Fréttir
Suðræn stemming í Munaðarnesi
26.8.2009
Nú er tækifæri til að skreppa úr bænum um helgina og leigja sér hús í Stóru skógum í Munaðarnesi. Spáin fyrir helgina á Vesturlandi er mjög góð og tilvalið að skreppa í berjamó enda berjaspretta með besta móti í ár. Í Kaffi Munaðarnesi verður suðræn stemming á laugardagskvöldið þar sem Delizie Italiane skemmta gestum auk þess sem tilvalið er að snæða góðan kvöldverð fyrir dansinn. Húsin er hægt að bóka í gegnum heimasíðu BSRB eða hafa samband við skrifstofu BSRB í síma 525 8300.
Ráðgjafi á sviði starfsendurhæfingar hjá stéttarfélögum á Suðurlandi
26.8.2009
Samkomulag við Stætó samþykkt
24.8.2009
Samkomulag um breytingar og framlengingu á kjarasamningi milli St.Rv. og Strætó bs. var samþykkt með 68 atkvæðum eða 70,1%, 24 greiddu atkvæði á móti samkomulaginu eða 24,7%, auðir og ógildir voru 5 eða 5,2%. Atkvæði greiddu 97 eða 51,1% félagsmanna á kjarasamningi við Strætó bs.
Kórstarf BSRB að hefjast
21.8.2009
42. þing BSRB
18.8.2009
42. þing BSRB verður haldið á Grand hótel dagana 21. - 23. október nk. Áætlaður fjöldi þingfulltrúa er um 260 og verða þeim send öll gögn sem varða þingið fyrir lok september.
Samið við Strætó
18.8.2009
Atkvæðagreiðslu um kjarasamninga lokið
17.8.2009
Um BSRB
Á döfinni
Leit
























