Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

Vel heppnuð málstofa um lífeyrismál

29.2.2008


„Án þess þó að hafa rannsakað það nákvæmlega, þá held ég að það hafi ekkert íslenskt fyrirtæki farið í útrás, án þess að lífeyrissjóðir hafi verið þar meðal helstu fjárfesta. Eðli síns vegna eru lífeyrissjóðir mjög æskilegir fjárfestar fyrir fyrirtæki, já ég segi æskilegir fjárfestar jafnvel þótt öllum sé heimilt að kaupa og selja fyrirtæki sem skráð er á markaði. Fjárfestingarrammi lífeyrissjóða er mun lengri en flestra annarra fjárfesta þannig að eign þeirra skapar ákjósanlega kjölfestu í hluthafahópi og gerir fyrirtækjum kleift að horfa lengra fram á veg í ákvörðunum sínum," sagði Sigurður Einarsson stjórnarformaður Kaupþings banka m.a. í erindi sem hann hélt á Málstofu BSRB í dag en vel á annað hundrað manns sótti málstofuna.

Of lítið - of seint

29.2.2008

"Stjórn SLFÍ  tekur undir orð formanns Landsamtaka eftirlaunaþega Helga Hjálmarssonar, um yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar 5. desember 2007  að fyrirhugaðar aðgerðir ríkisstjórnar Íslands til að bæta kjör aldraðra og öryrkja  sé; "OF LÍTIÐ OF SEINT." Fundurinn vekur athygli stjórnvalda á þeirri staðreynd að með fyrirhuguðum aðgerðum  er enn gengið á rétt þeirra einstaklinga sem með ráðdeild og sparnaði hafa lagt til hliðar til elliáranna  með greiðslum í lífeyrissjóði, sérstökum aldurstengdum lífeyrissparnaði  og/eða öðrum sparnaði," segir í upphafi ályktunar sem félagsstjórn Sjúkraliðafélags Íslands samþykkti í gær.

Málstofa BSRB um lífeyrismál

27.2.2008

BSRB stendur fyrir málstofu um lífeyrismál í BSRB - húsinu Grettisgötu 89 föstudaginn 29. febrúar kl. 13 - 15.30. Erindi flytja Sigurður Einarsson stjórnarformaður Kaupþings banka, Sigríður Lillý Baldursdóttir forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins, Hrafn Magnússon framkvæmdastjóri Landssambands lífeyrissjóða, Katrín Jakobsdóttir alþingismaður og Ögmundur Jónasson formaður BSRB. Fundarstjóri er Kristín Á. Guðmundsdóttir formaður Sjúkraliðafélags Íslands.

Sigur í tveimur dómsmálum

21.2.2008

Sigur vannst í tveimur málum sem SFR rak fyrir héraðsdómi Reykjavíkur. Annars vegar var um að ræða biðlaunamál sem höfðað var gegn Hjartavernd og hins vegar mál gegn ríkinu um endurkröfu á ofgreiddum launum til félagsmanns SFR.

Póstmenn semja

20.2.2008

Samkomulag hefur náðst um nýjan kjarasamning milli Póstmannafélags Íslands og Íslandspósts hf.  Samningurinn er sambærilegur við samninga sem gerðir voru milli aðildarfélaga Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífisins um síðustu helgi.

Forræðishyggju atvinnurekenda mótmælt: SA semur ekki fyrir BSRB

12.2.2008

"Stjórn BSRB mótmælir harðlega þeirri kröfu sem Samtök atvinnulífsins hafa sett fram á hendur ríkisstjórninni um að hún fylgi þeirri launastefnu sem mótuð verði við samningaborð Samtaka atvinnulífsins. Þessi krafa um forræðisvald atvinnurekenda er ósvífin og ólýðræðisleg því hún byggir á því að hundsaðar verði kröfur sem fram koma frá hendi samtaka opinberra starfsmanna í kjarasamningum þegar þeir losna í vor. Krafan er einnig ósvífin að því leyti að hún byggir á því að launakjör á þeim stofnunum sem nú búa við vaxandi manneklu vegna bágra kjara verði ekki leiðrétt eins og margoft hefur verið látið í veðri vaka af hálfu stjórnvalda að gert verði í komandi kjarasamningum," segir m.a. í ályktun sem stjórn BSRB hefur sent frá sér.

Dreifibréf BSRB komið út

11.2.2008

Fyrsta tölublað Dreifibréfs BSRB árið 2008 er komið á netið. Í Dreifibréfinu er fjallað um breytingar á almannatryggingakerfinu og yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 5. desember 2007. Einnig er fjallað um efnahagshorfurnar við upphaf kjarasamninga.

Gagnlegur fundur um málefni læknaritara

8.2.2008

Í morgun áttu fulltrúar læknaritara, ásamt formönnum BSRB og SFR, fund með forstöðumönnum Landspítala háskólasjúkrahúss um fyrirhugaða „útvistun" á störfum læknaritara á sjúkrahúsinu og málefni sem því tengjast. Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, sagði fundinn hafa verið gagnlegan. Fulltrúar stéttarfélaganna hefðu ítrekað mótmæli sín við einkvæðingu þessarar starfsemi og teflt fram rökum máli sínu til stuðnings.  Engin  sameiginleg niðurstaða varð á fundinum en ákveðið var að halda viðræðum áfram og horfa þá jafnframt til lengri tíma.

Uppsagnir á LSH dæmdar ólögmætar

7.2.2008

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Landspítala til að greiða þremur starfsmönnum bætur vegna uppsagna en dómurinn taldi, að ekki hefði verið rétt staðið að uppsögnum starfsmannanna árið 2006. Sá sem hæstu bæturnar hlýtur fær 900 þúsund, annar fær 400 þúsund og sá þriðji 300 þúsund. Tveir starfsmannanna voru félagar í SFR og einn í Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar. Það voru félögin sem ráku málin. Gísli Guðni Hall hrl. var lögmaður stefnenda.

Samflotið með nýja heimasíðu

7.2.2008

Samflotsfélögin hafa tekið í notkun nýja og bætta heimasíðu sem er ætlað að verða upplýsingaveita í komandi kjarasamningavinnu Samflotsfélaganna. Slóðin á heimasíðuna er www.samflot.is

Um BSRB

Póstlistaskráning


Á döfinni


Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta