi stendur og hljómsveitin Gammel dansk leikur fyrir dansi. Þetta er tilvalið tækifæri fyrir fjölskyldur og hópa til að leigja sér hús í Munaðarnesi þessar helgar og njóta jólahlaðborðsins hjá Kaffi Paradís. Hægt er að panta hús á skrifstofu BSRB í síma 525 8300 eða á netfanginu bsrb@bsrb.is

Heil og sæl í vinnunni

8.11.2007

„Heil og sæl í vinnunni"  er yfirskrift  heilsueflingarverkefnist á vegum Vinnueftirlits ríkisins.  Í Evrópu nefnist það „Move Europe".  Verkefnið kemur frá evrópska samstarfsnetinu um heilsueflingu á vinnustöðum og kallast „Move Europe". Vinnueftirlitið hefur umsjón með verkefninu hérlendis í nánu samstarfi við Lýðheilsustöð. Markmið verkefnisins er að auka vitund innan vinnustaða á mikilvægi þess að efla heilsu og forvarnir. Verkefninu er um leið ætlað að hvetja til aðgerða þegar kemur að heilsueflingu á vinnustöðum og með því auka heilbrigði starfsmanna. Bætt heilsufar starfsmanna hefur í för með sér margs konar hagræðingu fyrir vinnustaði. Lögð verður sérstök áhersla á eftirfarandi þætti: hreyfingu, næringu, tóbaksvarnir, áfengis- og vímuvarnir sem og streitu og andlega líðan. 

Fræðsluvefur um lífeyrismál opnaður

1.11.2007

Mánudaginn 29. október s.l opnaði Árni Mathiesen, fjármálaráðherra, nýjan fræðsluvef Landssamtaka lífeyrissjóða um lífeyrismál. Vefslóðin er www.gottadvita.is Á heimasíðum flestra lífeyrissjóða er hnappur sem hægt er að smella á til að færast á fræðsluvefinn.

BSRB í hart við LSH vegna samninga við starfsmannaleigur

31.10.2007

BSRB hefur falið lögfræðingi að afla gagna um samninga Landspítalans við starfsmannaleigur en spítalinn hefur varið umtalsverðum fjármunum, eða yfir hundrað milljónum króna það sem af er árinu, í greiðslur til starfsmannaleiga. BSRB óskaði eftir gögnum frá spítalanum vegna þessa og fékk þau en þar var strikað yfir alla hluta samninganna þar sem tímakaup starfsmanna kemur fram.

Borgaryfirvöld ógildi samninga REI og GGE

26.10.2007

Stjórn BSRB skorar á borgaryfirvöld í Reykjavík að ógilda þegar í stað samninga um sameiningu REI og GGE enda ekki rétt að þeim staðið. Auk þess krefst stjórn samtakanna þess að hætt verði við áform um hlutafélagavæðingu Orkuveitu Reykjavíkur og kallar eftir breytingum á lögum sem komi í veg fyrir að einkaaðilar eignist náttúruauðlindir. Þetta er meðal þess sem fram kemur í ályktun sem stjórn BSRB sendi frá sér í dag.

Ofsóknir á hendur verkalýðshreyfingunni aukast

19.10.2007

„Ég hvet íslenska fjölmiðla til þess að beina sjónum að mannréttindamálum í ríkari mæli en þeir gera og þá einnig að stöðu verkalýðshreyfingarinnar ekki síst í þeim löndum þar sem íslenskt „útrásarfólk" er á ferð. Það kann að vera góðra gjalda vert í einhverjum tilvikum að færa út kvíar á Balkanskaga og í Kína, svo dæmi séu tekin. En þá skyldu menn hafa í huga að hagnaður á kostnað mannréttinda er verri en enginn. Slíkur hagnaður á engan rétt á sér. Sú skylda hvílir á talsmönnum Íslands hvar sem þeir fara að halda fána mannréttinda hátt á loft," segir Ögmundur Jónasson formaður BSRB í grein á heimasíðu sinni þar sem fjallað er um árlega skýrslu Alþjóðasambands verkalýðsfélaga (ITUC)  um mannréttindabrot og ofsóknir á hendur verkalýðshreyfingunni í heiminum.

Starfslokanámskeið á höfuðborgarsvæðinu

18.10.2007

Starfslokanámskeið verður haldið í BSRB húsinu 1. hæð Grettisgötu 89, í Reykjavík, dagana 6. 7. og 12. nóvember 2007. Námskeiðið verður frá kl. 16.30 til kl. 19.00 hvert kvöld. Námskeiðið er opið öllum félagsmönnum í BSRB sem búsettir eru á höfuðborgarsvæðinu og mökum þeirra. Námskeiðið er einkum ætlað þeim sem eru að nálgast starfslok eða eru nýlega hættir störfum. Þátttöku þarf að tilkynna fyrir 2. nóvember á skrifstofu BSRB, sími 5258300. Einnig er hægt að skrá sig á netfangið bsrb@bsrb.is . Námskeiðið er frítt fyrir alla félaga í aðildarfélögum BSRB og maka þeirra.

Starfsmannafélag Ólafsfjarðar verður Starfsmannafélag Fjallabyggðar

12.10.2007

Starfsmannafélag Ólafsfjarðar hefur breytt nafni félagsins í Starfsmannafélag Fjallabyggðar. Er það gert í framhaldi af sameiningu sveitarfélaganna á Ólafsfirði og Siglufirði í Sveitarfélagið Fjallabyggð. Heimilisfang félagsins er að Bylgjubyggð 51, Ólafsfirði.

Heimasíða SFR endurbætt

8.10.2007


Heimasíða SFR stéttarfélags í almannaþjónustu tók miklum breytingum um helgina. Við endurskoðun heimasíðunnar var lögð áhersla á að hún yrði læsilegri og því er leturgerðin stærri og meira bil á milli stafa. Þá var síðan breikkuð og hentar hún vel í upplausninni 1024 x 768, en langflestir eru komnir með skjái sem ráða við þessa upplausn. Einnig var útliti vefsins breytt til nútímalegra horfs og allt aðgengi einfaldað.

Félagsmálaráðherra heimsækir BSRB

5.10.2007


Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra heimsótti í dag höfuðstöðvar BSRB í Reykjavík og átti viðræður við hóp forsvarsmanna bandalagsins. Ráðherra fór yfir ýmis þeirra mála sem eru í vinnslu hjá ráðuneytinu og einnig það sem er þar í undirbúningi. Á meðal þess sem rætt var um á fundinum voru húsnæðismál og mikilvægi þess að efla félagslega þætti húsnæðiskerfisins.

Hlustum á varnaðarorð Öryrkjabandalagsins

2.10.2007


Sigursteinn Másson, formaður ÖBÍ, kom í dag á sameiginlegan fund  réttindanefndar og lífeyrisnefndar BSRB til að fjalla um hugmyndir sem fram hafa komið af hálfu ASÍ og SA um svokallaðan áfallatryggingasjóð og nýtt endurhæfingarkerfi fyrir öryrkja. Formaður Öryrkjabandalagsins sagði á fundinum að hér væri í reynd um að ræða nýtt framfærslukerfi til hliðar við almannatryggingakerfið og varaði við því að ef þessar hugmyndir yrðu að veruleika yrði við lýði í landinu kerfi mismununar. Annars vegar væru þeir sem tengdust þeim hluta vinnumarkaðarins sem aðild ættu að þessu fyrirkomulagi og síðan hinir sem þar stæðu fyrir utan.

Trúnaðarmannanámskeið í Munaðarnesi

1.10.2007

Trúnaðarmannanámskeið verður haldið í Munaðarnesi dagana 10. og 11. október.  Dagskrá námskeiðsins verður með svipuðu sniði og undanfarin ár. Þátttakendur á námskeiðinu mæta í Munaðarnesi á hádegi miðvikudaginn 10. október og fer rúta frá BSRB-húsinu, Grettisgötu 89, kl. 10.00. Námskeiðinu lýkur síðdegis 11. október. Rútan fer frá Munaðarnesi kl. 17.15. Þeir sem hafa áhuga á þátttöku eru beðnir að hafa samband við skrifstofu BSRB, Grettisgötu 89, í síma 525 8300 fyrir 8. október.

Kröftugt heimsþing PSI

28.9.2007


Fulltrúar BSRB á heimsþingi PSI. F.v.: Þuríður Einarsdóttir, Anna Atladóttir, Páll H. Hannesson, Árni Stefán Jónsson, Kristín Á. Guðmundsdóttir, Ögmundur Jónasson, Vernharð Guðnason og Þórarinn Eyfjörð.

„Þetta hefur verið mjög kröftugt þing og það segir sig sjálft að þegar fólk kemur saman úr öllum heimshornum þá beinast sjónir manna helst að þeim sem eiga við mikið andstreymi að stríða," sagði Ögmundur Jónasson formaður BSRB um heimsþing PSI, alþjóðasamtaka launafólks í almannaþjónustu. Þinginu lýkur í dag í Vínarborg.

Afleiðingar einkavæðingar verði rannsakaðar

27.9.2007


Ögmundur Jónasson formaður BSRB hvatti til þess í ræðu sem hann flutti á heimsþingi PSI, Samtaka launafólks i almannaþjónustu, að auknum kröftum og fjármagni verði varið, á vegum samtakanna til að rannsaka afleiðingar markaðs- og einkavæðingar grunnþjónustu samfélagsins. Nú væri komin reynsla af einkavæðingu undangenginna ára og tími til að vega og meta árangurinn. Mikilvægt væri að ríkisstjórnir og sveitarstjórnir gerðu sér grein fyrir því hvaða afleiðingar það hefði í för með sér þegar haldið væri út á braut einkavæðingar: „Við verðum að koma staðreyndum í þessum efnum á framfæri við heimsbyggðina og fylgja málflutningi okkar eftir á afgerandi hátt svo allir geri sér grein fyrir því að barátta okkar er í þágu allra." Ögmundur hefur setið í stjórn PSI undanfarið kjörtímabil og er í framboði til stjórnar PSI að nýju.

28. þing Alþjóðasamtaka starfsmanna í almannaþjónustu

25.9.2007


Fulltrúar BSRB á þinginu. F.v. Árni Stefán Jónsson, Þuríður Einarsdóttir og Ögmundur Jónasson.

28. þing Alþjóðasamtaka starfsmanna í almannaþjónustu, Public Services International, hófst í Vínarborg í gær, 24. september. Samtökin fagna 100 ára afmæli sínu um þessar mundir. Þingið stendur til 28. september. Á þinginu eru komnir saman 1500 fulltrúar frá öllum heimshornum og eru fulltrúar BSRB þar á þeðal.

Vika símenntunar

21.9.2007


Vika símenntunar verður haldin 24.-30. september 2007. Markmið viku símenntunar er að auka símenntun í atvinnulífinu og hvetja fólk til að leita sér þekkingar alla ævi. Í viku símenntunar 2007 er lögð áhersla á að ná til þeirra sem hafa litla formlega menntun og hvatt til þess að huga sérstaklega að læsi og lestrarörðugleikum á vinnustað. Miðvikudagurinn 26. september er árlegur símenntunardagur í fyrirtækjum og stofnunum.

Endurskoðun á sí- og endurmenntun á vegum BSRB

21.9.2007

Starfshópur á vegum stjórnar BSRB sem unnið hefur að endurskoðun á sí- og endurmenntunarmálum á vegum BSRB hefur skilað af sér áfangaskýrslu. Í skýrslunni eru lagðar fram tillögur í sjö liðum. Meðal þess sem lagt er til er að kannað verði nánara samstarf við ASÍ um fræðslumál en samtökin starfa þegar saman að slíkum málum á vettvangi Félagsmálaskóla alþýðu. Þá er lagt til að þessi samtök skoði að fara fram með sameiginlegar kröfur gagnvart stjórnvöldum í komandi kjarasamningum varðandi löggjöf um fullorðinsfræðslu og verulega fjármuni til hennar.

Sláandi niðurstöður launakönnunar SFR

18.9.2007

Niðurstaða launakönnunar sem SFR - stéttarfélag í almannaþjónustu stóð að sl. vor í samvinnu við Verzlunarmannafélag Reykjavíkur sýnir að launamunur á milli ríkisstarfsmanna og starfsmanna á almennum vinnumarkaði er 20 - 30%. Launakönnunin gefur ítarlegar upplýsingar um kaup og kjör ríkisstarfsmanna og veitir mikilvægar upplýsingar um launamun á opinberum og almennum vinnumarkaði. Niðurstaða könnunarinnar er sláandi þegar kemur að samanburði milli ríkisstarfsmanna og starfsmanna á almennum markaði. Þannig er heildarlaunamunur milli ríkisstarfsmanna og starfsmanna á almennum markaði að meðaltali 20%. Þegar einstaka starfahópar eru hins vegar skoðaðir þá er munurinn allt upp í 30%! Þessi launamunur á sér engar eðlilegar skýringar.

Samflotinu veitt fullnaðarumboð til samninga

14.9.2007

Öll félögin sem mynda Samflot starfsmannafélaga sveitarfélaga, fyrir utan Starfsmannafélag Kópavogs, ákváðu á fundi í dag að veita samflotinu fullnaðarumboð til samninga og að félögin munu greiða atkvæði í einu lagi um verðandi kjarasamning við Launanefnd sveitarfélaga. Samningur um þetta var undirritaður á fundi á Hótel Selfoss í dag.

Tilboð til BSRB félaga á Abbababb

11.9.2007

Leikhópurinn Á senunni býður félagsmönnum í BSRB og fjölskyldum þeirra tilboð á hinn frábæra og bráðfjöruga fjölskyldusöngleik Abbababb! eftir Dr. Gunna í leikstjórn Maríu Reyndal.  Abbababb! var frumsýnt í Hafnarfjarðarleikhúsinu sunnudaginn 11. febrúar við gríðarleg fagnaðarlæti frumsýningargesta og frábæra dóma gagnrýnenda og gekk fyrir fullu húsi fram á vorið. Í júní sl hlaut sýningin Grímuna, íslensku leiklistarverðlaunin, sem besta barnasýningin árið 2007.  Þá var Lára Stefánsdóttir tilnefnd til Grímunnar fyrir dansana í verkinu.  Þeir sem vilja leyfa sér og börnum sínum að njóta þurfa að hafa hraðar hendur, því verkið verður einungis sýnt í september og október.

Kynbundinn launamunur mikill hjá félagsmönnum SFR

10.9.2007

Konur eru að jafnaði með fjórðungi lægri laun en karlar samkvæmt nýrri launakönnun sem SFR - stéttarfélag í almannaþjónustu lét gera meðal félagsmanna sinna. Samkvæmt könnuninni er kynbundinn launamunur 14,7% þegar tekið hefur verið tillit til aldurs, starfsaldurs, vinnutíma, starfsstéttar og menntunar. Þá kemur fram að mikill launamunur er meðal þeirra sem minnst bera úr býtum og þeirra sem eru með hæstu launin. Einnig sýnir könnunin fram á að laun félagsmanna í SFR eru mun lakari en laun félagsmanna VR í sambærilegum störfum.

Vika símenntunar

5.9.2007


Vika símenntunar verður haldin 24.-30. september 2007. Markmið viku símenntunar er að auka símenntun í atvinnulífinu og hvetja fólk til að leita sér þekkingar alla ævi. Í viku símenntunar 2007 er lögð áhersla á að ná til þeirra sem hafa litla formlega menntun og hvatt til þess að huga sérstaklega að læsi og lestrarörðugleikum á vinnustað.

Námsframboð Félagsmálaskólans á haustönn

5.9.2007

Námsskrá Félagsmálaskóla alþýðu fyrir haustönn 2007 er nú tilbúin. Boðið er upp á ýmis námskeið sem gagnast launafólki í lífi og starfi. Annars vegar er um að ræða styttri námskeið sem eru eina dagstund og hins vegar tveggja daga námskeið. Meðal þess sem í boði er eru námskeið um jafnrétti og námshvatningu á vinnustað, námskeið um samningatækni, undirbúning kjarasamninga og lífið í Karphúsinu. Þá er í boði námskeið í ensku talmáli auk grunn- og framhaldsnámskeiðs fyrir trúnaðarmenn.

Aldarafmæli Alþjóðasamtaka starfsmanna í almannaþjónustu

29.8.2007

Alþjóðasamtök starfsmanna í almannaþjónustu, Public Services International, PSI, urðu 100 ára gömul í vikunni. Í marsmánuði árið 1907 boðaði framkvæmdastjóri Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, "Verband der Gemeinde- und Staatsarbeiter", í Þýskalandi „verkamenn er starfa hjá sveitarfélögum og ríki, í orkuverum, í gas- og vatnsveitum allra landa" til „fyrstu alþjóðlegu ráðstefnunnar" dagana 25.-27. ágúst 1907 og fór fundurinn fram í borginni Stuttgart í Þýskalandi.

Heildarsamtökin skila góðum árangri

23.8.2007

Ögmundur Jónasson formaður BSRB svarar nokkrum spurningum um stöðu verkalýðshreyfingarinnar í síðasta tölublaði BHM-tíðinda. Þar er hann m.a. spurður um hlutverk heildarsamtaka launafólks og telur hann þau hafa gegnt mikilvægu hlutverki í baráttunni fyrir réttindum launafólks. Þá segir hann að sér lítist vel á þá framtíðarsýn að allt launafólk á Íslandi sameinist í einum heildarsamtökum.

Nýr formaður STAG

13.8.2007

Formannaskipti urðu í Starfsmannafélagi Garðabæjar fyrr í sumar. Gunnar Richardson lét af formennsku og við tók Gunnar Erlingsson.

Gengið gegn slysum

22.6.2007

Hjúkrunarfræðingar á Landspítala-háskólasjúkrahúsi efna til fjöldagöngu gegn umferðarslysum á þriðjudaginn kemur, 26. júní, kl:17:00 til að vekja almenning til umhugsunar um afleiðingar hraðaksturs og þess að aka bíl undir áhrifum áfengis, fíkniefna eða lyfja. Hópur hjúkrunarfræðinga á spítalanum hafði frumkvæði að viðburðinum og hefur nú þegar fengið baráttukveðjur og stuðningsyfirlýsingar úr mörgum áttum, meðal annars úr röðum slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, lögreglumanna, lækna, sjúkraþjálfara, sjúkraliða, presta og iðjuþjálfara. Þá hafa forstjóri, hjúkrunarforstjóri og fleiri stjórnendur Landspítala-háskólasjúkrahúss lýst stuðningi við framtakið.

Stöðug nýsköpun er nauðsyn!

21.6.2007


Lokið er í Reykjavík ráðstefnu Samtaka opinberra starfsmanna á Norðurlöndum, NTR. Á ráðstefnunni var rætt um nýsköpunarstarf innan almannaþjónustunnar og ákveðið að efna til viðræðna við félagsmálaráðherra Norðurlandanna um leiðir til að þróa norræna velferðarkerfið. Eftirfarandi ályktun var samþykkt í lok ráðstefnunnar: „Mikilvægt er að virkja alla þá orku sem býr með starfsmönnum almannaþjónustunnar, samfélaginu til hagsbóta. Miklu skiptir að allir þeir sem stýra velferðarþjónustunni og starfa við hana verði meðvitaðir um nauðsyn þess að reyna stöðugt nýjar leiðir og breytt fyrirkomulag ..."

Samkomulag við Reykjavíkurborg um upplýsingar og samráð

18.6.2007




14. júní sl. var undirritað samkomulag milli aðildarfélaga BHM, BSRB og KÍ annars vegar og Reykjavíkurborgar hins vegar um fyrirkomulag á samráði og upplýsingamiðlun vegna starfsmanna borgarinnar. Samkomulagið tekur gildi 1. júlí nk. Markmið þess er að koma á skilvirku samráði með hagsmuni beggja aðila, borgarinnar og starfsmanna hennar, að leiðarljósi. Með samráðinu gefst tækifæri til að auka þátttöku fulltrúa starfsmanna í ákvörðunum sem varða störf borgarstarfsmanna, stöðu þeirra og  atvinnuöryggi.

Starfsmannastefna borgarinnar skilar árangri

14.6.2007


Vilhjálmur Vilhjálmsson borgarstjóri ávarpaði gesti á ráðstefnu NTR í Höfða í gær. Hann greindi m.a. frá könnun sem borgin hefur látið gera meðal starfsmanna sinna. Tilgangur könnunarinnar var að afla upplýsinga um líðan starfsmanna í starfi og hvernig til hefði tekist með mannlega þáttinn á vinnustöðum. Meginniðurstaðan var þríþætt. Í fyrsta lagi kom fram að hæfni og áhugi starfsmanna var mjög mikill. Í öðru lagi að starfsmannastjórn væri í góðu lagi og í þriðja lagi að vinnuumhverfið væri gott.

Nýjungar í opinberri þjónustu

13.6.2007

Nýjungar í opinberri þjónustu er yfirskrift ráðstefnu NTR, Nordisk Tjänstemannaråd, sem hefst með móttöku Reykjavíkurborgar í Höfða í kvöld. NTR eru samtök starfsmannafélaga sveitarfélaga á Norðurlöndum. Ögmundur Jónasson formaður BSRB er núverandi formaður samtakanna.

BSRB leggst gegn því að auglýsingaskylda verði afnumin vegna starfa í Stjórnarráðinu

13.6.2007

BSRB leggst alfarið á móti því að afnumin verði sú skylda að auglýsa laus störf innan Stjórnarráðsins. BSRB varar við því að hróflað verði við auglýsingaskyldunni og telur mikilvægt að fólki séu gefin jöfn tækifæri til starfa og starfsframa innan Stjórnarráðsins. BSRB gerir hins vegar ekki athugasemdir við breytingar á ráðuneytum eða að Hagstofu Íslands verði breytt úr ráðuneyti í sjálfstæða ríkisstofnun, svo fremi breytingarnar hafi ekki áhrif á réttindi starfsmanna sem þær varða. Þetta kemur fram í umsögn BSRB um frumvarp til laga um breytingu á lögum um Stjórnarráð Íslands.

Flugumferðarstjórar í BSRB

12.6.2007


Félag íslenskra flugumferðarstjóra er orðið aðili að BSRB. Eftir atkvæðagreiðslu í félaginu sótti það um aðild að BSRB og var aðildin samþykkt með dúndrandi lófataki á stjórnarfundi BSRB 1. júní sl.

Icelandic for foreigners

11.6.2007

Framvegis, miðstöð símenntunar í Reykjavík, verður með íslenskunámskeið í júní. Er bæði um að ræða byrjendanámskeið og framhaldsnámskeið. Skráning er á netfanginu: skraning@framvegis.is
Courses in Icelandic for foreigners, both for beginners and students who have had a beginners course will be held at Framvegis in June. Register by email skraning@framvegis.is or call 5814914 between 10 am and 12 am.

Sumarið kom með menningarhátíð BSRB í Munaðarnesi

11.6.2007


Mikið fjölmenni var á menningarhátíð BSRB í Munaðarnesi á laugardaginn þegar myndlistarsýning Guðbjargar Hákonardóttur, Guggu, var opnuð. Steinunn Sigurðardóttir las úr verkum sínum og Auður Hafsteinsdóttir, Bryndís Halla Gylfadóttir og Steinunn Birna Ragnarsdóttir fluttu hrífandi tónlist.

Á vaktinni

5.6.2007


Skýrsla um aðbúnað og viðhorf vaktavinnufólks sem unnin var af Rannsóknastofu í vinnuvernd var kynnt á mjög fjölmennum fundi í BSRB húsinu í morgun. Skýrslan var unnin fyrir starfshóp á vegum BHM, BSRB, ríkisins, Reykjavíkurborgar og Launanefndar sveitarfélaga. Það var Ólöf Eiríksdóttir frá Rannsóknastofu í vinnuvernd sem kynnti skýrsluna.

Menningarhátíð í Munaðarnesi

4.6.2007


Árleg menningarhátíð BSRB verður haldin í Munaðarnesi nk. laugardag, 9. júní kl. 14.00. Opnuð verður sýning á verkum Guðbjargar Hákonardóttur – Guggu. Á hátíðinni verður að venju boðið upp á tónlist og upplestur. Auður Hafsteinsdóttir fiðluleikari, Bryndís Halla Gylfadóttir sellóleikari og Steinunn Birna Ragnarsdóttir píanóleikari flytja tónlist. Steinunn Sigurðardóttir les úr eigin verkum. Þá flytur Ögmundur Jónasson formaður BSRB ávarp. Boðið er upp á veitingar. Sýningin er opin á afgreiðslutíma veitingahússins Kaffi Paradís til 1. október.

Kristín Á. Guðmundsdóttir endurkjörin formaður Sjúkraliðafélagsins

31.5.2007

Kristín Á. Guðmundsdóttir var endurkjörin formaður Sjúkraliðafélags Íslands með 64% atkvæða. Kosningaþátttaka var 66%. Formannskjör fer fram á þriggja ára fresti.

Í sókn fyrir félagslega Evrópu

23.5.2007

11. þing ETUC, Evrópusamtaka verkalýðsfélaga var sett í 21. maí í Sevilla á Spáni. Yfirskrift þingsins er: Í sókn fyrir félagslega Evrópu, samstöðu og sjálfbærni.  Þinginu verður slitið á morgun 24. maí. Fulltrúar BSRB á þinginu eru Garðar Hilmarsson formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og Páll H. Hannesson alþjóðafulltrúi BSRB.

Nýr formaður hjá STAMOS

23.5.2007

Edda R. Davíðsdóttir var kjörin nýr formaður Starfsmannafélags Mosfellsbæjar á aðalfundi félagsins. Edda tekur við af Sveingerði Hjartardóttur.

Uppsögn dæmd ólögleg

15.5.2007

Hæstiréttur hefur dæmt uppsögn tölvunarfræðingsins Salmann Tamimi ólöglega en Landspítalinn háskólasjúkrahús sagði honum upp vegna skipulagsbreytinga. Áður hafði héraðsdómur dæmt uppsögnina löglega. Salmann Tamimi er félagsmaður í Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar.

Jóhannes Long nýr formaður FFR

10.5.2007

Breytingar urðu á stjórn Félags flugmálastarfsmanna ríkisins á aðalfundi félagsins 27. apríl sl. Jóhannes Long tók við formennskunni af Hallgrími Hallgrímssyni. Aðrir í stjórn eru Þorleifur Már Friðjónsson varaformaður, Ragnheiður Júlíusdóttir gjaldkeri, Guðmundur Móeses Björnsson ritari og Ástrós Friðbjarnadóttir meðstjórnandi.

Icelandic for foreigners

9.5.2007

Íslenskukennsla Framvegis í samvinnu við Alþjóðahús
Kennsla í íslensku 1 fyrir byrjendur hefst mánudaginn 14. maí. Námskeiðin eru 30 kennslustundir. Kennt er á mánudögum og miðvikudögum klukkan 17- 19 og frá klukkan 19 - 21 eða á þriðjudögum og fimmtudögum frá klukkan 19 - 21. Íslenska 2 er einnig 30 kennslustundir og fer kennsla fram á þriðjudögum og fimmtudögum frá klukkan 17 - 19. Íslenska 3 verður auglýst sérstaklega.

Breytingar á starfsfólki BSRB

4.5.2007

Guðbjörg Jónsdóttir fjármálastjóri BSRB hefur látið af störfum og Drífa Valdimarsdóttir tekið við störfum hennar. Drífa starfaði áður á fjármálasviði Reykjavíkurborgar. Þá hefur Erna Guðmundsdóttir lögfræðingur BSRB hætt störfum en enn hefur ekki verið ráðið í hennar stað. BSRB þakkar þeim Guðbjörgu og Ernu góð störf til fjölmargra ára og óskar þeim velfarnaðar á nýjum vettvangi.

Fjölmennir baráttufundir víða um land 1. maí

2.5.2007


Fjölmennir baráttufundir voru haldnir víða um land í gær. Í Reykjavík fór kröfuganga frá Hlemmi og var gengið á Ingólfstorg þar sem þar sem mikið fjölmenni safnaðist saman og hlýddi á kröftugar ræður Grétars Þorsteinssonar forseta ASÍ og Kristínar Á. Guðmundsdóttur formanns Sjúkraliðafélags Íslands. Kristín Á. sagði m.a. að jafnaðarhugsjónin væri aðalsmerki verkalýðshreyfingarinnar. Eftir fundinn var að venju boðið upp á kaffi og með því í BSRB húsinu og komu um 800 manns.

Almannahagsmunir ráði för

1.5.2007


Ögmundur Jónasson formaður BSRB sagði í 1. maí ræðu á Akureyri í dag að tryggja yrði stöðugleika í efnahagslífinu, ná yrði niður vöxtum og verðbólgu og útrýma fátækt. Koma yrði í veg fyrir klofning í þjóðfélaginu og hann hvatti til umburðarlyndis í umræðunni um erlent verkafólk. Hann sagði að umburðarlyndið yrði að ná til allra, líka þeirra sem vöruðu við ofþenslu á vinnumarkaði. Ögmundur beindi orðum sínum til auðmanna og sagði að frelsið væri ekki bara fyrir hinn fjáða.

Jafnaðarhugsjónin er aðalsmerki verkalýðshreyfingarinnar

1.5.2007

Grundvallarhugsjón verkalýðshreyfingarinnar er og hefur ætíð verið jöfnuður:
Jöfnuður í formi réttinda
Jöfnuður í formi réttlætis
Jöfnuður í formi bræðralags
Jafnaðarhugsjónin hefur verið og er eitt af aðalsmerkjum verkalýðshreyfingarinnar um heim allan," sagði Kristín Á. Guðmundsdóttir í upphafi ræðu sinnar á fjölmennum baráttufundi samtaka launafólks á Ingólfstorgi í dag 1. maí. Gengið var frá Hlemmi á Ingólfstorg og léku Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur fyrir göngufólk. Á Ingólfstorgi fluttu Grétar Þorsteinsson forseti ASÍ og Kristín Á. Guðmundsdóttir formaður SLFÍ ávörp og hljómsveitin Baggalútur skemmti fundargestum.

Fjölmennum á baráttufundi 1. maí

30.4.2007

Á morgun 1. maí, alþjóðlegum baráttudegi verkamanna, verða haldnir baráttufundir um allt land. Er launafók hvatt til að fjölmenna á fundina. Í Reykjavík verður safnast saman á Hlemmi kl. 13.00. Gangan leggur af stað kl. 13.30. Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur leika fyrir göngu. Gengið niður Laugaveg, Bankastræti, Austurstræti og inn á Ingólfstorg. Útifundur á Ingólfstorgi hefst kl. 14.10. Útifundur lýkur kl. 15.00.

Treystum velferðina - útrýmum fátæktinni

30.4.2007

"Á tímum aukins misréttis og vaxandi ójafnaðar í tekjuskiptingu þjóðarinnar er mikilvægt að launafólk snúi bökum saman til að bæta kjör launafólks og vinna að því að útrýma fátækt í landinu. Yfir 5000 börn á Íslandi lifa undir fátæktarmörkum. Bilið milli ofurlaunamanna og þeirra sem lifa á almennum launakjörum  breikkar stöðugt.  Þeir sem hafa lifibrauð sitt af fjármagnstekjum búa við allt aðra skattlagningu  en almennt launafólk. Þetta misrétti í launa- og skattamálum verður að uppræta." Á þessum orðum hefst 1. maí ávarp samtaka launafólks í Reykjavík.

1. maí kaffi BSRB

30.4.2007

Að venju verður 1. maí kaffi í BSRB - húsinu eftir að baráttufundinum á Ingólfstorgi lýkur kl. 15.00. Allir velkomnir.

Framtíð heilbrigðisþjónustunnar til umræðu

27.4.2007


Í vikunni var haldinn ársfundur norrænna verkalýðsfélaga (NOFS) sem aðild eiga að Evrópusamtökum launafólks innan almannaþjónustunnar (EPSU og EUREC). Á fundinum var fjallað almennt um starfsemi Evrópusamtakanna og þá sérstaklega aðkomu þeirra að þjónustutilskipun Evrópusambandsins. Mestur hluti fundarins fór í umræðu um vinnumarkaðsmál og viðbrögð ríkisstjórna á Norðurlöndum við þeim hluta tilskipunarinnar sem snýr að vinnumarkaði.

Kosningafundur fyrir ungt fólk

25.4.2007

Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar í samstarfi við SFR- stéttarfélag og Hitt húsið halda fund fyrir ungt fólk í Tjarnarbíói á laugardaginn 28. apríl kl. 16-18. Á fundinum fær ungt fólk á aldrinum 16-25 að spyrja, úr sal, fulltrúa frá öllum framboðum spjörunum úr. Yfirskrift fundarins er 19200. Fundarstjórar verða þau Halla Gunnarsdóttir og Sölvi Tryggvason. Fundurinn verður tekinn upp og hann sendur út á netinu.

Ég styð öfluga almannaþjónustu fyrir alla!

16.4.2007

Taktu þátt í undirskriftaherferð evrópskrar verkalýðshreyfingar til eflingar almannaþjónustunni! Leiðbeiningar. Þú smellir hér og þá blasa við þrír gluggar:
Í þann fyrsta skrifar þú nafn þitt
Í þann næsta tölvupóstfangið þitt
Fyrir land velur þú “Iceland”
Þú færð síðan sendan tölvupóst til staðfestingar undirskriftinni, opnar hann og smellir á viðeigandi línu.

Þjóðfélagslega sátt um launamyndun opinberra starfsmanna

2.4.2007

Aðalfundur SFR – stéttarfélags í almannaþjónustu sem haldinn var sl. laugardag telur mikilvægt að þjóðfélagsleg sátt náist um hvernig haga beri launamyndun hjá opinberum starfsmönnum. Á fundinum voru samþykktar ályktanir um kjaramál, umhverfismál, jafnréttismál og almannaþjónustu. Einnig var samþykkt framtíðarsýn félagsins.

Alþjóðlegi vatnsdagurinn 22. mars

22.3.2007

Sameinuðu þjóðirnar hafa ákveðið að nota alþjóðlegan dag vatnsins, 22. mars, til að vekja athygli á skorti á vatni í heiminum. Hér er um að ræða eitt helsta vandamál mannkynsins í dag en á síðustu árum hefur ásókn í vatn aukist tvöfalt hraðar en fólki í heiminum hefur fjölgað.  Með því að vekja athygli á vatnsskorti vilja Sameinuðu þjóðirnar um leið vekja athygli á nauðsyn samvinnu og að alhliða aðferðafræði sé beitt við lausn vatnsvandans, hvort sem heima fyrir eða á alþjóðavísu. Ekki verði litið fram hjá þáttum eins og jafnrétti og réttindum, menningu og siðrænum álitaefnum. Eins og Sameinuðu þjóðirnar hafa áður áréttað og 14 samtök hér á Íslandi byggðu ályktun sína um „Vatn fyrir alla“ á fyrir rúmu ári, (sjá hér) þá ber að líta á aðgang að vatni sem grundvallarmannréttindi.  Ekki ber að líta á vatn fyrst og fremst sem verslunarvöru heldur sem menningarleg, félagsleg og  vistfræðileg gæði.

Aðalfundur Kjalar sendur út í gegnum fjarfundarbúnað

22.3.2007

Aðalfundur KJALAR var haldinn í þriðja sinn 20. mars. Fundurinn var sendur út í gegnum fjarfundabúnað frá Akureyri og Siglufirði til sex staða samtímis, þ.e. Dalvík, Skagaströnd, Blönduós, Hvammstangi, og Borgarbyggð,sem er nýlunda. Skýrsla stjórnar, flutt af formanni félagsins Örnu Jakobínu, var send út frá Akureyri, en reikningana kynnti gjaldkerinn Hörður Þór frá Siglufirði.

Sigur í Snæfellsbæ

21.3.2007

Í dag var kveðinn upp dómur í máli sem BSRB höfðaði gegn Snæfellsbæ vegna trúnaðarmanns sem sagt hafði verið upp störfum hjá bænum. Trúnaðarmaðurinn starfaði við íþróttamannvirki sveitarfélagsins og var öllum starfsmönnum sagt upp að sögn vegna endurskipulagningar. Í kjölfarið voru síðan allir endurráðnir nema trúnaðarmaðurinn á staðnum. Dómsniðurstaða varð sú að uppsögnin hafi verið ólögmæt og einnig það að trúnaðarmaðurinn var ekki endurráðinn. Fallist var á að stefndi beri skaðabótaábyrgð gagnvart stefnanda. Að öllum atvikum virtum verður jafnframt talið að með ákvörðunum stefnda hafi verið vegið að æru stefnanda og persónu á þann veg að stefndi hafi fellt á sig skyldu til greiðslu miskabóta. Var krafa stefnanda á hendur stefnda því að öllu leyti tekin til greina.

Niðurstaðan í máli trúnaðarmannsins í Snæfellsbæ mikið fagnaðarefni

21.3.2007

“Við höfum alltaf talið þetta mál vera borðleggjandi og nú hafa dómstólar staðfest að það var rétt mat,” sagði Ögmundur Jónasson formaður BSRB um niðurstöðu héraðsdóms Vesturlands í dag í máli sem BSRB höfðaði gegn Snæfellsbæ vegna trúnaðarmanns sem sagt hafði verið upp störfum hjá bænum.

Mátti stunda nám í veikindaleyfi

16.3.2007

14. mars sl. var kveðinn upp dómur í máli fyrrverandi starfsmanns sambýlis í Garðabæ. Í málinu var aðallega deilt um tvennt. Annars vegar hvort sú ákvörðun stefnda, Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Reykjanesi, að halda eftir launum stefnanda eftir að hann hafði verið frá vegna veikinda hafi verið lögmæt. Hins vegar var tekist á um hvort stefnda hafi verið heimilt með vísun til 19. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins að breyta störfum stefnanda og færa hann til á annan vinnustað á grundvelli meints trúnaðarbrests og í framhaldi af því greiða honum ekki laun á uppsagnarfresti. Héraðsdómur féllst á að stefnandi hefði sannanlega verið í veikindaleyfi frá því í september 2004 þar til hann skilaði inn starfshæfnisvottorði 26. janúar 2005. Það eitt að hann hafi stundað nám að hluta meðan á veikindaleyfi hans stóð þykir ekki breyta því. Hins vegar var talið að stefnda hafi verið heimilt að flytja stefnanda til í starfi. 

Sinfóníuhljómsveit Íslands skylt að fara að stjórnsýslulögum

12.3.2007

Hæstiréttur dæmdi Sinfóníuhljómsveit Íslands til að greiða starfsmanni bætur vegna uppsagnar þar sem honum var ekki gefinn kostur á að tala máli sínu áður en ákvörðun um uppsögn var tekin, svo sem skylt er samkvæmt 13. gr. stjórnsýslulaga um andmælarétt. Dómur Hæstaréttar um ólögmæti uppsagnarinnar og skaðabætur var kveðinn upp 1. mars sl. en starfsmaðurinn er félagsmaður í SFR - stéttarfélagi í almannaþjónustu.

Styrkir vegna fæðingarorlofs opinberra starfsmanna

9.3.2007

Reglum um úthlutun úr Fjölskyldu- og styrktarsjóði BHM, BSRB og KÍ hefur verið breytt þannig að eftir 1. júní verða jafnháar greiðslur til feðra og mæðra úr sjóðnum.

Kvennabaráttan og þróunarríkin - ekkert jafnrétti án öruggs aðgangs að vatni

8.3.2007

Mikilvægur þáttur í baráttunni gegn fátækt og baráttunni fyrir jafnrétti kynjanna í þróunarríkjunum og hinum fátækari ríkjum heims er að tryggja öllum íbúum öruggan og auðveldan aðgang að ómenguðu vatni. Í tengslum við alþjóðlegan baráttudag kvenna 8. mars hvetja alþjóðleg samtök opinberra starfsmanna, með Public Services International (PSI) í broddi fylkingar, ríkisstjórnir heims til að endurnýja heit sín um eitt af þúsaldarmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna sem meiningin er að líti dagsins ljós fyrir árið 2015 – að þá hafi tekist að tengja við vatnsveitur um helming þeirra heimila sem hafa verið ótengd og haft óviðunandi aðgang að vatni. Skortur á hreinu vatni kemur verst niður á konum og börnum. PSI skorar á ríkisstjórnir heims að axla samfélagslega ábyrgð. Málefni er snerta vatn og vatnsveitur eigi að vera á höndum opinberra aðila. Tilraunir til einkavæðingar hafi engan vanda leyst.

Máttur á milli landa - beislum mannauðinn

8.3.2007

Í tilefni alþjóðlegs baráttudags kvenna 8. mars senda ASÍ, BHM, BSRB, KÍ, Kvenréttindafélag Íslands, SÍB, Jafnréttisráð og Jafnréttisstofa frá sér sameiginlegt ávarp með yfirskriftinni Máttur á milli landa - beislum mannauðinn.

33 milljónir til styrkingar mannauðs á árinu

1.3.2007

Bandalög ríkisstarfsmanna hafa náð samkomulagi við fjármálaráðherra um viðbrögð vegna niðurstöðu forsendunefndar á almennum markaði. Forsenduákvæði kjarasamninga ríkisstarfsmanna kváðu á um að sambærilegar breytingar skyldu gilda um þá. Í samkomulaginu, sem fulltrúar fjármálaráðherra, BSRB, BHM og KÍ undirrituðu 15. febrúar, er samið um sérstakt framlag til eflingar mannauðs hjá ríkinu og nemur fjárhæðin 33 milljónum króna á árinu 2007.

Breyttar greiðslur í fæðingarorlofi

1.3.2007

Stjórn Fjölskyldu- og styrktarsjóðs BHM, BSRB og KÍ (FOS) hefur tekið ákvörðun um að breyta þeim reglum sem hafa verið í gildi um greiðslur í fæðingarorlofi. Frá og með 1. júní næstkomandi verður horfið frá tekjutengdum greiðslum til mæðra og þess í stað greiddir fæðingarstyrkir til foreldra. Styrkirnir verða jafnháir til karla og kvenna en hliðsjón höfð af starfshlutfalli.

Trúnaðarmannanámskeið í Munaðarnesi

15.2.2007

Grunnnámskeið fyrir trúnað­armenn í Munaðarnesi dagana 6. og 7. mars. Dagskrá námskeiðsins verður með svipuðu sniði og undanfarin ár. Þátttakendur á námskeiðinu mæta í Munaðarnesi á hádegi þriðjudagsins 6. mars og fer rúta frá BSRB-húsinu, Grettisgötu 89, kl. 10.00. Námskeiðinu lýkur síðdegis 7. mars. Rútan fer frá Munaðarnesi kl. 17.15. Þeir sem hafa áhuga á þátttöku eru beðnir að hafa samband við skrifstofu BSRB, Grettisgötu 89, í síma 525 8300 fyrir 2. mars.

Mikilvægt að ávinningi af lækkun matarskattsins verði ekki „stolið“

15.2.2007

Trúnaðarmannafundur SFR í gær samþykkti ályktun um að afar mikilvægt sé að fylgst sé að fylgst verði vandlega með þróun matvælaverðs í aðdraganda þess að virðisaukaskattur á matvæli lækkar 1. mars nk. Mikilvægt sé að skattabreytingin skili sér í kaupmáttaraukningu launafólks en verði ekki „stolið“ með hækkun á álagningu birgja og kaupmanna.

BSRB 65 ára í dag

14.2.2007


Bandalag starfsmanna ríkis og bæja var stofnað í Reykjavík 14. febrúar árið 1942 og fagnar því 65 ára afmæli sínu í dag. Tilkoma heildarsamtakanna hleypti nýjum krafti í kjarabaráttu opinberra starfsmanna. Þegar á fyrstu starfsárunum náðu BSRB og aðildarfélögin umtalsverðum árangri í réttinda- og kjaramálum. Skýrt dæmi þar um eru lög um lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins frá árinu 1943. Fyrir nýstofnuð samtök var lífeyrissjóðslöggjöfin mikill sigur og sést ef til vill best á því að það var ekki fyrr en aldarfjórðungi síðar að farið var að stofna almenna lífeyrissjóði fyrir launafólk.

Félag áfengisráðgjafa gerist aðili að SFR

9.2.2007

Félag áfengisráðgjafa hefur hlotið aðild að SFR sem deild. Félag áfengisráðgjafa sem stofnað var 1994 hefur starfað sem fagfélag frá stofnfundi en flestir félagsmanna hafa átt stéttarfélagsaðild að SFR og starfað samkvæmt kjarasamningum SFR og vinnuveitenda. Í atkvæðagreiðslu þar sem kosið var um hvort FÁR ætti að gerast sjálfstætt stéttarfélag eða óska eftir því að verða deild innan SFR, var síðari kosturinn valinn með nærri 90 prósentum greiddra atkvæða.

Staða ungmenna af erlendum uppruna á íslenskum vinnumarkaði

9.2.2007

Annar hádegisfyrirlestur Rannsóknastofu í vinnuvernd á þessu ári verður mánudaginn 12. febrúar kl. 12:00 – 13.00 í Háskóla Íslands, Lögbergi stofu 103. Fyrirlesturinn er öllum opinn. Þá mun Anh-Dao Tran, menntunarráðgjafi og verkefnisstjóri Framtíðar í nýju landi halda fyrirlestur sem hún nefnir: Staða ungmenna af erlendum uppruna á íslenskum vinnumarkaði og hlutverk atvinnurekenda.

BSRB færir Verkalýðsfélaginu Hlíf árnaðaróskir á 100 hundrað ára afmæli

5.2.2007


Í gær efndi Verkalýðsfélagið Hlíf í Hafnarfirði til glæsilegs fagnaðar í tilefni þess að liðin eru eitt hundrað ár frá stofnun félagsins. Efnismikil og fjölbreytt dagskrá var á hátíðasamkomunni þar sem áfangar í sögu félagsins voru rifjaðir upp, ávörp flutt og boðið var upp á skemmtiatriði af ýmsum toga. Borð svignuðu undan veitingum. Athygli vekur að stofnendur Hlífar voru af báðum kynjum. Engu að síður varð þróunin sú að samhliða Hlíf þróaðist síðar Verkakvennafélagið Framtíðin. Þessi tvö félög, Framtíðin og Hlíf, sameinuðust síðan í eitt félag – Verkalýðsfélagið Hlíf árið 1999. Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, var viðstaddur hátíðahöldin í gær og færði formanni Hlífar, Kolbeini Gunnarssyni, kveðjur bandalagsins.

Opið trúnaðarmannanámskeið

29.1.2007

Félagsmálaskóli alþýðu heldur opið trúnaðarmannanámskeið vikuna 5. – 9. febrúar.  Námskeiðið verður haldið í húsnæði Mímis – símenntunar, að Skeifunni 8, Reykjavík. Skráning fer fram hjá Mími símenntun í síma 580 1800 og í tölvupósti mimir@mimir.is. Skráningu lýkur 1. febrúar.

Fyrirlestur um þekkingarstjórnun í íslenskum smáfyrirtækjum

19.1.2007

Dr. Ingi Rúnar Eðvarðsson prófessor við Háskólann á Akureyri heldur fyrirlestur í boði Rannsóknastofu í vinnuvernd mánudaginn 22. janúar kl. 16.15 um - þekkingarstjórnun í íslenskum smáfyrirtækjum. Fyrirlesturinn verður í Háskóla Íslands, stofu 301 í Árnagarði.

Réttindi starfsmanna RÚV jafn óviss þrátt fyrir yfirlýsingu útvarpsstjóra segja BSRB og BHM

18.1.2007

BHM og BSRB hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu vegna þeirrar yfirlýsingar sem Páll Magnússon útvarpsstjóri sendi starfsmönnum RÚV í nóvember sl. þar sem hann lýsti því yfir að öll kjör starfsmanna muni haldast óbreytt við breytingu á rekstrarformi Ríkisútvarpsins. BHM og BSRB eru sammála um að þessi yfirlýsing bæti engu við það sem fram kemur í sjálfu frumvarpinu þrátt fyrir ítrekaðar óskir samtakanna um breytingar.

Persónuálag myndar stofn til eftirlauna

17.1.2007

Í desember 2006 var gert samkomulag milli Lífeyrissjóðs starfsmanna Akureyrarbæjar (LSA) og félagsmanns í Kili-stéttarfélagi starfsmanna í almannaþjónustu í tengslum við hæstaréttarmál sem BSRB stóð að.  LSA hafði verið sýknaður af kröfum félagsmannsins fyrir héraðsdómi 25. júlí 2005.

Ráðstefna um áhættumat og forvarnir á vinnustöðum

17.1.2007

Vinnueftirlitið býður til ráðstefnu um áhættumat og forvarnir á vinnustöðum á Grand Hótel þriðjudaginn 23. janúar kl. 13-16. Á ráðstefnunni verða kynnt ný ákvæði reglugerðar nr. 920/2006 um skyldu atvinnurekenda til að gera áætlun um öryggi og heilbrigði á vinnustað. Einnig munu fulltrúar fyrirtækja greina frá reynslu sinni af áhættumati og forvörnum í starfi. Í lokin verða pallborðsumræður með fulltrúum stjórnvalda og fulltrúum atvinnurekenda og launþega. Aðgangur er ókeypis.

Dreifibréf BSRB á vefnum

12.1.2007

Janúartölublað Dreifibréfs BSRB er komið á vefinn. Í Dreifibréfinu er fjallað um þróun eigna og skulda íslenskra heimila, Réttindakerfi lífeyrissjóðanna og Vefnám trúnaðarmanna. Sjá Dreifibréfið

Fjölbreytt námskeið hjá Framvegis

8.1.2007

Námskrá Framvegis, miðstöðvar um símenntun, fyrir vorönn 2007 er nú komin. Að venju er fjölbreytnin mikil og ættu flestir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Námskrána er hægt að nálgast hér.

Uppsagnamálið í Snæfellsbæ ekki enn til lykta leitt

5.1.2007

Ögmundur Jónasson formaður BSRB sagði að BSRB stæði á því fastar en fótunum að uppsagnirnar í Snæfellsbæ sl. sumar hafi verið ólögmætar enda tæki frávísun Hæstaréttar ekkert á lögmæti uppsagnanna heldur vísaði málinu frá á lagatæknilegum forsendum. „Við teljum að fólki hafi verið sagt upp á ómálefnalegum forsendum og eftir stendur að einn starfsmaður, trúnaðarmaður Starfsmannafélags Dala- og Snæfellsnessýslu, hefur ekki verið endurráðinn. Niðurstaða í því grafalvarlega máli fæst vonandi á næstu mánuðum. Þessi mál hafa því ekki verið til lykta leidd.“

Hagstæður dómur fyrir lögreglumenn

4.1.2007

Þann 10. nóvember 2006 féll dómur, lögreglumanni í hag þar sem viðurkennd var greiðsluskylda ríkisins á vangreiddum vöxtum á laun sem greidd voru lögreglumanninum í maí 2004. Lögreglumaðurinn sem höfðaði málið er félagsmaður í Landssambandi lögreglumanna (LL) en BSRB greiddi kostnað vegna reksturs málsins.

Laust í Munaðarnesi um helgina

4.1.2007


Nú er tilvalið að skella sér í Munaðarnes um helgina, njóta veðurblíðunnar. Hvað er unaðslegra eftir hátíðirnar en að liggja í heitum potti og stara upp í stjörnubjartan himin. Hægt er að panta húsin á skrifstofu BSRB í síma 525 8300 eða á netfangið bsrb@bsrb.is

STAK sameinaðist Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar um áramót

3.1.2007

Starfsmannafélag Akraness sameinaðist Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar nú um áramótin. Markmiðið með sameiningunni er að efla samtakamátt og samningsstöðu félaganna og um leið að auka þjónustu til félagsmanna. Talsverður fjöldi félagsmanna STAK starfar hjá Orkuveitu Reykjavíkur og Faxaflóahöfnum sem bæði St.Rv. og STAK hafa samið við.

Um BSRB

Póstlistaskráning


Á döfinni


mansal

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta