Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

Nemendur á Eiðum styrkja Rauða krossinn

30.5.2008


Nemendur í 1. og 2. bekk Eiðaskóla söfnuðu rusli við orlofshús BSRB við Eiðavatn og fengu greitt fyrir það 20 þúsund krónur. Nemendunum þótti heillaráð að styrkja Rauða krossinn á Austurlandi með peningunum og afhentu honum þá í dag.

Samningarnir kynntir um allt land

30.5.2008

BSRB verður með fundi um allt land til að kynna nýgerðan samning bandalagsins við ríkið. Samningurinn gildir fyrir starfsmenn ríkisins í eftirtöldum félögum: Félag flugmálastarfsmanna ríkisins, Félag starfsmanna stjórnarráðsins, Kjölur-stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu, Samflot bæjarstarfsmannafélaga, SFR-stéttarfélag í almannaþjónustu, Sjúkraliðafélag Íslands, Starfsmannafélag Garðabæjar, Starfsmannafélag Kópavogs, Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar, Starfsmannafélag Suðurnesja.

Velheppnaður morgunverðarfundur með Allyson Pollock

29.5.2008


BSRB stóð fyrir morgunverðarfundi með dr. Allyson Pollock í dag. Dr. Pollock fjallaði um afleiðingar af einkavæðingu heilbrigðisþjónustunnar í Englandi sem hófst í tíð Thatchers en hélt áfram eftir að Verkamannaflokkurinn tók við. Afleiðingin er dýrara kerfi sem þjónar sjúklingum verr en þegar heilbrigðisþjónustan var alfarið á vegum hins opinbera. Hún benti á að bæði Skotar og Walesverjar hafi hafnað þessari markaðsvæðingu og hvatti hún Íslendinga að vera á varðbergi gagnvart þessari þróun. Eins og kunnugt er þá er til umfjöllunar á þingi nú frumvarp ríkisstjórnarinnar um breytt fyrirkomulag sjúkratrygginga sem greiðir fyrir markaðsvæðingu heilbrigðisþjónustunnar.

Morgunverðarfundur með Allyson Pollock

27.5.2008

Dr. Allyson Pollock prófessor við háskólann í  Edinborg í Skotlandi er með morgunverðarerindi hjá BSRB fimmtudaginn 29. maí kl. 8.15 - 10.  Dr. Pollock veitir forstöðu sérstakri rannsóknarstofnun við háskólann í Edinborg sem hefur það verk með höndum að kanna afleiðingar mismunandi skipulagsforma í heilbrigðisþjónustunni. Stofnunin heitir The Centre for International Public Health Policy. Dr. Pollock er menntaður læknir, sem síðan hefur sérhæft sig í rannsóknum á skipulagi heilbrigðisþjónustunnar. Erindið verður túlkað. Morgunverðarkaffi í boði BSRB. Fundurinn er í BSRB - húsinu, Grettisgötu 89.

Skammtímasamningur við ríkið í höfn

25.5.2008


Gengið var frá samningi aðildarfélaga BSRB sem áttu lausa samninga við ríkið 1. maí sl. við samninganefnd ríkisins rétt í þessu. Samið var til skamms tíma eða til loka mars á næsta ári. Samið var um 20.300 króna hækkun frá 1. maí. Einnig var samið um hækkun greiðslu ríkisins í styrkarsjóði BSRB um 0,2%, fer úr 0,55% í 0,75% um næstu áramót. Þá er í samningnum gengið frá ýmsum öðrum réttindamálum.

Markvissar viðræður við samninganefnd ríkisins hefjast

15.5.2008


Fulltrúar BSRB áttu í dag annan fund með fjórum ráðherrum ríkisstjórnarinnar, forsætis-, utanríkis-, fjármála- og félagsmálaráðherra vegna lausra samninga við ríkið. Að sögn Ögmundar Jónassonar formanns BSRB var þetta ágætur fundur og niðurstaða hans sú að hafnar yrðu markvissar viðræður samninganefndar ríkisins og BSRB um gerð kjarasamnings.

Gagnlegur fundur með ríkisstjórninni

7.5.2008


Fundi fulltrúa BSRB og fjögurra ráðherra ríkisstjórnarinnar í Stjórnarráðinu lauk nú skömmu fyrir kl. 13.00. Að sögn Ögmundar Jónassonar formanns BSRB var þetta ágætur fundur þar sem skipst var á skoðunum og upplýsingum. Það var sameiginleg niðurstaða aðila að efna til annars fundar með sömu aðilum í næstu viku. "Þá erum við að vonast til þessað afstaða ríkisstjórnarinnar til spurninga BSRB liggi skýrar fyrir," sagði Ögmundur.

BSRB hittir ríkisstjórnina í hádeginu

7.5.2008

Fulltrúar BSRB munu eiga fund með fjórum ráðherrum ríkisstjórnarinnar í Stjórnarráðinu kl. 12 á hádegi í dag. Eftir fyrsta formlega fund BSRB og launanefndar ríkisins vegna lausra samninga ríkisstarfsmanna óskaði BSRB eftir fundi með forsætisráðherra, utanríkisráðherra, fjármálaráðherra og félagsmálaráðherra til að ræða áform ríkisstjórnarinnar um hvernig hún hyggst efna fyrirheit sín í kjaramálum.

BSRB ítrekar óskir um fund með ríkisstjórninni

4.5.2008

Ögmundur Jónasson formaður BSRB  hefur ritað fjórum ráðherrum ríkisstjórnarinnar, forsætisráðherra, utanríkissráðherra, fjármálaráðherra og félagsmálaráðherra formlegt bréf þar sem áréttaðar eru óskir BSRB um fund með ráðherrunum þar sem þeir geri grein fyrir áformum stjórnarinnar  um hvernig hún hyggst efna fyrirheit sín í kjaramálum.

Engin viðbrögð frá ríkisstjórninni

3.5.2008

Í gær óskaði BSRB formlega eftir fundi með ríkisstjórninni, oddvitum stjórnarflokkanna auk fjármálaráherra og félagsmálaráðherra, áður en frekari samningaviðræður færu fram. BSRB félögin sem eiga lausa samninga við ríkið og koma sameiginlega að samningaborði vilja fá að vita hvernig ríkisstjórnin ætli að efna gefin fyrirheit um kjarabætur til til umönnunarstétta og annarra hópa innan almannaþjónustunnar þar sem launagliðnun hefur orðið mikil og manneklu gætt sökum bágra kjara.

BSRB vill fund með ríkisstjórninni

2.5.2008


Gunnar Björnsson formaður samninganefndar ríkisins og Ögmundur Jónasson heilsast við upphafa samningafundarins.

Fyrsta formlega samningafundi BSRB og aðildarfélaga þess við launanefnd ríkisins lauk rétt áðan hjá Sáttasemjara ríkisins. Samninganefnd ríkisins heldur enn fast við að samið verði til langs tíma en BSRB vill að gengið verði hið fyrsta frá skammtímasamningi. Í framhaldi af þessari niðurstöðu fundarins vill BSRB fund með ríkisstjórninni til að fá hennar sýn á stöðu mála og hvaða ráðagerðir hún hefur á prjónunum.

Fyrsti formlegi fundur BSRB með samninganefnd ríkisins

2.5.2008

Fyrsti formlegi samningafundur BSRB og aðildarfélaga bandalagsins með samninganefnd ríkisins verður hjá Ríkissáttasemjara í dag. kl. 14.00 Á fundinn mæta fulltrúar þeirra aðildarfélaga BSRB sem eiga lausa samninga við ríkið.

Samfélagið þarf að ná áttum

1.5.2008


Fjölmenni var á baráttufundum verkalýðshreyfingarinnar víða um land í dag 1. maí. Ögmundur Jónasson formaður BSRB var ræðumaður á fundinum í Vestmannaeyjum. Hann kom víða við í ræðu sinni og sagði m.a. að BSRB hefði lagt til skammtíma samninga við ríkið í ljósi þeirrar stöðu sem nú væri í efnahagslífinu, óðaverðbólg og himinháir vextir: „Samfélagið þarf að ná áttum - leggja til atlögu gegn þeim vágestum sem ógna okkur. Það þolir ekkert heimili eða veikburða atvinnurekstur okurvextina til frambúðar eða þá holskeflu verðhækkana á vöru og þjónustu sem nú ríður yfir. Það er komið að þeim sem stýra verðlaginu að sýna ábyrgð." Árni Stefán Jónsson formaður SFR flutti ræðu á Ingólfstorgi og Garðar Hilmarsson formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar í Hafnarfirði.

Verjum kjörin - 1. maí ávarp fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna í Reykjavík, BSRB, BHM, KÍ og SÍF

1.5.2008

"Undanfarin ár hefur verkalýðshreyfingin varað við harðri lendingu í efnahagsmálum. Stjórnvöld hafa ekkert mark tekið á viðvörunum og ráðleggingum hvorki frá efnahagssérfræðingum né frá samtökum á vinnumarkaði. Vandi okkar í efnahagsmálum er að stórum hluta heimatilbúinn. Andvaraleysi ráðamanna  hefur grafið undan efnahagskerfi landsins. Þess vegna skellur nú verðbólguholskeflan af fullu afli á almenningi. Ef há verðbólga festist á núverandi stigi mun hún sliga heimili landsins á skömmum tíma.  Ríkisstjórnin stendur ráðþrota og aðgerðalaus. Verkalýðshreyfingin hefur bent á bæði aðgerðir og leiðir.  Stjórnvöld höfðu marvísleg úrræði og leiðir til að mýkja lendinguna í efnahagsmálum. Nú bendir allt til þess að hún verði harkarleg. Til að koma til móts við launafólk ber að afnema gjaldtöku í heilbrigðiskerfinu og stórbæta úrræði í félagslega húsnæðiskerfinu. Það er dapurlegt að fylgjast með þeim aðgerðum ríkisstjórnarinnar að hún er tilbúin að koma bönkunum til aðstoðar meðan hún heldur að sér höndum gagnvart stórmálum sem snerta hagsmuni almennings hvað varðar verðlags- og húsnæðismál," segir m.a. í 1. maí ávarp fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna í Reykjavík, BSRB, BHM, KÍ og SÍF.


Um BSRB

Póstlistaskráning


Á döfinni


atvinnumal

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta