Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

Fyrsti fundur Póstmannafélagsins og Íslandspósts hjá ríkissáttasemjara

31.1.2008

Í gær var haldinn hjá ríkissáttasemjara fyrsti fundur samninganefnda Póstmannafélagsins og Íslandspósts.  Á fundinum var farið yfir stöðu samninganna með sáttasemjara.  Næsti fundur samningsaðila verður á morgun föstudaginn 1. febrúar.

Tímamót í trúnaðarmannafræðslunni

29.1.2008

BSRB í samvinnu við Félagsmálaskóla alþýðu mun nú í vor og næstu misseri bjóða upp á mjög öfluga trúnaðarmannafræðslu sem er metin til 10 eininga á framhaldsskólastigi. Námskeiðið verður í fimm  hlutum. Fyrsti hluti hefst 17. mars nk. og lýkur 19 mars. Í þessum fyrsta áfanga er lögð höfuðáhersla á vinnumarkaðinn og verkalýðshreyfinguna, störf og stöðu trúnaðarmannsins. Einnig er fjallað um fjölmenningu á vinnustöðum og samskipti á vinnustað. Kennarar eru Haukur Harðarson, Maríanna Traustadóttir og Helga Björk Pálsdóttir. Námskeiðið fer fram í BSRB - húsinu Grettisgötu 89.

Vinningsnúmerið í kjarakönnun BSRB, BHM og KÍ

28.1.2008

Vinningsnúmerið í happdrætti kjarakönnunar BSRB, BHM og KÍ er 110666. Í vinning er helgarferð fyrir tvo til Evrópu. Vinningshafinn hafi samband við Capacent rannsóknir í síma 5401000 eða skrifstofu sinna heildarsamtaka.

Póstmenn vísa kjaradeilu til Ríkissáttasemjara

25.1.2008

Stjórn og samninganefnd Póstmannafélags Íslands hefur ákveðið að vísa kjaradeilu félagsins við Íslandspóst hf. til Ríkissáttasemjara.  Þessi ákvörðun var tilkynnt samninganefnd fyrirtækisins á fundi í dag. Aðilar hafa  á síðustu þrem mánuðum haldið fimm fundi, var það mat samninganefndar Póstmannafélagsins að ef samningar eiga að nást þurfi aðkomu Ríkissáttasemjara að málinu.

Einkavæðingin á Landspítalanum

15.1.2008

"Læknaritarastarfið er eitt af lykilstörfum í heilbrigðiskerfinu. Persónuverndarsjónarmið og krafa um góða fagmennsku eru þar grundvallaratriði. Læknaritarar vilja að sjálfsögðu koma að endurskipulagningu á verksviði sínu ef um slíkt ætti að vera að ræða. Furðu sætir að stjórnendur á LSH skuli sýna starfsstéttinni þá framkomu sem raun ber vitni," segir m.a. í grein eftir Árna Stefán Jónsson formann SFR og Ögmund Jónasson formann BSRB sem birtist í Morgunblaðinu í dag. Í greininni segir einnig að yfirlýstur tilgangur með útvistun sé að ná niður útgjöldum sem stéttarfélögin óttast að verði á kostnað starfsmanna.

Slitnað upp úr viðræðum um vaktavinnumál

11.1.2008

Í morgun slitnaði upp úr viðræðum um málefni vaktavinnufólks milli BSRB og BHM annars vegar og ríkis og sveitarfélaga hins vegar. Þessar viðræður hafa staðið allar götur frá síðustu kjarasamningum en þá var gerð bókun þess efnis að farið yrði í saumana á málefnum vaktavinnufólks og leitað leiða til að gera vaktavinnu eftirsóknarverðari.

Aðför LSH að réttindum og kjörum læknaritara

10.1.2008

„Ég lít hugmyndir stjórnenda á Landspítala háskólasjúkrahúsi um að bjóða út störf læknaritara mjög alvarlegum augum enda augljóslega um að ræða aðför að réttindum og kjörum. Útboðin eru hugsuð til að  ná kostnaði niður og þar sem fyrst og fremst er um að ræða launakostnað er ljóst hvert spjótunum er beint," segir Ögmundur Jónasson formaður BSRB um áform Landspítalans að úthýsa störfum læknaritara.


Um BSRB

Póstlistaskráning


Á döfinni


efnahagsmal

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta