Fréttir
Kröftugt heimsţing PSI
28.9.2007

Fulltrúar BSRB á heimsþingi PSI. F.v.: Þuríður Einarsdóttir, Anna Atladóttir, Páll H. Hannesson, Árni Stefán Jónsson, Kristín Á. Guðmundsdóttir, Ögmundur Jónasson, Vernharð Guðnason og Þórarinn Eyfjörð.
„Þetta hefur verið mjög kröftugt þing og það segir sig sjálft að þegar fólk kemur saman úr öllum heimshornum þá beinast sjónir manna helst að þeim sem eiga við mikið andstreymi að stríða," sagði Ögmundur Jónasson formaður BSRB um heimsþing PSI, alþjóðasamtaka launafólks í almannaþjónustu. Þinginu lýkur í dag í Vínarborg.
Afleiđingar einkavćđingar verđi rannsakađar
27.9.2007

Ögmundur Jónasson formaður BSRB hvatti til þess í ræðu sem hann flutti á heimsþingi PSI, Samtaka launafólks i almannaþjónustu, að auknum kröftum og fjármagni verði varið, á vegum samtakanna til að rannsaka afleiðingar markaðs- og einkavæðingar grunnþjónustu samfélagsins. Nú væri komin reynsla af einkavæðingu undangenginna ára og tími til að vega og meta árangurinn. Mikilvægt væri að ríkisstjórnir og sveitarstjórnir gerðu sér grein fyrir því hvaða afleiðingar það hefði í för með sér þegar haldið væri út á braut einkavæðingar: „Við verðum að koma staðreyndum í þessum efnum á framfæri við heimsbyggðina og fylgja málflutningi okkar eftir á afgerandi hátt svo allir geri sér grein fyrir því að barátta okkar er í þágu allra." Ögmundur hefur setið í stjórn PSI undanfarið kjörtímabil og er í framboði til stjórnar PSI að nýju.
28. ţing Alţjóđasamtaka starfsmanna í almannaţjónustu
25.9.2007

Fulltrúar BSRB á þinginu. F.v. Árni Stefán Jónsson, Þuríður Einarsdóttir og Ögmundur Jónasson.
28. þing Alþjóðasamtaka starfsmanna í almannaþjónustu, Public Services International, hófst í Vínarborg í gær, 24. september. Samtökin fagna 100 ára afmæli sínu um þessar mundir. Þingið stendur til 28. september. Á þinginu eru komnir saman 1500 fulltrúar frá öllum heimshornum og eru fulltrúar BSRB þar á þeðal.
Vika símenntunar
21.9.2007

Vika símenntunar verður haldin 24.-30. september 2007. Markmið viku símenntunar er að auka símenntun í atvinnulífinu og hvetja fólk til að leita sér þekkingar alla ævi. Í viku símenntunar 2007 er lögð áhersla á að ná til þeirra sem hafa litla formlega menntun og hvatt til þess að huga sérstaklega að læsi og lestrarörðugleikum á vinnustað. Miðvikudagurinn 26. september er árlegur símenntunardagur í fyrirtækjum og stofnunum.
Endurskođun á sí- og endurmenntun á vegum BSRB
21.9.2007
Starfshópur á vegum stjórnar BSRB sem unnið hefur að endurskoðun á sí- og endurmenntunarmálum á vegum BSRB hefur skilað af sér áfangaskýrslu. Í skýrslunni eru lagðar fram tillögur í sjö liðum. Meðal þess sem lagt er til er að kannað verði nánara samstarf við ASÍ um fræðslumál en samtökin starfa þegar saman að slíkum málum á vettvangi Félagsmálaskóla alþýðu. Þá er lagt til að þessi samtök skoði að fara fram með sameiginlegar kröfur gagnvart stjórnvöldum í komandi kjarasamningum varðandi löggjöf um fullorðinsfræðslu og verulega fjármuni til hennar.
Sláandi niđurstöđur launakönnunar SFR
18.9.2007
Samflotinu veitt fullnađarumbođ til samninga
14.9.2007
Öll félögin sem mynda Samflot starfsmannafélaga sveitarfélaga, fyrir utan Starfsmannafélag Kópavogs, ákváðu á fundi í dag að veita samflotinu fullnaðarumboð til samninga og að félögin munu greiða atkvæði í einu lagi um verðandi kjarasamning við Launanefnd sveitarfélaga. Samningur um þetta var undirritaður á fundi á Hótel Selfoss í dag.
Tilbođ til BSRB félaga á Abbababb
11.9.2007
Kynbundinn launamunur mikill hjá félagsmönnum SFR
10.9.2007
Vika símenntunar
5.9.2007

Vika símenntunar verður haldin 24.-30. september 2007. Markmið viku símenntunar er að auka símenntun í atvinnulífinu og hvetja fólk til að leita sér þekkingar alla ævi. Í viku símenntunar 2007 er lögð áhersla á að ná til þeirra sem hafa litla formlega menntun og hvatt til þess að huga sérstaklega að læsi og lestrarörðugleikum á vinnustað.
Námsframbođ Félagsmálaskólans á haustönn
5.9.2007
Námsskrá Félagsmálaskóla alþýðu fyrir haustönn 2007 er nú tilbúin. Boðið er upp á ýmis námskeið sem gagnast launafólki í lífi og starfi. Annars vegar er um að ræða styttri námskeið sem eru eina dagstund og hins vegar tveggja daga námskeið. Meðal þess sem í boði er eru námskeið um jafnrétti og námshvatningu á vinnustað, námskeið um samningatækni, undirbúning kjarasamninga og lífið í Karphúsinu. Þá er í boði námskeið í ensku talmáli auk grunn- og framhaldsnámskeiðs fyrir trúnaðarmenn.
Um BSRB
Á döfinni
Leit

























