22.3.2007

Sameinuðu þjóðirnar hafa ákveðið að nota alþjóðlegan dag vatnsins, 22. mars, til að vekja athygli á
skorti á vatni í heiminum. Hér er um að ræða eitt helsta vandamál mannkynsins í dag en á síðustu árum hefur ásókn í vatn aukist tvöfalt hraðar en fólki í heiminum hefur fjölgað. Með því að vekja athygli á vatnsskorti vilja Sameinuðu þjóðirnar um leið vekja athygli á nauðsyn samvinnu og að alhliða aðferðafræði sé beitt við lausn vatnsvandans, hvort sem heima fyrir eða á alþjóðavísu. Ekki verði litið fram hjá þáttum eins og jafnrétti og réttindum, menningu og siðrænum álitaefnum. Eins og Sameinuðu þjóðirnar hafa áður áréttað og 14 samtök hér á Íslandi byggðu ályktun sína um
„Vatn fyrir alla“ á fyrir rúmu ári, (
sjá hér) þá ber að líta á aðgang að vatni sem grundvallarmannréttindi. Ekki ber að líta á vatn fyrst og fremst sem verslunarvöru heldur sem menningarleg, félagsleg og vistfræðileg gæði.
22.3.2007
Aðalfundur KJALAR var haldinn í þriðja sinn 20. mars. Fundurinn var sendur út í gegnum fjarfundabúnað frá Akureyri og Siglufirði til sex staða samtímis, þ.e. Dalvík, Skagaströnd, Blönduós, Hvammstangi, og Borgarbyggð,sem er nýlunda. Skýrsla stjórnar, flutt af formanni félagsins Örnu Jakobínu, var send út frá Akureyri, en reikningana kynnti gjaldkerinn Hörður Þór frá Siglufirði.
21.3.2007
Í dag var kveðinn upp dómur í máli sem BSRB höfðaði gegn Snæfellsbæ vegna trúnaðarmanns sem sagt hafði verið upp störfum hjá bænum. Trúnaðarmaðurinn starfaði við íþróttamannvirki sveitarfélagsins og var öllum starfsmönnum sagt upp að sögn vegna endurskipulagningar. Í kjölfarið voru síðan allir endurráðnir nema trúnaðarmaðurinn á staðnum. Dómsniðurstaða varð sú að uppsögnin hafi verið ólögmæt og einnig það að trúnaðarmaðurinn var ekki endurráðinn. Fallist var á að stefndi beri skaðabótaábyrgð gagnvart stefnanda. Að öllum atvikum virtum verður jafnframt talið að með ákvörðunum stefnda hafi verið vegið að æru stefnanda og persónu á þann veg að stefndi hafi fellt á sig skyldu til greiðslu miskabóta. Var krafa stefnanda á hendur stefnda því að öllu leyti tekin til greina.
21.3.2007
“Við höfum alltaf talið þetta mál vera borðleggjandi og nú hafa dómstólar staðfest að það var rétt mat,” sagði Ögmundur Jónasson formaður BSRB um niðurstöðu héraðsdóms Vesturlands í dag í máli sem BSRB höfðaði gegn Snæfellsbæ vegna trúnaðarmanns sem sagt hafði verið upp störfum hjá bænum.
16.3.2007
14. mars sl. var kveðinn upp dómur í máli fyrrverandi starfsmanns sambýlis í Garðabæ. Í málinu var aðallega deilt um tvennt. Annars vegar hvort sú ákvörðun stefnda, Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Reykjanesi, að halda eftir launum stefnanda eftir að hann hafði verið frá vegna veikinda hafi verið lögmæt. Hins vegar var tekist á um hvort stefnda hafi verið heimilt með vísun til 19. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins að breyta störfum stefnanda og færa hann til á annan vinnustað á grundvelli meints trúnaðarbrests og í framhaldi af því greiða honum ekki laun á uppsagnarfresti. Héraðsdómur féllst á að stefnandi hefði sannanlega verið í veikindaleyfi frá því í september 2004 þar til hann skilaði inn starfshæfnisvottorði 26. janúar 2005. Það eitt að hann hafi stundað nám að hluta meðan á veikindaleyfi hans stóð þykir ekki breyta því. Hins vegar var talið að stefnda hafi verið heimilt að flytja stefnanda til í starfi.
