Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

Flugmálastarfsmenn semja við Flugstoðir

14.7.2008

Félag flugmálastarfsmanna ríkisins gekk frá kjarasamningi við Samtök atvinnulífsins og Flugstoðir ohf. nú upp úr hádegi. Samningurinn er á svipuðum nótum og samningur BSRB við ríkið. Laun hækka um 21.000 krónur á mánuði og gildir samningurinn frá 1. júní til 30 október 2009. Atkvæðagreiðsla um samninginn verður rafræn og hefst fimmtudaginn 17. júlí og er stefnt að því að henni ljúki viku seinna.

Samningur sjúkraliða við SFH samþykktur

7.7.2008

Samningur Sjúkraliðafélags Íslands við Samtök fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu (SFH) var samþykktur með meirihluta atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu. Svarhlutfall var 37,97%. Já sögðu 97 eða 81%. Nei sögðu 22 eða 18%. Skrifað var undir samkomulag við Samtök fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu mánudaginn 23. júní. Samningurinn gengur út á sömu kjarabætur (afturvirkt frá 1. maí sl.) og samið var um við fjármálaráðuneytið og undirritað  þann 25. maí sl.

Um BSRB

Póstlistaskráning


Á döfinni


kjaramál

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta