Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

Ögmundur dregur sig tímabundið í hlé

30.1.2009

öj11Ögmundur Jónasson formaður BSRB skýrði frá því á stjórnarfundi bandalagsins að hann óskaði eftir heimild stjórnar til að draga sig í hlé frá störfum fyrir BSRB fram yfir næstu alþingiskosningar þar sem hann er í þann veginn að taka sæti í ríkisstjórn sem ráðherra.

Starfsmannafélag Kópavogs 50 ára

26.1.2009

0-mini-forsidaStarfsmannafélag Kópavogs hélt upp á 50 ára afmæli félagsins sl. föstudag í Veisluturninum við Smáratorg en félagið var stofnað 28. desember 1958.  Stofnendur voru 18 talsins en nú eru félagsmenn hátt í átta hundrað. Öllum félagsmönnum SfK var boðið til fagnaðarins, auk bæjarstjórnar Kópavogs, stjórn og starfsmönnum BSRB og öðrum velunnurum.

LL hvetur mótmælendur til að gæta hófs

23.1.2009

Landssamband lögreglumanna sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem framganga tiltekinna einstaklinga í mótmælunum að undanförnu er fordæmd og bent er á að hópur lögreglumanna sé slasaður eftir atburði undanfarinna daga. Í tilkynningunni er hvatt til þess að fólk gæti hófs við mótmælin. Þá er minnt á að það ástand sem uppi er í þjóðfélaginu bitni ekkert síður á lögreglumönnum og fjölskyldum þeirra en öðrum landsmönnum.

Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar gagnrýnir uppsögn yfirvinnu

22.1.2009

Stjórn Starfsmannafélags Reykjavíkuborgar gagnrýnir harðlega áform Reykjavíkurborgar um að segja upp yfirvinnu sem bundin er í fastlauna- og ráðningarsamningum, á sama tíma og ljóst er að álag eykst á starfsmenn vegna aðstæðna í samfélaginu, kaupmáttur rýrnar dag frá degi og ekki er séð fyrir endann á þeirri þróun.

SFR mótmælir fyrirhuguðum uppsögnum starfsmanna hjá Landhelgisgæslunni

21.1.2009

Trúnaðarmannaráð SFR sendi frá sér harðorða ályktun í gær þar sem niðurskurði hjá opinberum stofnunum og fyrirtækjum er harðlega mótmælt. Í ályktuninni segir að fyrirhugaðar uppsagnir 20-30 starfsmanna hjá Landhelgisgæslu Íslands sýni glöggt skammsýni og skilningsleysi á þeirri samfélagslegu ábyrgð sem stjórnvöld eiga að axla í erfiðu árferði.

Þjóðarsamstaða gegn fjöldamorðunum á Gaza

16.1.2009

gazafor
Þjóðarsamstaða gegn fjöldamorðunum á Gaza er yfirskrift mótmælafundar sem haldinn verður í Háskólabíói á sunnudag kl. 15. Að fundinum standa fjölmörg félagasamtök og eru BSRB og ASÍ og fleiri samtök launafólks á meðal þeirra.

Starfslokanámskeið sent um fjarfundarbúnað

14.1.2009

Starfslokanámskeið BSRB sem haldið verður 26. - 28. janúar verður sent um fjarfundarbúnað til eftirtalinna staða: Ísafjarðar, Sauðárkróks, Akureyrar, Egilsstaða, Hafnar á Hornafirði og Vestmannaeyja. Námskeiðið hefst alla dagana kl. 16.30 og stendur til kl. 19.00. Þeir sem hafa áhuga á að sækja námskeiðið á ofangreindum stöðum þurfa að skrá sig á skrifstofu BSRB í síma 525 8300 eða á netfangið bsrb@bsrb.is.

Trúnaðarmannafræðsla BSRB og Félagsmálaskólans að hefjast

9.1.2009

Trúnaðarmannafræðsla BSRB og Félagsmálaskóla alþýðu hefst í fegrúar.  Fyrsta þrep verður kenndur dagana 4. - 6. febrúar. Annað þrep verður síðan haldinn 16. - 18. febrúar og þriðja þrep 16. - 18. mars. Námskeiðin eru í BSRB húsinu, Grettisgötu 89, og eru frá kl. 9 til 16 alla dagana.

Jafnréttisþing 16. janúar

8.1.2009

Félags- og tryggingamálaráðuneytið og Jafnréttisráð boða til jafnréttisþings 16. janúar næstkomandi að Hótel Nordica klukkan 9 til 17. Þetta er gert í samræmi við nýsamþykkt lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Þingið er öllum opið en þáttakendur verða að skrá sig fyrirfram og lýkur skráningu 13. janúar.

Fundur hjá BSRB um niðurskurð í heilbrigðiskerfinu

8.1.2009

Copy-of-Heilbr.2009-Oj-G-BaBerglind Ásgeirsdóttir ráðuneytisstjóri heilbrigðis-ráðuneytisins og Guðríður Þorsteinsdóttir lögfræðingur ráðuneytisins áttu fund með BSRB í morgun þar sem farið var yfir skipulagsbreytingar sem boðaðar hafa verið í heilbrigðiskerfinu og áform ráðuneytisins um niðurskurð til að mæta fjárlögunum en þar er gert ráð fyrir 6,7 milljarða króna niðurskurði frá upphaflega fjárlagafrumvarpinu.

BSRB gagnrýnir skort á samráði

7.1.2009

BSRB hefur óskað eftir upplýsingum um fyrirhugaðar breytingar innan heilbrigðisþjónustunnar bæði hvað varðar almennar kerfisbreytingar og fyrirhugaðan niðurskurð.

Starfslokanámskeið BSRB

7.1.2009

Undanfarna vetur hefur BSRB staðið fyrir starfslokanámskeiðum á höfuðborgarsvæðinu og reynst mikill áhugi fyrir þessum námskeiðum. Mikill fjöldi fólks hefur sótt námskeiðin og er látið mjög vel af þeim. Fræðslunefnd BSRB telur fulla ástæðu til að endurtaka þessi námskeið í vetur og nú hefur verið ákveðið að vera með starfslokanámskeið í BSRB húsinu dagana 26. - 28. janúar.

Um BSRB

Póstlistaskráning


Á döfinni


umhverfismál

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta