Fréttir
Varað við áhrifum hækkunar óbeinna skatta á skuldastöðu heimilanna
16.12.2009
Stjórn BSRB gerir sér fulla grein fyrir nauðsyn þess að ríkissjóður afli sér aukinna tekna í gegnum skattkerfið en varar við þeim áhrifum sem boðaðar breytingar á óbeinum sköttum munu hafa á verðlag og þar með skuldastöðu heimilanna. Afar mikilvægt er að skattahækkanir hafi ekki áhrif á neysluverðsvísitöluna.
BSRB styrkir Mæðrastyrksnefnd
15.12.2009
BSRB ákvað að senda ekki vinum og velunnurum jólakort þetta árið heldur að nýta peningana til góðgerða. Ákveðið var að veita Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur styrk að upphæð 300 þúsund krónur enda vitað að sá styrkur mun nýtast vel þeim sem mest þurfa á að halda nú um hátíðirnar.
Ólögmæt uppsögn
11.12.2009
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið úrskurðaði ákvörðun sveitarfélags um uppsögn félagsmanns BSRB ólögmæta 18. nóvember s.l.
Uppsögnum á Hvanneyri mótmælt
10.12.2009
SFR telur ólöglega staðið að breytingum á rekstrarformi búrekstursins hjá Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri en í kjölfar breytinganna hefur öllum starfsmönnum sem komu að búrekstrinum verið sagt upp og einungis hluti þeirra verið endurráðinn og þá á allt öðrum og lakari starfskjörum.
NTR á loftslagsráðstefnunni
9.12.2009
Formenn og framkvæmdastjórar aðildarfélaga NTR (Nordisk tjenestemannsråd) funda nú í Kaupmannahöfn. Þeir heimsóttu í gær loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Bella senter. Fulltrúar BSRB á fundinum í Kaupmannahöfn eru Elín Björg Jónsdóttir formaður BSRB og Helga Jónsdóttir framkvæmdastjóri.
Stykkishólmsbær dæmdur fyrir ólöglega uppsögn
8.12.2009
Héraðsdómur Vesturlands dæmdi í gær Stykkishólmsbæ til að greiða sjúkraliða bætur upp á 5,8 milljónir króna vegna ólögmætrar uppsagnar auk málskostnaðar upp á 800 þúsund krónur.
Starfslok verkefnisstjórnar 50+
7.12.2009
Verkefnisstjórn 50+ hefur skilað af sér skýrslu til félagsmálaráðherra þar sem farið er yfir störf hópsins undanfarin 5 ár. Verkefnisstjórnin var skipuð 7 fulltrúum, sex þeirra voru tilnefndir af aðilum vinnumarkaðar og hinu opinbera þ.e. Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Samtökum atvinnulífsins, Fjármálaráðuneyti, Alþýðusambandi Íslands, Vinnumálastofnun en Bandalag starfsmanna ríkisins, Bandalag háskólamanna og Kennarasamband Íslands tilnefndu sameiginlega einn fulltrúa. Formaður var skipaður án tilnefningar.
Hjúkrunarfræðingar ráðnir í störf sjúkraliða
3.12.2009
Sjúkraliðafélag Íslands telur að mjög sé brotið á sjúkraliðum og gerir alvarlegar athugasemdir við að verið sé að ráða hjúkrunarfræðinga í störf sjúkraliða. Þá hafa félaginu borist kvartanir vegna þess að hjúkrunarnemar eru ráðnir í störf sjúkraliða.
Vorönn trúnaðarmannafræðslu BSRB og Félagsmálaskólans
2.12.2009
Trúnaðarmanna-fræðsla BSRB og Félagsmálaskóla alþýðu hefst aftur í janúar. Fyrsta þrep verður haldið 18. - 20 janúar. Annað þrep verður haldið 25. - 27. janúar, þriðja þrep 1. - 3. febrúar, fjórða þrep 8. - 10. febrúar, fimmta þrep er kennt dagana 15. - 17. febrúar og sjötta þrep 1. og 2. mars. Námskeiðin eru í BSRB húsinu, Grettisgötu 89, og eru frá kl. 9 til 16 alla dagana.
Á hverja hlustar ríkisstjórnin?
2.12.2009
"Innan verkalýðshreyfingar-innar gerum við okkur vissulega grein fyrir því að nú þegar unnið er að lokafrágangi fjárlaga á Alþingi fyrir komandi ár standa spjótin á stjórnvöldum úr öllum áttum. Margir vilja koma sínum sjónarmiðum á framfæri. Samtök atvinnulífsins leggjast gegn álögum á stóriðju en hafa hins vegar illu heilli tekið undir með þeim sem tala fyrir því að í staðinn verði ýmsar aðrar álögur hækkaðar, svo sem tryggingagjald og aðrir launaskattar á lágtekju- og millitekjuhópa. Ekki fáum við heldur stuðning úr þeim herbúðum til að verja almannaþjónustuna," segir í grein eftir Elínu Björgu Jónsdóttur formann BSRB sem birtist í Fréttablaðinu í gær.
Fundað með trúnaðarmönnum á LSH
1.12.2009
SFR-stéttarfélag í almannaþjónustu, Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar, Sjúkraliðafélag Íslands og Efling héldu í gær sameiginlegan fund með trúnaðarmönnum félaganna á Landspítala-Háskólasjúkrahúsi. Þar hafa orðið miklar breytingar í starfsumhverfinu að undanförnu og meiri breytingar eru boðaðar. Markmiðið með fundinum var að fá upplýsingar beint frá trúnaðarmönnum um hvernig ástandið væri í þeirra vinnuumhverfi og hvað þeir sæju gerast í nánustu framtíð.
Um BSRB
Á döfinni
10. febrúar 2012
23. mars 2012
18. maí 2012
Leit

























