Fréttir
Blóđsúthellingunum á Gaza mótmćlt
30.12.2008
Útifundur til að mótmæla blóðsúthellingunum á Gaza verður haldinn á Lækjartorgi í dag, þriðjudag 30. desember kl. 16. Kröfur dagsins eru: Stöðvið fjöldamorð Ísraelshers á Gaza. Slítum stjórnmálasambandi við Ísrael. Meðal ræðumanna er Ögmundur Jónasson formaður BSRB og fundarstjóri er Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ.
FÍF lítur svo á ađ flugumferđarstjórar í Keflavík verđi starfsmenn Flugstođa
22.12.2008
"Stjórn Félags íslenskra flugumferðarstjóra undrast að Kristján L. Möller samgönguráðherra skuli tilkynna fyrirvaralaust, án nokkurs samráðs við starfsfólk sem hlut á að máli, að ekkert verði af fyrirhuguðum flutningi flugleiðsöguþjónustu á Keflavíkurflugvelli til Flugstoða ohf. núna um áramótin," segir m.a. í yfirlýsingu frá félaginu.
Sjúkraliđar semja viđ LN
19.12.2008
Útifundur á Selfossi í hádeginu
18.12.2008
Kjölur samţykkti kjarasamning viđ Norđurorku
18.12.2008
Félagsmenn í Kili samþykktu kjarasamning við SA vegna Norðurorku. Á kjörskrá voru 23 og var full þátttaka í atkvæðagreiðslunni. 22 sögðu já en einn greiddi atkvæði á móti.
Garđbćingar samţykkja kjarasamning
18.12.2008
Einungis einn greiddi atkvæði gegn kjarasamningi Starfsmannafélags Garðabæjar við Launanefnd sveitarfélaga. Samningurinn var því samþykktur með 98,7% atkvæða.
Starfsmannafélag Suđurnesja samţykkti samning viđ LN
17.12.2008
Samiđ viđ Norđurorku
16.12.2008
Alhjúkrun ehf. dćmt til ađ greiđa samkvćmt kjarasamningum
16.12.2008
Réttur almennings til ađ mótmćla er ótvírćđur
16.12.2008
"Réttur almennings til að mótmæla er ótvíræður og sýnir stjórn BSRB þeim mótmælum sem fram hafa farið að undanförnu mikinn skilning. Brotið hefur verið á almenningi og reiði fólks er mikil," segir í ályktun sem stjórn BSRB hefur sent frá sér.
Rćtt um vistvćnar fjárfestingar viđ lífeyrissjóđi
15.12.2008
Forsvarsmenn nokkurra lífeyrissjóða áttu í gær fund með Paul Hawken og John Picard, kunnum bandarískum sérfræðingum í umhverfisvernd og sjálfbærri þróun. Þeir hvetja lífeyrissjóði til að beina fjárfestingum sínum í starfsemi þar sem sjálfbær þróun er höfð að leiðarljósi.
Tekjutengdar lífeyrisgreiđslur Íslendinga erlendis miđađar viđ gengi janúar 2008
15.12.2008
Starfsmannafélag Kópavogs hefur samţykkt kjarasamning viđ LN
15.12.2008
KJÖLUR samţykkti samninginn viđ LN
15.12.2008
FOSS samţykkir kjarasamning
15.12.2008
Félag opinberra starfsmanna á Suðurlandi hefur samþykkt kjarasamning Samflotsins við Launanefnd sveitarfélaga með 93% greiddra atkvæða.
Ólöglegt ađ skerđa kjarasamningsbundin kjör
12.12.2008
Lokun hjúkrunardeildarinnar í Seli mótmćlt
12.12.2008
Stjórnir KJALAR stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu og Sjúkraliðafélags Íslands hafa sent frá sér ályktanir þar sem lokun hjúkrunardeildarinnar í Seli á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri er mótmælt.
Kjarasamningum fagnađ
12.12.2008
Fulltrúaráð Starfsmannafélags Reykjavíkur samþykkti í gær ályktun þar sem nýgerðum kjarasamningum og áformum um að aðilar vinnumarkaðarins setjist saman að samningsborði er fagnað.
Atvinnuleysistryggingasjóđur tćmist nćsta haust
11.12.2008
Atvinnuleysis-tryggingasjóður tæmist í október á næsta ári gangi spár Vinnumálastofnunar eftir. Þetta kom fram í erindi Gissurar Péturssonar forstjóra Vinnimálastofnunar á opnum fundi sem BSRB hélt í gær. Auk Gissurar flutti Gylfi Dalmann dósent við Háskóla Íslands erindi um íslenska vinnumarkaðinn.
NORDFAG gagnrýnir uppsagnir á RÚV
10.12.2008
NORDFAG, samtök stéttarfélaga almannaútvarpsstöðva á Norðurlöndunum, lýsa vonbrigðum, undrun og reiði yfir að stjórnvöld á Íslandi hafi grafið undan fjárhagslegum grundvelli RÚV með mjög alvarlegum afleiðingum fyrir íslenskt samfélag, samstarfsaðila RÚV og fyrir RÚV að starfa á sem hagkvæmastan hátt. Þetta kemur fram í opinberu bréfi frá samtökunum til Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur menntamálaráðherra.
Vinnumarkađurinn og atvinnuhorfur framundan
9.12.2008
BSRB varar viđ einhliđa launalćkkunum og vill endurskođun vísitölugrunns lána
8.12.2008
Starfsmannafélag Kópavogs semur viđ LN
5.12.2008
Stjórn Starfsmannafélags Kópavogs skrifaði í gær undir nýjan kjarasamning við Launanefnd sveitarfélaga.
Samningurinn felur í sér framlengingu og breytingu á eldri samningi og er byggður á sama grunni og önnur starfsmannafélög hafa verið að skrifa undir við Launanefnd sveitarfélaga.
Framhaldsađalfundur BSRB á mánudag
5.12.2008
Hvert stefnir í efnahagsmálum ţjóđarinnar?
4.12.2008
Opinn fundur BSRB um framtíðarþróun efnahagsmála á Íslandi var afar fróðlegur. Gylfi Zoëga prófessor við Háskóla Íslands og Jón Þór Sturluson aðstoðarmaður viðskiptaráðherra ræddu aðdraganda kreppunnar og þá kosti sem væru í stöðunni til að vinna sig út úr henni en þar skiptir peningastefnan höfuðmáli.
Framtíđin - međ eđa án krónu
4.12.2008

Opinn fundur verður á vegum BSRB í dag kl. 16:00 - 17:30 í BSRB - húsinu Grettisgötu 89. Yfirskrift fundarins er Framtíðin - með eða án krónu. Framsögu hafa Gylfi Zoëga prófessor við Háskóla Íslands og Jón Þór Sturluson aðstoðarmaður viðskiptaráðherra.
St.Rv. semur viđ LN vegna félagsmanna á Akranesi
3.12.2008
Starfsmannafélag Reykjavíkur undirritaði kjarasamning við LN í gær vegna félagsmanna á Akranesi. Gildistími samningsins er 1. des. 2008 til 31. ágúst 2009 með fyrirvara, sbr. yfirlýsingu sem fylgir samningnum. Ný launatafla tekur gildi frá.1. desember 2008 og samkvæmt henni hækka launataxtar um 20.300 krónur.
Starfsmannafélag Suđurnesja semur viđ LN
3.12.2008
Landssamband lögreglumanna 40 ára
2.12.2008
Landssamband lögreglumanna var stofnað 1. desember 1968 og varð því 40 ára í gær. Í tilefni dagsins var haldinn hátíðar stjórnarfundur og var Mæðrastyrksnefnd afhentur styrkur upp á 709.000 krónur frá Líknar- og hjálparsjóði Landssambandsins. Það samsvarar 1000 kr. frá hverjum starfandi lögreglumanni í landinu.
Samiđ viđ sveitarfélögin
1.12.2008
Samflotið og Kjölur gengu frá kjarasamningi við Launanefnd sveitarfélaga á laugardag og Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar samdi sama dag við samninganefnd borgarinnar. Samningar þessara aðila eru mjög áþekkir. Gildistími samningsins er 1. desember 2008 til 31. ágúst 2009 með fyrirvara, sbr. yfirlýsingu sem fylgir samningnum. Ný launatafla tekur gildi frá.1. desember 2008 og samkvæmt henni hækka launataxtar um 20.300 krónur. Samningur Starfsmannafélags Reykjavíkur gildir hins vegar frá 1. nóvember.
Mćđrastyrksnefnd styrkt
28.11.2008
Ögmundur Jónasson afhenti í dag Ragnhildi Guðmundsdóttur formanni Mæðrastyrksnefndar og Margréti K. Sigurðardóttur fjármálastjóra nefndarinnar styrk frá BSRB. Þá afhenti Árni Stefán Jónsson formaður SFR styrk frá félaginu og Sigurður Ingi Georgsson styrk frá Félagi umsjónarmanna hjá ríkisstofnunum.
Fróđlegur og upplýsandi fundur
26.11.2008
Fundur BSRB með fulltrúum viðskiptabankanna var mjög fróðlegur og upplýsandi um það hvernig bankarnir hyggjast bregðast við greiðsluvanda viðskiptavina sinna vegna efnahagsástandsins í landinu. Yfirskrift fundarins var „Hvað gerir bankinn fyrir þig?" og bentu frummælendur á þau úrræði sem í boði eru og fyrirhuguð eru á næstunni.
Hvađ gerir bankinn fyrir ţig?
25.11.2008
Lokun öldrunardeildarinnar Sels á FSA mótmćlt
25.11.2008
Starfsmenn Fjórðungssjúkrahúss Akureyrar mótmæla harðlega lokun öldrunardeildarinnar Sels á sjúkrahúsinu. Starfsmenn deildarinnar héldu fund í gær, 24. nóvember, og samþykkti fundurinn ályktun þar sem skorað er á stjórnendur FSA að draga ákvörðunina til baka.
Fjölmenni á velheppnuđum útifundi á Ingólfstorgi
24.11.2008
Fjölmenni sótti útifund BSRB, Félags eldri borgara í Reykjavík, Landssamtakanna Þroskahjálpar og Öryrkjabandalags Íslands, á Ingólfstorgi síðdegis í dag. Á fundinum var samþykkt ályktun þar sem skorað er á stjórnvöld að beita öllum tiltækum ráðum til að verja velferðarkerfið sem byggt hefur verið upp af almenningi á undanförnum áratugum. Þegar kreppi að í samfélaginu sé mikilvægt að beita velferðarkerfinu til jöfnunar. Áralangri baráttu fyrir réttlátu þjóðfélagi megi ekki kasta á glæ.
Samstöđufundur á Ingólfstorgi - Verjum velferđina!
21.11.2008
BSRB, Félag eldri borgara í Reykjavík, Landssamtökin Þroskahjálp og Öryrkjabandalag Íslands standa fyrir útifundi á Ingólfstorgi mánudaginn 24. nóvember nk. kl. 16:30. Tilefni fundarins er óvissuástandið í efnahagsmálum þjóðarinnar, kjaraskerðing sem nú þegar blasir við mörgum og síðast en ekki síst hugmyndir stjórnvalda um stórkostlegan niðurskurð á útgjöldum til velferðar.
BSRB mótmćlir ađför ađ velferđarţjónustunni
21.11.2008
BSRB vill vaxtalćkkun og endurskođun á vísitölugrunni
21.11.2008
Líflegur fundur um kosti og galla verđtryggingar
20.11.2008
Opinn fundur BSRB um kosti og galla verðtryggingar var vel sóttur og sköpuðu erindi Ingólfs H. Ingólfssonar félagsfræðings og Péturs H. Blöndal alþingismanns líflegar umræður.
Verđtrygging til góđs eđa ills?
20.11.2008

Opinn fundur verður haldinn á vegum BSRB í dag, fimmtudaginn 20. nóvember, kl. 16:30 - 18:00 í BSRB - húsinu Grettisgötu 89. Á fundinum verður fjallað um kosti og galla verðtryggingar og hvort æskilegt sé að afnema hana tímabundið eða til langframa. Framsögu hafa Ingólfur H. Ingólfsson félagsfræðingur og Pétur H. Blöndal alþingismaður. Fundarstjóri er Helga Jónsdóttir framkvæmdastjóri BSRB .
Samiđ verđi strax viđ Samflotiđ
20.11.2008
Samiđ viđ Hitaveitu Suđurnesja
20.11.2008
Félagsmenn fá tveggja launaflokkahækkun frá 1. nóvember s.l. og 21.000 króna eingreiðslu. Þá hækkar desemberuppbót í 67.500
Frumvarp um greiđslujöfnun samţykkt
18.11.2008
Alþingi samþykkti í gær frumvarp félagsmálaráðherra um breytingar á lögum um greiðslujöfnun fasteignaveðlána til einstaklinga. Greiðslujöfnunin felur ekki í sér eftirgjöf á skuldum heldur er um frestun á hluta afborgana að ræða. Viðskiptavinir allra viðurkenndra lánastofnana sem eru með verðtryggð fasteignalán geta óskað eftir greiðslujöfnun lána sinna ef þeir telja það henta aðstæðum sínum. Umsókn um greiðslujöfnun þarf að koma á framfæri við viðkomandi lánastofnun og verður hún fólki að kostnaðarlausu.
Morgunverđarfundur um stöđu eldra fólks á vinnumarkađi
17.11.2008
Morgunverðarfundur verður haldinn miðvikudaginn 19. nóvember 2008 kl. 8.30 -10:00 á Grand hóteli í Reykjavík, salur Háteigur B, þar sem fjallað verður um stöðu miðaldra og eldra fólks nú þegar þrengir að á vinnumarkaði. Á fundinum munur þrír frummælendur fjalla um sérstöðu hópsins í þróun og ástandi samtímans. Morgunverður framreiddur frá kl. 08.00. Allir velkomnir.
Bókun orlofshúsa á vefnum
14.11.2008
Stađan á vinnumarkađi og skattleysismörk í Dreifibréfi BSRB
14.11.2008
Jöfnuđur og félagslegt réttlćti er forsenda samstöđu
13.11.2008
„Við þær aðstæður sem nú ríkja í íslensku samfélagi er mikilvægara en nokkru sinni að jafna kjörin í landinu og styrkja innviði samfélagsins. Tryggja þarf fulla atvinnu og efla alla grunnþjónustu. Öflugt velferðarkerfi gerir okkur kleift að standa af okkur áföllin og með samstöðu og samheldni mun þjóðinni takast að vinna bug á erfiðleikunum. Forsenda samstöðunnar er hins vegar jöfnuður og félagslegt réttlæti. Kjarabilið hefur farið ört breikkandi, þar með talið kynbundið launamisrétti. Á því þarf að taka af festu." Þannig hefst ályktun funndar fulltrúaráðs Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar sem haldinn var sl. þriðjudag.
Lćrum af reynslu Fćreyinga og Finna
12.11.2008
Opinn fundur BSRB um efnahagsþrengingar og kreppur sem gengu yfir Færeyjar og Finnland snemma á 10. áratug síðustu aldar var vel sóttur og góður rómur gerður að erindunum sem Gunvør Balle sendiherra Færeyja á Íslandi og Sigurbjörg Árnadóttir framkvæmdastjóri héldu. Framsöguerindin fjölluðu um orsakir hrunsins hjá þessum þjóðum, hvernig ástand skapaðist og hvernig þær unnu sig út úr kreppunni. Þá var fjallað um hvað Íslendingar geti lært af reynslu þessara þjóða.
Efnahagsţrengingar nágrannaţjóđa
11.11.2008

Opinn fundur verður haldinn á vegum BSRB á morgun, miðvikudaginn 12. nóvember, kl. 16:00 - 17:30 í BSRB - húsinu Grettisgötu 89. Á fundinum verður fjallað um hvernig Færeyingar og Finnar brugðust við efnahagsþrengingum á borð við þær sem Íslendingar upplifa nú. Framsögu hafa Gunvør Balle sendiherra Færeyja á Íslandi og Sigurbjörg Árnadóttir framkvæmdastjóri. Fundarstjóri verður Helga Jónsdóttir framkvæmdastjóri BSRB.
Samiđ viđ NTV um afslátt og sérstök námskeiđ fyrir BSRB félaga
11.11.2008
Undirritaður hefur verið samningur á milli BSRB og Nýja tölvu- og viðskiptaskólan um afsláttakjör fyrir BSRB félaga og sérstök námskeið í Office 2007 tölvuforritum, sem er nýjasta uppfærsla af algengustu forritum fyrir PC-tölvur. Samninginn undirrituðu Kristín Á. Guðmundsdóttir formaður fræðslunefndar BSRB og Jón Vignir Karlsson skólastjóri NTV.
NOFS sendir BSRB og íslensku ţjóđinni samstöđukveđju
10.11.2008
NOFS (Nordens Offentliganställdas Fackliga Samorganisation) sem er norrænn samstarfsvettvangur Eurec og EPSU, og BSRB er aðili að, hefur sent BSRB samstöðukveðju vegna þeirra efnahagsþrenginga sem Íslendingar eiga nú við að glíma. Segir í kveðjunni að NOFS hafi verulegar áhyggjur af stöðunni hér á landi í kjölfar fjármálakreppunnar í heiminum.
Frćđslusetriđ Starfsmennt fékk Starfsmenntaverđlaun
7.11.2008
Fræðslusetrið Starfsmennt fékk Starfsmenntaverðlaun Starfsmenntaráðs í flokki skóla og fræðsluaðila vegna verkefnisins Járnsíða sem unnið var í samvinnu við Sýslumannafélag Íslands. Afhending verðlaunanna fór fram í dag í BSRB húsinu. Samskip fékk verðlaunin í flokki fyrirtækja fyrir metnaðarfullt fræðslustarf. Engin verðlaun voru að þessu sinni veitt í opnum flokki félagasamtaka og einstaklinga.
Séreignarsjóđir
6.11.2008
Sálrćnn stuđningur í efnahagsţrengingunum
6.11.2008
Fundurinn verður sendur í fjarfundarbúnaði til 6 staða á landinu. Það er til Ísafjarðar, Sauðárkróks, Akureyrar, Egilsstaða, Vestmannaeyja og Selfoss. Skráning á námskeiðið er á skrifstofu BSRB í síma 525 8300, eða í netfang bsrb@bsrb.is
Fjölmennur fundur um skuldirnar og heimilin
5.11.2008
Fjölmenni var á opnum fundi BSRB um skuldastöðu heimilanna og úrræði sem ákveðið hefur verið að grípa til vegna hækkandi lána. Framsögu á fundinum höfðu Ragnhildur Arnljótsdóttir ráðuneytisstjóri félags- og tryggingamálaráðuneytisins, Svanhildur Guðmundsdóttir sviðsstjóri þjónustusviðs Íbúðalánasjóðs, Haukur Hafsteinsson framkvæmdastjóri LSR og Ásta S. Helgadóttir forstöðumaður Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna. Fundarstjóri var Helga Jónsdóttir framkvæmdastjóri BSRB. Að loknum stuttum framsögum var opnað fyrir spurningar úr sal og sköpuðust líflegar og mjög fróðlegar umræður við það.
Skuldirnar og heimilin - Hvađ er ađ gerast?
5.11.2008

Opinn fundur verður á vegum BSRB í dag miðvikudaginn 5. nóvember kl. 16:30 - 18:00 í BSRB - húsinu Grettisgötu 89. Á fundinum verður fjallað um skuldastöðu heimilanna og úrræði sem ákveðið hefur verið að grípa til vegna hækkandi lána.
Framsögu hafa: Ragnhildur Arnljótsdóttir ráðuneytisstjóri félags- og tryggingamálaráðuneytisins, Svanhildur Guðmundsdóttir sviðsstjóri þjónustusviðs Íbúðalánasjóðs, Haukur Hafsteinsson framkvæmdastjóri LSR og Ásta S. Helgadóttir forstöðumaður Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna. Fundarstjóri er Helga Jónsdóttir framkvæmdastjóri BSRB. Að loknum stuttum framsögum verður opnað fyrir spurningar úr sal.
Skattbyrđi aukist mest hjá lćgri tekjuhópum
28.10.2008
Kjölur krefst ítarlegrar rannsóknar á hverjir séu ábyrgir fyrir hruni efnahagslífsins
23.10.2008
Trúnaðarmannaráð KJALAR stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu krefst ítarlegrar rannsóknar sem leiði í ljós hverjir eru ábyrgir fyrir hruni efnahagslífsins. Þá þarf að leiða í ljós hvernig fjármunum þjóðarinnar hefur verið sóað. Trúnaðarmannaráð KJALAR stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu gerir þá kröfu að Launanefnd sveitarfélaga gangi strax til samninga við KJÖL stéttarfélag um kjarasamning, segir m.a. í ályktun trúnaðarmannaráðsins 21. október 2008.
Níđum ekki réttindin hvert af öđru
23.10.2008
„En látum það aldrei henda okkur að níða réttindin hvert af öðru. Ég frábið að illa fengin lífeyrisréttindi alþingismanna, ráðherra og æsðstu embættismanna ríkisins séu sett í eina spyrðu með lífeyrisréttindum sjúkraliðans, löggæslumannsins og gangavarðarins hjá hinu opinbera eins og gert var í Morgunblaðinu í gær og tekið upp í leiðara í dag. Slíkt kann að vera til stundarvinsælda fallið og skemmta einhverjum skröttum en ekki þjónar það réttindabaráttu launafólks. Opinberir starfsmenn hafa staðið blífast á sínum lífeyrisréttindum í áratuga langri baráttu og ávinningur hennar hefur skilað sér til alls launafólks - því skulum við aldrei gleyma," sagði Ögmundur Jónasson formaður BSRB m.a. þegar hann ávarpaði ársfund ASÍ í morgun.
Stjórn BSRB og jafnréttisnefnd bandalagsins mótmćla frestun jafnréttisţings
22.10.2008
Ögmundur formađur BSRB í 20 ár
22.10.2008
Í tilefni af því að tuttugu ár eru liðin síðan Ögmundur Jónasson var kjörinn formaður BSRB afhenti Þuriður Einarsdóttir honum blómvönd frá BSRB á aðalfundi bandalagsins 17. október sl. Ögmundur var formaður Starfsmannafélags Sjónvarpsins þegar hann var kjörinn formaður BSRB 21. október 1988. Hann tók við af Kristjáni Thorlacius sem þá hafði gegnt formennsku bandalagsins í 28 ár.
Sálrćnn stuđningur í efnahagsţrengingunum
21.10.2008
Elín Jónasdóttir sálfræðingur Rauða krossins mun halda fyrirlestur á vegum BSRB og Félagsmálaskóla alþýðu í sal 2 á jarðhæð BSRB - hússins föstudaginn 24. október kl. 8:00 - 9:30. Fyrirlesturinn fjallar um gildi sálræns stuðnings í aðstæðum sem geta valdið áföllum og er hugsaður fyrir starfsmenn stéttarfélaga og trúnaðarmenn.
Styrkjum innviđina - sannleikann í ljós
17.10.2008
Aðalfundur BSRB hafnar því að almennt launafólk beri allan herkostnað af bruðli og óhófi undangenginna ára. Þá krefst fundurinn ítarlegrar rannsóknar sem leiði í ljós hverjir eru ábyrgir fyrir skuldsetningu bankakerfisins og þar með þjóðarinnar. Einnig þarf að upplýsa um hvernig þessum fjármunum hefur verið ráðstafað í einkaþágu gæslumanna fjárins. Þetta kemur fram í ályktun aðalfundar BSRB sem haldinn var í dag, 17. október, en ályktunin ber yfirskriftina Styrkjum innviðina - sannleikann í ljós.
Ađalfundur BSRB
16.10.2008
Aðalfundur BSRB verður haldinn á morgun, föstudaginn 17. október, og hefst hann kl. 9.00. Auk venjubundinna aðalfundarstarfa verður fjallað sérstaklega um stöðu lífeyrissjóða sem félagar í BSRB eiga aðild að og ástandið í efnahagsmálum óg áhrif þess á komandi kjarasamninga.
Upplýsingasíđa félagsmálaráđuneytis um fjármálamarkađinn
14.10.2008
Vinnuverndarstarf á óvissutímum
14.10.2008
Sćttir í máli Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar viđ Strćtó
14.10.2008
Ótímabćrt ađ meta tjón lífeyrissjóđanna
9.10.2008
Málţing um eldri starfsmenn
18.9.2008

Geta eldri starfsmenn verið lykillinn að velgengni fyrirtækja? Þessi spurning verður rædd og reifuð á málþingi á vegum Verkefnisstjórnar 50+ sem haldið verður í Ketilshúsi á Akureyri fimmtudaginn 25. september milli klukkan 13 og 16.
Borgarstjóri Reykjavíkur heimsćkir BSRB
12.9.2008

Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri Reykjavíkur heimsótti BSRB-húsið í dag og átti fund með Ögmundi Jónassyni formanni BSRB, Helgu Jónsdóttur framkvæmdastjóra BSRB og Garðari Hilmarssyni formanni Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar. Ögmundur sagði eftir fundinn að BSRB hefði ætíð leitast við að eiga gott samstarf við ráðamenn borgarinnar og þessi fundur með borgarstjóra hefði verið bæði ánægjulegur og upplýsandi fyrir alla aðila.
Starfslokanámskeiđ í lok mánađarins
11.9.2008
Formannaskipti hjá STAG
9.9.2008
Heilbrigđisţjónustan - á vegferđ til einkavćđingar
4.9.2008
BSRB hefur gefið út erindi sem Allyson Pollock prófessor við háskólann í Edinborg hélt á vegum bandalagsins sl. vor. Yfirskrift erindisins er Heilbrigðisþjónustan - á vegferð til einkavæðingar. Bæklingurinn er mikilvægt innlegg í umræðuna um frumvarp ríkisstjórnarinnar um sjúkratryggingar sem er til umræðu nú á haustþingi.
BSRB hefur kappkostað að afla upplýsinga um reynslu annarra þjóða af samsvarandi breytingum og hér eru í bígerð. Af því tilefni fengu samtökin Allyson Pollock hingað til lands en hún er einn helsti sérfræðingur Breta á þessu sviði. Allyson Pollock veitir forstöðu rannsóknarstofnun við Edinborgarháskóla (Centre for International Public Health Policy) sem sérhæfir sig í skipulagi heilbrigðisþjónustunnar. Erindi hennar á vegum BSRB fjallar um reynslu Breta af sams konar kerfisbreytingum og lagðar eru til í frumvarpinu um sjúkratryggingar. Pollock vísar í áform íslenskra stjórnvalda og ber fyrirliggjandi frumvarp saman við lagabreytingar í Bretlandi í byrjun 10. áratugar síðustu aldar. Þar segir hún m.a.: „Einkavæðingarferlið hefði ekki getað átt sér stað í Bretlandi án löggjafarinnar frá 1991. Hún gegndi lykilhlutverki með því að innleiða þær kerfisbreytingar að koma á innri markaði, aðgreina veitendur og kaupendur og verðleggja veitta þjónustu. Í kjölfarið fylgdi fjöldi nýrra reglugerða og verkferla til að hrinda einkavæðingunni í framkvæmd. Verkferlarnir byggðu ekki einungis á meginlöggjöfinni heldur einnig á reglugerðum sem voru samdar af embættismönnum. Sjúkratryggingafrumvarp íslenskra stjórnvalda nú er af sama toga og opnar leiðir fyrir ógrynni stefnumarkandi reglugerða á forræði ráðherra."
BSRB varar viđ hrađafgreiđslu frumvarps um sjúkratryggingar
3.9.2008
BSRB varar alvarlega við að frumvarp um sjúkratryggingar verði óbreytt gert að lögum á næstu dögum. Þetta kemur fram í umsögn bandalagsins um frumvarpið.
Trúnađarmannanámskeiđiđ hefst í nćstu viku
1.9.2008

Nú fer hver að verða síðastur til að skrá sig á fyrsta áfanga trúnaðarmannanámskeiðs BSRB og Félagsmálaskóla alþýðu. Fyrsti áfangi verður kenndur dagana 8. - 10. september. Annar áfangi verður síðan haldinn 15. - 17. september og 22. 23. og 29. september. Námskeiðin eru í BSRB húsinu, Grettisgötu 89, og eru frá kl. 9 til 16 alla dagana. Trúnaðarmannafræðslan sem BSRB og Félagsmálaskóli alþýðu bjóða upp á er metin til 10 eininga á framhaldsskólastigi. Námskeiðið er í fimm hlutum. Í fyrsta hlutanum er lögð höfuðáhersla á vinnumarkaðinn og verkalýðshreyfinguna, störf og stöðu trúnaðarmannsins. Einnig er fjallað um fjölmenningu á vinnustöðum og samskipti á vinnustað. Í öðrum áfanga er starfsemi stéttarfélaga tekin fyrir, launaútreikningar, fjölmenning á vinnustöðum og vinnuréttur. Námskeiðið fer fram í BSRB - húsinu Grettisgötu 89.
FOSS og STÁ sameinast
14.8.2008
Gengið verður formlega frá sameiningu Félags opinberra starfsmanna á Suðurlandi (FOSS) og Starfsmannafélags Sveitarfélagsins Árborgar (STÁ) á sameiginlegum fundi stjórna félaganna 18. ágúst nk. kl. 17 á skrifstofu FOSS, Austurvegi 38, Selfossi. Kynningafundur um sameininguna verður síðan haldinn á Hótel Selfossi 27. ágúst og hefst hann kl. 20.
Uppsögnum á Keflavíkurflugvelli mótmćlt
1.8.2008
Flugmálastarfsmenn semja viđ Flugstođir
14.7.2008
Samningur sjúkraliđa viđ SFH samţykktur
7.7.2008
Flugumferđarstjórar semja
27.6.2008
Í nótt náðust samningar í kjaradeilu Flugumferðarstjóra. Loftur Jóhannsson, formaður félagsins, segir samninginn að uppstöðu til framlengingu á fyrri samningi. Hann gildi til 31.október 2009 og feli í sér samtals um 11% hækkun. Loftur minnir á að samningurinn sé með fyrirvara um samþykki félagsmanna. Miðað við aðstæður hafi samninganefnd félagsins hins vegar talið hyggilegt að ljúka málinu á framangreindum nótum.
Dagur opinberrar almannaţjónustu
23.6.2008
Sjúkraliđar samţykkja samninginn viđ ríkiđ
20.6.2008
Sjúkraliðafélag Íslands hefur samþykkt kjarasamning BSRB við ríkið. Á kjörskrá voru 1250. Fjöldi svarenda var 545 eða 43,60%. Já sögðu 458, eða 84% svarenda. Nei sögðu 76 eða 14%. Auðir seðlar voru 17 eða 2% svarenda.
Samflotiđ samţykkir samning viđ ríkiđ
19.6.2008
94% félagsmanna í Samfloti sem greiddu atkvæði um kjarasamning BSRB við samninganefnd ríkisins samþykktu samninginn. Á kjörskrá voru 321 og greiddu 164 atkvæði eða 51,09%. Já sögðu 154 eða 93,90%. Nei sögðu 8 eða 4,88%. Auðir og ógildir voru 2 eða 1.22%.
Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar samţykkir kjarasamning viđ ríkiđ
19.6.2008
Trúnađarmannanámskeiđ BSRB og FA í haust
19.6.2008

Þátttakendur í trúnaðarmannanámskeiði BSRB og FA sl. vor.
Trúnaðarmannanámskeið BSRB og Félagsmálaskóla alþýðu halda áfram í haust. Fyrsti áfangi verður kenndur dagana 8. - 10. september og annar áfangi 15. - 17. september og 22. - 24. september. Námskeiðin eru haldin í BSRB húsinu, Grettisgötu 89, og eru frá kl. 9 til 16 alla dagana. Trúnaðarmannafræðslan sem BSRB og Félagsmálaskóli alþýðu bjóða upp á er metin til 10 eininga á framhaldsskólastigi. Námskeiðið er í fimm hlutum. Í Fyrsta hlutanum er lögð höfuðáhersla á vinnumarkaðinn og verkalýðshreyfinguna, störf og stöðu trúnaðarmannsins. Einnig er fjallað um fjölmenningu á vinnustöðum og samskipti á vinnustað. Í öðrum áfanga er starfsemi stéttarfélaga tekin fyrir, launaútreikningar, fjölmenning á vinnustöðum og vinnuréttur. Námskeiðið fer fram í BSRB - húsinu Grettisgötu 89.
Flugumferđastjórar bođa 20 stuttar vinnustöđvanir
18.6.2008
93% sögđu já hjá Kili
13.6.2008
Ríkisstarfsmenn í Kili samþykktu nýgerðan kjarasamning aðildarfélaga BSRB og ríkisins með 93% þeirra sem greiddu atkvæði. Þátttaka í atkvæðagreiðslunni var mjög góð eða 72% þeirra sem samningurinn nær til. Á kjörskrá voru 234 og þar af greiddu 167 atkvæði. Já sögðu 155 eða 93%, nei sögðu 7 eða 4% og auðir og ógildir seðlar voru 5 eða 3%.
SFR samţykkti kjarasamning viđ ríkiđ
12.6.2008
Konungleg skemmtun í Munađarnesi
9.6.2008

Listafólkið ásamt formanni BSRB: Zsuzanna Budai, Þórarinn Eldjárn, Soffía Sæmundsdóttir, Hallveig Rúnarsdóttir, Hrönn Þráinsdóttir og Ögmundur Jónasson.
Húsfyllir var á menningarhátíð BSRB í Munaðarnesi laugardaginn 7. júní þegar myndlistarsýning Soffíu Sæmundsdóttur, Sumarganga, var opnuð. Hátíðargestir skemmtu sér konunglega við upplestur Þórarins Eldjárns á ljóðum sínum og tónlistaratriðum. Hallveig Rúnarsdóttir söng lög Tryggva M. Baldvinssonar við ljóð úr Heimskringlu Þórarins Eldjárn við undirleik Hrannar Þráinsdóttur og Freyjukórinn söng undir stjórn og undirleik Zsuzönnu Budai. Að dagskrá lokinni var boðið upp á léttar veitingar í Kaffi Paradís.
Samningurinn samţykktur samhljóđa á Suđurnesjum
6.6.2008
Félagsmenn í Starfsmannafélagi Suðurnesja samþykktu samhljóða nýgerðan kjarasamning við ríkið. Um 45% félagsmanna sem eru með samning við ríkið og starfa á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja greiddu atkvæði og samþykktu samninginn samhljóða.
Félag starfsmanna stjórnarráđsins samţykkti samninginn viđ ríkiđ
6.6.2008
Nýgerður kjarasamningur BSRB við ríkið var samþykktur af Félagi starfsmanna stjórnarráðsins. 85% þeirra sem greiddu atkvæði sögðu já, 8% nei og 7% skiluðu auðu. Kosningin var rafræn og tóku 56% félagsmanna þátt í henni. Félag starfsmanna stjórnarráðsins er fyrsta félagið sem lýkur kosningu um samninginn en niðurstöður eiga að liggja fyrir eigi síðar en 20. júní.
Kjarasamningar BSRB og ríkisins kynntir
3.6.2008

Árni Stefán Jónsson formaður SFR og Kristín Á. Guðmundsdóttir formaður SLFÍ kynna samninginn í BSRB-húsinu.
Fyrstu kynningarfundir kjarasamninga BSRB og ríkisins voru í gær. Árni Stefán Jónsson formaður SFR og Kristín Á. Guðmundsdóttir formaður Sjúkraliðafélags Íslands kynntu samninginn á fundi í BSRB-húsinu og var sá fundur sendur með fjarfundarbúnaði til Patreksfjarðar þar sem Gylfi Guðmundsson formaður FOSVest stýrði fundi. Elín Björg Jónsdóttir formaður FOSS og Þórarinn Eyfjörð framkvæmdastjóri SFR kynntu samninginn á fundi á Hótel Selfossi og Arna Jakobína Björnsdóttir formaður Kjalar var með kynningarfund í Sjálfstæðishúsinu á Blönduósi.
Sumarganga og Eldjárn á menningarhátíđ BSRB
2.6.2008

Myndlistarsýning Soffíu Sæmundsdóttur, Sumarganga, verður opnuð á menningarhátíð BSRB í Munaðarnesi laugardaginn 7. júní kl. 14. Á hátíðinni mun Þórarinn Eldjárn lesa úr eigin verkum og lög eftir Tryggva M. Baldvinsson við ljóð úr Heimskringlu Þórarins verða flutt af Hallveigu Rúnarsdóttur og Eyjólfi Eyjólfssyni við undirleik Hrannar Þráinsdóttur. Einnig mun Freyjukórinn syngja nokkur lög og Ögmundur Jónasson formaður BSRB flytja ávarp. Að lokinni dagskrá er boðið upp á léttar veitingar. Hátíðin er ókeypis og opin öllum.
Nemendur á Eiđum styrkja Rauđa krossinn
30.5.2008

Nemendur í 1. og 2. bekk Eiðaskóla söfnuðu rusli við orlofshús BSRB við Eiðavatn og fengu greitt fyrir það 20 þúsund krónur. Nemendunum þótti heillaráð að styrkja Rauða krossinn á Austurlandi með peningunum og afhentu honum þá í dag.
Samningarnir kynntir um allt land
30.5.2008
BSRB verður með fundi um allt land til að kynna nýgerðan samning bandalagsins við ríkið. Samningurinn gildir fyrir starfsmenn ríkisins í eftirtöldum félögum: Félag flugmálastarfsmanna ríkisins, Félag starfsmanna stjórnarráðsins, Kjölur-stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu, Samflot bæjarstarfsmannafélaga, SFR-stéttarfélag í almannaþjónustu, Sjúkraliðafélag Íslands, Starfsmannafélag Garðabæjar, Starfsmannafélag Kópavogs, Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar, Starfsmannafélag Suðurnesja.
Velheppnađur morgunverđarfundur međ Allyson Pollock
29.5.2008

BSRB stóð fyrir morgunverðarfundi með dr. Allyson Pollock í dag. Dr. Pollock fjallaði um afleiðingar af einkavæðingu heilbrigðisþjónustunnar í Englandi sem hófst í tíð Thatchers en hélt áfram eftir að Verkamannaflokkurinn tók við. Afleiðingin er dýrara kerfi sem þjónar sjúklingum verr en þegar heilbrigðisþjónustan var alfarið á vegum hins opinbera. Hún benti á að bæði Skotar og Walesverjar hafi hafnað þessari markaðsvæðingu og hvatti hún Íslendinga að vera á varðbergi gagnvart þessari þróun. Eins og kunnugt er þá er til umfjöllunar á þingi nú frumvarp ríkisstjórnarinnar um breytt fyrirkomulag sjúkratrygginga sem greiðir fyrir markaðsvæðingu heilbrigðisþjónustunnar.
Morgunverđarfundur međ Allyson Pollock
27.5.2008
Dr. Allyson Pollock prófessor við háskólann í Edinborg í Skotlandi er með morgunverðarerindi hjá BSRB fimmtudaginn 29. maí kl. 8.15 - 10. Dr. Pollock veitir forstöðu sérstakri rannsóknarstofnun við háskólann í Edinborg sem hefur það verk með höndum að kanna afleiðingar mismunandi skipulagsforma í heilbrigðisþjónustunni. Stofnunin heitir The Centre for International Public Health Policy. Dr. Pollock er menntaður læknir, sem síðan hefur sérhæft sig í rannsóknum á skipulagi heilbrigðisþjónustunnar. Erindið verður túlkað. Morgunverðarkaffi í boði BSRB. Fundurinn er í BSRB - húsinu, Grettisgötu 89.
Skammtímasamningur viđ ríkiđ í höfn
25.5.2008

Gengið var frá samningi aðildarfélaga BSRB sem áttu lausa samninga við ríkið 1. maí sl. við samninganefnd ríkisins rétt í þessu. Samið var til skamms tíma eða til loka mars á næsta ári. Samið var um 20.300 króna hækkun frá 1. maí. Einnig var samið um hækkun greiðslu ríkisins í styrkarsjóði BSRB um 0,2%, fer úr 0,55% í 0,75% um næstu áramót. Þá er í samningnum gengið frá ýmsum öðrum réttindamálum.
Markvissar viđrćđur viđ samninganefnd ríkisins hefjast
15.5.2008

Fulltrúar BSRB áttu í dag annan fund með fjórum ráðherrum ríkisstjórnarinnar, forsætis-, utanríkis-, fjármála- og félagsmálaráðherra vegna lausra samninga við ríkið. Að sögn Ögmundar Jónassonar formanns BSRB var þetta ágætur fundur og niðurstaða hans sú að hafnar yrðu markvissar viðræður samninganefndar ríkisins og BSRB um gerð kjarasamnings.
Gagnlegur fundur međ ríkisstjórninni
7.5.2008

Fundi fulltrúa BSRB og fjögurra ráðherra ríkisstjórnarinnar í Stjórnarráðinu lauk nú skömmu fyrir kl. 13.00. Að sögn Ögmundar Jónassonar formanns BSRB var þetta ágætur fundur þar sem skipst var á skoðunum og upplýsingum. Það var sameiginleg niðurstaða aðila að efna til annars fundar með sömu aðilum í næstu viku. "Þá erum við að vonast til þessað afstaða ríkisstjórnarinnar til spurninga BSRB liggi skýrar fyrir," sagði Ögmundur.
BSRB hittir ríkisstjórnina í hádeginu
7.5.2008
Fulltrúar BSRB munu eiga fund með fjórum ráðherrum ríkisstjórnarinnar í Stjórnarráðinu kl. 12 á hádegi í dag. Eftir fyrsta formlega fund BSRB og launanefndar ríkisins vegna lausra samninga ríkisstarfsmanna óskaði BSRB eftir fundi með forsætisráðherra, utanríkisráðherra, fjármálaráðherra og félagsmálaráðherra til að ræða áform ríkisstjórnarinnar um hvernig hún hyggst efna fyrirheit sín í kjaramálum.
BSRB ítrekar óskir um fund međ ríkisstjórninni
4.5.2008
Ögmundur Jónasson formaður BSRB hefur ritað fjórum ráðherrum ríkisstjórnarinnar, forsætisráðherra, utanríkissráðherra, fjármálaráðherra og félagsmálaráðherra formlegt bréf þar sem áréttaðar eru óskir BSRB um fund með ráðherrunum þar sem þeir geri grein fyrir áformum stjórnarinnar um hvernig hún hyggst efna fyrirheit sín í kjaramálum.
Engin viđbrögđ frá ríkisstjórninni
3.5.2008
BSRB vill fund međ ríkisstjórninni
2.5.2008

Gunnar Björnsson formaður samninganefndar ríkisins og Ögmundur Jónasson heilsast við upphafa samningafundarins.
Fyrsta formlega samningafundi BSRB og aðildarfélaga þess við launanefnd ríkisins lauk rétt áðan hjá Sáttasemjara ríkisins. Samninganefnd ríkisins heldur enn fast við að samið verði til langs tíma en BSRB vill að gengið verði hið fyrsta frá skammtímasamningi. Í framhaldi af þessari niðurstöðu fundarins vill BSRB fund með ríkisstjórninni til að fá hennar sýn á stöðu mála og hvaða ráðagerðir hún hefur á prjónunum.
Fyrsti formlegi fundur BSRB međ samninganefnd ríkisins
2.5.2008
Samfélagiđ ţarf ađ ná áttum
1.5.2008

Fjölmenni var á baráttufundum verkalýðshreyfingarinnar víða um land í dag 1. maí. Ögmundur Jónasson formaður BSRB var ræðumaður á fundinum í Vestmannaeyjum. Hann kom víða við í ræðu sinni og sagði m.a. að BSRB hefði lagt til skammtíma samninga við ríkið í ljósi þeirrar stöðu sem nú væri í efnahagslífinu, óðaverðbólg og himinháir vextir: „Samfélagið þarf að ná áttum - leggja til atlögu gegn þeim vágestum sem ógna okkur. Það þolir ekkert heimili eða veikburða atvinnurekstur okurvextina til frambúðar eða þá holskeflu verðhækkana á vöru og þjónustu sem nú ríður yfir. Það er komið að þeim sem stýra verðlaginu að sýna ábyrgð." Árni Stefán Jónsson formaður SFR flutti ræðu á Ingólfstorgi og Garðar Hilmarsson formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar í Hafnarfirði.
Verjum kjörin - 1. maí ávarp fulltrúaráđs verkalýđsfélaganna í Reykjavík, BSRB, BHM, KÍ og SÍF
1.5.2008
"Undanfarin ár hefur verkalýðshreyfingin varað við harðri lendingu í efnahagsmálum. Stjórnvöld hafa ekkert mark tekið á viðvörunum og ráðleggingum hvorki frá efnahagssérfræðingum né frá samtökum á vinnumarkaði. Vandi okkar í efnahagsmálum er að stórum hluta heimatilbúinn. Andvaraleysi ráðamanna hefur grafið undan efnahagskerfi landsins. Þess vegna skellur nú verðbólguholskeflan af fullu afli á almenningi. Ef há verðbólga festist á núverandi stigi mun hún sliga heimili landsins á skömmum tíma. Ríkisstjórnin stendur ráðþrota og aðgerðalaus. Verkalýðshreyfingin hefur bent á bæði aðgerðir og leiðir. Stjórnvöld höfðu marvísleg úrræði og leiðir til að mýkja lendinguna í efnahagsmálum. Nú bendir allt til þess að hún verði harkarleg. Til að koma til móts við launafólk ber að afnema gjaldtöku í heilbrigðiskerfinu og stórbæta úrræði í félagslega húsnæðiskerfinu. Það er dapurlegt að fylgjast með þeim aðgerðum ríkisstjórnarinnar að hún er tilbúin að koma bönkunum til aðstoðar meðan hún heldur að sér höndum gagnvart stórmálum sem snerta hagsmuni almennings hvað varðar verðlags- og húsnæðismál," segir m.a. í 1. maí ávarp fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna í Reykjavík, BSRB, BHM, KÍ og SÍF.
1. maí alţjóđlegur baráttudagur verkalýđsins
30.4.2008
Stjórn BSRB vill hefja viđrćđur um skammtímasamning
18.4.2008
Viđrćđur SFR og ríkisins hafnar
8.4.2008
SFR krefst þess að lágmarkslaun SFR félaga verði ekki undir 200.000.- kr. á mánuði, að bættur verði réttur starfsmanna vegna veikinda og slysa, að sí- og endurmenntunarúrræði verði styrkt, að orlofsréttur verði bættur ásamt fleiru. Þetta kom fram á fyrsta fundi samninganefndar SFR og samninganefndar ríkisins sem haldinn var í gær. Næsti samningafundur er boðaður mánudaginn 14. apríl.
Snorri Magnússon nýr formađur LL
3.4.2008
Snorri Magnússon var kjörinn nýr formaður Landssambands lögreglumanna. Valið var á milli tveggja lista. Annars vegar lista með Snorra sem formanni og hins vegar lista með Gils Jóhannssyni sem formanni. Þátttaka í kjörinu var mjög góð og vann Snorri afgerandi sigur.
Trúnađarmannafrćđsla BSRB og FA endurtekin
25.3.2008

Fríður hópur trúnaðarmanna við lok námskeiðsins nú fyrir páska.
Mjög góður rómur var gerður að fyrsta áfanga trúnaðarmannafræðslu BSRB og Félagsmálaskóla alþýðu sem lauk fyrir páska. Ákveðið hefur verið að endurtaka námskeiðið dagana 5. - 7. maí í vor. Samtímis verður námskeiðið kennt í gegnum fjarfundabúnað í Vestmannaeyjum. Skráning er hafin á námskeiðið í maí.
Leiđakerfi neytenda
25.3.2008

Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra, Liselotte Widing verkefnisstjóri Leiðakerfis neytenda og Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda.
Leiðakerfi neytenda (http://www.neytandi.is/) sem er gagnvirk vefgátt á vegum talsmanns neytenda var opnuð af viðskiptaráðherra nýlega. Þar geta neytendur á einum stað leitað bæði upplýsinga um rétt sinn og fengið aðstoð við að leita réttar síns - annað hvort beint hjá seljanda vöru eða þjónustu sem er fyrsta skrefið eða, ef það dugar ekki, með því að kerfið hjálpar við að setja saman kæru til úrskurðarnefndar eða annars aðila sem tekur á málum neytenda.
Vatniđ á Íslandi og alţjóđlegi vatnsdagurinn
19.3.2008
Samningur á milli BSRB og Lúđrasveitar verkalýđsins
19.3.2008

Ívar Baldvin formaður Lúðrasveitar verkalýðsins og Ögmundur Jónasson formaður BSRB.
Í dag var undirritaður samningur á milli BSRB og Lúðrasveitar verkalýðsins þar sem BSRB skuldbindur sig til að styrkja lúðrasveitina um 350 þúsund kr. á ári á árunum 2008 og 2009. Í staðinn mun Lúðrasveit verkalýðsins leika í 1. maí kaffi BSRB auk þess sem bandalaginu er heimilt að fá lúðrasveitina til að leika við tvö önnur tilefni árlega.
Vinningshafinn í kjarakönnun BSRB, BHM og KÍ
18.3.2008
Vinningsnúmerið í happdrætti kjarakönnunar BSRB, BHM og KÍ var 11066. Það er Margrét Eiríksdóttir sem hlýtur borgarferð fyrir tvo til Evrópu í vinning. Margrét er í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Dreifibréf BSRB komiđ út
17.3.2008
Póstmenn samţykktu kjarasamninginn
14.3.2008
Kraftmikill baráttudagur 8. mars
11.3.2008

Alþjóðlegur baráttudagur kvenna var haldinn hátíðlegur sl. laugardag. "Friður og menning" var yfirskrift fjölbreyttrar dagskrár í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur. Að fundinum stóðu fjölmörg félög og hagsmunasamtök sem starfa þágu kvenna, launafólks, jafnréttis, mannréttinda og friðar.
Bera atvinnurekendur ábyrgđ á launamun kynjanna?
10.3.2008

Margrét Kristmannsdóttir framkvæmdastjóri Pfaff og formaður Félags kvenna í atvinnurekstri var á meðal frummælenda á fundi samtaka launafólks um launajafnrétti 6. mars sl. Margrét á sæti í öðrum af tveimur starfshópum sem félagsmálaráðherra skipaði í haust en meginviðfangsefni þeirra er að leita markvissra leiða til að eyða óútskýrðum launamun kynjanna, sem og að jafna stöðu kvenna og karla í nefndum og við stjórnun stofnana og fyrirtækja. Margt athyglisvert er að finna í erindi Margrétar og er það birt hér á eftir í heild sinni.
Velheppnađur fundur um ađgerđir til ađ ná launajafnrétti
6.3.2008

Aðferðir til að ná launajafnrétti - kostir, gallar og nýjar hugmyndir, var yfirskrift fundar sem samtök launafólks BSRB, BHM, ASÍ,KÍ og SSF stóðu fyrir í dag í Rúgbrauðsgerðinni. Fundurinn var haldinn í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna 8. mars. Hann var vel sóttur og heppnaðist mjög vel að öllu leyti.
Friđur og menning
6.3.2008
Konur - virkjum kraftinn
6.3.2008
Ađferđir til ađ ná launajafnrétti
5.3.2008

Aðferðir til að ná launajafnrétti - kostir, gallar og nýjar hugmyndir, er yfirskrift fundar sem samtök launafólks BSRB, BHM, ASÍ,KÍ og SSF bjóða til 6. mars næstkomandi kl. 13:00 - 16:00 í Rúgbrauðsgerðinni, Borgartúni 6, Reykjavík. Fundurinn er haldinn í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna 8. mars.
Stöđvum fjöldamorđin - Rjúfum umsátriđ um Gaza
4.3.2008
Efnt verður til útifundar á Lækjartorgi í hádeginu á morgun, miðvikudaginn 5. mars klukkan 12:15, til að mótmæla blóðbaðinu á Gazaströnd. Kröfur dagsins eru: Stöðvum fjöldamorðin og rjúfum umsátrið um Gaza. Ræðumenn verða Katrín Fjeldsted læknir og Ögmundur Jónasson alþingismaður. Fundarstjóri er Sveinn Rúnar Hauksson formaður Félagsins Ísland-Palestína.
Vel heppnuđ málstofa um lífeyrismál
29.2.2008

„Án þess þó að hafa rannsakað það nákvæmlega, þá held ég að það hafi ekkert íslenskt fyrirtæki farið í útrás, án þess að lífeyrissjóðir hafi verið þar meðal helstu fjárfesta. Eðli síns vegna eru lífeyrissjóðir mjög æskilegir fjárfestar fyrir fyrirtæki, já ég segi æskilegir fjárfestar jafnvel þótt öllum sé heimilt að kaupa og selja fyrirtæki sem skráð er á markaði. Fjárfestingarrammi lífeyrissjóða er mun lengri en flestra annarra fjárfesta þannig að eign þeirra skapar ákjósanlega kjölfestu í hluthafahópi og gerir fyrirtækjum kleift að horfa lengra fram á veg í ákvörðunum sínum," sagði Sigurður Einarsson stjórnarformaður Kaupþings banka m.a. í erindi sem hann hélt á Málstofu BSRB í dag en vel á annað hundrað manns sótti málstofuna.
Of lítiđ - of seint
29.2.2008
"Stjórn SLFÍ tekur undir orð formanns Landsamtaka eftirlaunaþega Helga Hjálmarssonar, um yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar 5. desember 2007 að fyrirhugaðar aðgerðir ríkisstjórnar Íslands til að bæta kjör aldraðra og öryrkja sé; "OF LÍTIÐ OF SEINT." Fundurinn vekur athygli stjórnvalda á þeirri staðreynd að með fyrirhuguðum aðgerðum er enn gengið á rétt þeirra einstaklinga sem með ráðdeild og sparnaði hafa lagt til hliðar til elliáranna með greiðslum í lífeyrissjóði, sérstökum aldurstengdum lífeyrissparnaði og/eða öðrum sparnaði," segir í upphafi ályktunar sem félagsstjórn Sjúkraliðafélags Íslands samþykkti í gær.
Málstofa BSRB um lífeyrismál
27.2.2008
BSRB stendur fyrir málstofu um lífeyrismál í BSRB - húsinu Grettisgötu 89 föstudaginn 29. febrúar kl. 13 - 15.30. Erindi flytja Sigurður Einarsson stjórnarformaður Kaupþings banka, Sigríður Lillý Baldursdóttir forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins, Hrafn Magnússon framkvæmdastjóri Landssambands lífeyrissjóða, Katrín Jakobsdóttir alþingismaður og Ögmundur Jónasson formaður BSRB. Fundarstjóri er Kristín Á. Guðmundsdóttir formaður Sjúkraliðafélags Íslands.
Sigur í tveimur dómsmálum
21.2.2008
Sigur vannst í tveimur málum sem SFR rak fyrir héraðsdómi Reykjavíkur. Annars vegar var um að ræða biðlaunamál sem höfðað var gegn Hjartavernd og hins vegar mál gegn ríkinu um endurkröfu á ofgreiddum launum til félagsmanns SFR.
Póstmenn semja
20.2.2008
Forrćđishyggju atvinnurekenda mótmćlt: SA semur ekki fyrir BSRB
12.2.2008
Dreifibréf BSRB komiđ út
11.2.2008
Gagnlegur fundur um málefni lćknaritara
8.2.2008
Uppsagnir á LSH dćmdar ólögmćtar
7.2.2008
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Landspítala til að greiða þremur starfsmönnum bætur vegna uppsagna en dómurinn taldi, að ekki hefði verið rétt staðið að uppsögnum starfsmannanna árið 2006. Sá sem hæstu bæturnar hlýtur fær 900 þúsund, annar fær 400 þúsund og sá þriðji 300 þúsund. Tveir starfsmannanna voru félagar í SFR og einn í Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar. Það voru félögin sem ráku málin. Gísli Guðni Hall hrl. var lögmaður stefnenda.
Samflotiđ međ nýja heimasíđu
7.2.2008
Fyrsti fundur Póstmannafélagsins og Íslandspósts hjá ríkissáttasemjara
31.1.2008
Í gær var haldinn hjá ríkissáttasemjara fyrsti fundur samninganefnda Póstmannafélagsins og Íslandspósts. Á fundinum var farið yfir stöðu samninganna með sáttasemjara. Næsti fundur samningsaðila verður á morgun föstudaginn 1. febrúar.
Tímamót í trúnađarmannafrćđslunni
29.1.2008
Vinningsnúmeriđ í kjarakönnun BSRB, BHM og KÍ
28.1.2008
Póstmenn vísa kjaradeilu til Ríkissáttasemjara
25.1.2008
Einkavćđingin á Landspítalanum
15.1.2008
Slitnađ upp úr viđrćđum um vaktavinnumál
11.1.2008
Ađför LSH ađ réttindum og kjörum lćknaritara
10.1.2008
„Ég lít hugmyndir stjórnenda á Landspítala háskólasjúkrahúsi um að bjóða út störf læknaritara mjög alvarlegum augum enda augljóslega um að ræða aðför að réttindum og kjörum. Útboðin eru hugsuð til að ná kostnaði niður og þar sem fyrst og fremst er um að ræða launakostnað er ljóst hvert spjótunum er beint," segir Ögmundur Jónasson formaður BSRB um áform Landspítalans að úthýsa störfum læknaritara.
Um BSRB
Á döfinni
Leit
























