Fréttir
Viđrćđur um kjarasamninga viđ ríkiđ hafnar
30.6.2009
Fréttatilkynning frá BHM, BSRB og KÍ vegna stöđugleikasáttmála
25.6.2009
Skrifađ undir stöđugleikasáttmála
25.6.2009
Skrifað var undir stöðugleikasáttmála aðila vinnumarkaðarins og ríkisstjórnarinnar í Þjóðmenningar-húsinu kl. 13:30. Markmið sáttmálans er að stuðla að endurreisn efnahagslífsins. Í framhaldi af undirskriftinni munu opinberir starfsmenn hefja samningaviðræður við ríki og sveitarfélög um nýja kjarasamninga en aðilar á almenna vinnumarkaðinum hafa náð samkomulagi um framlengingu kjarasamninga til haustsins 2010.
Ólíkar áherslur ađila vinnumarkađarins
24.6.2009
„Það eru fleiri ljón í veginum en ég gerði ráð fyrir í byrjun vikunnar um að aðilar næðu saman," sagði Árni Stefán Jónsson varaformaður BSRB um hvernig þríhliða viðræðum aðila vinnumarkaðarins og ríkisstjórnarinnar um stöðugleikasáttmálann miðaði. Ágreiningurinn snýst fyrst og fremst um hvernig skuli fara með ríkisfjármálin.
Stöđugleikasáttmálinn ađ fćđast
22.6.2009
Skemmtileg menningarhátíđ BSRB
22.6.2009
Fjölmenni var á menningarhátíð BSRB í Munaðarnesi sl. laugardag. Þar var opnuð myndlistarsýning Ingibergs Magnússonar. Hátíðargestir skemmtu sér konunglega við upplestur Einars Más Guðmundssonar þegar hann fór með ljóð sín og spjallaði við gesti hátíðarinnar. Þóra Einarsdóttir óperusöngkona söng við undirleik Önnu Guðnýjar Guðmundsdóttur og voru listamennirnir ítrekað klappaðir upp.
Rekstri og ţjónustu ríkisins hlíft
19.6.2009
Ríkisstjórnin lagði fram frumvarp til laga um ráðstafanir í ríkisfjármálum í gær. Árni Stefán Jónsson varaformaður BSRB sagði að með þessum aðgerðum væri lögð megináhersla á tekjuhliðina og reynt að hlífa niðurskurði í rekstri og þjónustu ríkisins á næsta ári. Hann sagði það jákvætt en menn hefðu hins vegar áhyggjur af því hvað muni gerast árin 2011 og 2012.
Trúnađarmannafrćđslan heldur áfram í september
19.6.2009
Trúnaðarmanna-fræðsla BSRB og Félagsmálaskóla alþýðu hefst aftur í september. Annað þrep verður haldið 14. - 16. September, þriðja þrep 21. - 23. September og fjórða þrep 28. - 30. septrember. Fyrsta þrep er kennt dagana 2. - 4. nóvember, en þá er trúnaðarmannakjöri lokið hjá flestum aðildarfélögum BSRB. Námskeiðin eru í BSRB húsinu, Grettisgötu 89, og eru frá kl. 9 til 16 alla dagana.
Laust í Stóruskógum og Munađarnesi
18.6.2009
Nokkur hús eru laus í orlofshúsabyggð BSRB í Munaðarnesi nú um helgina. Húsin eru í Stóruskógum og einnig lítil hús í Munaðarnesi. Hægt er að fá þau í helgarleigu eða vikuleigu. Félagsmenn í BSRB geta bókað húsin beint í gegnum heimasíðu BSRB. Nánari upplýsingar gefur skrifstofa BSRB í síma 525 8300.
Menningarhátíđ í Munađarnesi
15.6.2009
Myndlistarsýning Ingibergs Magnússonar verður opnuð á menningarhátíð BSRB í Munaðarnesi laugardaginn 20. júní kl. 14. Á hátíðinni mun Einar Már Guðmundsson rithöfundur lesa úr eigin verkum og Þóra Einarsdóttir óperusöngkona syngur við undirleik Önnu Guðnýjar Guðmundsdóttur. Ögmundur Jónasson formaður BSRB flytur ávarp. Að lokinni dagskrá er boðið upp á léttar veitingar. Hátíðin er ókeypis og öllum opin.
Fundađ međ ráđherrum
12.6.2009
Samstarf um ráđgjafa Starfsendurhćfingarsjóđs á Suđurlandi
11.6.2009
Málefnahópar langt komnir međ störf sín
9.6.2009
Jafnréttisnefnd BSRB hafnar atvinnustefnu á kostnađ kvenna
8.6.2009
Viđrćđum um stöđugleikasáttmála haldiđ áfram
5.6.2009
Viđrćđur um launaliđ opinberra starfsmanna halda áfram
4.6.2009
Viðræður um þríhliða samkomulag samtaka launafólks, atvinnurekenda og ríkisins eru í ákveðinni óvissu eftir að Seðlabankinn tilkynnti um 1% lækkun stýrivaxta. Vinna í efnahagsnefnd samningsaðila hélt þó áfram eftir hádegi í dag og á morgun hafa verið boðaðir fundir í viðræðunefndinni sem fjallar um launalið opinberra starfsmanna. Þótt viðræður ASÍ og SA séu í uppnámi halda viðræður um launalið kjarasamninga opinberra starfsmanna áfram.
Um BSRB
Á döfinni
Leit
























