Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

Flugumferðarstjórar semja

27.6.2008

Í nótt náðust  samningar í kjaradeilu Flugumferðarstjóra. Loftur Jóhannsson, formaður félagsins, segir samninginn að uppstöðu til framlengingu á fyrri samningi. Hann gildi til 31.október 2009 og feli í sér samtals um 11% hækkun. Loftur minnir á að samningurinn sé með fyrirvara um samþykki félagsmanna. Miðað við aðstæður hafi samninganefnd félagsins hins vegar talið hyggilegt að ljúka málinu á framangreindum nótum.

Dagur opinberrar almannaþjónustu

23.6.2008

Í dag 23. júní er dagur opinberrar almannaþjónustu samkvæmt samþykkt Allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna frá 2002. Í tilefni dagsins skora Alþjóðasamtök starfsmanna í almannaþjónustu, PSI, Alþjóðasamband kennara, EI og Oxfam International, sem eru alþjóðleg hjálparsamtök, á ríkisstjórnir heimsins að leggja fram stóraukna fjármuni til að tryggja menntun og þjálfun heilbrigðisstarfsfólks og kennara um heim allan. Markmiðið er að allir eigi aðgang að heilbrigðisþjónustu og menntun enda sé þar um grundvallarmannréttindi að ræða.

Sjúkraliðar samþykkja samninginn við ríkið

20.6.2008

Sjúkraliðafélag Íslands hefur samþykkt kjarasamning BSRB við ríkið. Á kjörskrá voru 1250. Fjöldi svarenda var 545 eða 43,60%. Já sögðu 458, eða 84% svarenda. Nei sögðu 76 eða 14%. Auðir seðlar voru 17 eða 2% svarenda.

Samflotið samþykkir samning við ríkið

19.6.2008

94% félagsmanna í Samfloti sem greiddu atkvæði um kjarasamning BSRB við samninganefnd ríkisins samþykktu samninginn. Á kjörskrá voru 321 og greiddu 164 atkvæði eða 51,09%. Já sögðu 154 eða 93,90%. Nei sögðu 8 eða  4,88%. Auðir og ógildir voru 2 eða 1.22%.

Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar samþykkir kjarasamning við ríkið

19.6.2008

Ríkisstarfsmenn í Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar samþykktu kjarasamning BSRB við ríkið með 92,5% atkvæða þeirra sem greiddu atkvæði. 114 voru á kjörkskrá og af þeim greiddu atkvæði 53 eða 46%. Já sögðu 49 eða 92,5%. Nei sögðu 4 eða 7,5%. Auðir og ógildir voru engir.

Trúnaðarmannanámskeið BSRB og FA í haust

19.6.2008


Þátttakendur í trúnaðarmannanámskeiði BSRB og FA sl. vor.

Trúnaðarmannanámskeið BSRB og Félagsmálaskóla alþýðu halda áfram í haust. Fyrsti áfangi verður kenndur dagana 8. - 10. september og annar áfangi 15. - 17. september og 22. - 24. september. Námskeiðin eru haldin í BSRB húsinu, Grettisgötu 89, og eru frá kl. 9 til 16 alla dagana. Trúnaðarmannafræðslan sem BSRB og Félagsmálaskóli alþýðu bjóða upp á er metin til 10 eininga á framhaldsskólastigi. Námskeiðið er í fimm  hlutum. Í Fyrsta hlutanum er lögð höfuðáhersla á vinnumarkaðinn og verkalýðshreyfinguna, störf og stöðu trúnaðarmannsins. Einnig er fjallað um fjölmenningu á vinnustöðum og samskipti á vinnustað. Í öðrum áfanga er starfsemi stéttarfélaga tekin fyrir, launaútreikningar, fjölmenning á vinnustöðum og vinnuréttur. Námskeiðið fer fram í BSRB - húsinu Grettisgötu 89.

Flugumferðastjórar boða 20 stuttar vinnustöðvanir

18.6.2008

Félag íslenskra flugumferðarstjóra hefur boðað tuttugu stuttar vinnustöðvanir dagana 27. júní til 20. júlí næstkomandi. Verkfallsboðunin nær til allra starfandi flugumferðarstjóra í landinu hjá Flugmálastjórn Íslands, Flugmálastjórn á Keflavíkurflugvelli og hjá Flugstoðum. Þetta segir í fréttatilkynningu frá Félagi íslenskra flugumferðastjóra. Flugumferðarstjórar munu sinna neyðarþjónustu á meðan fyrirhuguðu verkfalli þeirra stendur. Nærri 100% þeirra sem tóku þátt í atkvæðagreiðslu um vinnustöðvunina greiddu atkvæði með vinnustöðvunum.

93% sögðu já hjá Kili

13.6.2008

Ríkisstarfsmenn í Kili samþykktu nýgerðan kjarasamning aðildarfélaga BSRB og ríkisins með 93% þeirra sem greiddu atkvæði. Þátttaka í atkvæðagreiðslunni var mjög góð eða 72% þeirra sem samningurinn nær til. Á kjörskrá voru 234 og þar af greiddu 167 atkvæði. Já sögðu 155 eða 93%, nei sögðu 7 eða 4% og auðir og ógildir seðlar voru 5 eða 3%.

SFR samþykkti kjarasamning við ríkið

12.6.2008

Félagar í SFR hafa samþykkt kjarasamning við ríkið sem aðildarfélög BSRB undirrituðu 25. maí síðastliðinn. Tæplega 89% þeirra sem greiddu atkvæði um samninginn samþykktu hann. Á kjörskrá voru alls 5554 félagsmenn hjá ríki og sjálfseignastofnunum. Af þeim greiddu 1855 félagsmenn atkvæði eða 33,4%. Já sögðu 1624 eða 87,65%. Nei sögðu 202 eða 10,89%. Þeir sem skiluðu auðu voru 29 eða 1,56%. Atkvæðagreiðslan var rafræn.

Konungleg skemmtun í Munaðarnesi

9.6.2008


Listafólkið ásamt formanni BSRB: Zsuzanna Budai, Þórarinn Eldjárn, Soffía Sæmundsdóttir, Hallveig Rúnarsdóttir, Hrönn Þráinsdóttir og Ögmundur Jónasson.

Húsfyllir var á menningarhátíð BSRB í Munaðarnesi laugardaginn 7. júní þegar myndlistarsýning Soffíu Sæmundsdóttur, Sumarganga, var opnuð. Hátíðargestir skemmtu sér konunglega við upplestur Þórarins Eldjárns á ljóðum sínum og tónlistaratriðum. Hallveig Rúnarsdóttir söng lög Tryggva M. Baldvinssonar við ljóð úr Heimskringlu Þórarins Eldjárn við undirleik Hrannar Þráinsdóttur og Freyjukórinn söng undir stjórn og undirleik Zsuzönnu Budai. Að dagskrá lokinni var boðið upp á léttar veitingar í Kaffi Paradís.

Samningurinn samþykktur samhljóða á Suðurnesjum

6.6.2008

Félagsmenn í Starfsmannafélagi Suðurnesja samþykktu samhljóða nýgerðan kjarasamning við ríkið. Um 45% félagsmanna sem eru með samning við ríkið og starfa á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja greiddu atkvæði og samþykktu samninginn samhljóða.

Félag starfsmanna stjórnarráðsins samþykkti samninginn við ríkið

6.6.2008

Nýgerður kjarasamningur BSRB við ríkið var samþykktur af Félagi starfsmanna stjórnarráðsins. 85% þeirra sem greiddu atkvæði sögðu já, 8% nei og 7% skiluðu auðu. Kosningin var rafræn og tóku 56% félagsmanna þátt í henni. Félag starfsmanna stjórnarráðsins er fyrsta félagið sem lýkur kosningu um samninginn en niðurstöður eiga að liggja fyrir eigi síðar en 20. júní.

Kjarasamningar BSRB og ríkisins kynntir

3.6.2008


Árni Stefán Jónsson formaður SFR og Kristín Á. Guðmundsdóttir formaður SLFÍ kynna samninginn í BSRB-húsinu.

Fyrstu kynningarfundir kjarasamninga BSRB og ríkisins voru í gær. Árni Stefán Jónsson formaður SFR og Kristín Á. Guðmundsdóttir formaður Sjúkraliðafélags Íslands kynntu samninginn á fundi í BSRB-húsinu og var sá fundur sendur með fjarfundarbúnaði til Patreksfjarðar þar sem Gylfi Guðmundsson formaður FOSVest stýrði fundi. Elín Björg Jónsdóttir formaður FOSS og Þórarinn Eyfjörð framkvæmdastjóri SFR kynntu samninginn á fundi á Hótel Selfossi og Arna Jakobína Björnsdóttir formaður Kjalar var með kynningarfund í Sjálfstæðishúsinu á Blönduósi.

Sumarganga og Eldjárn á menningarhátíð BSRB

2.6.2008


Myndlistarsýning Soffíu Sæmundsdóttur, Sumarganga, verður opnuð á menningarhátíð BSRB í Munaðarnesi laugardaginn 7. júní kl. 14. Á hátíðinni mun Þórarinn Eldjárn lesa úr eigin verkum og lög eftir Tryggva M. Baldvinsson við ljóð úr Heimskringlu Þórarins verða flutt af Hallveigu Rúnarsdóttur og Eyjólfi Eyjólfssyni við undirleik Hrannar Þráinsdóttur.  Einnig mun Freyjukórinn syngja nokkur lög og Ögmundur Jónasson formaður BSRB flytja ávarp. Að lokinni dagskrá er boðið upp á léttar veitingar. Hátíðin er ókeypis og opin öllum.

Um BSRB

Póstlistaskráning


Á döfinni


innrimal

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta