Fréttir
Varađ viđ áhrifum hćkkunar óbeinna skatta á skuldastöđu heimilanna
16.12.2009
BSRB styrkir Mćđrastyrksnefnd
15.12.2009
BSRB ákvað að senda ekki vinum og velunnurum jólakort þetta árið heldur að nýta peningana til góðgerða. Ákveðið var að veita Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur styrk að upphæð 300 þúsund krónur enda vitað að sá styrkur mun nýtast vel þeim sem mest þurfa á að halda nú um hátíðirnar.
Ólögmćt uppsögn
11.12.2009
Uppsögnum á Hvanneyri mótmćlt
10.12.2009
SFR telur ólöglega staðið að breytingum á rekstrarformi búrekstursins hjá Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri en í kjölfar breytinganna hefur öllum starfsmönnum sem komu að búrekstrinum verið sagt upp og einungis hluti þeirra verið endurráðinn og þá á allt öðrum og lakari starfskjörum.
NTR á loftslagsráđstefnunni
9.12.2009
Formenn og framkvæmdastjórar aðildarfélaga NTR (Nordisk tjenestemannsråd) funda nú í Kaupmannahöfn. Þeir heimsóttu í gær loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Bella senter. Fulltrúar BSRB á fundinum í Kaupmannahöfn eru Elín Björg Jónsdóttir formaður BSRB og Helga Jónsdóttir framkvæmdastjóri.
Stykkishólmsbćr dćmdur fyrir ólöglega uppsögn
8.12.2009
Starfslok verkefnisstjórnar 50+
7.12.2009
Verkefnisstjórn 50+ hefur skilað af sér skýrslu til félagsmálaráðherra þar sem farið er yfir störf hópsins undanfarin 5 ár. Verkefnisstjórnin var skipuð 7 fulltrúum, sex þeirra voru tilnefndir af aðilum vinnumarkaðar og hinu opinbera þ.e. Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Samtökum atvinnulífsins, Fjármálaráðuneyti, Alþýðusambandi Íslands, Vinnumálastofnun en Bandalag starfsmanna ríkisins, Bandalag háskólamanna og Kennarasamband Íslands tilnefndu sameiginlega einn fulltrúa. Formaður var skipaður án tilnefningar.
Hjúkrunarfrćđingar ráđnir í störf sjúkraliđa
3.12.2009
Vorönn trúnađarmannafrćđslu BSRB og Félagsmálaskólans
2.12.2009
Trúnaðarmanna-fræðsla BSRB og Félagsmálaskóla alþýðu hefst aftur í janúar. Fyrsta þrep verður haldið 18. - 20 janúar. Annað þrep verður haldið 25. - 27. janúar, þriðja þrep 1. - 3. febrúar, fjórða þrep 8. - 10. febrúar, fimmta þrep er kennt dagana 15. - 17. febrúar og sjötta þrep 1. og 2. mars. Námskeiðin eru í BSRB húsinu, Grettisgötu 89, og eru frá kl. 9 til 16 alla dagana.
Á hverja hlustar ríkisstjórnin?
2.12.2009
"Innan verkalýðshreyfingar-innar gerum við okkur vissulega grein fyrir því að nú þegar unnið er að lokafrágangi fjárlaga á Alþingi fyrir komandi ár standa spjótin á stjórnvöldum úr öllum áttum. Margir vilja koma sínum sjónarmiðum á framfæri. Samtök atvinnulífsins leggjast gegn álögum á stóriðju en hafa hins vegar illu heilli tekið undir með þeim sem tala fyrir því að í staðinn verði ýmsar aðrar álögur hækkaðar, svo sem tryggingagjald og aðrir launaskattar á lágtekju- og millitekjuhópa. Ekki fáum við heldur stuðning úr þeim herbúðum til að verja almannaþjónustuna," segir í grein eftir Elínu Björgu Jónsdóttur formann BSRB sem birtist í Fréttablaðinu í gær.
Fundađ međ trúnađarmönnum á LSH
1.12.2009
Málţing í tilefni Evrópudags sjúkraliđa
30.11.2009
Sjúkraliðar stóðu fyrir málþingi í Gerðubergi sl. fimmtudag. Á málþinginu var fjallað um "Hjúkrun og aðbúnað geðfattlaðra" og var það haldið í tilefni af Evrópudegi sjúkraliða og var mjög vel heppnað. Að málþinginu stóðu fjórar félagsdeildar Sjúkraliðafélags Íslands, þ.e. Reykjavíkurdeild, Suðurlandsdeild, Suðurnesjadeild og Vesturlandsdeild. Auk þeirra komu að undirbúningi málþingsins Sérdeild í hjúkrun aldraðra og Ungliðadeild félagsins.
Starfsmenntaverđlaun voru afhent í dag
27.11.2009
Starfsmennta-verðlaunin voru afhent í BSRB-húsinu í dag. Starfsmennta-verðlaunin eru veitt þeim sem eru að vinna framúrskarandi starf í starfsmenntun. Tilgangur Starfsmenntaverðlaunanna er að styðja við nýsköpun og framþróun starfsmenntunar á Íslandi. Stjórnvís hlaut verðlaun í flokki félagasamtaka og einstaklinga. Iðan fræðslusetur hlaut verðlaun í flokki skóla og fræðsluaðila og Securitas hlaut verðlaun Í flokki fyrirtækja.
Lćknaritarar mótmćla breytingum á störfum hjá LSH
27.11.2009
Sjúkraliđar mótmćla skerđingu greiđslna í fćđingarorlofi
26.11.2009
Skerđingin brot á samningum viđ opinbera starfsmenn
26.11.2009
"Stjórn KJALAR telur að áform um breytingar á fæðingarorlofslögum séu brot á samningum við heildarsamtök opinberra starfsmanna. Stjórn KJALAR telur breytingar á greiðslum í fæðingarorlofi sé alvarleg aðför að rétti foreldra og varar við að hróflað verði við lögunum," segir í ályktun frá stjórn Kjalar um skerðingu á greiðslum í fæðingarorlofi.
Skerđingu greiđslna í fćđingarorlofi mótmćlt
26.11.2009
Flutningi starfstöđvar frá Neskaupstađ til Reyđarfjarđar mótmćlt
24.11.2009
Kjaradeilu flugumferđarstjóra og SA vísađ til sáttasemjara
24.11.2009
Kjaradeilu Félags íslenskra flugumferðarstjóra og SA fyrir hönd Flugstoða og Keflavíkurflugvallar ohf. var vísað til ríkissáttasemjara í gær. Kjarasamningarnir hafa verið lausir frá síðustu mánaðamótum og hefur lítið þokast í samkomulagsátt. Þetta var því talið heillavænlegast á þessum tímapunkti að sögn flugumferðarstjóra.
Guđbjörn Arngrímsson nýr formađur Samflots
23.11.2009
Guðbjörn Arngrímsson formaður Starfsmannafélags Fjallabyggðar var kjörinn formaður Samflots á aðalfundi þess sem haldinn var á Hótel Hilton í Reykjavík 20. og 21. nóvember. Elín Björg Jónsdóttir lét af embætti formanns sem hún hafði gegnt frá 1988. Fundarmenn þökkuðu Elínu langt og farsælt samstarf og færðu henni málverk að gjöf með þakklæti fyrir vel unnin störf.
Ungliđadeild SLFÍ ályktar um heilbrigđis- menntamál
23.11.2009
"Stjórn Ungliðadeildar Sjúkraliðafélags Íslands harmar þá stöðu sem upp er komin í íslenska heilbrigðiskerfinu. Niðurskurður sem ekki sér fyrir endann á og virðist botnlaus hefur nú þegar farið yfir öll þolmörk. Stjórn deildarinnar leyfir sér að fullyrða að öryggi starfsmanna og skjólstæðinga þeirra sé víðast hvar orðið svo ótryggt að hætta á alvarlegum mistökum eða slysum sé veruleg," segir í byrjun ályktunar sem stjórnin sendi frá sér.
Öflug almannaţjónusta - aldrei eins mikilvćg og nú
20.11.2009
Á aðalfundi BSRB í dag var samþykkt ályktun um mikilvægi almanna-þjónustunnar og var fyrirhuguðum niðurskurði mótmælt harðlega. Í ályktuninni segir m.a.: „Niðurskurður velferðarþjónustunnar er dýrkeyptur og bitnar ekki einungis á þeim sem eiga undir högg að sækja heldur samfélaginu öllu. Þá leiðir niðurskurður á almannaþjónustunni til aukins atvinnuleysis sem þjóðfélagið sjálft þarf að fjármagna með atvinnuleysisbótum og félagslegum úrræðum. Auk þess bitnar hann ekki síst á konum sem búa nú þegar við óviðunandi launamun." Í ályktuninni er einnig fjallað um þrepaskipt skattkerfi og önnur tæki til tekjujöfnunar, auðlegðarskatt, óbeina skatta og fleira.
Ađalfundur BSRB tekur undir mótmćli slökkviliđsmanna á höfuđborgarsvćđinu
20.11.2009
BSRB vill réttlátt skattkerfi
18.11.2009
"Á næstu vikum verður tekist á um skattastefnuna á Alþingi og einnig utan þings því í þjóðfélaginu eru skiptar skoðanir og mismunandi hagsmunir þegar skattkerfið er annars vegar. Vegna þess hve tekjur ríkis og sveitarfélaga hafa fallið af völdum bankahrunsins og keðjuverkandi afleiðinga þess er ekki um annað að ræða en grípa til róttækra aðgerða. Að öðrum kosti verður ekki hægt að stoppa upp í fjárlagagatið," segir í grein eftir Elínu Björgu Jónsdóttur formann BSRB í Morgunblaðinu í gær.
SFR 70 ára
17.11.2009
SFR - starfsmannafélag í almannaþjónustu var stofnað í Alþýðuhúsinu í Reykjavík 17. nóvember árið 1939 og er því 70 ára í dag. Stofnendur voru 142 og störfuðu á rúmlega 20 ríkisstofnunum í bænum. Fyrsti formaður var kjörinn Guðjón B. Baldvinsson starfsmaður Tryggingastofnunar ríkisins en hann var á meðal helstu hvatamanna að stofnun félagsins.
Ađalfundur BSRB
17.11.2009
LSS ályktar vegna Reykjavíkurflugvallar
16.11.2009
Styrkir til starfs eđa náms í Eystrasaltsríkjunum
13.11.2009
Ríkisstjórnin endurskođi áherslur í atvinnumálum
12.11.2009
"BSRB átti aðild að stöðugleikasáttmálanum sem aðilar vinnumarkaðarins komu sér saman um ásamt stjórnvöldum og sveitarfélögum síðastliðið sumar. Bandalagið studdi - og styður enn - það meginmarkmið sáttmálans að verja kjör launafólks og tryggja fulla atvinnu. Hins vegar er ekki sama hvernig að verki er staðið. Það skiptir að sjálfsögðu höfuðmáli hvernig þetta er gert, hverjar áherslurnar eru við atvinnusköpun og hvernig stjórnvöld bera sig að," segir í grein eftir Elínu Björgu Jónsdóttur sem birtist í Fréttablaðinu 11. nóvember.
Hagsmunafélag faglćrđra matreiđslumanna stofnađ
11.11.2009
BSRB kallar eftir breyttum áherslum
9.11.2009
"Enginn deilir um það að áframhaldandi efnahagsþrengingar eru framundan. Þegar finna þeir fyrir kreppunni sem misst hafa vinnu sína, sumir eru í þann veginn að missa heimili sín, og boðaður er niðurskurður í almannaþjónustunni. Margt bendir til þess að kreppan verði dýpri hér en í þeim löndum sem við helst berum okkur saman við," segir í upphafi greinar eftir Elínu Björgu Jónsdóttur formann BSRB.
Greiđslujöfnun og skuldaađlögun
5.11.2009
Elín Björg fćr viđurkenningu Kvenréttindafélagsins
5.11.2009
Kvenréttindafélag Íslands færði Elínu Björgu Jónsdóttur viðurkenningu í gær í tilefni af því að hún er fyrsta konan sem er kjörin formaður BSRB. Meðal þeirra sem afhentu Elínu Björgu viðurkenninguna var Ragnhildur G. Guðmundsdóttir sem var fyrsta konan sem kjörin var varaformaður BSRB.
Nýr formađur FOSS
5.11.2009
Kvenfélagasambandiđ heilsar upp á formann BSRB
2.11.2009
Kvenfélaga-samband Íslands afhenti Elínu Björgu Jónsdóttur nýkjörnum formanni BSRB blóm í dag í tilefni af því að hún er fyrsta konan sem gegnir því embætti.
Góđir gestir frá Norđurlöndunum
2.11.2009
Talsvert er um að félagar í samtökum opinberra starfsmanna á Norðurlöndunum komi í heimsókn til BSRB til að kynna sér efnahagsástandið á Íslandi eftir hrunið. Í síðustu viku tók BSRB á móti tveimur hópum, annars vegar frá Fagforbundet í Stavangri í Noregi og hins vegar frá SKFT í Lundi í Svíþjóð.
Yfirlýsing forsćtis- og fjármálaráđherra um framgang stöđugleikasáttmálans
28.10.2009
Lög sem taka á skuldavanda heimilanna
28.10.2009
Nú er ţörf á réttlćti
23.10.2009
Nú er þörf á réttlæti - þegar tekjur þjóðarinnar dragast saman þarf að jafna gæðunum. Við þurfum að virkja réttlætiskennd þjóðarinnar og við þurfum að sýna hugkvæmni til að brjótast út úr aðsteðjandi vanda. Það á ekki síst við um samtök launafólks sem standa frammi fyrir geigvænlegum niðurskurði, sagði Elín Björg Jónsdóttir nýkjörinn formaður BSRB m.a. í ræðu sinni þegar hún sleit 42. þingi BSRB.
Framkvćmdanefnd BSRB kjörin
23.10.2009
Að afloknu kjöri formanns BSRB var gengið til atkvæða um aðra fulltrúa í framkvæmdanefnd. Árni Stefán Jónsson formaður SFR var kjörinn 1. varaformaður BSRB, Garðar Hilmarsson formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar var kjörinn 2. varaformaður, Þuríður Einarsdóttir formaður Póstmannafélags Íslands var kjörin gjaldkeri og Kristín Á. Guðmundsdóttir formaður Sjúkraliðafélags Íslands var kjörin ritari. Þau voru öll sjálfkjörin.
Elín Björg Jónsdóttir er nýr formađur BSRB
23.10.2009
Elín Björg Jónsdóttir formaður FOSS var kjörin formaður BSRB með 52,38% atkvæða rétt í þessu eða 132 atkvæði af 252. Hún náði kjöri í fyrstu umferð. Árni Stefán Jónsson formaður SFR fékk 82 atkvæði eða 32,54% og Arna Jakobína Björnsdóttir formaður Kjalar fékk 38 atkvæði eða 15,08%. Snorri Magnússon dormaður Landssambands lögreglumanna dró framboð sitt til baka skömmu áður en atkvæðagreiðsla hófst.
Verja á kaupmátt launafólks
23.10.2009
Niđurskurđurinn bitni ekki á grunnţjónustunni
23.10.2009
Skilyrđi AGS verđi endurskođuđ
23.10.2009
Kosning formanns upp úr hádegi
23.10.2009
Kosning formanns BSRB fer fram upp úr hádegi í dag á þingi bandalagsins. Eins og kunnugt er hefur Ögmundur Jónasson ákveðið að hætta sem formaður eftir að hafa gegnt starfinu í 21 ár. Fjórir hafa gefið kost á sér til formennsku en til þess að vera réttkjörinn formaður þarf viðkomandi að njóta stuðnings meira en helmings þingfulltrúa.
Stađa mála í heiminum. Hvađ er til ráđa?
22.10.2009
Á þingi BSRB í dag flutti Páll Skúlason prófessor fyrirlestur sem nefndist: „Staða mála í heiminum. Hvað er til ráða?" Í fyrirlestrinum fjallaði hann um orsakir kreppunnar og hvert bæri að stefna í framtíðinni.
Glćsilegur hátíđarfundur međ Ögmundi
22.10.2009
Hátíðardagskrá til heiðurs Ögmundi Jónassyni formanni BSRB sem haldin var í Háskólabíói í gær var mjög fjölsótt og vel heppnuð. Hátíðin var haldin í tilefni af því að Ögmundur hættir nú sem formaður BSRB eftir að hafa gegnt því starfi í 21 ár.
