Fréttir
Fróðlegur fundur um Ísland og ESB
20.2.2009
BSRB stóð fyrir opnum fundi um Evrópusambandið í dag. Þetta var fyrsti fundurinn í röð funda sem BSRB hyggst standa fyrir um Ísland og ESB. Á fundinum var fjallað um stöðu smáríkja innan ESB og hvaða áhrif aðild að sambandinu gæti haft á íslenskan landbúnað. Framsögumenn voru Baldur Þórhallsson, Jean Monnet prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands og Sigurður Jóhannesson sérfræðingur við Hagfræðistofnun Háskóla Íslands.
Ísland og Evrópusambandið
18.2.2009

BSRB stendur fyrir opnum fundi um Evrópusambandið föstudaginn 20. febrúar kl. 14 - 16 í BSRB - húsinu Grettisgötu 89. Á fundinum verður fjallað um stöðu smáríkja innan ESB og afstöðu sambandsins til landbúnaðarmála. Framsögumenn eru Baldur Þórhallsson, Jean Monnet prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands og Sigurður Jóhannesson sérfræðingur við Hagfræðistofnun Háskóla Íslands. Fundarstjóri er Helga Jónsdóttir framkvæmdastjóri BSRB. Að loknum framsöguerindum verður opnað fyrir spurningar úr sal. Fundurinn er öllum opinn.
Eftirlaun þingmanna og ráðherra í Dreifibréfi BSRB
13.2.2009
Í nýju tölublaði Dreifibréfs BSRB er fjallað um þá breytingu sem Alþingi samþykkti á eftirlaunalögum forseta Íslands, ráðherra, alþingismanna og hæstaréttardómara í desember sl. Réttindi þessara hópa eru borin saman við réttindi í A - deild LSR. Þetta er afar fróðleg lesning í ljósi þess að nú hefur fjármálaráðherra lagt fram nýtt frumvarp um eftirlaun þessara hópa.
Um BSRB
Á döfinni
10. febrúar 2012
23. mars 2012
18. maí 2012
Leit
























