Fréttir
Fjölmennum á baráttufundi 1. maí
30.4.2009

Baráttufundir verða haldnir um allt land 1. maí. Nauðsyn þess að launafólk safnist saman til að leggja áherslu á kröfur sínar hefur aldrei verið meiri en nú. Einungis með öflugri baráttu launafólks mun þjóðinni takast að vinna sig út úr efnahagskreppunni án þess að rústa því velferðarkerfi sem verkalýðshreyfingin hefur átt stóran þátt í að byggja upp á Íslandi. Byggjum réttlátt þjóðfélag er kjörorð hreyfingarinnar 1. maí. Fjölmennum á baráttufundina.
BSRB - tíðindi komin út
29.4.2009
BSRB - tíðindi eru komin út. Í blaðinu kennir ýmissa grasa að venju. Fjallað er um lögregluna og búsáhalda-byltinguna, atvinnuleysi, lýðræði fjármagnsins, fræðslumál innan BSRB, réttarstöðu launafólks á krepputímum, ástandið í Nörrebro hverfinu í Kaupmannahöfn og viðtal við Ögmund Jónasson heilbrigðisráðherra um formannslok hans hjá BSRB.
Sérálit BSRB í Evrópunefndinni
17.4.2009
Nefnd um þróun Evrópumála sem ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar skipaði fyrir rúmu ári komst ekki að niðurstöðu og skiluðu nefndarmenn fimm sérálitum, þar á meðal fulltrúi BSRB í nefndinni. Í áliti BSRB segir að bandalagið hafi ekki tekið afstöðu með eða á móti inngöngu í ESB en vilji fá upplýsta og gagnrýna umræðu um sem flesta þætti er snerta hugsanlega inngöngu. Telja samtökin að skýrsla Evrópunefndarinnar hefði mátt vera gagnlegt innlegg í slíka umræðu.
Auk BSRB áttu sæti í nefndinni fulltrúar frá ASÍ, Samtökum atvinnulífsins, Viðskiptaráði Íslands og þingflokkunum.
Samráð verði haft við samtök launafólks
16.4.2009
Aðalfundur Kjalar krefst þess að sveitarfélög og stjórnvöld hafi víðtækt samráð við samtök launafólks um þær aðgerðir sem grípa þarf til vegna ástandsins í efnahagsmálum. Þá segir í ályktun fundarins að einn mikilvægasti þátturinn í að halda hjólum samfélagsins gangandi sé að viðhalda kaupmætti.
LSR og fjármálakreppan
8.4.2009
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins boðar til fundar með sjóðfélögum, miðvikudaginn 15. apríl. Fundurinn verður haldinn á Hilton Reykjavík Nordica hóteli, Suðurlandsbraut 2 og hefst hann kl. 16.30. Fundurinn er opinn öllum sjóðfélögum.
Samstaða, samvinna og samráð
6.4.2009
Troðfullt var á fundi Ögmundar Jónassonar heilbrigðisráðherra með trúnaðarmönnum verkalýðsfélaga innan heilbrigðisþjónustunnar þar sem staða mála og framtíðarhorfur voru til umræðu. Í máli hans kom fram að aldrei hefur verið mikilvægara að standa vörð um heilbrigðisþjónustuna en nú og til þess þurfi samstöðu allra sem innan hennar vinna. Ögmundur sagði að sam- væri mikilvægasta forskeyti dagsins í dag og komandi framtíðar. Samstaða, samvinna og samráð ættu að vera leiðarljósið við þau verkefni sem framundan væru í heilbrigðisþjónustunni.
Dreifibréf um stöðuna á vinnumarkaði
2.4.2009
Í kjölfar bankahrunsins sl. haust hefur atvinnuleysi aukist verulega og er útlit fyrir að það muni aukast enn frekar á næstu mánuðum. Þetta kemur fram í 2. tbl. Dreifibréfs BSRB sem sent var út í dag.
Um BSRB
Á döfinni
10. febrúar 2012
23. mars 2012
18. maí 2012
Leit
























