Fréttir
1. maí alþjóðlegur baráttudagur verkalýðsins
30.4.2008
Baráttufundir verða um allt land á morgun á alþjóðlegum baráttudegi verkalýðsins. Árni Stefán Jónsson formaður SFR og varaformaður BSRB verður ræðumaður BSRB á fundinum á Ingólfstorgi. Ögmundur Jónasson formaður BSRB er ræðumaður í Vestmannaeyjum og Garðar Hilmarsson formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar í Hafnarfirði. Í Reykjavík verður safnast saman kl. 13.00 á Hlemmi og lagt af stað niður Laugaveg á Ingólfstorg þar sem útifundurinn verður haldinn. Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur leika fyrir göngunni. BSRB býður í 1. maí kaffi í BSRB-húsinu Grettisgötu 89 eftir útifundinn.
Stjórn BSRB vill hefja viðræður um skammtímasamning
18.4.2008
BSRB hvetur til þess að þegar í stað hefjist viðræður við fjármálaráðuneytið um skammtímasamning. Þetta kemur fram í ályktun sem stjórn BSRB sendi frá sér í dag. Í ályktuninni ítrekar stjórnin mikilvægi þess að kjör innan almannaþjónustunnar verði stórbætt. Svo er komið að mjög víða er þar við alvarlega manneklu að stríða sem rekja má til bágra kjara og er brýnt að taka af alvöru á þeim vanda.
Viðræður SFR og ríkisins hafnar
8.4.2008
SFR krefst þess að lágmarkslaun SFR félaga verði ekki undir 200.000.- kr. á mánuði, að bættur verði réttur starfsmanna vegna veikinda og slysa, að sí- og endurmenntunarúrræði verði styrkt, að orlofsréttur verði bættur ásamt fleiru. Þetta kom fram á fyrsta fundi samninganefndar SFR og samninganefndar ríkisins sem haldinn var í gær. Næsti samningafundur er boðaður mánudaginn 14. apríl.
Snorri Magnússon nýr formaður LL
3.4.2008
Snorri Magnússon var kjörinn nýr formaður Landssambands lögreglumanna. Valið var á milli tveggja lista. Annars vegar lista með Snorra sem formanni og hins vegar lista með Gils Jóhannssyni sem formanni. Þátttaka í kjörinu var mjög góð og vann Snorri afgerandi sigur.
Um BSRB
Á döfinni
10. febrúar 2012
23. mars 2012
18. maí 2012
Leit
























