Fréttir
Málþing um eldri starfsmenn
18.9.2008

Geta eldri starfsmenn verið lykillinn að velgengni fyrirtækja? Þessi spurning verður rædd og reifuð á málþingi á vegum Verkefnisstjórnar 50+ sem haldið verður í Ketilshúsi á Akureyri fimmtudaginn 25. september milli klukkan 13 og 16.
Borgarstjóri Reykjavíkur heimsækir BSRB
12.9.2008

Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri Reykjavíkur heimsótti BSRB-húsið í dag og átti fund með Ögmundi Jónassyni formanni BSRB, Helgu Jónsdóttur framkvæmdastjóra BSRB og Garðari Hilmarssyni formanni Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar. Ögmundur sagði eftir fundinn að BSRB hefði ætíð leitast við að eiga gott samstarf við ráðamenn borgarinnar og þessi fundur með borgarstjóra hefði verið bæði ánægjulegur og upplýsandi fyrir alla aðila.
Starfslokanámskeið í lok mánaðarins
11.9.2008
Formannaskipti hjá STAG
9.9.2008
Heilbrigðisþjónustan - á vegferð til einkavæðingar
4.9.2008
BSRB hefur gefið út erindi sem Allyson Pollock prófessor við háskólann í Edinborg hélt á vegum bandalagsins sl. vor. Yfirskrift erindisins er Heilbrigðisþjónustan - á vegferð til einkavæðingar. Bæklingurinn er mikilvægt innlegg í umræðuna um frumvarp ríkisstjórnarinnar um sjúkratryggingar sem er til umræðu nú á haustþingi.
BSRB hefur kappkostað að afla upplýsinga um reynslu annarra þjóða af samsvarandi breytingum og hér eru í bígerð. Af því tilefni fengu samtökin Allyson Pollock hingað til lands en hún er einn helsti sérfræðingur Breta á þessu sviði. Allyson Pollock veitir forstöðu rannsóknarstofnun við Edinborgarháskóla (Centre for International Public Health Policy) sem sérhæfir sig í skipulagi heilbrigðisþjónustunnar. Erindi hennar á vegum BSRB fjallar um reynslu Breta af sams konar kerfisbreytingum og lagðar eru til í frumvarpinu um sjúkratryggingar. Pollock vísar í áform íslenskra stjórnvalda og ber fyrirliggjandi frumvarp saman við lagabreytingar í Bretlandi í byrjun 10. áratugar síðustu aldar. Þar segir hún m.a.: „Einkavæðingarferlið hefði ekki getað átt sér stað í Bretlandi án löggjafarinnar frá 1991. Hún gegndi lykilhlutverki með því að innleiða þær kerfisbreytingar að koma á innri markaði, aðgreina veitendur og kaupendur og verðleggja veitta þjónustu. Í kjölfarið fylgdi fjöldi nýrra reglugerða og verkferla til að hrinda einkavæðingunni í framkvæmd. Verkferlarnir byggðu ekki einungis á meginlöggjöfinni heldur einnig á reglugerðum sem voru samdar af embættismönnum. Sjúkratryggingafrumvarp íslenskra stjórnvalda nú er af sama toga og opnar leiðir fyrir ógrynni stefnumarkandi reglugerða á forræði ráðherra."
BSRB varar við hraðafgreiðslu frumvarps um sjúkratryggingar
3.9.2008
BSRB varar alvarlega við að frumvarp um sjúkratryggingar verði óbreytt gert að lögum á næstu dögum. Þetta kemur fram í umsögn bandalagsins um frumvarpið.
Trúnaðarmannanámskeiðið hefst í næstu viku
1.9.2008

Nú fer hver að verða síðastur til að skrá sig á fyrsta áfanga trúnaðarmannanámskeiðs BSRB og Félagsmálaskóla alþýðu. Fyrsti áfangi verður kenndur dagana 8. - 10. september. Annar áfangi verður síðan haldinn 15. - 17. september og 22. 23. og 29. september. Námskeiðin eru í BSRB húsinu, Grettisgötu 89, og eru frá kl. 9 til 16 alla dagana. Trúnaðarmannafræðslan sem BSRB og Félagsmálaskóli alþýðu bjóða upp á er metin til 10 eininga á framhaldsskólastigi. Námskeiðið er í fimm hlutum. Í fyrsta hlutanum er lögð höfuðáhersla á vinnumarkaðinn og verkalýðshreyfinguna, störf og stöðu trúnaðarmannsins. Einnig er fjallað um fjölmenningu á vinnustöðum og samskipti á vinnustað. Í öðrum áfanga er starfsemi stéttarfélaga tekin fyrir, launaútreikningar, fjölmenning á vinnustöðum og vinnuréttur. Námskeiðið fer fram í BSRB - húsinu Grettisgötu 89.
Um BSRB
Á döfinni
Leit
























