Fréttir
Mæðrastyrksnefnd styrkt
28.11.2008
Ögmundur Jónasson afhenti í dag Ragnhildi Guðmundsdóttur formanni Mæðrastyrksnefndar og Margréti K. Sigurðardóttur fjármálastjóra nefndarinnar styrk frá BSRB. Þá afhenti Árni Stefán Jónsson formaður SFR styrk frá félaginu og Sigurður Ingi Georgsson styrk frá Félagi umsjónarmanna hjá ríkisstofnunum.
Fróðlegur og upplýsandi fundur
26.11.2008
Fundur BSRB með fulltrúum viðskiptabankanna var mjög fróðlegur og upplýsandi um það hvernig bankarnir hyggjast bregðast við greiðsluvanda viðskiptavina sinna vegna efnahagsástandsins í landinu. Yfirskrift fundarins var „Hvað gerir bankinn fyrir þig?" og bentu frummælendur á þau úrræði sem í boði eru og fyrirhuguð eru á næstunni.
Hvað gerir bankinn fyrir þig?
25.11.2008
Lokun öldrunardeildarinnar Sels á FSA mótmælt
25.11.2008
Starfsmenn Fjórðungssjúkrahúss Akureyrar mótmæla harðlega lokun öldrunardeildarinnar Sels á sjúkrahúsinu. Starfsmenn deildarinnar héldu fund í gær, 24. nóvember, og samþykkti fundurinn ályktun þar sem skorað er á stjórnendur FSA að draga ákvörðunina til baka.
Fjölmenni á velheppnuðum útifundi á Ingólfstorgi
24.11.2008
Fjölmenni sótti útifund BSRB, Félags eldri borgara í Reykjavík, Landssamtakanna Þroskahjálpar og Öryrkjabandalags Íslands, á Ingólfstorgi síðdegis í dag. Á fundinum var samþykkt ályktun þar sem skorað er á stjórnvöld að beita öllum tiltækum ráðum til að verja velferðarkerfið sem byggt hefur verið upp af almenningi á undanförnum áratugum. Þegar kreppi að í samfélaginu sé mikilvægt að beita velferðarkerfinu til jöfnunar. Áralangri baráttu fyrir réttlátu þjóðfélagi megi ekki kasta á glæ.
Samstöðufundur á Ingólfstorgi - Verjum velferðina!
21.11.2008
BSRB, Félag eldri borgara í Reykjavík, Landssamtökin Þroskahjálp og Öryrkjabandalag Íslands standa fyrir útifundi á Ingólfstorgi mánudaginn 24. nóvember nk. kl. 16:30. Tilefni fundarins er óvissuástandið í efnahagsmálum þjóðarinnar, kjaraskerðing sem nú þegar blasir við mörgum og síðast en ekki síst hugmyndir stjórnvalda um stórkostlegan niðurskurð á útgjöldum til velferðar.
BSRB mótmælir aðför að velferðarþjónustunni
21.11.2008
BSRB vill vaxtalækkun og endurskoðun á vísitölugrunni
21.11.2008
Líflegur fundur um kosti og galla verðtryggingar
20.11.2008
Opinn fundur BSRB um kosti og galla verðtryggingar var vel sóttur og sköpuðu erindi Ingólfs H. Ingólfssonar félagsfræðings og Péturs H. Blöndal alþingismanns líflegar umræður.
Verðtrygging til góðs eða ills?
20.11.2008

Opinn fundur verður haldinn á vegum BSRB í dag, fimmtudaginn 20. nóvember, kl. 16:30 - 18:00 í BSRB - húsinu Grettisgötu 89. Á fundinum verður fjallað um kosti og galla verðtryggingar og hvort æskilegt sé að afnema hana tímabundið eða til langframa. Framsögu hafa Ingólfur H. Ingólfsson félagsfræðingur og Pétur H. Blöndal alþingismaður. Fundarstjóri er Helga Jónsdóttir framkvæmdastjóri BSRB .
Samið verði strax við Samflotið
20.11.2008
Samið við Hitaveitu Suðurnesja
20.11.2008
Félagsmenn fá tveggja launaflokkahækkun frá 1. nóvember s.l. og 21.000 króna eingreiðslu. Þá hækkar desemberuppbót í 67.500
Frumvarp um greiðslujöfnun samþykkt
18.11.2008
Alþingi samþykkti í gær frumvarp félagsmálaráðherra um breytingar á lögum um greiðslujöfnun fasteignaveðlána til einstaklinga. Greiðslujöfnunin felur ekki í sér eftirgjöf á skuldum heldur er um frestun á hluta afborgana að ræða. Viðskiptavinir allra viðurkenndra lánastofnana sem eru með verðtryggð fasteignalán geta óskað eftir greiðslujöfnun lána sinna ef þeir telja það henta aðstæðum sínum. Umsókn um greiðslujöfnun þarf að koma á framfæri við viðkomandi lánastofnun og verður hún fólki að kostnaðarlausu.
Morgunverðarfundur um stöðu eldra fólks á vinnumarkaði
17.11.2008
Morgunverðarfundur verður haldinn miðvikudaginn 19. nóvember 2008 kl. 8.30 -10:00 á Grand hóteli í Reykjavík, salur Háteigur B, þar sem fjallað verður um stöðu miðaldra og eldra fólks nú þegar þrengir að á vinnumarkaði. Á fundinum munur þrír frummælendur fjalla um sérstöðu hópsins í þróun og ástandi samtímans. Morgunverður framreiddur frá kl. 08.00. Allir velkomnir.
Bókun orlofshúsa á vefnum
14.11.2008
Staðan á vinnumarkaði og skattleysismörk í Dreifibréfi BSRB
14.11.2008
Jöfnuður og félagslegt réttlæti er forsenda samstöðu
13.11.2008
„Við þær aðstæður sem nú ríkja í íslensku samfélagi er mikilvægara en nokkru sinni að jafna kjörin í landinu og styrkja innviði samfélagsins. Tryggja þarf fulla atvinnu og efla alla grunnþjónustu. Öflugt velferðarkerfi gerir okkur kleift að standa af okkur áföllin og með samstöðu og samheldni mun þjóðinni takast að vinna bug á erfiðleikunum. Forsenda samstöðunnar er hins vegar jöfnuður og félagslegt réttlæti. Kjarabilið hefur farið ört breikkandi, þar með talið kynbundið launamisrétti. Á því þarf að taka af festu." Þannig hefst ályktun funndar fulltrúaráðs Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar sem haldinn var sl. þriðjudag.
Lærum af reynslu Færeyinga og Finna
12.11.2008
Opinn fundur BSRB um efnahagsþrengingar og kreppur sem gengu yfir Færeyjar og Finnland snemma á 10. áratug síðustu aldar var vel sóttur og góður rómur gerður að erindunum sem Gunvør Balle sendiherra Færeyja á Íslandi og Sigurbjörg Árnadóttir framkvæmdastjóri héldu. Framsöguerindin fjölluðu um orsakir hrunsins hjá þessum þjóðum, hvernig ástand skapaðist og hvernig þær unnu sig út úr kreppunni. Þá var fjallað um hvað Íslendingar geti lært af reynslu þessara þjóða.
Efnahagsþrengingar nágrannaþjóða
11.11.2008

Opinn fundur verður haldinn á vegum BSRB á morgun, miðvikudaginn 12. nóvember, kl. 16:00 - 17:30 í BSRB - húsinu Grettisgötu 89. Á fundinum verður fjallað um hvernig Færeyingar og Finnar brugðust við efnahagsþrengingum á borð við þær sem Íslendingar upplifa nú. Framsögu hafa Gunvør Balle sendiherra Færeyja á Íslandi og Sigurbjörg Árnadóttir framkvæmdastjóri. Fundarstjóri verður Helga Jónsdóttir framkvæmdastjóri BSRB.
Samið við NTV um afslátt og sérstök námskeið fyrir BSRB félaga
11.11.2008
Undirritaður hefur verið samningur á milli BSRB og Nýja tölvu- og viðskiptaskólan um afsláttakjör fyrir BSRB félaga og sérstök námskeið í Office 2007 tölvuforritum, sem er nýjasta uppfærsla af algengustu forritum fyrir PC-tölvur. Samninginn undirrituðu Kristín Á. Guðmundsdóttir formaður fræðslunefndar BSRB og Jón Vignir Karlsson skólastjóri NTV.
NOFS sendir BSRB og íslensku þjóðinni samstöðukveðju
10.11.2008
NOFS (Nordens Offentliganställdas Fackliga Samorganisation) sem er norrænn samstarfsvettvangur Eurec og EPSU, og BSRB er aðili að, hefur sent BSRB samstöðukveðju vegna þeirra efnahagsþrenginga sem Íslendingar eiga nú við að glíma. Segir í kveðjunni að NOFS hafi verulegar áhyggjur af stöðunni hér á landi í kjölfar fjármálakreppunnar í heiminum.
Fræðslusetrið Starfsmennt fékk Starfsmenntaverðlaun
7.11.2008
Fræðslusetrið Starfsmennt fékk Starfsmenntaverðlaun Starfsmenntaráðs í flokki skóla og fræðsluaðila vegna verkefnisins Járnsíða sem unnið var í samvinnu við Sýslumannafélag Íslands. Afhending verðlaunanna fór fram í dag í BSRB húsinu. Samskip fékk verðlaunin í flokki fyrirtækja fyrir metnaðarfullt fræðslustarf. Engin verðlaun voru að þessu sinni veitt í opnum flokki félagasamtaka og einstaklinga.
Séreignarsjóðir
6.11.2008
Sálrænn stuðningur í efnahagsþrengingunum
6.11.2008
Fundurinn verður sendur í fjarfundarbúnaði til 6 staða á landinu. Það er til Ísafjarðar, Sauðárkróks, Akureyrar, Egilsstaða, Vestmannaeyja og Selfoss. Skráning á námskeiðið er á skrifstofu BSRB í síma 525 8300, eða í netfang bsrb@bsrb.is
Fjölmennur fundur um skuldirnar og heimilin
5.11.2008
Fjölmenni var á opnum fundi BSRB um skuldastöðu heimilanna og úrræði sem ákveðið hefur verið að grípa til vegna hækkandi lána. Framsögu á fundinum höfðu Ragnhildur Arnljótsdóttir ráðuneytisstjóri félags- og tryggingamálaráðuneytisins, Svanhildur Guðmundsdóttir sviðsstjóri þjónustusviðs Íbúðalánasjóðs, Haukur Hafsteinsson framkvæmdastjóri LSR og Ásta S. Helgadóttir forstöðumaður Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna. Fundarstjóri var Helga Jónsdóttir framkvæmdastjóri BSRB. Að loknum stuttum framsögum var opnað fyrir spurningar úr sal og sköpuðust líflegar og mjög fróðlegar umræður við það.
Skuldirnar og heimilin - Hvað er að gerast?
5.11.2008

Opinn fundur verður á vegum BSRB í dag miðvikudaginn 5. nóvember kl. 16:30 - 18:00 í BSRB - húsinu Grettisgötu 89. Á fundinum verður fjallað um skuldastöðu heimilanna og úrræði sem ákveðið hefur verið að grípa til vegna hækkandi lána.
Framsögu hafa: Ragnhildur Arnljótsdóttir ráðuneytisstjóri félags- og tryggingamálaráðuneytisins, Svanhildur Guðmundsdóttir sviðsstjóri þjónustusviðs Íbúðalánasjóðs, Haukur Hafsteinsson framkvæmdastjóri LSR og Ásta S. Helgadóttir forstöðumaður Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna. Fundarstjóri er Helga Jónsdóttir framkvæmdastjóri BSRB. Að loknum stuttum framsögum verður opnað fyrir spurningar úr sal.
Um BSRB
Á döfinni
Leit
























