Fréttir
Dagar LN eru taldir, segir formaður STFS
30.11.2007
Ragnar Örn pétursson formaður Starfsmannafélags Suðurnesja telur að dagar Launanefndar sveitafélaga séu taldir þar sem komið hafi í ljós að láglaunastefna nefndarinnar sé ekki að virka. Hvetur hann sveitarfélög á Suðurnesjum að feta í fótspor sveitarfélaga á höfðuborgarsvæðinu sem hafa hækkað mánaðarlegar eingreiðslur til þeirra starfsmanna sem hafa lægst laun. Þetta kemur fram í viðtalivið Ragnar Örn sem birtist í Víkurfréttum í gær. Viðtalið fer hér á eftir.
Formannaskipti hjá Landssambandi slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna
26.11.2007
Starfsmenntaverðlaun Starfsmenntaráðs 2007 afhent í BSRB húsinu
26.11.2007

Frá verðlaunaafhendingunni: Gissur Pétursson forstjóri Vinnumálastofnunar, Guðjónína Sæmundsdóttir frá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum, Una Eyþórsdóttir og Jón Karl Ólafsson frá Icelandair, Þórunn H. Sveinbjörnsdóttir og forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson.
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti Starfsmenntaverðlaun Starfsmenntaráðs í BSRB húsinu sl. föstudag 23. nóvember. Verðlaunin eru þrískipt og eru veitt fyrirtæki, skóla og einstaklingi fyrir að skara fram úr í fræðslumálum fullorðinna. Vinningshafar voru:Í flokki fyrirtækja og félagasamtaka: Icelandair fyrir öfluga þjálfun og símenntun starfsmanna sinna. Í flokki skóla og fræðsluaðila: Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum fyrir frumkvöðlastarf í fullorðinsfræðslu hér á landi. Í opnum flokki: Þórunn H. Sveinbjörnsdóttir, fyrrum varaformaður Eflingar fyrir að fara nýjar leiðir í fullorðinsfræðslu.
Könnun á kjörum félagsmanna BSRB
19.11.2007
Ný heimasíða Félagsmálasskóla alþýðu
19.11.2007
Krafa um verulegar kjarabætur í komandi samningum
16.11.2007

Ögmundur Jónasson formaður BSRB sagði á aðalfundi bandalagsins í dag þegar hann mælti fyrir ályktun fundarins að menn yrðu að opna augu fyrir þeim alvarlega vanda sem blasti við innan almannaþjónustunnar. Víða væri orðið erfitt að manna störf og færi ástandið hríðversnandi. „Ef ekkert verður að gert blasir við neyðarástand. Það er á ábyrgð viðsemjenda okkar að semja um stórbætt kjör í komandi kjarasamningum enda sýna kannanir að starfsmenn innan almannaþjónustunnar eru að dragast verulega aftur úr í launum. Ef starfsfólki innan almannaþjónustunnar verður ekki greitt kaup og búið að því eins og best gerist á launamarkaði horfir þar hreinlega til landauðnar á mikilvægu sviðum velferðarþjónustunnar." Í ályktun BSRB er sett fram krafa um verulegar kjarabætur auk þess sem lögð er áhersla á að taka verði mið af þörfum fjölskyldunnar þegar samið er um kaup, vinnutíma og önnur kjör.
Jólahlaðborð Kaffi Paradísar í Munaðarnesi
12.11.2007
Kaffi Paradís í Munaðarnesi verður með glæsilegt jólahlaðborð laugardaginn 1. desember, föstudaginn 7. desember og laugardaginn 8. desember. Lifandi tónlist meðan á borðhaldi stendur og hljómsveitin Gammel dansk leikur fyrir dansi. Þetta er tilvalið tækifæri fyrir fjölskyldur og hópa til að leigja sér hús í Munaðarnesi þessar helgar og njóta jólahlaðborðsins hjá Kaffi Paradís. Hægt er að panta hús á skrifstofu BSRB í síma 525 8300 eða á netfanginu bsrb@bsrb.is
Heil og sæl í vinnunni
8.11.2007
„Heil og sæl í vinnunni" er yfirskrift heilsueflingarverkefnist á vegum Vinnueftirlits ríkisins. Í Evrópu nefnist það „Move Europe". Verkefnið kemur frá evrópska samstarfsnetinu um heilsueflingu á vinnustöðum og kallast „Move Europe". Vinnueftirlitið hefur umsjón með verkefninu hérlendis í nánu samstarfi við Lýðheilsustöð. Markmið verkefnisins er að auka vitund innan vinnustaða á mikilvægi þess að efla heilsu og forvarnir. Verkefninu er um leið ætlað að hvetja til aðgerða þegar kemur að heilsueflingu á vinnustöðum og með því auka heilbrigði starfsmanna. Bætt heilsufar starfsmanna hefur í för með sér margs konar hagræðingu fyrir vinnustaði. Lögð verður sérstök áhersla á eftirfarandi þætti: hreyfingu, næringu, tóbaksvarnir, áfengis- og vímuvarnir sem og streitu og andlega líðan.
Fræðsluvefur um lífeyrismál opnaður
1.11.2007
Mánudaginn 29. október s.l opnaði Árni Mathiesen, fjármálaráðherra, nýjan fræðsluvef Landssamtaka lífeyrissjóða um lífeyrismál. Vefslóðin er www.gottadvita.is Á heimasíðum flestra lífeyrissjóða er hnappur sem hægt er að smella á til að færast á fræðsluvefinn.
Um BSRB
Á döfinni
Leit
























