Fréttir
Opið trúnaðarmannanámskeið
29.1.2007
Félagsmálaskóli alþýðu heldur opið trúnaðarmannanámskeið vikuna 5. – 9. febrúar. Námskeiðið verður haldið í húsnæði Mímis – símenntunar, að Skeifunni 8, Reykjavík. Skráning fer fram hjá Mími símenntun í síma 580 1800 og í tölvupósti mimir@mimir.is. Skráningu lýkur 1. febrúar.
Fyrirlestur um þekkingarstjórnun í íslenskum smáfyrirtækjum
19.1.2007
Dr. Ingi Rúnar Eðvarðsson prófessor við Háskólann á Akureyri heldur fyrirlestur í boði Rannsóknastofu í vinnuvernd mánudaginn 22. janúar kl. 16.15 um - þekkingarstjórnun í íslenskum smáfyrirtækjum. Fyrirlesturinn verður í Háskóla Íslands, stofu 301 í Árnagarði.
Réttindi starfsmanna RÚV jafn óviss þrátt fyrir yfirlýsingu útvarpsstjóra segja BSRB og BHM
18.1.2007
BHM og BSRB hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu vegna þeirrar yfirlýsingar sem Páll Magnússon útvarpsstjóri sendi starfsmönnum RÚV í nóvember sl. þar sem hann lýsti því yfir að öll kjör starfsmanna muni haldast óbreytt við breytingu á rekstrarformi Ríkisútvarpsins. BHM og BSRB eru sammála um að þessi yfirlýsing bæti engu við það sem fram kemur í sjálfu frumvarpinu þrátt fyrir ítrekaðar óskir samtakanna um breytingar.
Persónuálag myndar stofn til eftirlauna
17.1.2007
Í desember 2006 var gert samkomulag milli Lífeyrissjóðs starfsmanna Akureyrarbæjar (LSA) og félagsmanns í Kili-stéttarfélagi starfsmanna í almannaþjónustu í tengslum við hæstaréttarmál sem BSRB stóð að. LSA hafði verið sýknaður af kröfum félagsmannsins fyrir héraðsdómi 25. júlí 2005.
Ráðstefna um áhættumat og forvarnir á vinnustöðum
17.1.2007
Vinnueftirlitið býður til ráðstefnu um áhættumat og forvarnir á vinnustöðum á Grand Hótel þriðjudaginn 23. janúar kl. 13-16. Á ráðstefnunni verða kynnt ný ákvæði reglugerðar nr. 920/2006 um skyldu atvinnurekenda til að gera áætlun um öryggi og heilbrigði á vinnustað. Einnig munu fulltrúar fyrirtækja greina frá reynslu sinni af áhættumati og forvörnum í starfi. Í lokin verða pallborðsumræður með fulltrúum stjórnvalda og fulltrúum atvinnurekenda og launþega. Aðgangur er ókeypis.
Dreifibréf BSRB á vefnum
12.1.2007
Janúartölublað Dreifibréfs BSRB er komið á vefinn. Í Dreifibréfinu er fjallað um þróun eigna og skulda íslenskra heimila, Réttindakerfi lífeyrissjóðanna og Vefnám trúnaðarmanna. Sjá Dreifibréfið
Fjölbreytt námskeið hjá Framvegis
8.1.2007
Námskrá Framvegis, miðstöðvar um símenntun, fyrir vorönn 2007 er nú komin. Að venju er fjölbreytnin mikil og ættu flestir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Námskrána er hægt að nálgast hér.
Uppsagnamálið í Snæfellsbæ ekki enn til lykta leitt
5.1.2007
Ögmundur Jónasson formaður BSRB sagði að BSRB stæði á því fastar en fótunum að uppsagnirnar í Snæfellsbæ sl. sumar hafi verið ólögmætar enda tæki frávísun Hæstaréttar ekkert á lögmæti uppsagnanna heldur vísaði málinu frá á lagatæknilegum forsendum. „Við teljum að fólki hafi verið sagt upp á ómálefnalegum forsendum og eftir stendur að einn starfsmaður, trúnaðarmaður Starfsmannafélags Dala- og Snæfellsnessýslu, hefur ekki verið endurráðinn. Niðurstaða í því grafalvarlega máli fæst vonandi á næstu mánuðum. Þessi mál hafa því ekki verið til lykta leidd.“
Hagstæður dómur fyrir lögreglumenn
4.1.2007
Þann 10. nóvember 2006 féll dómur, lögreglumanni í hag þar sem viðurkennd var greiðsluskylda ríkisins á vangreiddum vöxtum á laun sem greidd voru lögreglumanninum í maí 2004. Lögreglumaðurinn sem höfðaði málið er félagsmaður í Landssambandi lögreglumanna (LL) en BSRB greiddi kostnað vegna reksturs málsins.
Laust í Munaðarnesi um helgina
4.1.2007

Nú er tilvalið að skella sér í Munaðarnes um helgina, njóta veðurblíðunnar. Hvað er unaðslegra eftir hátíðirnar en að liggja í heitum potti og stara upp í stjörnubjartan himin. Hægt er að panta húsin á skrifstofu BSRB í síma 525 8300 eða á netfangið bsrb@bsrb.is
STAK sameinaðist Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar um áramót
3.1.2007
Starfsmannafélag Akraness sameinaðist Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar nú um áramótin. Markmiðið með sameiningunni er að efla samtakamátt og samningsstöðu félaganna og um leið að auka þjónustu til félagsmanna. Talsverður fjöldi félagsmanna STAK starfar hjá Orkuveitu Reykjavíkur og Faxaflóahöfnum sem bæði St.Rv. og STAK hafa samið við.
Um BSRB
Á döfinni
10. febrúar 2012
23. mars 2012
18. maí 2012
Leit
























