Fréttir
Trúnaðarmannafræðsla BSRB og FA endurtekin
25.3.2008

Fríður hópur trúnaðarmanna við lok námskeiðsins nú fyrir páska.
Mjög góður rómur var gerður að fyrsta áfanga trúnaðarmannafræðslu BSRB og Félagsmálaskóla alþýðu sem lauk fyrir páska. Ákveðið hefur verið að endurtaka námskeiðið dagana 5. - 7. maí í vor. Samtímis verður námskeiðið kennt í gegnum fjarfundabúnað í Vestmannaeyjum. Skráning er hafin á námskeiðið í maí.
Leiðakerfi neytenda
25.3.2008

Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra, Liselotte Widing verkefnisstjóri Leiðakerfis neytenda og Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda.
Leiðakerfi neytenda (http://www.neytandi.is/) sem er gagnvirk vefgátt á vegum talsmanns neytenda var opnuð af viðskiptaráðherra nýlega. Þar geta neytendur á einum stað leitað bæði upplýsinga um rétt sinn og fengið aðstoð við að leita réttar síns - annað hvort beint hjá seljanda vöru eða þjónustu sem er fyrsta skrefið eða, ef það dugar ekki, með því að kerfið hjálpar við að setja saman kæru til úrskurðarnefndar eða annars aðila sem tekur á málum neytenda.
Vatnið á Íslandi og alþjóðlegi vatnsdagurinn
19.3.2008
Samningur á milli BSRB og Lúðrasveitar verkalýðsins
19.3.2008

Ívar Baldvin formaður Lúðrasveitar verkalýðsins og Ögmundur Jónasson formaður BSRB.
Í dag var undirritaður samningur á milli BSRB og Lúðrasveitar verkalýðsins þar sem BSRB skuldbindur sig til að styrkja lúðrasveitina um 350 þúsund kr. á ári á árunum 2008 og 2009. Í staðinn mun Lúðrasveit verkalýðsins leika í 1. maí kaffi BSRB auk þess sem bandalaginu er heimilt að fá lúðrasveitina til að leika við tvö önnur tilefni árlega.
Vinningshafinn í kjarakönnun BSRB, BHM og KÍ
18.3.2008
Vinningsnúmerið í happdrætti kjarakönnunar BSRB, BHM og KÍ var 11066. Það er Margrét Eiríksdóttir sem hlýtur borgarferð fyrir tvo til Evrópu í vinning. Margrét er í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Dreifibréf BSRB komið út
17.3.2008
Póstmenn samþykktu kjarasamninginn
14.3.2008
Kraftmikill baráttudagur 8. mars
11.3.2008

Alþjóðlegur baráttudagur kvenna var haldinn hátíðlegur sl. laugardag. "Friður og menning" var yfirskrift fjölbreyttrar dagskrár í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur. Að fundinum stóðu fjölmörg félög og hagsmunasamtök sem starfa þágu kvenna, launafólks, jafnréttis, mannréttinda og friðar.
Bera atvinnurekendur ábyrgð á launamun kynjanna?
10.3.2008

Margrét Kristmannsdóttir framkvæmdastjóri Pfaff og formaður Félags kvenna í atvinnurekstri var á meðal frummælenda á fundi samtaka launafólks um launajafnrétti 6. mars sl. Margrét á sæti í öðrum af tveimur starfshópum sem félagsmálaráðherra skipaði í haust en meginviðfangsefni þeirra er að leita markvissra leiða til að eyða óútskýrðum launamun kynjanna, sem og að jafna stöðu kvenna og karla í nefndum og við stjórnun stofnana og fyrirtækja. Margt athyglisvert er að finna í erindi Margrétar og er það birt hér á eftir í heild sinni.
Velheppnaður fundur um aðgerðir til að ná launajafnrétti
6.3.2008

Aðferðir til að ná launajafnrétti - kostir, gallar og nýjar hugmyndir, var yfirskrift fundar sem samtök launafólks BSRB, BHM, ASÍ,KÍ og SSF stóðu fyrir í dag í Rúgbrauðsgerðinni. Fundurinn var haldinn í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna 8. mars. Hann var vel sóttur og heppnaðist mjög vel að öllu leyti.
Friður og menning
6.3.2008
Konur - virkjum kraftinn
6.3.2008
Aðferðir til að ná launajafnrétti
5.3.2008

Aðferðir til að ná launajafnrétti - kostir, gallar og nýjar hugmyndir, er yfirskrift fundar sem samtök launafólks BSRB, BHM, ASÍ,KÍ og SSF bjóða til 6. mars næstkomandi kl. 13:00 - 16:00 í Rúgbrauðsgerðinni, Borgartúni 6, Reykjavík. Fundurinn er haldinn í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna 8. mars.
Stöðvum fjöldamorðin - Rjúfum umsátrið um Gaza
4.3.2008
Efnt verður til útifundar á Lækjartorgi í hádeginu á morgun, miðvikudaginn 5. mars klukkan 12:15, til að mótmæla blóðbaðinu á Gazaströnd. Kröfur dagsins eru: Stöðvum fjöldamorðin og rjúfum umsátrið um Gaza. Ræðumenn verða Katrín Fjeldsted læknir og Ögmundur Jónasson alþingismaður. Fundarstjóri er Sveinn Rúnar Hauksson formaður Félagsins Ísland-Palestína.
Um BSRB
Á döfinni
Leit
























