Fréttir
Nauðsynlegt að styrkja innviði samfélagsins og efla grunnþjónustu
22.5.2009
"Við þær aðstæður sem nú eru uppi er nauðsynlegt að styrkja innviði samfélagsins og efla grunnþjónustu þess. Öflugt velferðarkerfi gerir okkur kleift að standa af okkur verstu áföllin og með samstöðu mun þjóðinni takast að vinna bug á erfiðleikunum. Forsendur samstöðunnar eru jöfnuður og félagslegt réttlæti," segir m.a. í ályktun stjórnar BSRB sem samþykkt var í dag.
Viðræðum um stöðugleikasáttmálann ljúki 9. júní
20.5.2009
Ársfundir LSS og LSR
11.5.2009
Ársfundir Lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga (LSS) og Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins (LSR) verða haldnir um miðjan mánuðinn. Ársfundur LSS verður haldinn miðvikudaginn 13 maí í fundarsal BSRB á 1. hæð og hefst kl. 10:30. Ársfundur LSR verður haldinn þriðjudaginn 19. maí á Hilton Reykjavík Nordica hóteli Suðurlandsbraut 2 og hefst kl. 15.
FOSS krefst samráðs
8.5.2009
Ríkisstarfsmenn fá hefðbundna orlofsuppbót
4.5.2009
Þar sem starfsmenn ríkisins eru með lausa kjarasamninga hefðu þeir að óbreyttu ekki fengið orlofsuppbót í júní eins og annað launafólk.Fjármálaráðuneytið hefur nú ákveðið að greiða starfsmönnum ríkisins orlofsuppbót "til að stuðla að jafnri stöðu stéttarfélaga í aðdraganda þjóðarsáttar um launaþróun," eins og segir í frétt frá ráðuneytinu.
Trú Íslendinga á virkni markaðarins hefur minnkað
4.5.2009
Svo virðist sem efnahagshrunið hafi dregið nokkuð úr trú fólks á virkni markaðarins í samfélaginu. Þetta kemur fram í könnun sem Þjóðmálastofnun Háskóla Íslands hefur gert á viðhorfum fólks til velferðarmála í kjölfar fjármálahrunsins.
Fjölmenni á baráttufundinum á Austurvelli
1.5.2009
„ Á undanförnum árum höfum við orðið vitni að óheftri græðgi ákveðinna aðila í samfélaginu sem að lokum leiddi til hruns efnahagslífsins. Á þeim tíma jókst óréttlætið í þjóðfélaginu, launabilið varð að gjá og launamisrétti kynjanna hefur ekki verið meira í langan tíma. Nú þegar taka þarf til hendinni og hreinsa upp er mikilvægt að þeir sem sátu eftir á „góðæristímanum" svokallaða verði ekki látnir moka flórinn eftir fjárglæframennina," sagði Þórveig Þormóðsdóttir formaður Félags starfsmanna stjórnarráðsins m.a. í ræðu sinni á Austurvelli í dag .
Baráttukveðjur 1. maí
1.5.2009

BSRB óskar íslensku launafólki til hamingju með 1. maí, alþjóðlegan baráttudag verkalýðsins. Sýnum samstöðu og fjölmennum á baráttufundi um allt land. Munið 1. maí kaffi í BSRB - húsinu Grettisgötu 89 í Reykjavík eftir útifundinn á Austurvelli.
Um BSRB
Á döfinni
Leit
























