Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

PFÍ gagnrýnir stjórnvöld fyrir að greiða sér arð af starfsemi Íslandspósts

30.3.2009

Trúnaðarráð Póstmannafélags Íslands átelur stjórnvöld fyrir að hafa ekki aflétt arðsemiskröfu sinni á Íslandspóst hf. á sama tíma og stjórnendur fyrirtækisins telja sig ekki geta staðið við umsamdar launahækkanir til starfsmanna Íslandspósts.

Víðtækt samráð um aðgerðir

30.3.2009

Aðalfundur SFR stéttarfélags í almannaþjónustu haldinn var laugardaginn 28.mars samþykkti framtíðarsýn félagsins og ályktanir í kjara- og efnahagsmálum, um fjármálakreppuna og almannaþjónustuna. Í upphafi ályktunarinnar um kjara- og efnahagsmál segir: "Aðalfundur SFR stéttarfélags í almannaþjónustu haldinn 28.mars 2009 krefst þess að stjórnvöld hafi víðtækt samráð um þær aðgerðir sem grípa þarf til vegna ástandsins í efnahagsmálum. Viðræður við samtök launafólks er grundvöllur þess að vel gangi í endurskipulagningu samfélagsins á félagslegum grunni."

Póstmannafélagið 90 ára

26.3.2009

Póstmannafélag Íslands er 90 ára í dag.  Félagið var stofnað í Reykjavík hinn 26. mars 1919. BSRB óskar félagsmönnum til hamingju með daginn.

Velferðarmál eru líka atvinnumál

24.3.2009

Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra boðar til fundar með trúnaðarmönnum verkalýðsfélaga innan heilbrigðisþjónustunnar þar sem staða mála og framtíðarhorfur verða til umræðu. Aldrei hefur verið mikilvægara að standa vörð um heilbrigðisþjónustuna og til þess þarf samstöðu allra sem innan hennar vinna. Velferðarmál eru líka atvinnumál!  Heilbrigðisráðherra boðar til fundarins í samstarfi við BSRB og Starfsgreinasamband Íslands.

Námsstefna um vinnumarkaðsúrræði

23.3.2009

Nefnd á vegum félags- og tryggingamálaráðuneytis er vinnur að vinnumarkaðsúrræðum stendur fyrir námsstefnu föstudaginn 3. apríl nk. á Hótel Sögu kl. 9 - 12. Á námstefnunni verður fjallað um tækifæri og úrræði fyrir einstaklinga sem hafa misst atvinnuna. Fjallað verður um breytingar á vinnumarkaðslöggjöfinni og hvaða möguleikar felast í þeim.

Sjávarútvegur og iðnaður hjá ESB

20.3.2009

fyrirlesararlitilBSRB stóð fyrir opnum fundi um Evrópusambandið í dag. Þetta er annar fundurinn í röð funda sem BSRB hyggst standa fyrir um Ísland og ESB. Á fundinum var fjallað um afstöðu  ESB til sjávarútvegs og iðnaðar. Framsögumenn voru Aðalsteinn Leifsson lektor við Háskólann í Reykjavík og Bjarni Már Gylfason hagfræðingur Samtaka iðnaðarins.

Óviðunandi að launafólk beri byrðar af efnahagshruni

20.3.2009

Óviðunandi er að launafólk beri byrðar af efnahagshruni, sem það ber enga ábyrgð á og er framkallað af blygðunarlausri græðgi fjármálafyrirtækja og fjárglæframanna, segir m.a. í ályktun aðalfundar Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar sem haldinn var í gær.  Þar segir einnig að stjórnvöld eigi að hraða sem mest aðgerðum til varnar kjörum almennings og beita öllum tiltækum ráðum til þess.

Sjávarútvegur og iðnaður í ESB

18.3.2009

esb200309a
Opinn fundur verður um Evrópusambandið á vegum BSRB föstudaginn 20. mars kl. 14 - 16 í BSRB - húsinu Grettisgötu 89. Á fundinum verður fjallað um stefnu ESB í sjávarútvegi og iðnaði. Framsögu hafa Aðalsteinn Leifsson lektor við Háskólann í Reykjavík og Bjarni Már Gylfason hagfræðingur Samtaka iðnaðarins.

Nýr formaður TFÍ

16.3.2009

Ársæll Ársælsson hefur verið kjörinn nýr formaður Tollvarðafélags Íslands en Guðbjörn Guðbjörnsson hefur látið af formennsku í félaginu.

Kreppan og opinberir starfsmenn á Norðurlöndunum

4.3.2009

NOFS-smallÁrlegur fulltrúaráðsfundur NOFS (Nordens Offentliganställdas Fackliga Samorganisation) var haldinn í BSRB húsinu í dag. Á fundinum flutti Kristian Weise hagfræðingur LO í Danmörku erindi um afleiðingar heimskreppunnar og Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra um áhrif hennar hér á landi. Fundinn sátu á fjórða tug manna frá öllum Norðurlöndunum. NOFS eru samtök stéttarfélaga opinberra starfsmanna á Norðurlöndum.

Með jafnrétti að leiðarljósi

3.3.2009

jafnrettilitilMeð jafnrétti að leiðarljósi - uppbygging í allra þágu, er yfirskrift fundar á Grand Hótel í Reykjavík mánudaginn 9. mars kl. 11.45 - 13.00. Fundurinn er haldinn í tilefni alþjóðlegs baráttudags kvenna 8. mars. Að fundinum standa ASÍ, BHM, BSRB, KÍ, SSF, Jafnréttisráð og Jafnréttisstofa.

Spurt og svarað um uppsagnir o.fl.

2.3.2009

Hvenær hefst uppsagnarfrestur? Hvað er hann langur? Hver er réttur starfsmanna varðandi launalækkun? Má segja upp fastri yfirvinnu? Þetta eru örfáar spurningar sem starfsmenn BSRB hafa þurft að svara ítrekað að undanförnu vegna aðhaldsaðgerða og niðurskurðar stofnana og fyrirtækja. Sonja Ýr Þorbergsdóttir lögfræðingur BSRB hefur tekið saman ýmsar upplýsingar um réttarstöðu starfsmanna á vinnumarkaði þar sem ofangreindum spurningum og fleirum er svarað.

Ottó Eiríksson nýr formaður FÍF

2.3.2009

Ottó Eiríksson hefur verið kjörinn nýr formaður Félags íslenskra flugumferðarstjóra en Loftur Jóhannsson hefur látið af störfum formanns.

Um BSRB

Póstlistaskráning


Á döfinni


kjaramál

Stjórnborð

English Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta