Fréttir
Jólafjör á Hótel Sögu
27.12.2007

Hátt í 300 manns mættu á jólaball SFR og Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar sem haldið var í Súlnasal Hótel Sögu í dag. Hljómsveit hússins stýrði fjörinu og naut dyggrar aðstoðar frískra barna sem sungu og dönsuðu af krafti. Hápunktur skemmtunarinnar var svo að sjálfsögðu þegar jólasveinarnir birtust og tóku á svipstundu öll völd í sínar hendur.
Draga þarf stórlega úr kjaramisréttinu
13.12.2007
"Í kjarasamningum sem gerðir verða á næstu mánuðum og misserum er nauðsynlegt að hafa í huga mikilvægi þess að draga stórlega úr kjaramisréttinu í samfélaginu. Misréttið verður að sjálfsögðu ekki upprætt í kjarasamningum einvörðungu. Í slíkum samningum er hins vegar hægt að leggja lóð sín á vogarskál aukins réttlætis á vinnumarkaði. Það má gera með því að bæta stórlega kjör láglauna- og millitekjuhópa," segir m.a. í grein eftir Þuríði Einarsdóttur formann Póstmannafélags Íslands og Ögmund Jónasson formann BSRB sem birtist í Morgunblaðinu í dag.
Karlar eiga nú jafnan rétt á við konur í fæðingarorlofi
11.12.2007
Reglum um greiðslur Fjölskyldu- og styrktarsjóðs BHM, BSRB og KÍ (FOS) í fæðingarorlofi var breytt 1. júní sl. Þá var horfið frá tekjutengdum greiðslum til mæðra og þess í stað greiddir fæðingarstyrkir til foreldra. Styrkirnir eru jafnháir til karla og kvenna en hliðsjón höfð af starfshlutfalli. Breytingin varðar foreldra barna sem fæðst hafa eftir 1. júní. Í dag er greiðsla miðað við 100% starf 170 þúsund krónur. Í gildi verður að vera ráðningarsamningur við upphaf fæðingarorlofs. Hægt er að nálgast umsóknareyðublöð á heimasíðu sjóðsins http://www.fos.is/
Stórbæta þarf kjör innan almannaþjónustunnar
11.12.2007
Rétta þarf hlut almannaþjónustunnar
9.12.2007
Samkomulag um Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna undirritað
7.12.2007

Í hádeginu í dag var undirritað samkomulag um rekstur Ráðgjafarstofu um fjárhag heimilanna til næstu fimm ára, eða til 31. desember 2012. Alls eru það 16 aðilar sem standa að rekstri Ráðgjafarstofunnar en það eru: félagsmálaráðuneytið, Íbúðalánasjóður, Reykjavíkurborg, Kaupþing, Glitnir, Landsbanki Íslands, Samband íslenskra sparisjóða, Samband íslenskra sveitarfélaga, Þjóðkirkjan, Landssamtök lífeyrissjóða, ASÍ, BSRB, BHM, Rauði kross Íslands, Kópavogsbær og Kreditkort. Þessir aðilar hafa allir staðið að rekstri Ráðgjafarstofunnar undanfarin ár fyrir utan Kreditkort sem er nýr aðili að samkomulaginu. Kreditkort hefur þó verið styrktaraðili Ráðgjafarstofunnar til margra ára.
Sjúkraliðar krefjast róttækra umbóta á heilbrigðisstofnunum
5.12.2007
Um BSRB
Á döfinni
Leit
