12.3.2007
Hæstiréttur dæmdi Sinfóníuhljómsveit Íslands til að greiða starfsmanni bætur vegna uppsagnar þar sem honum var ekki gefinn kostur á að tala máli sínu áður en ákvörðun um uppsögn var tekin, svo sem skylt er samkvæmt 13. gr. stjórnsýslulaga um andmælarétt. Dómur Hæstaréttar um ólögmæti uppsagnarinnar og skaðabætur var kveðinn upp 1. mars sl. en starfsmaðurinn er félagsmaður í SFR - stéttarfélagi í almannaþjónustu.
9.3.2007
Reglum um úthlutun úr Fjölskyldu- og styrktarsjóði BHM, BSRB og KÍ hefur verið breytt þannig að eftir 1. júní verða jafnháar greiðslur til feðra og mæðra úr sjóðnum.
8.3.2007
Mikilvægur þáttur í baráttunni gegn fátækt og baráttunni fyrir jafnrétti kynjanna í þróunarríkjunum og hinum fátækari ríkjum heims er að tryggja öllum íbúum öruggan og auðveldan aðgang að ómenguðu vatni. Í tengslum við alþjóðlegan baráttudag kvenna 8. mars hvetja alþjóðleg samtök opinberra starfsmanna, með Public Services International (PSI) í broddi fylkingar, ríkisstjórnir heims til að endurnýja heit sín um eitt af þúsaldarmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna sem meiningin er að líti dagsins ljós fyrir árið 2015 – að þá hafi tekist að tengja við vatnsveitur um helming þeirra heimila sem hafa verið ótengd og haft óviðunandi aðgang að vatni. Skortur á hreinu vatni kemur verst niður á konum og börnum. PSI skorar á ríkisstjórnir heims að axla samfélagslega ábyrgð. Málefni er snerta vatn og vatnsveitur eigi að vera á höndum opinberra aðila. Tilraunir til einkavæðingar hafi engan vanda leyst.
8.3.2007
Í tilefni alþjóðlegs baráttudags kvenna 8. mars senda ASÍ, BHM, BSRB, KÍ, Kvenréttindafélag Íslands, SÍB, Jafnréttisráð og Jafnréttisstofa frá sér sameiginlegt ávarp með yfirskriftinni Máttur á milli landa - beislum mannauðinn.
1.3.2007
Bandalög ríkisstarfsmanna hafa náð samkomulagi við fjármálaráðherra um viðbrögð vegna niðurstöðu forsendunefndar á almennum markaði. Forsenduákvæði kjarasamninga ríkisstarfsmanna kváðu á um að sambærilegar breytingar skyldu gilda um þá. Í samkomulaginu, sem fulltrúar fjármálaráðherra, BSRB, BHM og KÍ undirrituðu 15. febrúar, er samið um sérstakt framlag til eflingar mannauðs hjá ríkinu og nemur fjárhæðin 33 milljónum króna á árinu 2007.
1.3.2007
Stjórn Fjölskyldu- og styrktarsjóðs BHM, BSRB og KÍ (FOS) hefur tekið ákvörðun um að breyta þeim reglum sem hafa verið í gildi um greiðslur í fæðingarorlofi. Frá og með 1. júní næstkomandi verður horfið frá tekjutengdum greiðslum til mæðra og þess í stað greiddir fæðingarstyrkir til foreldra. Styrkirnir verða jafnháir til karla og kvenna en hliðsjón höfð af starfshlutfalli.