Okkar hlutverk er ađ toga fyrir ţá sem standa höllum fćti
21.10.2009
„Við eigum að horfast í augu við það að í þjóðfélaginu ríkir togstreita - það er okkar hlutverk að toga fyrir þá sem standa höllum fæti gagnvart fjármagni og valdi. Það breytir því ekki að togstreitunni á jafnan að beina í eins jákvæðan og uppbyggilegan farveg og kostur er. Ég vil að við séum sem ein fjölskylda. En þá verðum við líka að vera það í reynd," sagði Ögmundur Jónasson formaður BSRB m.a. þegar hann ávarpaði þing BSRB við setningu þess kl. 11 í morgun á Grand hóteli. Ögmundur hættir nú sem formaður BSRB eftir að hafa gegnt því starfi í 21 ár og var honum þökkuð störf með því að þingheimur reis úr sætum og ætlaði lófaklappi aldrei að linna.
Skrifstofa BSRB lokuđ vegna ţings BSRB
20.10.2009
Yfirlýsingar stjórnvalda ţverbrotnar
20.10.2009
Dagskrá til heiđurs Ögmundi Jónassyni
19.10.2009
Hátíðardagskrá til heiðurs Ögmundi Jónassyni formanni BSRB verður haldin í Háskólabíói miðvikudaginn 21. október kl. 17.30. Húsið er opnað kl. 17.
42. ţing BSRB
19.10.2009
Óbreyttum persónuafslćtti mótmćlt
16.10.2009
Starfslokanámskeiđ BSRB
15.10.2009
Varađ viđ skerđingu á almannaţjónustunni
14.10.2009
Svikin fyrirheit
13.10.2009
Samningur Kjalar og SFH samţykktur
13.10.2009
Ráđgjafar á sviđi starfsendurhćfingar
7.10.2009
Ţjónusta sveitarfélaga verđi ekki skert
6.10.2009
"Stjórn og trúnaðarmenn Félags opinberra starfsmanna á Suðurlandi, FOSS vilja beina þeim tilmælum til sveitarstjórnarmanna að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að koma í veg fyrir að þjónusta sveitarfélaganna verði skert á þeim samdráttartímum sem framundan eru. Nærþjónustan við fólkið er alltaf mikilvæg en aldrei sem á tímum erfiðleika," segir í ályktun sem samþykkt var á fundi stjórnar- og trúnaðarmanna FOSS á Hótel Selfossi í gær 5. október.
Aldarfjórđungur frá BSRB-verkfallinu
5.10.2009
Nú eru liðin 25 ár síðan hörðustu átök á vinnumarkaði í áratugi hófust með BSRB-verkfallinu 4. október 1984. Verkfallið var víðtækt og lamaði þjóðfélagið meira og minna í fjórar vikur, eða allt til 30. október þegar loks var skrifað undir samninga.
Sjúkraliđar lýsa yfir áhyggjum af fyrirhuguđum niđurskurđi
30.9.2009
Sjúkraliđafélagiđ vinnur mál gegn Alhjúkrun
28.9.2009
Hæstiréttur hefur staðfest niðurstöðu héraðsdóms í máli félagsmanns Sjúkraliðafélags Íslands gegn Alhjúkrun ehf. um að fyrirtækinu beri að greiða starfsmanninum laun samkvæmt kjarasamningum Sjúkraliðafélagsins. Sjúkraliðafélagið aðstoðaði félagsmann við málshöfðun fyrir héraðsdómi Reykjavíkur.
Lánveitendur axli einnig ábyrgđ
25.9.2009
Á fyrsta fundi fulltrúaráðs Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar sem haldinn var í gær var samþykkt ályktun þar sem þess var krafist að lánveitendur verði látnir taka ábyrgð til jafns við lántakendur á efnahagshruninu.
Samiđ viđ Hitaveitu Suđurnesja
17.9.2009
SLRB lýsir áhyggjum yfir fyrirhuguđum niđurskurđi í heilbrigđis- og velferđarkerfinu
15.9.2009
Fjölbreytt námsframbođ Framvegis
2.9.2009
Framvegis, miðstöð um símenntun, hefur sent frá sér námsvísi fyrir haustönn 2009 þar sem boðið er upp á mjög fjölbreytt námsframboð. Meðal þess sem boðið er uppá er ritara- og skrifstofustjóra-nám en umsóknarfrestur fyrir það rennur út 10. september. Þá er í boði margvíslegt nám fyrir sjúkraliða, félagsliða, starfsfólk í þjónustu- og skrifstofustörfum o.fl. Framvegis er í eigu Verzlunarskóla Íslands, BSRB, SLFÍ, SFR og Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar.
Suđrćn stemming í Munađarnesi
26.8.2009
Nú er tækifæri til að skreppa úr bænum um helgina og leigja sér hús í Stóru skógum í Munaðarnesi. Spáin fyrir helgina á Vesturlandi er mjög góð og tilvalið að skreppa í berjamó enda berjaspretta með besta móti í ár. Í Kaffi Munaðarnesi verður suðræn stemming á laugardagskvöldið þar sem Delizie Italiane skemmta gestum auk þess sem tilvalið er að snæða góðan kvöldverð fyrir dansinn. Húsin er hægt að bóka í gegnum heimasíðu BSRB eða hafa samband við skrifstofu BSRB í síma 525 8300.
Ráđgjafi á sviđi starfsendurhćfingar hjá stéttarfélögum á Suđurlandi
26.8.2009
Samkomulag viđ Stćtó samţykkt
24.8.2009
Samkomulag um breytingar og framlengingu á kjarasamningi milli St.Rv. og Strætó bs. var samþykkt með 68 atkvæðum eða 70,1%, 24 greiddu atkvæði á móti samkomulaginu eða 24,7%, auðir og ógildir voru 5 eða 5,2%. Atkvæði greiddu 97 eða 51,1% félagsmanna á kjarasamningi við Strætó bs.
Kórstarf BSRB ađ hefjast
21.8.2009
42. ţing BSRB
18.8.2009
42. þing BSRB verður haldið á Grand hótel dagana 21. - 23. október nk. Áætlaður fjöldi þingfulltrúa er um 260 og verða þeim send öll gögn sem varða þingið fyrir lok september.
Samiđ viđ Strćtó
18.8.2009
Atkvćđagreiđslu um kjarasamninga lokiđ
17.8.2009
Ađkoma ráđuneyta ađ eineltismálum
15.7.2009
STAG semur viđ LN
9.7.2009
Samiđ viđ sveitarfélögin
7.7.2009
Flest aðildarfélög BSRB sem semja við Launanefnd sveitarfélaga skrifuðu undir nýjan kjarasamning fyrr í kvöld. Samningurinn er mjög á svipuðum nótum og kjarasamningur Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar sem undirritaður var í gær og samningurinn við ríkið á föstudag. Megináhersla við gerð samninganna var lögð á að hækka launataxta sem eru undir 180.000 kr. og kemur sú hækkun í þremur áföngum.
Samiđ viđ borgina
6.7.2009
Kjarasamningur milli Reykjavíkurborgar og Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar var undirritaður á áttunda tímanum í kvöld, 6. júlí. Líkt og samningur aðildarfélaga BSRB við ríkið er áhersla lögð á að hækka lægstu laun félagsmanna. Laun undir 180 þúsund krónum hækka um 6.750 1. júlí og 1. nóvember og um 6.500 1. júní 2010. Laun upp að 210.000 krónum hækka árið 2009 en launahækkanir fara stiglækkandi eftir því sem launatalan hækkar.
Ósamiđ viđ starfsfólk sveitarfélaga
3.7.2009
Samninganefnd Reykjavíkurborgar ákvað í kvöld að fresta viðræðum við Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar fram yfir helgi. Þegar það lá fyrir treysti Launanefnd sveitarfélaga sér ekki til að undirrita kjarasamning við önnur starfsmannafélög.
Skrifađ undir samning viđ ríkiđ
3.7.2009
Undirritað hefur verið samkomulag um breytingar og framlengingu á kjarasamningi aðildarfélaga BSRB við ríkið. Gildistími er til 30. nóvember 2010. Í samkomulaginu felast leiðréttingar á lægstu launum eins og gert var ráð fyrir í stöðugleikasáttmála aðila vinnumarkaðarins og ríkisstjórnarinnar frá 25. júní. Persónu- og orlofsuppbót hækka. Þá er í samningnum sérstakt ákvæði um Starfsendurhæfingarsjóð.Í bókunum er m.a. að finna nýtt ákvæði um aðkomu aðildarfélaga BSRB að Fræðslumiðstöð atvinnulífsins.
Viđrćđur um kjarasamninga viđ ríkiđ hafnar
30.6.2009
Fréttatilkynning frá BHM, BSRB og KÍ vegna stöđugleikasáttmála
25.6.2009
Skrifađ undir stöđugleikasáttmála
25.6.2009
Skrifað var undir stöðugleikasáttmála aðila vinnumarkaðarins og ríkisstjórnarinnar í Þjóðmenningar-húsinu kl. 13:30. Markmið sáttmálans er að stuðla að endurreisn efnahagslífsins. Í framhaldi af undirskriftinni munu opinberir starfsmenn hefja samningaviðræður við ríki og sveitarfélög um nýja kjarasamninga en aðilar á almenna vinnumarkaðinum hafa náð samkomulagi um framlengingu kjarasamninga til haustsins 2010.
Ólíkar áherslur ađila vinnumarkađarins
24.6.2009
„Það eru fleiri ljón í veginum en ég gerði ráð fyrir í byrjun vikunnar um að aðilar næðu saman," sagði Árni Stefán Jónsson varaformaður BSRB um hvernig þríhliða viðræðum aðila vinnumarkaðarins og ríkisstjórnarinnar um stöðugleikasáttmálann miðaði. Ágreiningurinn snýst fyrst og fremst um hvernig skuli fara með ríkisfjármálin.
Stöđugleikasáttmálinn ađ fćđast
22.6.2009
Skemmtileg menningarhátíđ BSRB
22.6.2009
Fjölmenni var á menningarhátíð BSRB í Munaðarnesi sl. laugardag. Þar var opnuð myndlistarsýning Ingibergs Magnússonar. Hátíðargestir skemmtu sér konunglega við upplestur Einars Más Guðmundssonar þegar hann fór með ljóð sín og spjallaði við gesti hátíðarinnar. Þóra Einarsdóttir óperusöngkona söng við undirleik Önnu Guðnýjar Guðmundsdóttur og voru listamennirnir ítrekað klappaðir upp.
Rekstri og ţjónustu ríkisins hlíft
19.6.2009
Ríkisstjórnin lagði fram frumvarp til laga um ráðstafanir í ríkisfjármálum í gær. Árni Stefán Jónsson varaformaður BSRB sagði að með þessum aðgerðum væri lögð megináhersla á tekjuhliðina og reynt að hlífa niðurskurði í rekstri og þjónustu ríkisins á næsta ári. Hann sagði það jákvætt en menn hefðu hins vegar áhyggjur af því hvað muni gerast árin 2011 og 2012.
Trúnađarmannafrćđslan heldur áfram í september
19.6.2009
Trúnaðarmanna-fræðsla BSRB og Félagsmálaskóla alþýðu hefst aftur í september. Annað þrep verður haldið 14. - 16. September, þriðja þrep 21. - 23. September og fjórða þrep 28. - 30. septrember. Fyrsta þrep er kennt dagana 2. - 4. nóvember, en þá er trúnaðarmannakjöri lokið hjá flestum aðildarfélögum BSRB. Námskeiðin eru í BSRB húsinu, Grettisgötu 89, og eru frá kl. 9 til 16 alla dagana.
Laust í Stóruskógum og Munađarnesi
18.6.2009
Nokkur hús eru laus í orlofshúsabyggð BSRB í Munaðarnesi nú um helgina. Húsin eru í Stóruskógum og einnig lítil hús í Munaðarnesi. Hægt er að fá þau í helgarleigu eða vikuleigu. Félagsmenn í BSRB geta bókað húsin beint í gegnum heimasíðu BSRB. Nánari upplýsingar gefur skrifstofa BSRB í síma 525 8300.
Menningarhátíđ í Munađarnesi
15.6.2009
Myndlistarsýning Ingibergs Magnússonar verður opnuð á menningarhátíð BSRB í Munaðarnesi laugardaginn 20. júní kl. 14. Á hátíðinni mun Einar Már Guðmundsson rithöfundur lesa úr eigin verkum og Þóra Einarsdóttir óperusöngkona syngur við undirleik Önnu Guðnýjar Guðmundsdóttur. Ögmundur Jónasson formaður BSRB flytur ávarp. Að lokinni dagskrá er boðið upp á léttar veitingar. Hátíðin er ókeypis og öllum opin.
Fundađ međ ráđherrum
12.6.2009
Samstarf um ráđgjafa Starfsendurhćfingarsjóđs á Suđurlandi
11.6.2009
Málefnahópar langt komnir međ störf sín
9.6.2009
Jafnréttisnefnd BSRB hafnar atvinnustefnu á kostnađ kvenna
8.6.2009
Viđrćđum um stöđugleikasáttmála haldiđ áfram
5.6.2009
Viđrćđur um launaliđ opinberra starfsmanna halda áfram
4.6.2009
Viðræður um þríhliða samkomulag samtaka launafólks, atvinnurekenda og ríkisins eru í ákveðinni óvissu eftir að Seðlabankinn tilkynnti um 1% lækkun stýrivaxta. Vinna í efnahagsnefnd samningsaðila hélt þó áfram eftir hádegi í dag og á morgun hafa verið boðaðir fundir í viðræðunefndinni sem fjallar um launalið opinberra starfsmanna. Þótt viðræður ASÍ og SA séu í uppnámi halda viðræður um launalið kjarasamninga opinberra starfsmanna áfram.
Nauđsynlegt ađ styrkja innviđi samfélagsins og efla grunnţjónustu
22.5.2009
"Við þær aðstæður sem nú eru uppi er nauðsynlegt að styrkja innviði samfélagsins og efla grunnþjónustu þess. Öflugt velferðarkerfi gerir okkur kleift að standa af okkur verstu áföllin og með samstöðu mun þjóðinni takast að vinna bug á erfiðleikunum. Forsendur samstöðunnar eru jöfnuður og félagslegt réttlæti," segir m.a. í ályktun stjórnar BSRB sem samþykkt var í dag.
Viđrćđum um stöđugleikasáttmálann ljúki 9. júní
20.5.2009
Ársfundir LSS og LSR
11.5.2009
Ársfundir Lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga (LSS) og Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins (LSR) verða haldnir um miðjan mánuðinn. Ársfundur LSS verður haldinn miðvikudaginn 13 maí í fundarsal BSRB á 1. hæð og hefst kl. 10:30. Ársfundur LSR verður haldinn þriðjudaginn 19. maí á Hilton Reykjavík Nordica hóteli Suðurlandsbraut 2 og hefst kl. 15.
FOSS krefst samráđs
8.5.2009
Ríkisstarfsmenn fá hefđbundna orlofsuppbót
4.5.2009
Þar sem starfsmenn ríkisins eru með lausa kjarasamninga hefðu þeir að óbreyttu ekki fengið orlofsuppbót í júní eins og annað launafólk.Fjármálaráðuneytið hefur nú ákveðið að greiða starfsmönnum ríkisins orlofsuppbót "til að stuðla að jafnri stöðu stéttarfélaga í aðdraganda þjóðarsáttar um launaþróun," eins og segir í frétt frá ráðuneytinu.
Trú Íslendinga á virkni markađarins hefur minnkađ
4.5.2009
Svo virðist sem efnahagshrunið hafi dregið nokkuð úr trú fólks á virkni markaðarins í samfélaginu. Þetta kemur fram í könnun sem Þjóðmálastofnun Háskóla Íslands hefur gert á viðhorfum fólks til velferðarmála í kjölfar fjármálahrunsins.
Fjölmenni á baráttufundinum á Austurvelli
1.5.2009
„ Á undanförnum árum höfum við orðið vitni að óheftri græðgi ákveðinna aðila í samfélaginu sem að lokum leiddi til hruns efnahagslífsins. Á þeim tíma jókst óréttlætið í þjóðfélaginu, launabilið varð að gjá og launamisrétti kynjanna hefur ekki verið meira í langan tíma. Nú þegar taka þarf til hendinni og hreinsa upp er mikilvægt að þeir sem sátu eftir á „góðæristímanum" svokallaða verði ekki látnir moka flórinn eftir fjárglæframennina," sagði Þórveig Þormóðsdóttir formaður Félags starfsmanna stjórnarráðsins m.a. í ræðu sinni á Austurvelli í dag .
Baráttukveđjur 1. maí
1.5.2009

BSRB óskar íslensku launafólki til hamingju með 1. maí, alþjóðlegan baráttudag verkalýðsins. Sýnum samstöðu og fjölmennum á baráttufundi um allt land. Munið 1. maí kaffi í BSRB - húsinu Grettisgötu 89 í Reykjavík eftir útifundinn á Austurvelli.
Fjölmennum á baráttufundi 1. maí
30.4.2009

Baráttufundir verða haldnir um allt land 1. maí. Nauðsyn þess að launafólk safnist saman til að leggja áherslu á kröfur sínar hefur aldrei verið meiri en nú. Einungis með öflugri baráttu launafólks mun þjóðinni takast að vinna sig út úr efnahagskreppunni án þess að rústa því velferðarkerfi sem verkalýðshreyfingin hefur átt stóran þátt í að byggja upp á Íslandi. Byggjum réttlátt þjóðfélag er kjörorð hreyfingarinnar 1. maí. Fjölmennum á baráttufundina.
BSRB - tíđindi komin út
29.4.2009
BSRB - tíðindi eru komin út. Í blaðinu kennir ýmissa grasa að venju. Fjallað er um lögregluna og búsáhalda-byltinguna, atvinnuleysi, lýðræði fjármagnsins, fræðslumál innan BSRB, réttarstöðu launafólks á krepputímum, ástandið í Nörrebro hverfinu í Kaupmannahöfn og viðtal við Ögmund Jónasson heilbrigðisráðherra um formannslok hans hjá BSRB.
Sérálit BSRB í Evrópunefndinni
17.4.2009
Nefnd um þróun Evrópumála sem ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar skipaði fyrir rúmu ári komst ekki að niðurstöðu og skiluðu nefndarmenn fimm sérálitum, þar á meðal fulltrúi BSRB í nefndinni. Í áliti BSRB segir að bandalagið hafi ekki tekið afstöðu með eða á móti inngöngu í ESB en vilji fá upplýsta og gagnrýna umræðu um sem flesta þætti er snerta hugsanlega inngöngu. Telja samtökin að skýrsla Evrópunefndarinnar hefði mátt vera gagnlegt innlegg í slíka umræðu.
Auk BSRB áttu sæti í nefndinni fulltrúar frá ASÍ, Samtökum atvinnulífsins, Viðskiptaráði Íslands og þingflokkunum.
Samráđ verđi haft viđ samtök launafólks
16.4.2009
LSR og fjármálakreppan
8.4.2009
Samstađa, samvinna og samráđ
6.4.2009
Troðfullt var á fundi Ögmundar Jónassonar heilbrigðisráðherra með trúnaðarmönnum verkalýðsfélaga innan heilbrigðisþjónustunnar þar sem staða mála og framtíðarhorfur voru til umræðu. Í máli hans kom fram að aldrei hefur verið mikilvægara að standa vörð um heilbrigðisþjónustuna en nú og til þess þurfi samstöðu allra sem innan hennar vinna. Ögmundur sagði að sam- væri mikilvægasta forskeyti dagsins í dag og komandi framtíðar. Samstaða, samvinna og samráð ættu að vera leiðarljósið við þau verkefni sem framundan væru í heilbrigðisþjónustunni.
Dreifibréf um stöđuna á vinnumarkađi
2.4.2009
PFÍ gagnrýnir stjórnvöld fyrir ađ greiđa sér arđ af starfsemi Íslandspósts
30.3.2009
Víđtćkt samráđ um ađgerđir
30.3.2009
Póstmannafélagiđ 90 ára
26.3.2009
Velferđarmál eru líka atvinnumál
24.3.2009
Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra boðar til fundar með trúnaðarmönnum verkalýðsfélaga innan heilbrigðisþjónustunnar þar sem staða mála og framtíðarhorfur verða til umræðu. Aldrei hefur verið mikilvægara að standa vörð um heilbrigðisþjónustuna og til þess þarf samstöðu allra sem innan hennar vinna. Velferðarmál eru líka atvinnumál! Heilbrigðisráðherra boðar til fundarins í samstarfi við BSRB og Starfsgreinasamband Íslands.
Námsstefna um vinnumarkađsúrrćđi
23.3.2009
Sjávarútvegur og iđnađur hjá ESB
20.3.2009
BSRB stóð fyrir opnum fundi um Evrópusambandið í dag. Þetta er annar fundurinn í röð funda sem BSRB hyggst standa fyrir um Ísland og ESB. Á fundinum var fjallað um afstöðu ESB til sjávarútvegs og iðnaðar. Framsögumenn voru Aðalsteinn Leifsson lektor við Háskólann í Reykjavík og Bjarni Már Gylfason hagfræðingur Samtaka iðnaðarins.
Óviđunandi ađ launafólk beri byrđar af efnahagshruni
20.3.2009
Sjávarútvegur og iđnađur í ESB
18.3.2009

Opinn fundur verður um Evrópusambandið á vegum BSRB föstudaginn 20. mars kl. 14 - 16 í BSRB - húsinu Grettisgötu 89. Á fundinum verður fjallað um stefnu ESB í sjávarútvegi og iðnaði. Framsögu hafa Aðalsteinn Leifsson lektor við Háskólann í Reykjavík og Bjarni Már Gylfason hagfræðingur Samtaka iðnaðarins.
Nýr formađur TFÍ
16.3.2009
Kreppan og opinberir starfsmenn á Norđurlöndunum
4.3.2009
Árlegur fulltrúaráðsfundur NOFS (Nordens Offentliganställdas Fackliga Samorganisation) var haldinn í BSRB húsinu í dag. Á fundinum flutti Kristian Weise hagfræðingur LO í Danmörku erindi um afleiðingar heimskreppunnar og Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra um áhrif hennar hér á landi. Fundinn sátu á fjórða tug manna frá öllum Norðurlöndunum. NOFS eru samtök stéttarfélaga opinberra starfsmanna á Norðurlöndum.
Međ jafnrétti ađ leiđarljósi
3.3.2009
Með jafnrétti að leiðarljósi - uppbygging í allra þágu, er yfirskrift fundar á Grand Hótel í Reykjavík mánudaginn 9. mars kl. 11.45 - 13.00. Fundurinn er haldinn í tilefni alþjóðlegs baráttudags kvenna 8. mars. Að fundinum standa ASÍ, BHM, BSRB, KÍ, SSF, Jafnréttisráð og Jafnréttisstofa.
Spurt og svarađ um uppsagnir o.fl.
2.3.2009
Ottó Eiríksson nýr formađur FÍF
2.3.2009
Fróđlegur fundur um Ísland og ESB
20.2.2009
BSRB stóð fyrir opnum fundi um Evrópusambandið í dag. Þetta var fyrsti fundurinn í röð funda sem BSRB hyggst standa fyrir um Ísland og ESB. Á fundinum var fjallað um stöðu smáríkja innan ESB og hvaða áhrif aðild að sambandinu gæti haft á íslenskan landbúnað. Framsögumenn voru Baldur Þórhallsson, Jean Monnet prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands og Sigurður Jóhannesson sérfræðingur við Hagfræðistofnun Háskóla Íslands.
Ísland og Evrópusambandiđ
18.2.2009

BSRB stendur fyrir opnum fundi um Evrópusambandið föstudaginn 20. febrúar kl. 14 - 16 í BSRB - húsinu Grettisgötu 89. Á fundinum verður fjallað um stöðu smáríkja innan ESB og afstöðu sambandsins til landbúnaðarmála. Framsögumenn eru Baldur Þórhallsson, Jean Monnet prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands og Sigurður Jóhannesson sérfræðingur við Hagfræðistofnun Háskóla Íslands. Fundarstjóri er Helga Jónsdóttir framkvæmdastjóri BSRB. Að loknum framsöguerindum verður opnað fyrir spurningar úr sal. Fundurinn er öllum opinn.
Eftirlaun ţingmanna og ráđherra í Dreifibréfi BSRB
13.2.2009
Ögmundur dregur sig tímabundiđ í hlé
30.1.2009
Ögmundur Jónasson formaður BSRB skýrði frá því á stjórnarfundi bandalagsins að hann óskaði eftir heimild stjórnar til að draga sig í hlé frá störfum fyrir BSRB fram yfir næstu alþingiskosningar þar sem hann er í þann veginn að taka sæti í ríkisstjórn sem ráðherra.
Starfsmannafélag Kópavogs 50 ára
26.1.2009
Starfsmannafélag Kópavogs hélt upp á 50 ára afmæli félagsins sl. föstudag í Veisluturninum við Smáratorg en félagið var stofnað 28. desember 1958. Stofnendur voru 18 talsins en nú eru félagsmenn hátt í átta hundrað. Öllum félagsmönnum SfK var boðið til fagnaðarins, auk bæjarstjórnar Kópavogs, stjórn og starfsmönnum BSRB og öðrum velunnurum.
LL hvetur mótmćlendur til ađ gćta hófs
23.1.2009
Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar gagnrýnir uppsögn yfirvinnu
22.1.2009
SFR mótmćlir fyrirhuguđum uppsögnum starfsmanna hjá Landhelgisgćslunni
21.1.2009
Ţjóđarsamstađa gegn fjöldamorđunum á Gaza
16.1.2009

Þjóðarsamstaða gegn fjöldamorðunum á Gaza er yfirskrift mótmælafundar sem haldinn verður í Háskólabíói á sunnudag kl. 15. Að fundinum standa fjölmörg félagasamtök og eru BSRB og ASÍ og fleiri samtök launafólks á meðal þeirra.
Starfslokanámskeiđ sent um fjarfundarbúnađ
14.1.2009
Trúnađarmannafrćđsla BSRB og Félagsmálaskólans ađ hefjast
9.1.2009
Jafnréttisţing 16. janúar
8.1.2009
Fundur hjá BSRB um niđurskurđ í heilbrigđiskerfinu
8.1.2009
Berglind Ásgeirsdóttir ráðuneytisstjóri heilbrigðis-ráðuneytisins og Guðríður Þorsteinsdóttir lögfræðingur ráðuneytisins áttu fund með BSRB í morgun þar sem farið var yfir skipulagsbreytingar sem boðaðar hafa verið í heilbrigðiskerfinu og áform ráðuneytisins um niðurskurð til að mæta fjárlögunum en þar er gert ráð fyrir 6,7 milljarða króna niðurskurði frá upphaflega fjárlagafrumvarpinu.
BSRB gagnrýnir skort á samráđi
7.1.2009
BSRB hefur óskað eftir upplýsingum um fyrirhugaðar breytingar innan heilbrigðisþjónustunnar bæði hvað varðar almennar kerfisbreytingar og fyrirhugaðan niðurskurð.
Starfslokanámskeiđ BSRB
7.1.2009
Um BSRB
Á döfinni
Leit

























