Beint á leiđarkerfi vefsins

Fréttir

Málţing í tilefni Evrópudags sjúkraliđa

30.11.2009

Sjúkraliðar stóðu fyrir málþingi í Gerðubergi sl. fimmtudag. Á málþinginu var fjallað um "Hjúkrun og aðbúnað geðfattlaðra" og var það haldið í tilefni af Evrópudegi sjúkraliða og var mjög vel heppnað. Að málþinginu stóðu fjórar félagsdeildar Sjúkraliðafélags Íslands, þ.e. Reykjavíkurdeild, Suðurlandsdeild, Suðurnesjadeild og Vesturlandsdeild. Auk þeirra komu að undirbúningi málþingsins Sérdeild í hjúkrun aldraðra og Ungliðadeild félagsins.

Starfsmenntaverđlaun voru afhent í dag

27.11.2009

StjornvsvuntaStarfsmennta-verðlaunin voru afhent í BSRB-húsinu í dag. Starfsmennta-verðlaunin eru veitt þeim sem eru að vinna framúrskarandi starf í starfsmenntun. Tilgangur Starfsmenntaverðlaunanna er að styðja við nýsköpun og framþróun starfsmenntunar á Íslandi. Stjórnvís hlaut verðlaun í flokki félagasamtaka og einstaklinga. Iðan fræðslusetur hlaut verðlaun í flokki skóla og fræðsluaðila og Securitas hlaut verðlaun Í flokki fyrirtækja.

Lćknaritarar mótmćla breytingum á störfum hjá LSH

27.11.2009

Framkvæmdastjórn Landspítala - háskólasjúkrahúss var gagnrýnd harðlega á fölmennum fundi Félags læknaritara sem haldinn var í húsi BSRB í gær. Gagnrýnin beindist að fyrirhuguðum breytingum á störfum læknaritara hjá LSH. Félag læknaritara er aðili að SFR.

Sjúkraliđar mótmćla skerđingu greiđslna í fćđingarorlofi

26.11.2009

Framkvæmdastjórn Sjúkraliðafélags Íslands hefur sent frá sér ályktun þar sem skerðingu greiðslna í fæðingarorlofi er mótmælt. Í ályktuninni segir m.a.: "Sjúkraliðafélag Íslands  gerir þá kröfu að aðgerðir stjórnvalda til að mæta fjárlagahalla næstu ára skerði ekki réttindi fólks og að staðinn verði vörður um lífskjör láglauna- og millitekjufólks."

Skerđingin brot á samningum viđ opinbera starfsmenn

26.11.2009

"Stjórn KJALAR telur að áform um breytingar á fæðingarorlofslögum séu brot á samningum við heildarsamtök opinberra starfsmanna. Stjórn KJALAR telur breytingar á greiðslum í fæðingarorlofi sé alvarleg aðför að rétti foreldra og varar við að hróflað verði við lögunum," segir í ályktun frá stjórn Kjalar um skerðingu á greiðslum í fæðingarorlofi.

Skerđingu greiđslna í fćđingarorlofi mótmćlt

26.11.2009

"BSRB krefst þess að sparnaðarkrafa sem hefur verið lögð á fæðingarorlofssjóð verði endurskoðuð. Íslenska fæðingarorlofskerfið hefur vakið mikla athygli hjá öðrum þjóðum og hefur verið horft til þess sem fyrirmynd.  Ef sparnaðarkröfunni verður haldið til streitu er verið að hverfa áratugi aftur í tímann og vega að þeirri jafnréttishugsun sem í kerfinu felst," segir í ályktun stjórnar BSRB um skerðingu greiðslna í fæðingarorlofi.

Flutningi starfstöđvar frá Neskaupstađ til Reyđarfjarđar mótmćlt

24.11.2009

Stjórn Starfsmannafélags Fjarðabyggðar hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem undrun og hryggð er lýst yfir þeirri ákvörðun stjórnenda Fjarðabyggðar að leggja niður og loka starfstöð sveitarfélagsins í Neskaupstað og flytja starfsemina á Reyðarfjörð.  

Kjaradeilu flugumferđarstjóra og SA vísađ til sáttasemjara

24.11.2009

Kjaradeilu Félags íslenskra flugumferðarstjóra og SA fyrir hönd Flugstoða og Keflavíkurflugvallar ohf. var vísað til ríkissáttasemjara í gær. Kjarasamningarnir hafa verið lausir frá síðustu mánaðamótum og hefur lítið þokast í samkomulagsátt. Þetta var því talið heillavænlegast á þessum tímapunkti að sögn flugumferðarstjóra.

Guđbjörn Arngrímsson nýr formađur Samflots

23.11.2009

samflotebjsvuntaGuðbjörn Arngrímsson formaður Starfsmannafélags Fjallabyggðar var kjörinn formaður Samflots á aðalfundi þess sem haldinn var á Hótel Hilton í Reykjavík 20. og 21. nóvember. Elín Björg Jónsdóttir lét af embætti formanns sem hún hafði gegnt frá 1988. Fundarmenn þökkuðu Elínu langt og farsælt samstarf og færðu henni málverk að gjöf með þakklæti fyrir vel unnin störf.

Ungliđadeild SLFÍ ályktar um heilbrigđis- menntamál

23.11.2009

"Stjórn Ungliðadeildar Sjúkraliðafélags Íslands harmar þá stöðu sem upp er komin í íslenska heilbrigðiskerfinu.  Niðurskurður sem ekki sér fyrir endann á og virðist botnlaus hefur nú þegar farið yfir öll þolmörk.  Stjórn deildarinnar leyfir sér að fullyrða að öryggi starfsmanna og skjólstæðinga þeirra sé víðast hvar orðið svo ótryggt að hætta á alvarlegum mistökum eða slysum sé veruleg," segir í byrjun ályktunar sem stjórnin sendi frá sér.

Öflug almannaţjónusta - aldrei eins mikilvćg og nú

20.11.2009

Á aðalfundi BSRB í dag var samþykkt ályktun um mikilvægi almanna-þjónustunnar og var fyrirhuguðum niðurskurði mótmælt harðlega. Í ályktuninni segir m.a.: „Niðurskurður velferðarþjónustunnar er dýrkeyptur og bitnar ekki einungis á þeim sem eiga undir högg að sækja heldur samfélaginu öllu. Þá leiðir niðurskurður á almannaþjónustunni til aukins atvinnuleysis sem þjóð­­félagið sjálft þarf að fjármagna með atvinnuleysisbótum og félagslegum úrræðum. Auk þess bitnar hann ekki síst á konum sem búa nú þegar við óviðunandi launamun."  Í ályktuninni er einnig fjallað um þrepaskipt skattkerfi og önnur tæki til tekjujöfnunar, auðlegðarskatt, óbeina skatta og fleira.

Ađalfundur BSRB tekur undir mótmćli slökkviliđsmanna á höfuđborgarsvćđinu

20.11.2009

Aðalfundur BSRB tekur undir ályktun slökkviliðsmanna á höfuðborgarsvæðinu sem samþykkt var á félagsfundi 19. nóvember. Þar er því mótmælt harðlega að störf slökkviliðsmanna á Reykjavíkurflugvelli séu  lögð af  og ófaglærðir starfsmenn ráðnir í staðinn.

BSRB vill réttlátt skattkerfi

18.11.2009

elinbjörg"Á næstu vikum verður tekist á um skattastefnuna á Alþingi og einnig utan þings því í þjóðfélaginu eru skiptar skoðanir og mismunandi hagsmunir þegar skattkerfið er annars vegar. Vegna þess hve tekjur ríkis og sveitarfélaga hafa fallið af völdum bankahrunsins og keðjuverkandi afleiðinga þess er ekki um annað að ræða en grípa til róttækra aðgerða. Að öðrum kosti verður ekki hægt að stoppa upp í fjárlagagatið," segir í grein eftir Elínu Björgu Jónsdóttur formann BSRB í Morgunblaðinu í gær.

SFR 70 ára

17.11.2009

sfrafmaelisvuntaSFR - starfsmannafélag í almannaþjónustu var stofnað í Alþýðuhúsinu í Reykjavík 17. nóvember árið 1939 og er því 70 ára í dag. Stofnendur voru 142 og störfuðu á rúmlega 20 ríkisstofnunum í bænum. Fyrsti formaður var kjörinn Guðjón B. Baldvinsson starfsmaður Tryggingastofnunar ríkisins en hann var á meðal helstu hvatamanna að stofnun félagsins.

Ađalfundur BSRB

17.11.2009

Aðalfundur BSRB verður haldinn föstudaginn 20. nóvember. Fundurinn verður haldinn í BSRB - húsinu að Grettisgötu 89 og hefst kl. 9. Á dagskrá fundarins eru venjuleg aðalfundarstörf auk þess sem fulltrúar lífeyrissjóðanna, LSR, LSS og SL, mæta á fundinn og fara yfir stöðu sjóðanna og horfur.

LSS ályktar vegna Reykjavíkurflugvallar

16.11.2009

"Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna harmar þá ákvörðun Flugstoða ohf að frá og með 1. mars 2010 verði ekki slökkviliðsmenn í viðbragðsstöðu á Reykjavíkurflugvelli."

Styrkir til starfs eđa náms í Eystrasaltsríkjunum

13.11.2009

Starfsmenn ríkis og sveitarfélaga geta sótt um styrki til Norrænu ráðherranefndarinnar til að stunda tímabundið starf eða nám á starfsvettvangi sínum í Eistlandi, Lettlandi eða Litháen. Þetta er hluti af mannaskiptaáætlun opinberra starfsmanna á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjunum.

Ríkisstjórnin endurskođi áherslur í atvinnumálum

12.11.2009

ebjsv"BSRB átti aðild að stöðugleikasáttmálanum sem aðilar vinnumarkaðarins komu sér saman um ásamt stjórnvöldum og sveitarfélögum síðastliðið sumar. Bandalagið studdi - og styður enn - það meginmarkmið sáttmálans að verja kjör launafólks og tryggja fulla atvinnu. Hins vegar er ekki sama hvernig að verki er staðið. Það skiptir að sjálfsögðu höfuðmáli hvernig þetta er gert, hverjar áherslurnar eru við atvinnusköpun og hvernig stjórnvöld bera sig að," segir í grein eftir Elínu Björgu Jónsdóttur sem birtist í Fréttablaðinu 11. nóvember.

Hagsmunafélag faglćrđra matreiđslumanna stofnađ

11.11.2009

Hagsmunafélag faglærðra matreiðslumanna í grunnskólum Reykjavíkur var formlega stofnað 5. nóvember sl. Tilgangur félagsins er að efla samheldni félagsmanna auka færni og þekkingu og stuðla að bættum hag þeirra. Félagar geta þeir talist sem stýra mötuneytum í grunnskólum Reykjavíkur. Félagsmenn eru félagar í Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar.

BSRB kallar eftir breyttum áherslum

9.11.2009

elinbjörg"Enginn deilir um það að áframhaldandi efnahagsþrengingar eru framundan. Þegar finna þeir fyrir kreppunni sem misst hafa vinnu sína, sumir eru í þann veginn að missa heimili sín, og boðaður er niðurskurður í almannaþjónustunni. Margt bendir til þess að kreppan verði dýpri hér en í þeim löndum sem við helst berum okkur saman við," segir í upphafi greinar eftir Elínu Björgu Jónsdóttur formann BSRB.

Greiđslujöfnun og skuldaađlögun

5.11.2009

Í fréttum BSRB 28. október s.l. var fjallað um ný lög sem sett hafa verið með það að markmiði að draga úr skuldavanda heimilanna. Í kjölfarið voru undirritaðir samningar 31. okt s.l. til að lækka greiðslubyrði einstaklinga af fasteignaveðlánum, bílalánum og bílasamningum. Einstaklingar og fjölskyldur geta nú sótt um greiðslujöfnun þessara lána og samninga þannig að greiðslubyrðin mun lækka frá og með gjalddaga í desember. Um greiðslujöfnun fasteignaveðlána í innlendri mynt þarf hins vegar ekki að sækja - hún gerist sjálfkrafa ef lán eru í skilum nema henni sé hafnað sérstaklega.

Elín Björg fćr viđurkenningu Kvenréttindafélagsins

5.11.2009

kvenrettsvuntaKvenréttindafélag Íslands færði Elínu Björgu Jónsdóttur viðurkenningu í gær í tilefni af því að hún er fyrsta konan sem er kjörin formaður BSRB. Meðal þeirra sem afhentu Elínu Björgu viðurkenninguna var Ragnhildur G. Guðmundsdóttir sem var fyrsta konan sem kjörin var varaformaður BSRB.

Nýr formađur FOSS

5.11.2009

Ásbjörn Sigurðsson tók við formennsku í Félagi opinberra starfsmanna á Suðurlandi sl. þriðjudag á stjórnarfundi FOSS. Ásbjörn var áður varaformaður félagsins.

Kvenfélagasambandiđ heilsar upp á formann BSRB

2.11.2009

kvensambsvuntaKvenfélaga-samband Íslands afhenti Elínu Björgu Jónsdóttur nýkjörnum formanni BSRB blóm í dag í tilefni af því að hún er fyrsta konan sem gegnir því embætti.

Góđir gestir frá Norđurlöndunum

2.11.2009

skftsvuntaTalsvert er um að félagar í samtökum opinberra starfsmanna á Norðurlöndunum komi í heimsókn til BSRB til að kynna sér efnahagsástandið á Íslandi eftir hrunið. Í síðustu viku tók BSRB á móti tveimur hópum, annars vegar frá Fagforbundet í Stavangri í Noregi og hins vegar frá SKFT í Lundi í Svíþjóð.

Um BSRB

Póstlistaskráning


Á döfinni


lífeyrismál

Stjórnborđ

English Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta