Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

BSRB í hart við LSH vegna samninga við starfsmannaleigur

31.10.2007

BSRB hefur falið lögfræðingi að afla gagna um samninga Landspítalans við starfsmannaleigur en spítalinn hefur varið umtalsverðum fjármunum, eða yfir hundrað milljónum króna það sem af er árinu, í greiðslur til starfsmannaleiga. BSRB óskaði eftir gögnum frá spítalanum vegna þessa og fékk þau en þar var strikað yfir alla hluta samninganna þar sem tímakaup starfsmanna kemur fram.

Borgaryfirvöld ógildi samninga REI og GGE

26.10.2007

Stjórn BSRB skorar á borgaryfirvöld í Reykjavík að ógilda þegar í stað samninga um sameiningu REI og GGE enda ekki rétt að þeim staðið. Auk þess krefst stjórn samtakanna þess að hætt verði við áform um hlutafélagavæðingu Orkuveitu Reykjavíkur og kallar eftir breytingum á lögum sem komi í veg fyrir að einkaaðilar eignist náttúruauðlindir. Þetta er meðal þess sem fram kemur í ályktun sem stjórn BSRB sendi frá sér í dag.

Ofsóknir á hendur verkalýðshreyfingunni aukast

19.10.2007

„Ég hvet íslenska fjölmiðla til þess að beina sjónum að mannréttindamálum í ríkari mæli en þeir gera og þá einnig að stöðu verkalýðshreyfingarinnar ekki síst í þeim löndum þar sem íslenskt „útrásarfólk" er á ferð. Það kann að vera góðra gjalda vert í einhverjum tilvikum að færa út kvíar á Balkanskaga og í Kína, svo dæmi séu tekin. En þá skyldu menn hafa í huga að hagnaður á kostnað mannréttinda er verri en enginn. Slíkur hagnaður á engan rétt á sér. Sú skylda hvílir á talsmönnum Íslands hvar sem þeir fara að halda fána mannréttinda hátt á loft," segir Ögmundur Jónasson formaður BSRB í grein á heimasíðu sinni þar sem fjallað er um árlega skýrslu Alþjóðasambands verkalýðsfélaga (ITUC)  um mannréttindabrot og ofsóknir á hendur verkalýðshreyfingunni í heiminum.

Starfslokanámskeið á höfuðborgarsvæðinu

18.10.2007

Starfslokanámskeið verður haldið í BSRB húsinu 1. hæð Grettisgötu 89, í Reykjavík, dagana 6. 7. og 12. nóvember 2007. Námskeiðið verður frá kl. 16.30 til kl. 19.00 hvert kvöld. Námskeiðið er opið öllum félagsmönnum í BSRB sem búsettir eru á höfuðborgarsvæðinu og mökum þeirra. Námskeiðið er einkum ætlað þeim sem eru að nálgast starfslok eða eru nýlega hættir störfum. Þátttöku þarf að tilkynna fyrir 2. nóvember á skrifstofu BSRB, sími 5258300. Einnig er hægt að skrá sig á netfangið bsrb@bsrb.is . Námskeiðið er frítt fyrir alla félaga í aðildarfélögum BSRB og maka þeirra.

Starfsmannafélag Ólafsfjarðar verður Starfsmannafélag Fjallabyggðar

12.10.2007

Starfsmannafélag Ólafsfjarðar hefur breytt nafni félagsins í Starfsmannafélag Fjallabyggðar. Er það gert í framhaldi af sameiningu sveitarfélaganna á Ólafsfirði og Siglufirði í Sveitarfélagið Fjallabyggð. Heimilisfang félagsins er að Bylgjubyggð 51, Ólafsfirði.

Heimasíða SFR endurbætt

8.10.2007


Heimasíða SFR stéttarfélags í almannaþjónustu tók miklum breytingum um helgina. Við endurskoðun heimasíðunnar var lögð áhersla á að hún yrði læsilegri og því er leturgerðin stærri og meira bil á milli stafa. Þá var síðan breikkuð og hentar hún vel í upplausninni 1024 x 768, en langflestir eru komnir með skjái sem ráða við þessa upplausn. Einnig var útliti vefsins breytt til nútímalegra horfs og allt aðgengi einfaldað.

Félagsmálaráðherra heimsækir BSRB

5.10.2007


Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra heimsótti í dag höfuðstöðvar BSRB í Reykjavík og átti viðræður við hóp forsvarsmanna bandalagsins. Ráðherra fór yfir ýmis þeirra mála sem eru í vinnslu hjá ráðuneytinu og einnig það sem er þar í undirbúningi. Á meðal þess sem rætt var um á fundinum voru húsnæðismál og mikilvægi þess að efla félagslega þætti húsnæðiskerfisins.

Hlustum á varnaðarorð Öryrkjabandalagsins

2.10.2007


Sigursteinn Másson, formaður ÖBÍ, kom í dag á sameiginlegan fund  réttindanefndar og lífeyrisnefndar BSRB til að fjalla um hugmyndir sem fram hafa komið af hálfu ASÍ og SA um svokallaðan áfallatryggingasjóð og nýtt endurhæfingarkerfi fyrir öryrkja. Formaður Öryrkjabandalagsins sagði á fundinum að hér væri í reynd um að ræða nýtt framfærslukerfi til hliðar við almannatryggingakerfið og varaði við því að ef þessar hugmyndir yrðu að veruleika yrði við lýði í landinu kerfi mismununar. Annars vegar væru þeir sem tengdust þeim hluta vinnumarkaðarins sem aðild ættu að þessu fyrirkomulagi og síðan hinir sem þar stæðu fyrir utan.

Trúnaðarmannanámskeið í Munaðarnesi

1.10.2007

Trúnaðarmannanámskeið verður haldið í Munaðarnesi dagana 10. og 11. október.  Dagskrá námskeiðsins verður með svipuðu sniði og undanfarin ár. Þátttakendur á námskeiðinu mæta í Munaðarnesi á hádegi miðvikudaginn 10. október og fer rúta frá BSRB-húsinu, Grettisgötu 89, kl. 10.00. Námskeiðinu lýkur síðdegis 11. október. Rútan fer frá Munaðarnesi kl. 17.15. Þeir sem hafa áhuga á þátttöku eru beðnir að hafa samband við skrifstofu BSRB, Grettisgötu 89, í síma 525 8300 fyrir 8. október.

Um BSRB

Póstlistaskráning


Á döfinni


Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta