Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

FOSS og STÁ sameinast

14.8.2008

Gengið verður formlega frá sameiningu Félags opinberra starfsmanna á Suðurlandi (FOSS) og Starfsmannafélags Sveitarfélagsins Árborgar (STÁ) á sameiginlegum fundi stjórna félaganna 18. ágúst nk.  kl. 17 á skrifstofu FOSS, Austurvegi 38, Selfossi. Kynningafundur um sameininguna verður síðan haldinn á Hótel Selfossi 27. ágúst og hefst hann kl. 20.

Uppsögnum á Keflavíkurflugvelli mótmælt

1.8.2008

Níu starfsmönnum á Keflavíkurflugvelli hefur verið sagt upp störfum. Um er að ræða starfsmenn sem sinnt hafa vopnaleit og öryggisvörslu. „Þetta eru slæmar fréttir", sagði Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, en hann kveðst óttast að meira kunni að vera í pípunum bæði á Keflavíkurflugvelli og jafnvel hjá öðrum lögregluembættum. „Stjórnvöld hafa verið sinnulaus gagnvart löggæslunni. Víða hefur henni verið gert að skera stórlega niður og svo þröngur stakkur er henni sniðinn að mér kæmi ekki á óvart að okkur taki að berast fleiri svona ótíðindi."

Um BSRB

Póstlistaskráning


Á döfinni


efnahagsmal

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta